Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1997, Síða 2
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1997 DV
20 &vikmyndir
Laugarásbíó - Head above Water:
Að halda sérá floti ★★i
Það getur verið dálít-
ið varhugavert að velja
titil af þessu tagi því
það er svo auðvelt að
snúa svona orðatiltækj-
um upp á verkið sjálft. í
þessu tilviki passar tit-
illinn einum of vel því
að Höfuð upp úr vatni
er ansi mikið sannnefni
á þessa mynd sem
einmitt rétt heldur sér
á floti. Cameron Diaz
leikur Nathalie, tauga-
veiklaðan eiturlyfja-
neytanda sem hefur
gifst traustvekjandi
eldri dómara, George
(Harvey Keitel). Hjóna-
komin taka sér sumarfrí í húsi fjölskyldu hennar á annars óbyggðri
smáeyju, en þar býr einnig bemskuvinur Nathalie, Lance (Craig
Sheffer), sem er listamaður og umsjónarmaður eyjarinnar. Þegar strák-
amir era úti að veiða og „bonda“ dúkkcir óvænt upp gamall kærasti
Nathalie, Kent (Billy Zane), og er svo ókurteis að deyja. Og síðan upp-
hefjast flækjur sem „involvera" lík Kents, vangaveltur um morð og rétt-
læti, og óvæntar hliðar á fólki.
Hvorki Diaz né Keitel fóra vel af stað en náðu sér á strik þegar á leið
og áttu bæði góðan sprett undir lokin, þegar farsinn loksins brunaði af
stað. Sheffer var fremur litlaus og náði varla að verða fugl eða fiskur,
en Billy Zane var þarna í rosastuði í kunnuglegri rullu sem ruglaður og
siðblindur vonbiðill sem efast aldrei andartak um eigin sjarma (enda
ekkert að efa). Zane er leikari sem tekur sig aldrei of alvarlega og bar
með sér þarna akkúrat það andrúmsloft sem myndin þurfti í byrjun, og
hélt áfram að gefa plottinu lit sem tilhugsunin um vandræðalegt (og illa
meðfarið) lík.
Höfuð upp úr vatni kemur kannski sjaldan á óvart, en á góða spretti
og er bara ansi skondin á stundum. Sérstaklega má skemmta sér yfir
hinum sjálfstæðu og uppátækjasömu tækjum sem leika tvö aukahlut-
verk (utanborðsmótor og vélsög) og standa sig með mikilli prýði. Og tón-
listin var góð.
Leikstjóri: Jim Wilson. Handrit: Theresa Marie. Aðalhlutverk: Harvey
Keitel, Cameron Diaz, Craig Sheffer, Billy Zane. Úlfhildur Dagsdóttir
■*%
\
Háskólabíó - Brassed off:
Blásið í lúðra **
Brassed off tekur á sama vandamáli og lá á bak við The Full Mounty,
sem er sívaxandi atvinnuleysi í Bretlandi, sérstaklega meðal verka-
manna. Yfir námabæ einum vofir allsherjaratvinnuleysi þar sem til
stendur að loka námunni sem er lífæð bæjarins. Þrátt fyrir baráttuvilja
er verkafólkið magnlaust gagnvart yfirstjómirmi sem hefur fyrir löngu
afskrifað kolanámur sem arðbæran iðnað. En fyrir fyrrverandi náma-
verkamanninum Danny (Pete Postlethwaite), er þaö tónlistin sem skipt-
ir máli og hann helgar líf sitt því að halda lúðrasveit bæjarfélagsins
gangandi gegnum þykkt og þunnt. Þó sjálfir lúðrablásaramir séu tregir
til vegna yfirvofandi atvinnuleysis þá tekst Danny ætlunarverk sitt og
hljómsveitin endar uppi á sviði í Albert HaO í London.
Brassed off fór vel af stað og fyrri hlutinn er bráðskemmtOeg og konst-
ug bæjarlífslýsing. Lúðrasveitin lifnar öll við þegar Gloria (Tara Fitzger-
ald), ættuð úr bænum, bætist í hópinn og fangar hjarta Andy (Ewan
McGregor) og Pete Postlethwaite er bráðfyndinn sem hinn uppljómaði
hugsjónamaður sem sést ekki fyrir þegar tónlistin og lúðramir eru ann-
ars vegar. En þegar kemur að alvöra málsins dettur dampurinn niður,
og það er eins og aðstandendur viti ekki alveg hvemig skuli leiða mál-
ið tO lykta. Gloria reynist vera á vegum yfirstjórnar námunnar og vinn-
ur sér óvUd lúðrablásaranna, þvert ofan í fyrri vinsældir og fuOyrðing-
ar um að hennar hlutverk sé að reyna að halda námunni opinni. Samt
er námunni lokað og aOt siglir hraðbyri niður á viö, með tilheyrandi
drama, sem einhvern veginn nær aldrei að skapa nægOega samúð. Er
þar ekki síst um að kenna ófrumlegri úrvinnslu á efninu, þar sem hlut-
verkaskiptingin er hefðbundin og fátt kemur á óvart. Það sem bjargar
er góður leikur, sérstaklega hjá Postlethwaite, og á köflum skemmtOeg
persónusköpun, auk þess sem sjálfir lúðrarnir áttu góða spretti.
