Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1997, Síða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1997, Síða 51
LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1997 íyndbönd 59 The English Patient mm Ralph Fiennes í hlut- verki enska sjúk- lingsins. Á innfelldu myndinni er Kristin Scott Thomas sem leikur ástkonu hans. Mar|fold áskaisverð- laumimynd Undir lok seinni heimsstyrjaldar- innar dveljast fjórar manneskjur í yfirgefnu itölsku klaustri. Niður- brotin hjúkrunarkona (Juliette Bin- oche) beinir öllum sínum kröftum að því að hjúkra sjúklingi sínum, enskum flugmanni með alvarleg brunasár. Þarna er einnig þjófur (Willem Dafoe) sem hefur notað hæfileika sína til að verða stríðs- hetja og ungur, indverskur sprengjusérfræðingur í breska hernum (Naveen Andrews). Þau segja hvert öðru sögur sínar þar sem rauði þráðurinn er minningar evrópsks aðalsmanns, Almasys greifa (Ralph Fiennes), og leiðangur hans í Sahara. Með í fór eru bresk- ur yfirstéttarmaður (Colin Firth) og kona hans (Kristin Scott Thomas). Sagan rennur í gegnum tvær ástar- sögim, frá sandauðnum Sahara til fábrotinna herspítala á Italíu og inn fyrir veggi klaustursins. Stærsti sjálfstæði fram- leiðandinn Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu eftir Michael Ondaatje. Anthony Minghella skrifaði hand- ritið og leikstýrði en Saul Zaents framleiddi. Saul Zaents er sá sjálf- stæðra framleiðenda sem hvað mestri velgengni á að fagna. Fyrsta myndin sem hann framleiddi vann til fimm óskarsverðlauna en það var One Flew over the Cuckoo’s Nest í leikstjórn Milos Formans. Eftir Three Warriörs og The Lord of the Rings hóf hann aftur samstarf með Milos Forman og úr varð Ama- deus sem vann til átta óskarsverð- launa. Síðan þá hefur hann fram- UPPÁHALDSMYNDBANDIÐ MITT Björgvin G. Sigurðsson, ritstjóri Stúdentablaðsins o Ég horfl talsvert á myndbönd en ef ég á að nefna einhverja uppá- haldsmynd þá kemur kvikmyndin Smoke eftir kinversk-bandariska leikstjórann Wayne Wang fyrst upp i hugann. Ég held ég megi segja að hún beri af öllum þeim kvikmynd- um sem ég hef séð á lífsleið- inni. Smoke er í alla staði mögnuð kvikmynd þar sem úrvalsleikararnir William Hurt og Harvey Keitel sýna glæstan leik. Smoke er gullaldar- kvikmynd sem hefur allt sem þarf að prýða góða kvikmynd. t henni er sögð mögnuð en í senn átakanleg og fyndin saga úr mannlífinu. Ég var heltekinn þegar ég sá þessa mynd í fyrsta skipti og ekki síður hrifinn þegar ég sá hana aftur. Af öðrum góðum myndbönd- um langar mig að nefna stórgóða franska mynd, Allir heimsins morgnar, sem ég sá um daginn. Þetta er stórbrot- in kvikmynd og ég mæli eindregið með henni. Svo er ein kvik- mynd sem ég horfi alltaf reglulega á, svona einu sinni til tvisvar á ári. Það er myndin Wild at He- art eftir meistara David Lynch. Nicholas Cage og Laura Dem sýna stórleik í þessari mynd og út- koman er í einu orði sagt kynngimögnuð. Það er búið að stæla þessa mynd margoft en enginn hefur enn komist með tærnar þar sem David Lynch hefur hælana. leitt myndirnar The Mosquito Coast, The Unbearable Lightness of Being, At Play in the Fields of the Lord og nú The English Patient. Rithöfundurinn og ljóðskáldið Michael Ondaatje er kanadískur ríkisborgari, fæddur í Sri Lanka og gekk menntaveginn í Englandi og Kanada. 