Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1997, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1997, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER 1997 15 Asta Hrafnhildur Garðarsdóttir, umsjónarmaður Stundarinnar okkar: 32 töskur með hlutverk Asta Hrafnhildur meö töskusafniö í fanginu. Hún hefur safnaö töskum frá því hún var smástelpa og á nú yfir þrjátíu. DV-mynd E.ÓI. vinna að undirbúa þátt sem Stund- ina.“ Fyrsti þátturinn hefur þegar verið sýndur og ljóst að Ásta Hrafn- hildur fetar ekki fornar slóðir. Víkjum aftur að töskunni. „Ég veit ekki hvar ég á að byrja, ég er greinilega með svo mikið dót. Fast- ir liðir i minni tösku eru hlutir á borð við snyrtidót, penna, peninga- veski, gleraugnahús og dagbók. Gamlir bíómiðar og blautir sokkar af syninum og notuð lyfjabox vilja þó ílengjast í töskunni," segir Ásta Hrafnhildur að lokum. -aþ Flestum konum nægir að eiga nokkrar töskur. Því er ekki svo farið um Ástu Hrafn- hildi Garðarsdóttur, kennaranema og nýjan umsjónarmann Stundar- innar okkar i Sjónvarpinu. „Já, það er rétt, ég á mikið tösku- safn, ætli þær séu ekki rúmlega þrjátíu. Ég hef verið svona frá því ég var krakki og eignaðist fyrstu skólatöskuna. Mín- ar töskur gegna allar ákveðnu hlutverki eða eiga í það minnsta að gera það. Ég er með sérstaka skólatösku, sundtösku, leikfimitösku og svo fram- vegis.“ Á s t a Hrafnhildur Ómissandi hlutir í lífi Ástu Hrafnhildar Garöarsdóttur. DV-mynd E.ÓI. tók nýlega við starfi umsjónar- manns Stundarinnar okkar auk þess að vera á síðasta ári í Kennaraháskólanum. Æfingaáætlanir, geisla- diskur, pappirar og möpp- ur tengjast greinilega hinum vinsæla barnaþætti. „Ég hef dálítið verið að vinna heima enda er mikil er með svartan leðurpoka í dag og þegar hún byrjar að tína upp úr henni kemur í ljós að innihaldið er í fjölbreyttara lagi. Taskan virðist rúma óendanlega marga hluti. Talsvert er um hluti tengda starf- inu en Ásta Hrafnhild- Vor- og sumartískan í Mílanó: Með Maríu mey á barminum Itölsku tískuhönnuðirnir Domenico Dolce og Stefano Gabbana sýndu vor- og sumartískuna 1998 síðastliðinn sunnudag. I vor- og sumarlín- unni mátti glöggt sjá að föt úr gegnsæjum efnum eru ríkjandi. Svartir hnésokkar og treflar með ísaumuðum litskrúðugum blómum verða einnig í brennid- epli. Þá vöktu nýstárleg mynstur hönnuðanna mikla athygli þar sem gömul málverk af Mariu mey og Jesúbarninu eru yfir- færð á boli og peysur. Breska súpermódeliö Kate Moss sýnir hér glæsilegan samkvæmiskjól ítölsku hönn- uöanna Dolce og Gabbana. I Eitt þemaö hjá Dolce og Gabbana var María mey og Jesúbar- niö sem sést glöggt á þessari mynd. Fylgstu með DV! Þú getur átt von á skemmtilegri ferð til Edinborgar sem er rómuð fyrir menningu, arkitektúr, verslun og fjöibreytt skemmtanalíf. Einn þeirra sem leikð hefur James Bond er skoskur. Hvað heitir hann? Sendist til DV - Þverholt 11 -105 Reykjavík - Merkt: Edinborg Taktu þátt í spennandi getráun á vegum ferdaskrifstofunnar Úrvals Útsýnar og DV og þú gætir unnid ferd fyrir 2 til Edinborgar. Frá iaugardeginurh 4. oktober til og med laugardeginum 11. október birtast þátttökuseðlar iDV. Safnadu öllum 7þátttokusedlunum saman, fylltu þá út og sendu iil okkár og þú ert kominn f pottinn. Spurning nr. 3.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.