Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.1997, Síða 12
26 Wyndbönd l 4 FÖSTUDAGUR 14. NÓVEMBER 1997 MYNDBAUDA & m&m La Cárémonie: Dularfullar konur ★** Þessi mynd er byggð á skáldsögu Ruth Rendell, A Judgement in Stone. Hún hefst á því að Sophie er ráðin sem heimilishjálp á heimili auðugrar fjöl- skyldu rétt utan við lítinn bæ. Hún leggur hart að sér og heimilisfólkið er mjög ánægt með hana til að byrja með. Hún kynnist Jeanne, sem vinnur á pósthúsinu, en húsbónd- inn grunar Jeanne um að opna bréfin sín. í ljós kemur að þær eiga báð- ar skuggalega fortíð og árekstrar við heimilisfólkið verða til þess að vin- sældir Sophie minnka. Það er erfitt aö sjá einhvem boðskap eöa tilgang í þessu verki. Myndin er hvorki spennandi né fyndin, en sagan er nokk- uð áhugaverð, persónurnar heilsteyptar og leikarar standa sig mjög vel. Isabelle Huppert og Sandrine Bonnaire eru báðar í hópi hæfustu leikkvenna Frakklands og túlka vart sýnilega geðveilu kvennanna tveggja af stökustu prýði. Myndin býður upp á athyglisverða sögu, en gerir ekki mikið með hana. Hún heldur athygli áhorfandans út mynd- ina en skilur lítið eftir sig. Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Claude Chabrol. Aðalhlutverk: Isabelle Huppert og Sandrine Bonnaire. Frönsk, 1995. Lengd: 101 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Citizen Ruth: Bitbein hræsnara *** CITIZEN \ RUTH *** Ruth Stoops á heldur ömurlega tilvem. Hún er hand- tekin enn einu sinni eftir að hafa sniffað yfir sig og við læknisskoðun uppgötvast að hún er ófrísk að fimmta bami sínu. Hin fjögur vora öll tekin af henni, enda er hún algjörlega óhæf móðir. Dómarinn er orðinn lang- þreyttur á henni og gefur í skyn að hún fái mildari dóm ef hún láti eyða fóstrinu. í fangaklefanum kynnist hún sannkristnum konum sem þar era fyrir mótmæli gegn fóstureyðingum og þær ákveða að taka hana að sér. —' Áður en hún veit af er hún orðin að bitbeini andstæðra MMM hópa sem kljást hvor við annan um lögmæti fóstureyð- inga og fær hún litlu ráðið. Hér er ekki tekin ákveðin afstaða með öðrum hvoram hópnum, en andstæðingar fóstureyðinga fá þó stærri skerf af háð- inu. Myndin gerir samt grín að hræsnurunum beggja vegna víglínunnar og sjónarhorn einfeldningsins Ruth Stoops í miðjum fáránleikanum er hressandi. Laura Dern er fuilkomin í sinu hlutverki og Kurtwood Smith er stórskemmtilegur sem hinn skinheiiagi fjölskyldufaðir, en flestir leikaram- ir standa sig mjög vel. Citizen Ruth er mjög fyndin og skemmtileg mynd, og endirinn er alveg hreint dásamlegur. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Alexander Payne. Aðalhlutverk: Laura Dern. Bandarísk, 1996. Lengd: 101 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ Bulletproof: Slettist upp á vinskapinn ★★ Smákrimmamir Archie Moses og Rock Keats era perluvinir og elska hvor annan eins og bræður. Þegar Archie kynnir Rock fýrir eiturlyfjabaróninum Frank Colton slettist upp á vinskapinn, því Rock er lögga í dulargervi (úps!). Eftir mikinn skotbardaga milli lög- reglunnar og glæponanna kemst Archie undan. Báðir telja hinn hafa gert sér ljótan grikk og era því ekki sem allra vingjamlegastir þegar leiðir þeirra liggja saman á ný, en þá neyðast þeir til að leggja saman á flótta undan Frank Colton, sem hyggst koma í veg fyr- ir að Archie beri vitni gegn honum. Þessi mynd hefur margt með sér. Hugmyndin er ágæt, þótt hún sé ekkert sérstaklega fram- leg, og býður upp á mikið glens. Þá ná Damon Wayans og Adam Sandler finum samleik í hlutverkum félaganna tveggja. Hins vegar er James Caan óvanalega litlaus skúrkur og lokauppgjörið verður því fremur máttlaust. Þetta er ein af þessum næstum því „skemmtilegu" myndum og vantar bara skemmtilegra handrit og skemmtilegri skúrk. Hún á þó sínar stund- ir og er oft nokkuð hlægileg. Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Ernest Dickerson. Aðalhlutverk: Damon Wayans og Adam Sandler. Bandarísk, 1996. Lengd: 85 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ Anaconda: Risaslöngur Myndin segir frá viðureign myndatökuliðs við risakyrkislöngur og manninn sem vill nota þau sem agn til að veiða eina slíka lifandi. Hópurinn ætlar að vinna heimildamynd um Shirishama-indiánana í frumskógum Brasilíu, en hittir veiðimanninn Paul Sarone á leiðinni. Hann leiðir þau í villu og fómar þeim einu af öðra svo hann megi græða góðan pen- ing á þvi að veiða slönguna sína. Eftir mikið hviss og hvimleið öskur í ófreskjunni, nokkrar máltíðir, sviksemi, eldsprengingar og slagsmál, halda eftirlifendur heim á leið. Þessar kyrkislöngur eru ansi ógnvekj- andi fyrirbrigöi og tæknideildin býr til sæmilega sannfærandi ófreskj- ur. Hins vegar er myndin klisjukennd leiðindi mestallan tímann, skást þegar hún er hlægilega heimsk. Jon Voight nær að gæða vonda kallinn nokkru lífi og skartar bara nokkuð flottum hreim. Aðrir leikarar era hálfgerðar gufur. Myndin fær þó plús fyrir að skarta stórleikaranum Danny Trejo í smáhlutverki. Myndin fer hvergi út fyrir hina hefð- bundnu formúlu og er því fremur þreytandi fyrir þá sem hafa séð sinn skerf af hryllingsmyndum. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Luis Llosa. Aðalhlutverk: Jennifer Lopez, lce Cube, Jon Voight og Eric Stoltz. Bandarísk, 1997. Lengd: 90 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ / Myndbandalisti vikunnar V- \r t • / mL./»ii aL*#* 21. til 27.október - jtti j FYRRI ' VIKUR ! SÆT,Í VIKfl ífl LISTAj TITILL ÚTGEF. ' TEG. I 1 i 2 i 2 Scream J 1 Skífan J j Spenna 2 1 lr> & ! 3 mMKm Saint, The j j . ClC-myndbönd J ) j Spenna j 3 ! Ný 1 flnaconda Skrfan j Spenna 4 3 i 3 i j Donnie Brasco j J Sam-myndbönd J j Spenna 5 i 4 ! 5 People VS. Larry Flynt 1 j Skrfan i Gaman . 6 1 1 5 i mm 4 j Fools Rush In i Skífan J j Gaman 7 i * 6 6 Vegas Vacation Wamermyndir J Gaman 8 'r :j h * ■ j 7 WKSKBm ■ 4 ! Smillas Sense of Snow J Sam-myndbönd J Spenna 1 9 8 4 Relic Háskólabíó j Spenna 10 i 9 3 Pallbearer, The Skrfan r J j Gaman j '■ ii ; 12 4 Crash Myndform j Spenna J 12 J 10 J 5 j -. J Beavis and Butt-Head Do America J 1 • ClC-myndbönd 1 Gaman J 13 11 ! 7 English Patient : Skrfan J j Drama » 1 J / J Hollow Point 1 - . ••. . Myndform i Spenna 15 i 13 9 Metro Sam-myndbönd J Drama 1« i 1 n i ‘ j 6 ! CasperiA Spirited Beginning 1 Skrfan i Drama J 17 i 15 i 3 Frankie The Fly Skífan j Spenna 18 i j NÝ J 1 Inventing The flbbots j j Skrfan J j Gaman i9 ; Ný ! 