Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Síða 2
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 JJ V
16
kvikmyndir
Ráðabruggið í Stjörnubíói:
Þríðja myndin fra
Farrelly-bræðrum
Þeir bræður Peter og Bobby
FarreUy, sem eiga að baki
Dumb and Dumber og King
Pin, eru nú komnir af stað
með sína þriðju kvikmynd,
Something about Mary sem
að sjálísögu er gamanmynd
eins og íyrri myndir þeirra
þótt aðalpersónumar séu geðs-
legri. Something about Mary
er rómantísk gamanmynd um
ungan mann sem getur ekki
gleymt æskuunnustu sinni og
ræður einkalöggu til að hafa
uppi á henni. Það fer ekki bet-
ur en svo að einkalöggan verð-
ur einnig ástfanginn af stúlk-
unni. Með aðaMutverkin fara
Cameron Diaz og Ben Stiller.
Enn ein endurgerðin
Hinn vinsæli leikritahöf-
undur Neil Simon skrifaði
snemma á sínum ferli leikritið
The out of Towners, sem árið
1970 var kvikmyndað með
Jack Lemmon og Sandy Denn-
is í aöalhlutverkum. Nú er
leikstjórinn Peter Segal að
undirbúa endurgerð þessarar
myndar og mun hún heita
Towners. í aðalhlutverkum
eru Steve Martin og Goldie
Hawn sem léku saman fyrir
fáum árum í House-sitter.
Kínveijar samir við sig
Það eru ekki bara Islending-
ar sem lenda í vondum málum
þegar ekki er gert eins og ris-
anum í austri líkar. Kvik-
myndahátíðin í Tokyo fékk að
kenna á því þegar beiðni Kín-
veija um að Seven Years in
Tibet yrði tekin burt af hátíð-
inni. Japanir neituðu og Kín-
veijar svöruðu með því að
draga tvær kvikmyndir, sem
þeir hötðu sent á hátíðina, til
baka. Það sem arniars vakti
mesta athygli á hátíðinni í
Tokyo var fyrsta sýning á
hinni umtöluðu kvikmynd
James Cameron, Titanic.
Skyggði sýningin og umtalið í
kjölfarið á alla aðra atburði.
Þess má geta að japanskir
gagnrýnendur urðu hrifhir.
'
Bruce Wiilis hefúr í meira
en ár staðfastlega neitað því að
leika í nýrri Lethal Weapon
mynd og sagt að hvaða upphæð
sem í boði væri myndi ekki
freista sín. Kappinn verður nú
að éta ofan í sig öll stóru orðin
þvi nú er það komið á hreint að
tökur byija í janúar á Leathal
Weapon 4 og sem fyrr er leik-
stjóri Richard Donner en þeir
gerðu nýlega saman Conspiracy
Theory og það sem meira er;
þeir félagar tryggðu sér hand-
ritshöfund Conspiracy Theory
Brian Helgaland til að skrifa
handritið. Þess má geta að
Helgeland skrifaði einnig hand-
ritið að L.A. Confidental ásamt
Curtis Hanson.
Baryshnikov sem Nijinsky
Með fram því að vera vera
frægasti ballettdansari í heimi
þá hefúr Mikhail Baryshnikov
leikið í nokkrum kvikmynd-
um, síðast í The Cabinet of Dr.
Ramirez, fyrir sex árum. Hann
fær nú tækifæri lífs síns í
Touching the Sun þar sem
hann leikur hinn fræga ballett-
dansara, Vassiliev Nijinski
sem var mesta ballettstjama
veraldar í byijun aldarinnar.
Mótleikarar hans verða Isa-
bella Rossellini og Júrgen
Prochnov. Myndin, sem er
samstarfsverkefiii Frakka,
Bandaríkjamanna og
Austurríkismanna, er leik-
stýrð af Pólveijanum
Krzysztof Zanussi.
Ovæntur fengur
í skottinu
Stjömubíó hefur hafiö sýningar á
Ráðabrugginu (Excess Baggage)
með einni vinsælustu ungu
leikkonu samtímans, Alicia Silver-
stone, í aðalhlutverki. Og það er
ekki nóg með að þessi unga stjama,
sem sló svo eftirminnilega í gegn í
Clueless, leiki aðalhlutverkið held-
ur framleiöir hún einnig myndina
og það er sjálfsagt einsdæmi að
stúlka undir tvítugt skuli framleiða
Hollywood-kvikmynd af millistærð.
Excess Baggage fjallar á gaman-
saman hátt um erfitt samband föður
og dóttur sem tekur á sig nýja mynd
þegar dóttirinn ákveður að gera fóð-
ur sínum grikk. Meðleikarar Sil-
verstone eru Benico Del Tore,
Christopher Walken, Jack Thomp-
son og söngvarinn og leikarinn
Harry Connick jr.
Rænir sjálfri sér
Alicia Silverstone leikur ung-
lingsstúlkuna Emily Hope, sem þrá-
ir að fá meiri athygli frá vinnusjúk-
um föður sinum, Alexander (Jack
Thompson). Til að vekja athygli hjá
fóður sínum grípur
hún til ýmissa
bragða. Það virðist
samt fátt bíta á foð-
urinn svo Emily
sér ekki annað ráð
en að gera eitthvað
róttækt og ákveður
að ræna sjálfri sér
og biðja fóður sinn um lausnarfé.