1992 gaf hann út frægustu skáldsögu sína, The English Patient, sem hlaut mikið lof og vann m.a. til ensku Booker-verðlaunanna og var það í fyrsta skipti sem kanadískur höfundur hefur unnið þessi virtustu bókmenntaverðlaun Englands. Fljótlega eftir útgáfu bókarinnar komu Anthony Minghella og Saul Zaents að máli við Ondaatje og ákveðið var að ráðast í gerð mynd- ar eftir bókinni. Skáldsaga Ondaatje er mjög ljóðræn og hefur ekki skýrt afmarkaðan söguþráð. Anthony Minghella þurfti þvi að byggja form- lega grind utan um þá þræði bókar- innar sem mestu máli skiptu til að skapa mynd með upphaf, miðju og endi. Þess má geta aö Michael Onda- atje var hæstánægður með útkom- una þótt hún væri töluvert breytt frá bókinni. Gæðaleikarar Ralph Fiennes hafði leikið í einni kvikmynd þegar Steven Spielberg fékk hann til að leika SS-foringjann í Schindler’s List. Túlkun hans afl- aði honum óskarsverðlaunatilnefn- ingar og skaut honiun upp á stjömuhimininn í Hollywood. Næstu myndir hans vora Quiz Show og Strange Days. Juliette Binoche leikur jafnt í frön- sku- mælandi og ensku- mælandi mynd- um. Hún hóf feril sinn undir Jean-Luc Godard í Je Vous Salue Marie en fyrsta ensku- mælandi mynd hennar var The Unbearable Lightness of Being. Með- al mynda hennar eru Damage og Blue; ein mynd- anna í lita- seríu Krysztofs Kieslowskis, en fyrir frammistöðu sína í þeirri mynd hlaut hún Cesar-verðlaunin. Willem Dafoe hefur leikið í á þriðja tug mynda síðan hann fékk sitt fyrsta hlutverk, smáhlutverk í Heaven’s Gate árið 1980. 1985 lék -r' hann illmenni í To Live and Die in L.A. og fékk síðan ósk- arsverðlaunatilnefningu fyrir túlkun sína á góðlegum her- manni með samvisku í Platoon. Meðal annarra mynda hans má nefna The Last Temptation II of Christ, Mississippi Jf Burning, Born on the Fourth of July, Wild at Heart, Clear and Pres- ent Danger, Tom and Viv og Speed 2: Cruise r" Control. Breska leikkonan Kristin Scott Thomas leikur eins og hinu franska Juliette Binoche bæði í frönsku- og ensku- mælandi mynd- um en hefur hin síðari ár einkum leikið í ensku- mælandi mynd- um eftir að hún sló í gegn 1994 með leik sínum í Bitter Moon og Four Wedd- ings and a Fun- eral. Hún er af- * kastamikil en meðal nokkurra mynda sem hún hefur leikið í síðan eru Ric- hard III og Mission: Impossible. -PJ Progain-159 er uppáhalds próteíniö mitfc. ÞaÖ hleypur ekkl í kekkl, blandast auöveldlega viö vatn eöa lóttmjólk meö skeið og er hrikalega gott. ÞaÖ er sórstaklega árangursríkt þegar ég er aö byggja upp vöövamassp og styrk. Magg1 ®ess j . .... jlM ’Wa Síenstp Come in several great tastlng flavours. Have a superlor biological value of 169bc. Contaln all protein amlno-acids, 8 essential amino-aoids and 3 BCAA amlno-aclds. Contain a whopplng 49% BCAA content. Supported by medlcal, olinlcal and trading standards. Used by the leading Britlsh, Olympic and World athletes. Egg, milk and lactose free, for no stomach upsets. f(ikfllOr/CUðll ítöölflá’l Come wlth its own free shaker? (limited offer) Sendum í póstkröfu um land allt Maximuscle umboðsaðili: Kynning - smökkun 008(30, Sími: 899-0344 Símboði: 842-2644

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.