Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1997, Blaðsíða 28
M
v-W
£_ XOk ,
mmm s œf
m
T.K
'fcíojml
"' *'..
if ■ ífötó
K S Hsll' jmm
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
w ‘ 1 * II - I
.sy-mjík íb idíij
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTOBER 1997
Miklar framkvæmdir standa yfir í Eyrarfjalli fyrir ofan Flateyri. Par er unnið við umdeiidar snjóflóðavarnir. Mörg tonn af jarðvegi eru flutt tii og mynda varnargarðinn.
DV-mynd ÞÖK
Hveragerði:
Flutningabíll
valt
Vöruflutningabíll valt á hring-
torginu í Hveragerði um fimmleytið
i gær. Engin slys urðu á mönnum.
Bíllinn var með fullfermi af timbri
þegar slysið varð. Að sögn lögreglu
er talið að bíllinn hafi farið á of mikl-
um hraða inn á hringtorgið og öku-
maður misst stjómina. -RR
Komst út úr
brennandi bíl
Ökumaður komst naumlega út úr
brennandi bíl sínum á Eyrarbakka-
vegi í gærkvöld.
Eldur blossaði skyndilega upp í
bílnum sem er kominn nokkuð til
ára sinna. Ökumaðurinn fékk ekki
við neitt ráðið. Slökkvilið kom á
vettvang skömmu síðar og slökkti
eldinn en bíllinn er ónýtur. Öku-
manninn sakaði ekki. -RR
HafnarQörður:
Eldri maður
fyrir bíl
Maður um sjötugt varð fyrir bíl á
gatnamótum Reykjavíkurvegar og
Hjallahrauns í Hafnarfirði í gærdag.
Maðurinn var fluttur á slysadeild.
Hann hlaut talsverða höfuðáverka
en mun ekki vera í lífshættu. -RR
Tveir „stútar"
teknir
DV, Akureyri:
Lögreglan á Akureyri hafði hend-
ur í hári tveggja ökumanna í nótt
sem grunaðir eru um ölvunarakstur.
Annar þeirra tók bíl kunningja
síns ófrjálsri hendi og var gómaður
skömmu síðar. Hinn ók niður um-
ferðarmerki í bænum og náðist í
framhaldi af því. -gk
ATTI DENNI EKKI
HEIMANGENGT?
íslenskir bankamenn á tölvusýningu yfir hálfan hnöttinn:
Milljónaferð
til Astralíu
„Þetta eru tiltölulega ódýrar
ferðir. Þessar lengri ferðir eru
ekki hlutfallslega dýrari en t.d.
ferðir til nokkurra borga í Evr-
ópu. Þetta kostar náttúrlega
meira en ferð til Kaupmanna-
hafnar en þama var, að því
ég best veit, einhver pakki í
boði,“ segir Brynjólfur Helgason
aðstoðarbankastjóri Landsbank
ans, um vikuferð bankamanna
til Ástralíu á ráðstefnu og tölvu-
sýningu sem haldin var á veg-
um SWIFT-peningaflutningafyr-
irtækisins. Þeir sem fóru til Ástr-
alíu voru Marínó Sveinsson frá
Landsbankanum, Helgi Stein-
grímsson, framkvæmdastjóri
Reiknistofu bankanna, Sveinn
, Jónsson, aðstoðar-
>3 bankastjóri Búnað-
;f;: arbankans, og Hall-
dór S. Magnússon,
yfirmaður greiöslu-
miðlunarsviðs ís-
" * “ landsbanka.
Arlegur viðburður
Brynjólfur segir ráðstefnu sem
slíka vera árlegan viðburð, þótt
undantekning sé að svo langt sé
farið sem nú var. Brynjólfur sem á
einnig sæti í stjórn Reiknistofu
bankanna segist ekki vita hver
kostnaður var við ferðir, uppihald
og dagpeninga. Samkvæmt þeim
upplýsingum sem DV aflaði sér
kostar um 235 þúsund krónur að
fljúga frá íslandi til Sidney
í Ástralíu, fram og til baka
ef tekið er almennt fargjald.
Hægt er gera samning um
verð og þá verður kostn-
aðurinn helmingi lægri
eða 135 þúsund krónur.
Dagpeningar á dag nema
um 15 þúsundum króna.
Ætla má að heildarkostn-
aður bankakerfisins
vegna fararinnar nemi á
þriðju milljón króna.
„Það fór frá okkur starfsmaður
á alþjóðasviðinu en hann er jafh-
framt formaður SWIFT-nefndar-
innar. Um þetta fyrirtæki fara all-
ar peningagreiðslur til og
frá landinu og það er
full ástæða fyrir
okkur til að
senda mann.