1 Carpool Warner-myndir ! Gaman 20 ; 1 14 j j 3 J lf These Walls Could Taik Háskólabíó J 1 Drama j The Saint dvaldi ekki lengi í efsta sæti listans. Eins og viö mátti bú- ast velti Scream henni af stalli og víst er að þessi vinsæli unglinga- hryllingur á eftir að vera ofarlega á listanum í einhvern tíma. Eina nýja myndin á meðal efstu mynda er Anaconda, gamaldags hroll- vekja sem óvænt varð mjög vinsæl i Bandaríkjunum. Það þarf að fara aftur í átjánda og nítjánda sætið til að finna aörar nýjar mynd- ir, Inventing the Abbots og Carpool. Hvorug þessara mynda voru sýndar í kvikmyndahúsum hér á landi. Inventing the Abbots er tán- ingamynd um tvo bræður og þeirra viðskipti við þrjár systur sem eru mun betur stæðar en þeir. Meðal leikara eru Liv Tyler, Jennifer Connelly og Joaquin Phoenix. Óhætt er aö vekja athygli á Frankie the Fly, það eru ekki síður þekktir leikarar í ágætri mynd sem fjall- ar um seinheppinn smákrimma. Meðal leikara eru Dennis Hooper, Kiefer Sutherland, Daryl Hannah og Michael Madsen. BK ÍDU CAK'Í BBJAIhl ilu bFm I uuíilHiR Scream The Saint Anaconda Courtney Cox og Neve Campell Sidney á við fleiri vandamál að glíma en flestir aðrir táningar. Móðir hennar var myrt fyrir einu ári, faðir hennar er í við- skiptaferð og unnusti hennar þrýstir á hana að koma með sér í rúmið í fyrsta sinn. Þaö er ekki á bætandi að morðingi tekur að valda skelfmgu í bæn- um. Notar hann senur úr þekktum spennu- myndum til að ginna fómarlömb sín í dauðagildra og á lög- reglustjórinn á staðn- um í hinum mestu erfiðleikum með að fá botn i tilgang morð- ingjans. Aðalhlutverk: Val Kilmer og Elisa- beth Shue. I dag er Simon Templar orðinn meistaraþjófur, snill- ingur í að dulbúa sig og vinna öll þau hættulegu verk sem honum era falin. Markmið hans er að safna 50 milljónum dollara inn á leyni- reikning sinn. Um leið og þeirri tölu er náð sest hann í helg- an stein. Og verkefn- ið sem hann þarf að leysa til að fylla þessa tölu er að stela vísindaformúlu sem ung visindakona hef- ur fundið upp og á eftir að leiða af sér byltingu í orkumál- um heimsins. Jon Voight, Jennifer Lopez og Erik Stoltz. Djúpt inni í Amazon-fhunskóg- inum er að fmna kyrkislöngu sem er svo stór að hún getur auðveldlega gleypt menn. Hópur kvik- myndatökufólks held- ur upp Amazon í þeim tilgangi að frnna fom- an ættbálk indiána. Á leiðinni rekst hópur- inn á Paul Sarone sem brotið hefúr bát sinn og þarfnast aðstoðar. Vegna óhappa þarf að snúa við. Þegar Saro- ne segist vita um styttri leið ákveður leiðangurinn að fara að hans orðum þrátt fyrir að þau hafi illan bifur á honum. Donnie Brasco Aðalhlutverk: Al Pacino og Johnny Depp. People vs. Larry Flynt Woody Harrelson og Courtney Love Myndin er byggð á sannri sögu alrík- islögreglumanns sem komst inn fyrir raðir æðstu manna í mafíunni og villti á sér heimildir um þriggja ára skeið. Eftir því sem tíminn leið og hann kynnt- ist hinum nýju „starfsfélögum" sín- um betur urðu skil- in milli laga og glæpa óljósari í aug- um hans. Þetta hafði veruleg áhrif á allt hans líf, enda erfitt að vera FBI-maður, eiginmaður, faðir og vinur mafiunnar. Myndin fjallar um Larry Flynt, hinn um- deilda útgefanda Hustlers. Þegar blaðiö kom út í fyrsta skipti upphófúst strax há- værar raddir um að slíkt blað ætti að banna. Flynt neyddist til að hefja baráttu sina fyrir lffl blaðsins, prentfrelsinu og tján- ingarfrelsinu í hvaða mynd sem var. Málið fór alla leið fyrir hæstarétt Bandaríkj- anna og aðstæðumar urðu til þess að Flynt var skyndilega talinn síðasti krossfari síns tíma. t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.