Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1997, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1997, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997 útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverö á mánuöi 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Skuldunautar sendiherrans Þekktur íslendingur, sem ferðaðist til Kína án þess að þurfa sjálf að borga fyrir það, sagði fyrir helgina í blaða- grein, að hundruð, ef ekki þúsundir íslendinga hefðu heimsótt Kína fyrir milligöngu kínverska sendiherrans. Lægri talan er sennilegri, en óhugnanlega há samt. Greinarhöfundur vakti sérstaka athygli á, að mikið af þessu fólki væri úr röðum yfirstéttarinnar, þar á meðal æðstu stjómmála- og embættismenn ríkisins. Hvatti hún þetta fólk til að taka saman höndum til varnar sendi- herranum, núna þegar að honum er sótt. Vitað er um einn ferðalanganna, að hann telur sig ekki eiga pólitíska skuld að gjalda sendiherranum eða ríkisstjóminni að baki honum. Það er Davíð Oddsson forsætisráðherra, sem tók eðlilega á málunum, þegar varaforseti Taívans vildi koma hingað til lands. Við vitum ekki um hina, en vonandi em fáir sama sinnis og greinarhöfundur að telja sig þurfa að endur- gjalda kínverska sendiherranum greiða með því að styðja ömurlegan málstað hans og ríkisstjómarinnar að baki honum. Slíkt héti ekkert annað en spilling. Ein af aðferðum ríkisstjórnar Kína til að koma óvið- urkvæmilegum áhugamálum sínum á framfæri í öðrum löndum er að hlaða gestrisni á fólk, sem það telur vera í lykilstöðum í þjóðfélaginu. Þetta er gömul mútuaðferð, sem kínversk stjómvöld telja vera í fullu gildi. Önnur aðferð, sem ríkisstjóm Kína beitir til að efla málstaðinn, er að taka í gislingu fé og fyrirhöfn þeirra manna, sem ginntir hafa verið til að líta á Kína sem taumlausa markaðsmöguleika. Þetta minnir á, þegar lénsherrar tóku syni lénsmanna í fóstur á miðöldum. í Kína ríkja ekki fastar leikreglur um stöðu fjár og fyr- irhafnar eins og við þekkjum á Vesturlöndum. Yfirvöld ríkisins og einstakra héraða fara með slíkt að geðþótta og nota gerræðisvaldið óspart til að þvinga útlenda gróðahyggjumenn til að þjónusta hagsmuni sína. Mörg vestræn stórfyrirtæki hafa sökkt miklum flár- munum í þessa botnlausu mýri. Forstjórar þeirra eru eins og útspýtt hundsskinn við að sannfæra ráðamenn vestrænna þjóða um að þeir eigi að vera góðir við Kína- stjóm og leyfa frekju hennar að ná fram að ganga. íslendingar hafa ekki farið varhluta af þessu. Tilraun var gerð til að setja á fót íslenzka lakkrísverksmiðju í Kína. Þegar allt var komið í gang, skiptu stjórnvöld á staðnum um tromplit í miðju spili og bjuggu til sjón- hverfingar, sem gerðu verksmiðjuna gjaldþrota. Menn eiga erfitt með að læra af mistökum annarra. Þess vegna em sumir íslendingar í biðröð hjá kínverska sendiherranum til að fá tækifæri til að festa fé og fyrir- höfn í Kína eða viðskiptum við Kína. Sumir þeirra munu vafalaust styðja pólitísk markmið Kínastjórnar. Jarðarkringlan er stór. Hún er þúsund sinnum stærri en hugsanlegt áhrifasvið samanlagðra íslenzkra athafna- manna. Til em ótal ríki milljónaþjóða, þar sem fé og fyr- irhöfn útlendinga njóta vemdar laga og réttar án þess að vera stjórnað að geðþótta stjórnvalda. Þess vegna er bezt, að kínverski sendiherrann og rík- isstjómin að baki honum framkvæmi ógeðfelldar hótan- ir um að tefja fyrir viðskiptum Kínverja og íslendinga. Það verður til þess eins að draga úr líkum á, að íslend- ingar verði fyrir tjóni af slíkum viðskiptum. í umræðunni um þessi mál em marklaus innlegg þeirra, sem telja sig þurfa skuld að gjalda fyrir að hafa ferðazt til Kína án