Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1997, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997
7
DV Sandkorn
Góðir sundmenn
íslenskir sjómenn eru upp til
hópa miklir atgervismenn og sund-
menn góöir. Ekki er þó víst aö
margir standi skipveriunum á Stíg-
anda ÓF 25 á sporði í þessum efn-
um, ef marka
má frásögn í
nýju tölublaði
Sjómanna-
blaösins Vík-
ings. í mynda-
texta með
grein um upp-
haf tilkynn-
ingaskyldu er
sagt frá þvi á
eftirfarandi
hátt hvernig
áhöfnin á Stíganda bjargaðist úr
sjávarháska: „Stígandi OF 25 (áður
Skagfirðingur) sökk 28. ágúst 1967.
12 manna áhöfn bjargaðist um borð
í gúmmíbjörgunarbát eftir fimm sól-
arhringa."
Rússneskir rifflar
Þegar Rússar
gerðu innrás-
ina í Tékkósló-
vakiu árið 1968
var Ólafur
nokkur, sem
margir þekkja
undir nafninu
Óli kommi,
auglýsinga-
stjóri á Þjóð-
víljanum sál-
uga. Þegar
fréttaflutningur flölmiðla stóð sem
hæst af innrásinni hringdi Óli
kommi i Eirík Ketilsson stórkaup-
mann og bauð honum heilsíðuaug-
lýsingu í blaðinu sem hann var bú-
inn að hanna. Auglýsingin var
þannig að undir mynd af rússnesk-
um hermönnum, gráum fyrir jám-
um á götu í höfuðborginni Prag,
stóð: „Rússneskir rifflar bregðast
ekki þegar á reynir'-. Eiríkur, sem á
þessum tíma var umboðsmaður fyr-
ir rússneskar byssur, vildi óður og
uppvægur kaupa auglýsinguna.
Hún birtist hins vegar aldrei þar
sem ritstjórum blaðsins þótti ekki
gæfulegt að hafa mikið alvörumál í
flimtingum.
Kolkrabbans illi
ísfirskúr sjó-
maður, sem er
litt hrifinn af
vestfirskum
útgerðarmönn-
um og finnst
þeir tala tung-
um tveim um
hagræðingu og
eflingu vest-
firskrar byggðar, hefur meitlað
hugsanir sínar í bundið mál fyrir
Sandkom með eftirfarandi hætti:
„Þeir boðuðu breytta tima
og blómlega betri byggð.
Fljótlega féll sú gríma
með þvílíkri viðurstyggð.
Þeir bera sig vel í blöðum
og hafa á öllu lag
en eru á bak við tjöldin
að efla sinn eigin hag.
Hér forstjómm hefur fækkað
og fylgir þeim hluthafakóð.
Þeir vom manna mestir,
meðan á rekstrarleik stóð.
Illan þeir hafa þankann,
engva þeir hafa tryggð.
Víst er þeim alveg sama
þótt sofni nú heimabyggð.
Kolkrabbans illi angi,
öflugt reynist hans sog.
Heyrst hefur talað um Harlem,
Kringlu og Kópavog.
Nú er það búið
Bjami Jónas-
son, sem lengi
rak Eyjaflug,
segist í viðtali
við Fréttir i
Vestmannaeyj-
um aldrei hafa
lagt það í vana
sinn að hræða
farþega sína
vísvitandi.
Hann hafi þó óviljandi verið nærri
því að skelfa liftómna úr fólki þeg-
ar hann reyndi að hughreysta það.
Það hafi gerst þannig að eftir að
hafa verið búinn að fljúga í gegnum
hið ókyrra loft í kringum Eyjar,
með tilheyrandi veltingi og dýfum,
hafi hann oft sagt við farþegana:
„Nú er það búið.“ Bjami segist
aldrei hafa sagt þessi orð eftir að
hafa áttað sig á því að farþegamir
túlkuðu þau þannig að nú væm sið-
ustu augnablikin mnnin upp.
Stefán Ásgrimsson
Préttir
Sameiginlegt framboð á Akureyri:
Næst samkomulag um
röðun í efstu sætin?
- Sigríöur Stefánsdóttir hættir í bæjarstjórn
DV, Akureyri:
Talið er líklegt að það skýrist nú
í vikunni hvort flokkarnir sem hafa
átt í viðræðum um sameiginlegt
framhoð fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingarnar á Akureyri, nái samkomu-
lagi um röðun í efstu sæti lista slíks
framboðs. Sú tillaga sem helst er
rædd í því sambandi er að Alþýðu-
bandalagið sem hefur tvo fulltrúa í
bæjarstjóm i dag fái 1. og 3. sæti
listans, Alþýðuflokkur sem hefúr
einn bæjarfulltrúa fái 2. sætið en 4.
sætið fari til Kvennalista eða
Grósku.
„Þetta er tilhögun sem við Al-
þýðubandalagsfólk getum fallist á.
Aðalatriðið í þessu máli er hins veg-
ar að þannig raðist á listann að
hann verði traustvekjandi og þar
komi inn samhent fólk,“ segir Sig-
ríður Stefánsdóttir bæjarfulltrúi og
oddviti Alþýðubandalagsins á Akur-
eyri. Sjálf hyggst Sigriður draga sig
í hlé frá bæjarmálapólitíkinni.
