Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Side 10
itónlist
*^T------
1. ( - ) Spice World
Spice Girls
Z (1 ) Quarashi
Quarashi
3. ( 4 ) Sigga
Sigga Beinteins
4. (10) 1987-1997
Nýdönsk
5. (3 ) Trúir þú á engla?
Bubbi
6. ( 7 ) Abba babb
Dr. Gunni
7. ( 9 ) Pottþótt 9
Ýmsir
8. (-) Lof mér að falla
Maus
9. (11) Urban Hymns
The Verve
10. ( 8 ) Homogenic
Björk
11. ( 5 ) Portishead
Portishead
1Z (19) Death to the
Pixies
13. ( 2 ) Pottþótt rokk
Ýmsir
14. (13) Pottþótt ást
Ýmsir
4 15. (12) OK Computer
Radiohead
<t 16. (18) Spilverkið
Sagan
t 17. (- ) Central Magnetizm
(Subteranean
18. (-) Best of Paint
Enya
r 19. (Al) Very Bestof
Elton John
f 20. ( - ) Bros
Geirmundur
London
-lög-
f 1.(1) Barbie Girl
Aqua
t Z ( 2 ) Tom
Natalie Imbruglia
f 3. (- ) Tell Him
Barbra Streisand & Celine Dion
I 4. ( 3 ) Spice up Your Life
Spice Girls
f 5. ( 4 ) Somothing about the Way/ Candle..
Elton John
f 6. (- ) Choose Life
Projoct Featuring Ewan Mcgregor
t 7. (-) Open Road
Gary Barlow
f 8. (- ) James Bond Theme
Moby
| 9. ( 5 ) Stay
Sash! Featuring La Trec
t 10. (-) Put Your Arms around Me
Texas
NewYork ^
-lög-
1.(1) Candle in the Wind 1997
Elton John
Z ( 2 ) You Make Me Wanna...
Usher
3. ( 3 ) How Do I Live
Leann Rimes
4. ( 4 ) 4 Seasons of Lonoliness
Boyz II Men
5. ( 5 ) All Cried out
Allure Featuring 112
6. ( 6 ) My Love Is the SHHH
Somethin' for the People
7. ( 8 ) Tubthumping
Chumba Wamba
8. (- ) My Body
LSG
9. (10) The One I Gave My Heart to
Aaliyah
10. ( 7 ) Foolish Games/You Were Meant..
Jewel
Bretland
——= plötur og diskar-_______________
t 1. (-) Spiceworld
Spice Girls
4 Z ( 1 ) Urban Hymns
The Verve
| 3. ( 2) Greatest Hits
Etemal
t 4. (-) Paint the Sky with Stars
Enya
| 5. ( 3 ) Postcards from Heaven
Lighthouse Family
| 6. ( 4) Lennon Legend - The Very Best of
John Lennon
f 7. ( -) Queen Rocks
Queen
t 8. ( 8) White on Blondo
Texas
4 9. ( 6) It's My Life - The Album
Sash!
| 10. ( 5) Fresco
M People
i
»
I
I
i
t
i
*
*
Bandaríkin
t 1. ( - ) Harlom World
Mase
| Z ( 2 ) You Light up My Life
Leann Rimes
t 3. (-) Live at Red Rocks
Dave Matthews Band
t 4. ( 4 ) Butterfly
Mariah Carey
| 5. (1 ) The Firm
Nas Escobar
| 6. ( 3 ) The Dance
Floetwood Mac
t 7. ( 8 ) Aqarium
Aqua
t 8. (- ) Tubthumber
Chumba Wamba
4 9. (6 ) Soul Food
Soundtrack
410. ( 7 ) Evolution
r II Man
4
FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997
Hljómsveitin Attica Blues verður
seint sökuð um að reyna með laga-
smíðum sínum að storma inn á vin-
sældalista. Tónlist hennar er bræð-
ingur af hip hop, blús og danstónlist
sem er á rólegu nótunum.
D’Afro, sem er plötusnúður og
meðlimur Attica Blues, hefur
ákveðnar skoðanir á hlutverki
hljómsveitarinnar. „Eldra fólk hef-
ur vissar ranghugmyndir um tón-
listarsmekk ungu kynslóðarinnar.
