Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1997, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 Útlönd Yassin, stofnandi Hamas, vígreifur heima í Gaza: Hörð skilyrðl fyrir vopnahléi við ísrael Ahmed Yassin, stofnandi Hamas- samtakanna, sem Israelsmenn slepptu úr fangelsi í síðustu viku, sagði í morgun að hann mundi gera vopnahlé við Ísraelsríki ef það kall- aði heim alla hermenn sína frá Vesturbakkanum og Gaza og fjar- lægði allar landnemabyggðir gyð- inga. Yassin, sem er 61 árs, flaug heim til Gaza frá Jórdaníu í gær og var honum ákaflega fagnað af stuðn- ingsmönnum sinum. Heimferð Yassins er hluti samnings sem ísra- elsmenn voru neyddir til að gera vegna misheppnaðrar tilraunar ísraelskra leyniþjónustumanna til að myrða einn leiðtoga Hamas i Jórdaníu með eitri. Tilræðismen- irnir tveir voru einnig leystir úr haldi og fengu að fara aftur heim til ísraels. Benjamin Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels, sætir harðri gagn- rýni fyrir að hafa fyrirskipað út- sendurum leyniþjónustunnar Mossad að ráða Khaled Meshal af dögiun i síðasta mánuði. Forsætisráðherrann tók á sig alla ábyrgð á morðtilrauninni, sagði hana hafa verið réttlætanlega en neitaði að ræða málið frekar. Þá skipaði hann sérstaka nefnd sem á að rannsaka árásina. Hann bað Jórdani ekki afsökunar á framferði útsendaranna og hét því ekki aö tilræði af þessu tagi mundi ekki endurtaka sig. Bill Clinton Bandaríkjaforseti vildi ekkert tjá sig um tilræðið en benti jafnframt á að það væri ekki stefna Bandaríkjanna að stunda launmorð. Meshal, sem var bjargað með móteitri frá ísrael sem var sent til Jórdaníu, sagði í gær að með því að sleppa leyniþjónustumönnunum tveimur væri verið að hvetja ísraela til að láta aftur til skarar skríða. ísraelsmenn létu lausa tuttugu Palestínumenn og Jórdani til við- bótar og fimmtíu verða látnir lausir á næstu tveimur vikum. ísraelar sögðu að mennirnir hefðu ekki gerst sekir um ofbeldisglæpi. ísra- elska rikissjónvarpið sagði hins vegar að sex þeirra hefðu verið að afplána langa fangelsisdóma fyrir skæruliðaárásir. Á meðan þessu fór fram hófust friðarviðræður Palestínumanna og ísraela aftur eftir sjö mánaða hlé fyrir tilstilli Dennis Ross, sendi- manns Bandaríkjastjómar. Þeir David Levy, utanríkisráðherra Isra- els, og Mahmoud Abbas, einn for- ingja PLO, ræddu saman í tvær klukkustundir. Reuter Þaö var létt yfir þeim Halimu Yassin, eiginkonu Ahmeds Yassins, stofnanda Hamas-samtakanna, og Suhu Arafat, eig- inkonu Yassers Arafat, þegar þær biöu eftir aö þyrla meö Yassin um borö kæmi til Gaza frá Jórdaníu. ísraelsmenn slepptu Yassin í síöustu viku og fluttu til Jórdaniu en hann fékk aö fara heim í gær. Símamynd Reuter Breski forsætisráöherrann gerir þaö gott í Moskvu: Blair í bjarnarhrammi og rússneskri sápuóperu Tony Blair, forsætisráöherra Bretlands, lék sjálfan sig í sápuóperu í rúss- neska útvarpinu í heimsókn sinni til Moskvu í gær. Hér má sjá tæknimann útvarpsins benda Blair á hvenær hann eigi aö tala. Sfmamynd Reuter Bandaríkja- menn kalla Vojislav Seselj fasista Fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Júgóslavíu, Ro- bert Gelbard, kallaði í gær Voj- islav Seselj, forsetaframbjóðanda í Serbíu, fasista sem ekki væri hægt að starfa með. Seselj og Zoran Lilic, sem báðir voru í framboði í forsetakosningunum í Serbíu á sunnudaginn, fullyrtu báðir að þeir hefðu fengið meiri- hluta. Kosningaúrslitin verða hins vegar líklega ógilt þar sem kosningaþátttakan var undir 50 prósentum. Heim eftir langdvöl í M«r Bandaríski geimfarinn, Mich- ael Foale, er nú kominn heim eftir fjögurra og hálfs mánaðar dvöl í rúss- nesku geim- stöðinni Mír. Foale kom meö banda- risku geimferj- unni Atlantis sem lenti við Kennedy geimvísindastöðina í Flórída í gærkvöld. Annar Bandarikjamaður, David Wolf, tók við af Foale í Mír. Miklir fagnaðarfundir urðu með Foale er hann hitti böm sín og eiginkonu að lokinni læknis- skoðun. Foale langaði mikið til að gæða sér á lasagna og pítsu. Hann gat einnig hugsaö sér hell- ing af súkkulaði og bjór. Geimferjan Atlantis var sex daga við Mir á meðan