Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1997, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1997, Síða 31
LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1997 39 Reynisvatn: Paradís útivistar- mannsins - og feitir fiskar í vatninu í jaðri höfuðborgarinnar er paradís útivistarmannsins, Reynisvatn og ná- grenni. Þrátt fyrir að aðeins sé um funm mínútna akstur þangað úr mið- borginni er staðurinn gjörsamlega laus við skarkala borgarinnar. Nátt- úran blasir þar við í sínum fegursta búningi og ungir jafnt sem aldnir sækja þangað í tómstundum sínum. Við vatnið hefur verið komið upp glæsilegri aðstöðu fyrir útivistarfólk og veiðimennskan dafnar þar allt árið um kring enda er ávallt nóg af fiski í vatninu. Til þess sér Ólafur Skúlason og menn hans. „í ár höfum við sleppt 20 þúsund fiskum í vatn- ið, silungum og löxum, og nú hafa tæpir 14 þúsund verið veiddir. Að meðaltali veiðast hér tæplega eitt þúsund fiskar á viku, flestir á bilinu eitt til tuttugu pund,“ segir Ólafur. Komið hefur verið upp kvótakerfi á veiðileyfum við vatnið. Þá kaupa menn sér kvóta upp á fimm fiska og ráða hvenær þeir veiða þá. Ef illa gengur einn daginn þá er bara að koma aftur seinna og reyna að klára að veiða upp í kvótann. Gildir þá einu hvaða árstíð er því á vetuma er stunduð þar dorgveiði sem nýtur mikilla vinsælda. Ejölskyldur eru tíðir gestir við Reynisvatn og hjálp- ast þá gjaman aOir við að veiða upp í kvótann. Eins er veiðimennskan mikið ævintýri fyrir ferðamenn sem Veiði ánægjunnar vegna segir Guömundur Orri McKinstry veiðimaður „Síðasta vetur kom ég hingað um hverja helgi og oft á virkum dögmn líka,“ segir Guðmundur Orri McK- instry, en hann er sannarlega fasta- gestur við Reynisvatn. Guðmundur Orri er fimmtán ára gamall og býr í Grafarvogi og heimilið hans er aðeins steinsnar frá vatninu. „Það er svo stutt að fara þannig að ég geng oftast eða hjóla. Stundum tek ég bræður mína með og afi er líka duglegur að koma með mér,“ segir Guðmundur Orri. „Það er alveg sama hvernig viðrar, ég fer samt ef ég á lausan tíma. Auðvitað er frábært að vera þama í góðu veðri en það er heldur ekkert mál að klæða sig vel ef kalt er í veðri. Ég hef verið þama meira og minna í tvö ár og hef veitt sam- tals um hundrað fiska. Á sumrin veiði ég helst á flugu og það hefur gefist mjög vel. Á vetuma hins veg- ar virka hrognin betur og gervibeit- an en það er svona stappa af líf- fæmm úr fisk- um. Það er gott að nota það í dorg- veiðinni en finnst rosalega gaman að dorga í egn- J,, um is. ” g mer vatni, bæði í Þingvallavatni og Sel- vallavatni á Snæfellsnesi," segir Guðmundur Orri. Aðspuröur hvernig þessi mikli veiðiáhugi kviknaði sagði Guð- mundur Orri það hafa gerst í gegn- um föður hans. „Pabbi er með veiði- dellu og ég var auövitað oft með honum aö veiða þegar ég var lítill. Svo þegar ég fékk fyrstu veiðistöng- ina mína, tíu ára gamall, þá byrjaði þetta fyrir alvöru. Síðan þá hef ég verið á kafi í þessu. Ég veiddi i Veiðivötnum í sumar fimm punda fisk en hann er sá stærsti sem ég hef fengið hingað til. í Reynisvatni er mikill flskur og mér finnst oft leiðinlegt að þurfa að hætta. Til dæmis var ég þar í dag og hefði ég verið lengur en ég var er ég viss um að ég hefði dregið á land svona tuttugu til þrjátíu fiska. En kvótinn var því miður búinn,“ segir Guðmundur Orri. Veiðimanni þessum þykir fiskur- inn hins vegar ekki spennandi fæða. Hann gefur aflann venjulega eða set- ur hann í reyk. „Ég er eingöngu að þessu ánægjunnar vegna,“ segir hann. -ilk koma jafhvel allslausir að vatninu1" en fá þar það sem þeir þurfa til veiðiskaparins. „Hugmyndina að þessu kerfi sem við höfum