Þama er sýndur allur nýjasti
tæknibúnaður á þessu sviði. Þetta
er auðvitað langt að fara en við
teljum nauðsynlegt að okkar sér-
fræðingEu- fylgist með því sem er
að gerast,“ segir Brynjólfur.
Aðspurður hvort bankinn hefði
borgað undir maka bankamann-
anna sagði Brynjólfúr það vera af
og frá, aðeins hefði verið greitt
fyrir viðkomandi starfsmenn.
Sveinn Jónsson, aðstoðarbanka-
stjóri Búnaðarbankans og einn
Ástralíufaranna, tók í sama
streng. Hann sagði í samtali við
DV að um hefði veriö að ræða
mjög ódýra ferð og gagnlega.
„Fargjaldið nam á bilinu 9 til 10
þúsund danskra króna. Mönnum
finnst þetta kannski langt að fara
en þetta er mun ódýrara en ferð-
ast til Evrópu. Þar munar mestu
að hótelkostnaður er mun lægri,“
segir Sveinn. Hann segir það
einkamál sitt hvort maki hans
hafi verið með í fór enda kæmi
aldrei til greina að láta bankann
greiða fyrir slíkt. Sveinn segir
ferðina hafa verið mjög gagnlega
en þama hafi yfir 100 aðilar sýnt
nýjungar á sviði tölvu-
tækni.
„Ég fer með
, tölvu-
mál
fyrir hönd
bankastjórnarinnar og þetta var
mjög gagnlegt. Ástæðan fyrir för
minni er sú að þetta er ein stærsta
tækjasýning í heiminum," segir
Sveinn.
Haukur Oddsson, forstöðumað-
ur tölvudeildar íslandsbanka hf.,
sagði að bankinn hefði sent einn
mann enda væri um merkan við-
burð í bankaheiminum að ræða.
-rt
Veðrið á morgun:
Hlýjast
sunnanlands
Áttin verður norðlæg, víðast
gola eða kaldi. Víðast hvar birt-
ir upp en þó má gera ráð fyrir
éljum á Norðausturlandi framan
af deginum. Þar var hitstigið um
frostmark, en annars hiti á bil-
inu 2 til 8 stig, hlýjast sunnan-
lands.
Veðrið í dag er á bls. 45.
Steytti á
skeri
Nýja kúfiskskipið Skel ÍS steytti á
skeri við Sauðanes, milli Önundar-
fjarðar og Súgandafjarðar, í fyrrinótt.
Lítið gat kom á skipið að framan-
verðu en engin slys urðu á mönn-
um. Skipið lagði af stað til Akraness
í slipp í gær. Að sögn útgerðar-
manna skipsins er vonast til að það
komist aftur af stað um eða rétt eft-
ir næstu helgi. -RR
Grunnskólakennarar:
Allt fast í
deilunni
„Ef þessi stifni varðandi vinnu-
tíma kennara fer úr mönnum tekur
ekki langan tíma að ganga frá kjara-
samningi. En ef menn vilja halda
vinnutímaumræðunni til streitu,
eins og hún hefur verið, þá hafa
þeir engan áhuga á að leysa deil-
una, en keyra allt í verkfall.“
Þetta sagði Eiríkur Jónsson, for-
maður Kennarasambands íslands,
um árangurslausan sáttafund samn-
inganefndar grunnskólakennara
með launanefnd sveitarfélaganna í
gær. Samningsaðilar áttu ekki sam-
eiginlegan fund, en ríkissáttasemjari
reyndi að finna leiðir til að viðræð-
ur þeirra gætu hafist á nýjan leik.
Næsti sáttafundur var boðaður kl. 12
í dag. Grunnskólakennarar hafa boð-
að verkfall 27. október nk. -JSS
Slasaðist í
bílveltu
Ökumaður slasaðist í bílveltu á
Nýbýlavegi í Kópavogi í gærkvöld.
Maðurinn kastaðist út úr jeppa-
bifreið sinni við veltuna. Hann var
fluttur á slysadeild. Ekki lá ljóst fyr-
ir í morgun hve alvarlega áverka
maðurinn hlaut. Jeppabifreiðin ske-
mmdist talsvert. -RR
MERKILEGA MERKIVELIN
brother pt-2qq_
íslenskir stafir
5 leturstæröir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm prentborðar
Prentar I tvær linur
Verð kr. 6.995
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443
Veisluskipið Árnes
Þegar veislu skal halda
SIMI 5811010