þess að borga sjálfir fyrir það. Jónas Kristjánsson Fyrir einum 12 árum bauðst mér óvænt hnattreisa sem hefur rifjast upp fyrir mér á undanfómum dög- um. í þessu ferðalagi heimsótti ég land, sem mjög er í fréttum þessa daga, en það heitir Taívan. Ferðina fór ég með Cargolux austur til Asíu með viðkomu í AbuDhabi við Persaflóa, Bangkok, Singapore, Hong Kong með lokaviðkomu í borginni Taipei á eyjunni Taívan. Lengi aö finna Taívan Ég minnist þess að þegar ég skoð- aði landakort var ég lengi að finna Taívan, enda hét það Formósa á þessu gamla korti. Ég haföi aldrei Heiöursvöröur í höfuborginni Taipei viö styttu af Chiang Kai-shek. Minningabrot úr Kínahafi kost að fljúga með Car- golux sem farþegar urðu eftir á meira spennandi stöðum eins og Bangkok eða Hong Kong. Fálát fyrirlitning Ég vissi auðvitað jafn lítið um þetta land og Taívanbúamir um mitt enda Islendingar ekki búnir að uppgötva mik- ilvægi Asíumarkaðar- ins á þessum áram og sem sagt sjaldséðir gestir. Almennt gilti fá- lát fyrirlitning hér heima á þessum lönd- um í Asíu, sem voru að rífa upp hagkerfi sín „Almennt gilti fálát fyrirlitning hér heima á þessum löndum í Asíu sem voru að rífa upp hag- kerfí sín með fjöldaframleiðslu sem byggðist á ödýru vinnuafíi.u Kjallarinn Þórunn Siguröardóttir leikstjori hitt nokkurn mann sem hafði komið til Taívans, ef frá var skilið starfsfólk Carcolux, en félagið flaug þangað af og til. Á þessum tíma hélt herinn um stjórnartaumana á Taívan og það var mjög strangt eftirlit með gestum inn i landið. Vegabréfið mitt fékk líka að fara í heilmikið ferðalag áður en vegabréfsá- ritunin var klár og ég sé nú í vegabréf- inuaðég heflofað að vera komin út úr landinu innan þriggja vikna. Ferðin til Taivans var ævintýraleg og dvölin þar lengri en til stóð því aldrei var hægt að lenda í Hong Kong vegna þoku. Því var flogið beint yfir Suður-Kínahafið til Taipei og þar bættust nokkrir óvæntir dagar við endastöðina. Erindiö dregiö í efa Þegar til Taipei kom var ég búin að fljúga með stuttum millilend- ingum í rúman sólarhring og kom- in með flugvillu, eins og jetlag heit- ir á íslensku máli. Ég beið því spennt eftir að komast inn á hótel. En þá loksins byrjaði ballið. Mikill fjöldi hermanna var á flugvellin- um og heill hópur tók að sér að skoða vegabréfið mitt. ísland könnuðust þeir ekki við og ekki bætti úr skák að í vega- bréfinu mínu stóð að ég væri blaðamaður. Yfirheyrslan varð bæði löng og ítárleg og ég allt of syfjuð til að taka hana alvarlega sem flýtti ekki fyrir málinu. Erindi mitt til landsins var mjög dregið í efa, enda var ég eini far- þeginn sem flaug síðasta legginn með vélinni og áhöfnin fór ekki í gegnum venjulega vegabréfsskoð- un eins og ég. Það var sjaldgæft að íslendingar kæmu með alla leið til Taívans, því flestir sem áttu þess með fjöldaframleiöslu sem byggö- ist á ódýru vinnuafli. Þannig jókst þjóðarframleiðsla þeirra með mikl- um hraða og Vesturlönd tóku feg- ins hendi þessum ódýra varningi sem láglaunafólk í Asíu hafði búið til handa þeim. Ég dvaldi á aðra viku í Taipei og hafði lítið við að vera annað en að skoða þennan framandlega heim. Og þar lærði ég að meta ekta kín- verska ópera og ekta mongólskt barbeque og bý að því síðan. Það fór ekki á milli mála að þarna réð herinn lögum og lofum. Leiðsögumaður i ferð sem ég fór um borgina skýrði stoltur frá því að nú styttist i það að Kínverjar, sem hann talaði um sem nokkrar þúsundir manna, myndu sjá að sér og sameinast Taívan. Þetta væri ástæðulaus þrjóska í mönnunum því á Taívan væri allt miklu betra en á meginlandinu. Það var margt fallegt að sjá í Taipei annað en kínversku óper- una og ég skoðaði