Okkar hlutverk er að brúa kyn-
slóðabilið í tónlistinni." D’Afro
vann í plötubúð þegar hann hitti
sálufélaga sinn í tónlistinni árið
1991. Þetta var enginn annar en
James Lavelle, stofnandi Mo’Wax
útgáfunnar. James Lavelle bauð
D’Afro að gera nokkrar smáskífur
fyrir hið nýstofnaða Mo Wax út-
gáfufyrirtæki og var það upphafíð
að ferli Attica Blues. D’Afro fékk til
liðs við sig söngkonuna Roba
Essaway og tónlistarmanninn Tony
Nwatcaku. Tónlist Attica Blues er
ekki danstónlist í eiginlegri merk-
ingu þess orðs. Söngur Roha
Essaway minnir á Billie Holliday og
fleiri sönggyðjur og tónlistin er á
rólegu nótunum. Blús-, djass- og
funk-áhrif svífa yfir vötnunum og
stundum gleymir maður að þetta er
glæný tónlist en ekki einhver 20 ára
gömul funktónlist. D’Afro er vænt-
anlegur hingað til lands um helgina
og mun þeyta skífum fyrir funk-
þyrsta íslendinga.
tlá |ó|d|a|n|nja
Bristolsveitin Up, Bustle
and Out er sjálfsagt ein sér-
stæðasta hljómsveit Bret-
lands. Þessi sjö manna sveit
hóf að spila saman árið 1992
og kom meðal annars ffarn á
Glastonbury-tónlistarhátíð-
inni það ár. Eftir að hafa í
upphafi ferils síns verið mik-
il tónleikasveit tvístruðust
meðlimir hennar vítt og breit
um veröldina og hittast nú
einungis þegar stærri tón-
leikar eru á dagskrá eða við
upptökur á nýrri plötu. For-
sprakki sveitarinnar, sem
kýs að kalla sig Senor Rudi,
er á sífelldu flakki um heim-
inn og tekur á ferðalögum
sínum upp þá tónlist sem
hann kemst í tæri við. Ef
hann rekst á saxófónleikara á
lestarstöð setur hann upp-
tökutækið í gang og tekur
upp tónlist hans. Seinna þeg-
ar Up, Bustle and Out er svo
í upptökum gæti þessi saxó-
fónleikur passað ágætlega
inn í eitthvert lag hjá sveit-
inni. Senor Rudi er hrifinn af
Suður-Ameríku og tónlistar-
legra áhrifa þaðan gætir oft í
lagasmíðum hljómsveitar
hans. Hann bjó um skeið með
Quchua-indíánunum í Andes-
fjöllum og var iðinn við að
taka upp tónlist þeirra. Þau
áhrif sem hann varð fyrir þar
lita mjög fyrstu breiðskífu
sveitarinnar sem ber heitið
The Breeze Was Mellow. Að
hlusta á Up, Bustle and Out
er líkast því að fara í heims-
reisu í huganum. Það er kom-
ið við á mörgum stöðum og
tónlistin er svo fjölbreytt að
það er líkast þvi að maður sé
að hlusta á nokkurs konar al-
heimshljómsveit. í tilefhi af
dánarafmæli byltingar-
mannsins Che Guevara fyrir
nokkru ákvað Up, Bustle and
Out svo að fara í tónleika-
ferðalag og rennur allur
ágóði tónleikaferðalagsins til
uppreisnarútvarpsstöðvar-
innar á Kúbu.
Nýtt íslenskt útgáfufyrirtæki
Kristján Jónsson er einn eigenda
hins nýstofnaða netfyrirtækis
INNN. Þegar blaðamaður DV tók
hús á honum lá hann sofandi á gólf-
inu innan um tölvukapla og geisla-
diska. Það hefur greinilega verið
mikið að gera hjá þeim undanfarið.
INNN er útgáfufyrirtæki rapphljóm-
sveitarinnar Subteranean, sem gaf
út sína fyrstu breiðskífu í síðustu
viku, og hjá hinu nýja fyrirtæki eru
menn búnir að vera önnum kafnir
kringum útgáfu fyrstu afurðarinn-
ar.
„Hugmyndin að baki INNN er að
búa til nokkurs konar vef af ungu
fólki sem er að fást við ýmsar list-
greinar," segir Kristján og rís á fæt-
ur. „Þetta æxlaðist þannig að ég
kom heim til íslands eftir að hafa
verið að vinna hjá Sony og heyrði
fyrir tilviljun í Subteranean. Mér
leist svo vel á þau að ég ákvað að
gefa þau út. Það hafa orðið ýmsar
breytingar til batnaðar í tónlist hér
á landi. Erlend tónlist hefur tekið
stökkhreytingum á síðustu árum og
erum við hér heima farin að taka
við okkur líka,“ segir Kristján.
Subteranean hitaði upp fyrir De La
Soul á Hótel íslandi um daginn og
voru þessir guðfeður Hip Hop-stefn-
unnar mjög ánægðir með Subtera-
nean. En það eru fleiri sem sýna
þessari hljómsveit mikinn áhuga. Á
útgáfutónleikum Subteranean voru
fulltrúar frá V2 sem er nokkurs
konar hhðarfyrirtæki Virgin og gef-
ur meðal annarra út verk hljóm-
sveitarinnar Gravediggaz. Eins eru
menn hjá Sony áhugasamir um
frekara samstarf. Stefnan hjá INNN
er að gefa út verk eftir fleiri íslensk-
ar hljómsveitir á nýju ári með
áherslu á efni sem gæti átt mögu-
leika erlendis.