hérna fékk ég í Banda- ríkjunum. Reyndar eru svona kvóta- kerfl við vötn viða í heiminum og njóta alls staðar mikilla vinsælda. Auk fjölskyldufólksins og ferða- mannanna, flykkjast einnig vanir veiðmenn hingað enda er staðurinn himnaríki flugustangveiðimanns- ins,“ segir Ólafur. Við vatnið er góð grillaðstaða og ósjaldan er aflinn matreiddur og et- inn á staðnum. Ef veiðin gengur treglega og menn orðnir svangir er hægt að kaupa heitan og kaldan mat í skálanum og borða hann í notaleg-- um matsal. Hann þurfti þó ekki að óttast hungurdauða, maðurinn sem blaða- maöur DV rakst á við vatnið. Hann var með tíu væna regnbogasilunga í farteskinu og hvíslaði því að blaða- manni, búralegur á svip, að hann hefði komist í feitan pytt þama hin- um megin við steininn. Hann varð að láta sig hafa það að borga fyrir umframveiðina því hann hafði að- eins kvóta upp á fimm fiska. „Ég bara gat ekki hætt, þetta var svo gaman," sagði hann. -ilk reyndar gert það víðar en Reynis : S* Guðmund- ur Orri McKinstry. Þórsmörk H á 1 e n d - istunga úr mó- bergi vestur frá Mýr- d a 1 s j ö k 1 i (Merkurjökli), sundurskorin af smádölum, giljum og hvömmum. Krossá markar Þórsmörk bás að sunn- an en Þröngá og Markarfljót að norð- an. Birkiskógur er mikill í dölum og á hæðum og breiðist ört út. Uppblástur hefur verið allmikill, einkum að vest- anverðu (á Merkurrana). Ásbjöm Reyrketilsson nam land á Þórsmörk og helgaði landið Þór að sögn Landnámabókar. Þrjú bæjarstæði eru nú þekkt þar. „Á miðbænum“ bjuggu Bjöm inn hviti og Valgerður Þorbrandsdóttir að sögn Njáls sögu. í Húsadal var síðast búið á árunum 1802-1803. Afhent Skógræktinni Afréttur á Þórsmörk var frá miðöld- um að hálfu eign Oddakirkju og að hálfu bændaeign í Fljótshlíð. Margar kirkjur áttu þar skógarítök. Árið 1919 rituðu 40 bændur í Fljótshlíð skóg- ræktarstjóra bréf þar sem farið var fram á að Skógrækt ríkisins tæki að sér vörslu Þórsmerkur og girti landið af því að það væri í stórhættu vegna uppblásturs. Var landið afhent Skóg- ræktinni og Mörkin ásamt nálægum afréttum sunnan Krossár girt árið 1924. Við friðun hefúr landið tekið miklum stakkaskiptum til bóta, upp- blástur hefur verið haminn að mestu og gróðri hefur fleygt fram. Á Þórsmerkur- svæðinu hafa fundist um 170 tegundir háplantna auk íjölmargra tegunda af mosum, fléttum og skófum. Vinsæll helgardvalarstaöur Fjallasýn af Þórsmörk er mikil og fógur til Mýrdalsjökuls, Eyjaijallajök- uls og Fljótshlíðar. Vandfúndin er öllu fjölbreytilegri fegurð á Islandi og minnir í ýmsu á Alpadali. Þórsmörk er í röð vinsælustu helg- ardvalarstaða landsins. Þangað eru nú reghibundnar áætlunarferðir á sumr- um á vegum Ferðafélags íslands, Úti- vistar og Austurleiðar á Hvolsvelli. Ferðafélagið á sæluhús í Langadal, Skagfjörðsskála, Austurleið annað vestan við Húsadal og Útivist hið þriðja í Básum á Goðalandi. Farfuglar hafa helgað sér Slyppugil innan við Langadal og gróðursett þar allmikið af trjáplöntum. Leið inn í Þórsmörk er aðeins fær stórum, traustum og aflmiklum bílum og einatt varasöm. Flugvöxtur í ám og sandbleytur hafa oft valdið ferðamönn- um erfiðleikum og enda slys orðið i ferðum. Er því ávállt varúðar þörf. Nú er komin göngubrú yfir Krossá, byggð 1986. -VÁ/íslandshandbókin FERÐIR Þú færð allar vinsælu borgarferðinar hjá okkur___________* f . „ M«sterda«"' stoo, * Fjöldi hótela í öllum verðflokkum * Sérstök verðtllboð fyrir hópa * Komdu til okkar og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig. V FerðaskriFstoFa stúdenta 561 5656 Stúdentaheimilinu v/Hringbraut sími: 561 5656, fax 551 9113 e mail: studtravel@centrum.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.