líka Þjóðminja- safnið, sem geymdi gífurleg verð- mæti frá meginlandi Kína, höggin inn í fjall sem var víggirt mörgum röðum af hermönnum. í safninu var þessa daga sýning á fomum filabeinskoddum, þ.e. beinsívalningum, sem fylltir vora ísvatni og keisaramir í Kína höfðu haft undir hálsinum til að hvíla á þungt höfuðið, því ekki mátti hár- greiðslan haggast. Einkennisklædd- ur vörður skýrði frá því að þessir filabeinskoddar, sem fylltu fiórar hæðir á safninu og vora útskomir að utan og jafnvel innan, væra að- eins örlítið brot af öllum þeim menningarverðmætum, sem bjarg- að hefði verið frá Kína fyrir tilstilli Chiang Kai-shek á sínum tíma. Af- gangurinn væri geymdur inni í fiallinu mikla og yrði þar uns meg- inland Kína hefði verið sameinað Taívan, sem yrði alveg á næstimni. Næsta dag var gríðarleg hersýn- ing í miðbænum þar sem herinn sýndi tól sín og tæki. Hótelið, sem var það glæsilegasta sem ég hef búið á, með 15 mismunandi kín- verskum eldhúsum, stóð við hlið risastórra öskuhauga sem alltaf voru fullir af gramsandi fátækling- um sem jafhvel bjuggu þar. Þaðan horfði ég á hersýninguna og kona í anddyrinu sagði mér að nú væri herinn bráðum búinn að æfa sig al- veg nóg til að geta tekið Kína. Þetta hefúr sem sagt allt rifiast upp þessa daga þegar samskipti þessara þriggja þjóða, Islands, Kína og Taívans eru í nokkru uppnámi. Vonandi verða þessi minningabrot ekki til að styggja neinn því víst er mér hlýtt til fólksins á þessari fallegu og fiarlægu eyju þótt margt hafi ég átt erfitt með að skilja um samskipti Kína og Taívans. Ekki síður hef ég átt afargóð samskipti við kínverska sendiráðið hér í borg sem á nú í vök að verjast og á það áreiðanlega ekki skilið. En sem betur fer æfði herinn á Taívan sig aldrei alveg nóg og nú hefur hann ekki lengur öll tögl og hagldir þar í landi og menn geta einbeitt sér að markaðsöflun í Atlantshafinu. Vonandi tekur líka styttri tima fyrir íslendinga að komast í gegnum vegabréfsskoðun- ina á Taipei í dag en fyrir 12 árum, enda erum við víst afar mikilvæg orðin austur þar. Þórunn Sigurðardóttir Skoðanir annarra Samkeppni um kennara „Ef hvert sveitarfélag semdi við sína kennara myndi skapast samkeppni þeirra í milli um beztu kennarana. Sú samkeppni myndi leiða til betri kjara fyrir þá kennara en jafnframt myndi hún verða mjög hvetjandi fyrir aðra kennara um að auka menntun sína og starfhæfni á margan veg. Samkeppni á milli sveitarfélaga myndi áreiðanlega á nokkram árum leiða til þess, að skólamir almennt hefðu á að skipa betri og hæfari kennurum." Úr Reykjavíkurbréfi Mbl. 12. okt. Lækkun áfengiskaupaaldurs „Nei, ég er ósammála þvi. Unglingar, yngri en 18 ára, hafa viðkvæmara heila- og taugakerfi en full- orðnir og þróa auðveldar með sér fikn og áfengis- vanda og geta orðið áfengissjúklingar á skemmri tíma en hálfu ári. Fullorðna á þrítugsaldri tekur 15 til 20 ár að þróa með sér áfengissýki. Og því meiri hætta er unglingum búin eftir því sem aðgengið að áfengi er auðveldara." Helga Hannesdóttir 1 Degi 14. okt. Kvennalistinn og samflotið „Kvennnalistinn er eina stjórnmálaaflið með fast- mótaðar hugmyndir um hvernig megi færa kven- frelsissjónarmiðin í framkvæmd og eina stjómmála- aflið meö einlægan vilja til þess. Að mínu mati væri það meiriháttar slys fýrir íslenskar konur ef stjóm- arandstöðuflokkamir færa í samflot án þátttöku kvennalistakvenna. Með þátttöku kvennalista- kvenna tryggjum við áherslu á kvenfrelsissjónar- miöin. Því lít ég á samvinnu kvennalistakvenna sem kærkomið tækifæri til framdráttar kvenfrelsi á ís- landi.“ Sjöfn Kristjánsdóttir í Mbl. 14. okt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.