Með raddbreyti að vopni breytir
hún rödd sinni og hringir í
fóður sinn, sem fær þau
skilaboð handan símalin-
unnar að reiða af hendi
ákveðna upphæð. Hann
fær líka að vita aö dótt-
urina er að finna í
skottinu á BMW-bifreið.
Allt virðist ætla að
ganga upp hjá Emily
þar til bílaþjófi einum,
Vincent Roche, líst svo
vel á BMW-bílinn að
hann ákveður aö stela
honum. Ráðagerð Em-
ily fer því út um þúfur
og henni hefur nú ver-
ið rænt í alvöru án
þess þó að það sé ætl-
un bílaþjófsins. Loks
hefúr Emily sem sagt
tekist aö vekja áhuga
fóður síns og til að
hafa upp á dóttur
sinni fær hann til liðs
við sig frændann Ray
Perkins, sem er fyrrrum CLA-maður
og hið mesta hörkutól.
Alicia Silverstone
Alicia Silverstone var aðeins
venjulegur fimmtán ára gagnfræða-
skóíaunglingur
með áhuga á
leiklist þeg-
ar hún
Alicia Silverstone
leikur Emily Hope,
unga stúlku sem vill fá
meiri athygli frá fööur
sínum.
að leika í The Crush, lék hún nú-
tíma „Lolitu“ sem átti létt með að
veiða karlmennina í gildru sína.
Myndin þótti léleg, en Silverstone
vakti athyli fyrir kynþokkafullan
leik og meðal þeirra sem tóku eftir
henni var Steven Tyler, forsprakki
hljómsveitarinnar Aerosmith,
sem fékk hana til að leika í
þremur myndböndum
með hljómsveitinni.
Þar vakti Alicia
Silverstone enn
meiri athygli og
fékk viðurnefn-
| ið „megababe".
Það var siðan
Clueless sem
setti punktinn
yfir i-ið fyrir
| hana. Excess
Baggage er sjö-
unda kvikmyndin
sem hún leikur í,
auk The Crush og
Clueless eru það The
Babysitter, True Crime,
Hidaway, Cool and the
Crazy og Batman & Robin.
Leikstjóri Excess Baggage er
Marco Brambilla, sem er þrau-
treyndur úr auglýsinga-
bransanum, hefur
leikstýrt mörg-
um verð-
launa-
auglýsingum. Eina
myndin auk Excess
Baggage sem hann
hefur leikstýrt er
framtíðartryllirinn
Demolition Man
með Sylvester
Stallone, Wesley
Snipes og Söndru
Bullock í aðalhlut-
verkum. -HK
Benico Del Tore
leikur bílaþjófinn
Vincent Roche sem
er hér viö iöju sína
án þess aö vita aö í
skottinu er óvænt-
ur fengur.
Bíóhöllin - Pabbadagur:
Týndi
sonurinn
I Father’s Day kemur gömul
kærasta (Nastassja Kinski) að
máli við lögfræðinginn Jack
Lawrence (Billy Crystal) og seg-
ir honum að sextán ára sonur
hans (Charlie Hofheimer) sé
horfinn. Þetta er Jack töluvert
áfall, sérstaklega þar sem hann
hefur hvorki séð neitt né heyrt
af drengnum áður. Næsta dag
endurtekur hún leikinn og segir
rithöfúndinum/listamanninum
Dale Putley (Robin Williams)
sömu fréttir. Feðurnir halda í
leit aö týnda syninum og ekki
líður á löngu þar til leiðir
þeirra liggja saman og þeir
komast að því að báðir leita að
sama stráknum.
Crystal og Williams má finna
í annarri mynd sem sýnd er í
bíóhúsum borgarinnar þessa
dagana. I Hamlet leikur Crystal
grafara og Williams er í hlut-
verk hirðfifls. Og kannski má
segja að þær rullur sem þeir
takast á við í Father’s Day séu
ekki svo ólíkar því feðumir
tveir eru algjörar andstæður.
Lögfræðingurinn er kaldlynt
hörkutól sem skallar hvern
þann sem á vegi hans verður en
listamaðurinn er tilfmningaríkt
flón sem grætur sig út úr ógöng-
um. Hvor um sig hafa þeir Crys-
tal og Williams leikið í fjölmörg-
um afbragðsmyndum og Ivan
Reitman er einn virtasti gaman-
myndaleikstjóri Hollywood.
I Father’s Day er útkoman þó
ekki upp á marga fiska því
handritið er stefnulaus
flatneskja þar sem klisja rekur
klisju. Father’s Day fékk
hörmulegar viðtökur í Banda-
ríkjunum en hún komst ekki
upp fyrir 30 milljón dollara
markið. Ágætir sprettir hjá
Crystal og Williams hífa hana
ekki upp úr meðalmennskunni
og því líklegt að flestir aöstand-
endur hennar muni vilja
gleyma henni sem fyrst. Aö lok-
um má geta þess að Father’s
Day er endurgerð frönsku gam-
anmyndarinnar Les Compres
(1983) þar sem Pierre Richard
og Gérard Depardieu léku aðal-
hlutverkin. Hugmyndin höfðar
greinilega til kvikmyndagerðar-
manna af ólíkum þjóðernum
því árið 1991 var gerð önnur út-
gáfa af þessari sögu í Hong
Kong.
Leikstjóri: Ivan Reitman. Aðal-
hlutverk: Robin Williams, Billy
Crystal, Nastassja Kinski, Jul-
ia Louis-Dreyfus, Charlie Hof-
heimer og Bruce Greenwood.
Guðni Elísson