Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Blaðsíða 5
I i~\7~ FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997
19
infiti helgina
*★ *
Pétur Gautur í
Myndlistarmaðurinn Pétur
Gautur opnar á morgun sýn-
ingu á verkum sínum í Gall-
erí Borg, Siöumúla 34.
Pétur er fæddur í Reykja-
vík árið 1966. Hann stundaði
nám við Myndlistaskólann í
Reykjavík 1986-1987 og Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
1987-1991. Pétur hefur undan-
farin ár verið búsettur í
Kaupmannahöfn þar sem
hann nam m.a. leikmynda-
hönnun við Ríkislistaskól-
ann. Hann er nú íluttur aftur
til íslands.
Pétur Gautur hefúr haldið
nokkrar einkasýningar, t.d. í
Portinu í Hafnarfirði árið
1993, í Gallerí Borg árið 1994
og i Gerðasafni 1995. Auk þess
hefur hann sýnt á ýmsum
stöðum í Danmörku.
Að þessu sinni sýnir Pétur
um 25 verk sem unnin er með
olíulitum á síðustu misserum.
Við opnunina á morgun
munu Tómas R. Einarsson og
Ómar Einarsson flytja ljúfa
tónlist.
Sýningin verður opin virka
daga milli kl. 10 og 18, laugar-
daga milli kl. 12 og 18 og
sunnudaga milli kl. 14 og 18.
Henni lýkur sunnudaginn 30.
nóvember. -glm
Uppstilling
eftir Pétur Gaut.
Aðstandendur Leikbrúðulands.
Tónleikar í Kristskirkju
Hjálpar- og líknarstofnunin Cari-
tas á íslandi, sem starfar innan kaþ-
ólsku kirkjunnar, efnir til tónleika
til styrktar bágstöddum fyrir jólin í
Kristskirkju, Landakoti, á sunnu-
daginn kl. 17.
Flytjendur á tónleikunum eru
Einar Jóhannesson klarinettuleik-
ari Gunnar Kvaran sellóleikari,
Hamrahlíðarkórinn undir stjóm
Þorgerðar Ingólfsdóttin-, Nora Kom-
blueh sellóleikari, Ragnhildur Pét-
ursdóttir fiðluleikari, Signý Sæ-
mundsdóttir sópransöngkona, Stein-
grimur Þórhallson orgelleikari og
Zbigniew Dubik fiðluleikari.
Á efnisskránni em verk eftir Atla
Heimi Sveinsson, J.S. Bach, Charles
Gounod, Johan Halvorsen, G.F.
Handel, Allan Hovhaness, Tartini
Frans Schubert og Þorkel Sigur-
bjömsson.
Caritas á íslandi hefúr undanfar-
in ár staðið fýrir átaksverkefnum
vegna þeirra sem minna mega sín.
Félagið hefur staðið fyrir fjársöfn-
unum á aðventunni, m.a. fyrir ungl-
ingaheimilið Tinda, meðferðarheim-
ilið að Torfastöðum, krabbameins-
sjúk böm og ofvirk og misþroska
böm.
Myndlistarmaðurinn Pétur Gautur.
Caritas á íslandi:
Pað verður margt góðra listamanna á tónleikum Caritas.
Islendingar listelskari
en Danir
Þema sýningarinnar er uppstillingar. Ég var mest í af-
straktmyndum en mér óafvitandi breyttust þær í upp-
stillingar þannig að mér finnst ég í raun ekki hafa
breytt algjörlega mn stfl. Ég gerði mikið af kúlulaga og
hringlaga formum áður og því þurfti lítið til að breyta
þeim yfir í ávexti á dúk eða borði. Það má því segja
að sýningin nú sé beint framhald af sýningu
minni í Gerðarsafhi árið 1995,“ segir
myndlistarmaðurinn
Pétur Gautur.
Verkin á sýn-
ingunni nú
em flestöll ný
og hafa ekki
komið áður
fyrir sjónir ís-
lensks al-
mennings.
„Mestallt eru
þetta ný verk
en einhver
þeirra hafa
verið sýnd i Danmörku. Sum verkin, sem ég málaði sér-
staklega fyrir Gallerí Borg, var ég hins vegar svo
ánægður með að ég tímdi ekki að sýna þau í Danmörku
af því að ég var svo hræddur rnn að þau myndu seljast
þar.“
Aðspurður um muninn á aðstæðum islenskra og
danskra listamanna segir Pétur Gautur: „Það er tals-
verður mimur. Ég var í kommúnu þar sem milli fimm-
tíu og sextíu listamenn unnu saman í verksmiðju þar
sem vinnuaðstaðan var mjög góð.
Þar var ákveðinn andi sem hélt okkur saman og ég
sakna þessa anda mjög mikið. Hér heima er andinn ekki
jafn góður og fólk er mikið að rakka hvað annað niður
og öfundast út í hvað annað. Þetta fann ég ekki í Dan-
mörku þótt trúlega sé þetta til þar líka.“
________________ Pétur segir að samkeppnin hér-
lendis sé mjög mikil og hafi aukist
síðustu ár. „Hér er mikil samkeppni,
sérstaklega eftir lægð málverksins
síðust ár. Það fyrsta sem fólk sleppti
að kaupa í kreppunni undanfarin ár
var listaverkið. Það er allt að lifiia
við núna i myndlistinni. Ég finn það
vel sjálfúr eftir að hafa verið í Dan-
mörku síðastliðin fimm ár hvað
kaupmáttur fólks hér hefur aukist
mikið. Nú hefur það því meiri tæk-
ifæri til að gera eitthvað fyrir sjálft
sig en áður.
Að lokum var Pétur spurður
hvort mikill munur væri á áhuga
Dana og íslendinga á listiun: „Hér
er miklu meiri almenmm áhugi á
myndlist en í Danmörku. Hér kaup-
ir fólk sér sjálft málverk heim til
sín ólíkt því sem þekkist í Dan-
mörku. Þar eru það aðallega fyrir-
tæki sem kaupa myndlist." -glm
Jóla-
sveinar
einn og
átta
Nú á sunnudaginn sýnir Leik-
brúðuland brúðuleikritið Jólasvein-
ar einn og átta eftir Jón Hjartarson.
Leikbrúðuland hefur sýnt verkið
fyrir hver jól síðastliðin 22 ár.
Fyrir þessi jól verða alls fjórar
sýningar. Auk sýningarinnar á
sunnudaginn verður sýnt sunnu-
dagana 23. og 30. nóvember og 7.
desember.
í leikritinu koma fram margar
þekktar þjóðsagnapersónur eins og
jólasveinamir, skrautklæddir álfar,
jólakötturinn, Grýla gamla og
Leppalúði.
Leikstjóri er Jón Hjartarson og
höfundur tónlistar er Magnús Kjart-
ansson.
Allar sýningamar hefjast kl. 15 og
sýnt verður að Fríkirkjuvegi 11.