verið var að skipta um geimfara og af- henda búnað. Kúariða vegna breyttra aðferða Nóbelsverðlaunahafinn í læknisfræði, Stanley B. Prusiner, segir að breskir fæðu- framleiðendur kunni að hafa skapað kúariðu með því að breyta aðferðum sínum við framleiðslu á kjöti með miklu prótíni. Stanley hlaut verðlaunin fyrir uppgötvun sína á príóni er hann segir valda sjúkdómnum. Hann kveðst hafa hugmyndir um lyf gegn þessum heilahrörn- unarsjúkdómi. Prusiner sagði augljóst að kúariða væri smitandi. Hann gat þess að yfir 90 manns hefðu feng- ið Creutzfeldt-Jakob veikina eft- ir aö hafa fengið vaxtarhormón úr hræjum. Núna væru gervi- hormón notuð. Reuter Borís Jeltsín Rússlandsforseti lék á als oddi þegar hann fékk Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, í stutta heimsókn til sín í Moskvu i gær og tók hann í bjarnarhramm sinn, eins og Rússa er siður. „Ég er mjög hrifmn af ungu at- orkusömu fólki og Tony Blair er yngsti breski forsætisráðherrann í mörg herrans ár,“ sagði Jeltsín eftir viðræður þeirra sem stóðu lengur en áformað var. „Hann er afskap- lega atorkusamur stjórnmálamað- ur.“ Leiðtogarnir tveir ræddu stækk- un NATO, stefnu bresku stjómar- innar gagnvart ESB og Tsjetseníu. Þá undirrituðu þeir samning um samvinnu í baráttunni gegn glæp- um. Haustrigningar í Moskvu komu í veg fyrir að Blair gæti farið í fyrir- hugaða gönguferð um Rauða torgið. Þess í stað heimsótti hann verslana- miðstöð og rússneskum öryggis- vörðum til mikillar armæðu heils- aði hann upp á almenning í þéttset- inni jarðlest. Síðast en ekki síst var Blair feng- inn til að koma fram i sápuóperu í rússneska útvarpinu. Söguþráður- inn gengur út á það að Blair lætur stöðva bílalest sína svo hann geti komið til hjálpar saumakonu einni sem missti ávextina sína í götuna. Hann notar tækifærið til að brýna fyrir henni mikilvægi menntunar. Reuter Stuttar fréttir i>v Kínverjar vara við Kínversk yfirvöld vöruðu í morgun Evrópuþjóðir við alvar- legum afleiöingum taki þær á móti varaforseta Taívans í heimsókn. Jarðskjálfti á Ítalíu Kirkja heilags Frans í Asissi skemmdist í nýjum jarðskjálfta sem reið yfir miðhluta Umbríu. Elísabet til Pakistans Elísabet Englandsdrottning kom til Pakistans í opinbera heimsókn. Er það fyrsta for hennar til út- landa eftir fráfall Díönu prinsessu. Tilefni heim- sóknarinnar eru hátíðar- höld vegna 50 ára sjálfstæðis Indlands og Pakistans. Sekt fyrir biómastuld Tvær táningsstúlkur, sem stálu blómum fyrir utan ráðhús- ið í Chester er lögð höfðu verið þar í minningu Díönu, voru dæmdar í rúmlega 10 þúsund króna sekt hvor. Kaffihúsi lokað Borgaryfirvöld í Vitrolle, þar sem Þjóðfylkjng Le Pens fer með völdin, lokuðu í gær kaffihúsi sem var miðstöð gagnrýnenda yfirvalda. Kennurum skipað fyrir Stjórnvöld í Kenýu skipuðu kennurum, sem verið hafa í verkfalli, að snúa aftur tU starfa. Þeim sem ekki hlýða er hótað refsingu. Gegn haröari lögum Blaðaútgefandinn Rupert Murdoch hvetur alla fjölmiðla tU að standast þrýsting um harðari lög tU að vernda einkalíf manna í kjöl- far andláts Díönu prinsessu. Murdoch seg- ist ekki iðrast þess að hafa notfært sér þjón- ustu paparassa. Það eina sem hann iðriðist sé að hafa greitt þeim of mikið. 400 falla í bardögum Yfir 400 hafa faUið undan- farna tvo daga á Sri Lanka í bar- dögum milli hermanna og Ta- mUa. Deyja úr hungri Að minnsta kosti 413 hafa lát- ið lífið í Irian-héraði í Indónesíu úr hungri og sjúkdómum vegna þurrka. Sendiherra hættir Sendiherra Kanada í Mexíkó hefur sagt af sér eftir að hafa gagnrýnt opinberlega yfirvöld í Mexíkó fyrir spUlingu. Kaffiboð Clintons Hvíta húsið tilkynnti í gær að fundist hefðu fleiri myndbands- upptökur af kaffiboðum Clintons for- seta fyrir þá sem lögðu fram fé i kosn- ingasjóði. Tilkynnt var að mynd- böndin yrðu afhent þingnefnd tU rann- sóknar. Ekki er útilokað að fleiri myndbönd eigi eftir að koma í leitirnar. íran gagnrýnir Talebana Yfirvöld í íran hafa gagnrýnt hennenn Talabana í Afganistan fyrir að hafa handtekið íranska verkamenn á sjúkrahúsi nálægt borginni Mazar-i Sharif. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.