„Ég hef tilkynnt mínum félögum i
Alþýðubandalaginu að ég verði ekki
í framboði við kosningamar á
næsta ári,“ segir Sigríður. Hún kom
inn í bæjarstjórn á miðju kjörtíma-
bili árið 1984 og hefur því setið í
bæjarstjórn í 14 ár samfleytt þegar
kjörtímabilinu lýkur næsta vor.
Á aðalfundi Alþýðubandalagsins
var samþykktur stuðningur við
áframhald þeirra viðræðna sem
fram hafa farið að undanfömu mibi
fubtrúa Alþýðubandalagsins, Al-
þýðuflokks og Kvennalista um sam-
eiginlegt framboð fyrir kosningam-
ar á næsta ári. „Ég er bjartsýn á að
það geti orðið af þessu, en vinnan er
þó ekki búin,“ segir Sigríður Stef-
ánsdóttir.
Alþýðubandalagið er í minni-
hluta í bæjarstjóm á Akureyri, en
Alþýðuflokkurinn í meirihlutasam-
starfl með Framsóknarflokknum.
„Sú staða er ekkert erfið fyrir okk-
ur. Vissulega væri auðveldara að
fást við þetta ef flokkarnir væra
báðir sömu megin við borðið en það
má líka segja að ákvörðun um sam-
Kristinn Kristjánsson verksmiðjustjóri er hér við færibandið í vinnslusal
rækjuverksmiðjunnar í Súðavík. DV-mynd ÞÖK
Rækjuverksmiöjan í Súðavík:
Góð veiði og
vinnsla á fullu
eiginlegt framboð verður djarfari,
verði hún tekin,“ segir Sigríður.
Kratar tilbúnir
„Alþýðuflokksfélögin hér í bæn-
um hafa lýst yfir áhuga á að það
verði látið á það reyna hvort sam-
komulag næst mibi flokkanna um
sameiginlegt framboð en viðræð-
umar era ekki langt komnar," segir
Gísli Bragi Hjartarson, bæjarfull-
trúi Alþýðuflokksins.
Hann segir of snemmt að segja til
um með hvaða hætti efstu sæti slíks
framboð yrðu ákveðin. „Mér finnst
eins og það gæti orðið með öðrum
hætti en rætt hefur verið um og það
myndi geðjast mér betur án þess að
ég vilji fara nánar út í það mál,“
segir Gísli Bragi. Um það hvort
hann gefi kost á sér í framboð segir
hann. „Þá yfirlýsingu gef ég ekki
fyrst i fjölmiðlum. Ég tek ákvörðun
um það í samráði við mína stuðn-
ingsmenn þegar þar að kemur.“
-gk
Nú bjóöum við vetrardekk á felgum
tilbúin undir bílinn á einstöku verði.
175/70R13 (VW).verð pr. 4 stk. kr. 38.000.-
175/70R13 (MMC frá '93)..verð pr. 4 stk. kr. 38.000.-
145-13 (VW POLO).verð pr. 4.stk. kr. 32.000.-
H
HEKLA
varahlutaverslun
- segir verksmiðjustjóri
DV, Súðavik:
„Það hefur verið góð rækju-
veiði og vinnsla er á fullu hér í
verksmiðjunni. Við erum ágæt-
lega vel vélbúnir og höfum sam-
þykki inn á alla helstu kaupend-
ur í Bretlandi sem gera hvað
mestar kröfur,“ segir Kristinn
Kristjánsson, verksmiðjustjóri í
rækjuverksmiðjunni í Súðavík.
Um 30 manns starfa í þessu
stærsta fyrirtæki í Súðavík.
Húsnæðinu var breytt fyrir
nokkrum árum. Þá var allri fisk-
vinnslu hætt og rækjuverk-
smiðja sett á stofn í staðihn.
„Það eru tvö skip sem landa
hér reglulega. Bessi er annað
þeirra og hann er nýkominn úr
Flæmska hattinum þar sem
veiði gekk nokkuð vel. Það er
full keyrsla með rækjuna og
unnið aílt árið,“ segir Kristinn.
-RR
PSfttlf
I § m
Sigfús Halldórsson, minningartónlcikar.
Stórtónlei
íHáskólabíói sunnudaginn 19.okt. kl.16:00
Miðasala er hafin í Háskólabíói. Númeruð sæti.
Öll tónlistin verður eftir Sigfús Halldórsson, m.a. þrjú óbirt lög
og nýr texti eftir Ómar Ragnarsson, sem er kynnir tónleikanna.
Dagskrá:
Einsöngvarar verða: Jóhanna Linnet, Signý Sæmundsdóttir,
Egill Ólafsson, Eiríkur Hreinn Helgason og Friðbjörn G. Jónsson.
Karlakór Reykjavíkur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar
og léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur undir stjórn Jóhönnu
Þorhallsdóttur syngja. Píanóleik annast Jónas Ingimundarson,
Sigurður Marteinsson og Aðalheiður Þorsteinsdottir.
Strengjakvintet leikur ásamt flautu, óbói, klarinettu og horni.
Tónleikarnir eru haldnir aö frumkvæði Lionsklúbbsins Ægis, en Sigfús var Lionsfélagi í áratugi.
Ágóði rennur til Iíknarmála m.a. til verkefna að Sólheimum í Grímsnesi o. fl.
Styrktaraðilar tónleikanna:
SJOVA'
LMENNAR
C3 PiOMEEJ?
_ B R Æ O U R N I R
mcmMssm
lógmúIo 8 • Slmi 533 2800
Landsbanki
ísiands
Bankl allra landsmanna