Leikstjóri og handritshöfundur: Mark Herman. Tónlist: Trevor Jones.
Lúðrasveitin: The Grimethorpe Colliery Band. Aðalhlutverk: Pete Postlet-
hwaite, Ewan McGregor, Tara Fitzgerald, Stephen Tompkinson, Jim Cart-
er, Melanie Hill. Úlfhildur Dagsdóttir
Á jólunum verður frumsýnd átj-
ánda James Bond-myndin og í ann-
að sinn er það Pierce Brosnan sem
leikur hinn lífseiga njósnara 007.
Myndin heitir Tomorrow never
Dies og í henni á Bond í höggi við
stórhættulegan fjölmiðlamflljóna-
mæring sem getur leyft sé að kaupa
öO þau vopn sem hann telur sig
þurfa. Tomorrow never Dies byrjar
á því að James Bond er í frekar lit-
lausri vinnu í Khyber Pass, sem eitt
sinn var sagt um að væra endamörk
heimsins. Ósköp venjuleg rútínu-
vinna tekur fljótt á sig kunnunglega
umgjörð og brátt þarf Bond á allri
sinni sniOd að halda tO að halda lífi
um leið og hann einu sinni enn
bjargar mannkyninu.
Áður fyrr var kalda stríðið víg-
vöOur James Bonds, nú er það liðin
tið. í GoldenEye átti hann í höggi
við leifarnar af Sovétveldinu og í
Tomorrow never Dies er aðalóvin-
urinn EOiot Carver, sem telur að
hann getir selt meira af blaði sínu,
Tomorrow, og fengið fleiri áhorf-
endur að sjónvarpsstöðvum sínum
ef hann geti komið af stað styrjöld
miOi Englands og Kína.
Með hlutverk Carvers fer hinn
ágæti leikari Jonathan Pryce. Eigin-
konu hans Paris leikur Teri
Hatcher, sem við þekkjum sem Lois
Lane í sjónvarpsþáttaröðinni um
Superman. Paris hafði einu sinni
átt í ástarsambandi við James Bond
og reynir nú án árangurs að kveikja
í glóðinni aftur, að sjálfsögðu með
eigin hagsmuni í huga. Fjórða aðal-
persónan er kínverski njósnarinn
Wai Lin, sem leikin er af einni
skærastu stjörnu Hong Kong kvik-
myndanna, MicheOe Yeoh, og hana
munar ekki um aö ganga frá fimm
harðjöxlum á einu bretti.
Það er MGM sem sér um dreifing-
una í Bandaríkjunum og er það eina
stóra myndin frá MGM fyrir þessi
jól. Að öOum líkindum lendir hún í
kapphlaupi um áhorfendur við
Titanic, stórmynd James Camerons,
og það getur reynst Bond erfitt.
Einn af aðstandendum Tomorrow
never Dies lét hafa eftir sér að að-
sóknin yrði miðuð við hinar miklu
vinsældir GoldenEye. Ef hún yrði
ekki í einhverri likingu við þá að-
sókn yrði sagt um Tomorrow never
Dies að hún væri misheppnuð og
vafi væri hvort önnur James Bond-
mynd yrði gerð.
Leikstjóri Tomorrow never Dies
er Roger Spottiswoode, breskur leik-
stjóri sem býr í Los Angeles, þar
sem hann leikstýrði meðal annars
Air America og Tumer and
Hootch. Spottiswoode segir
að það sé alltaf búist við
meiri hasar, hraðskreiðari
bílum og fleiri fallegum
stúlkum þegar ný James
Bond-mynd eigi i hlut: „Það
verður allt að takast, svo
maður verðir ekki leikstjór-
inn sem stjómaði síðustu
James Bond-myndinni.“
Eftir vinsældir Gold-
enEye þmfti að þrefalda
laun Pierce Brosnans og
var það ekkert vandamál
þar sem hann þáði frekar
lítil laun á Hollywood-skala
fyrir GoldenEye. Sjálfúr
segist hann mim afslapp-
aðri nú en áður. „Það eina
sem gildir þegar maður er
að leika Bond er að vera
nógu svalur." -HK
Nóg er af fallegu kvenfólki í
Tomorrow never Dies, eins
og í öllum James Bond-
myndunum. Hér er Bond
(Pierce Brosnan) ásamt
gamalli kærustu, Paris
(Teri Hatcher).
Michelle Yeoh, sem er mik-
ill snillingur í sjálfsvarnar-
íþróttum, ieikur njósnara
sem kemur Bond til hjálpar.