Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1997, Qupperneq 26
LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1997
26 unglingar
12 ára hæfileikaríkur teiknari:
Finnst mjög
gaman að teikna
- segir Sigurður Hólm
Tvær af fjölmörgum teikningum
sem Siguröur hefur teiknaö. Hann
segist hafa mjög gaman af því aö
teikna risaeölur úr kvikmyndinni
The Lost World. DV-myndir E.ÓI.
„Ég var 5 ára þegar ég fékk þenn-
an mikla áhuga á að teikna. Þá byrj-
aði ég á fullu að teikna og finnst
þetta bara mjög gaman. Ég hef ver-
ið að teikna ýmislegt en skemmti-
legast finnst mér að teikna teikni-
myndafígúrur og risaeðlurnar úr
myndinni The Lost World. Svo
teikna ég oft köttinn minn, Hanni-
bal,“ segir Sigurður Hólm, 12 ára
hæfileikaríkur teiknari.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sig-
urður vakið mikla athygli fyrir
snjallcir teikningar sínar. Sigurður
er nemandi í Laugalækjarskóla.
Bjó til teiknimyndasögu
„Ýmsir hafa pantað hjá mér
tpilrnincTnr t H kprmíirnr nr clrnlan-
Siguröur Hólm aö teikna á heimili sínu á Laugarnesveginum. Sigurður seg-
ist hafa byrjaö aö teikna af fullum krafti þegar hann var 5 ára.
”, • ÍSjeS*"
um mínum. Þá hafa margar teikn-
ingar verið hengdar upp á veggi í
skólanum. Mér finnst sérstaklega
gaman að teikna fígúrurnar úr
teiknimyndasögunum Andrési önd
og Sval og Val. Þaðan fæ ég fjöl-
margar hugmyndir. Siðan lék ég
mér að því að búa til eigin teikni-
myndasögu. Hún heitir Dalur
Dúskanna og fjallar um alls konar
dýr sem búa í dal. Ég gerði nokkuð
margar sögur um Dal Dúskanna en
þær eru ekki allar fullkláraðar. Það
hafa ýmsir lesið þessar sögur, aðal-
lega vinir og kunningjar. Vinimir
eru nokkuð ánægðir með sögurnar
og teikningarnar. Þær hafa þó
aldrei verið gefnar út,“ segir Sigurð-
ur.
Tölva og fótbolti
Sigurður er yngstur þriggja systk-
ina. Hann segir að önnur áhugamál
hans fyrir utan að teikna séu að
leika sér í tölvunni og spila fótbolta
en hann æfir með Þrótti. Hann seg-
ir að frjáls teikning sé að sjálfsögðu
uppáhaldsfagið í skólanum.
„Ég stefni auðvitað lengra í teikn-
ingu og hef hug á að starfa við þetta
í framtíðinni,“ segir Sigurður. -RR
0if hliðin
Helena Ólafsdóttir. fyrirliði íslandsmeistara KR í kvennaknattspyrnu:
Vil spjalla við Gullit um þjálfun
Helena Ólafsdóttir var fyrirliöi íslandsmeistara KR í Stofndeildinni f
sumar auk þess aö stýra 2. flokki kvenna til sigurs í íslandsmóti og
bikarkeppni. Góö uppskera þaö! DV-mynd GVA
„Það var einstök tilfinning að
( vinna íslandsmeistaratitilinn. Það
var kominn tími á að stöðva
Blikanna. Annars er það skemmti-
legasta að við stelpumar erum
búnar að skáka karlaveldinu í
Vesturbænum því höfum verið að
vinna titlana fyrir KR en ekki
þeir,“ segir Helena Ólafsdóttir,
fyrirliði íslandsmeistara KR í
kvennaboltanum.
Helena hefur einnig gert þaö
gott sem þjálfari 2. flokks KR-
stúlkna því liðið varö bæði
p. íslands- og bikarmeistari í flokk-
hum á dögunum. Helena er auk
þess í íslenska landsliðinu.
I„Þaö var líka frábært að stýra
ungu stúlkunum til sigurs. Ég er
búinn að með þessar stelpur lengi
og þær eru þrælgóðar. Viö í
: kvennaboltanum í KR lögðum
mikið á okkur fyrir sumarið og
s; það skilaði árangri," segir Helena.
-RR
Fullt nafn: Helena Ólafsdóttir
Fæðingardagur og ár: 12. nóv-
ember 1969.
Kærasti: Birgir Hilmarsson.
Börn: Ólafur Daði, 15 mánaða.
Bifreið: Toyota Corolla ‘93.
Starf: íþróttakennari.
Laun: Allt of lág.
Hefur þú unnið í happdrætti
eða lottói? Nei, ég læt
unnunstann sjá um það.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast að gera? Spila fótbolta, vera í
góöra vina hópi og leika mér við
strákana á heimilinu.
Hvað finnst þér leiðinlegast
að gera? Strauja.
Uppáhaldsmatur:
Hamborgarahryggur með brúnu
sósunni hennar mömmu.
Uppáhaldsdrykkur: Diet kók.
Hvaða fþróttamaður stendur
fremstur í dag?Jón Arnar
Magnússon.
Uppáhaldstimarit:
íþróttablaðið.
Hver er fallegasti karlmaður
sem þú hefur séð? Mér frnnst
sonur minn fallegastur.
Ertu hlynnt eða andvígur rík-
isstjórninni? Hlynnt.
Hvaða persónu langar þig
mest til að hitta? Gæti hugsað
mér að hitta Ruud Gullit og spjalla
‘við hann um þjálfun.
Uppáhaldsleikari: Harrison
Ford.
Uppáhaldsleikkona: Demi
Moore.
Uppáhaldssöngvari: Páll
Óskar.
Uppáhaldsstjómmálamaður:
Halldór Ásgrímsson er traustur.
Uppáhaldsteiknimyndaper-
sóna: Móðir Barts Simpsons.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
íþróttir og góðar bíómyndir.
Uppáhaldsmatsölustað-
ur/veitingahús: Perlan.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Ég þarf að útvega mér
bókina Grandaveg 7 eftir Vigdísi
Grímsdóttur.
Hver útvarpsrásanna finnst
þér best? FM-957.
Uppáhaldsútvarpsmenn:
Stefán Sigurðsson og Þórhallur
Guðmundsson.
Hverja sjónvarpsstöðina horf-
ir þú mest á? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður:
Logi Bergmann Eiðsson.
Uppáhaldsskemmtistaður:
Rauða ljónið og Þjóðleikhúskjall-
arinn.
Uppáhaldsfélag í íþróttum?
KR.
Stefnir þú að einhverju sér-
stöku í framtíðinni? Langar að
prófa að búa í útlöndum og
kynnast einhverju nýju í framandi
landi.
Hvað gerðir þú 1 sumarfríinu?
Fór með fjölskylduna til Neskaup-
staðar á Neistaflug um verslunar-
mannahelgina.
. :