Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1997, Page 9
DV FÖSTUDAGUR 21. NÓVEMBER 1997
nlist
HLJÓMPLÖTU
Maus - Lof mér að falla afl þínu eyra:
flfbragð ★★★★
Hljómsveitin Maus hefur gef-
ið út eina af betri plötum ef
ekki þá bestu í íslenskri
rokktónlist á árinu. Sveitin
fékk til liðs við sig breska
hljómborðsleikarann Roger
O’Donnell úr hljómsveitinni
Cure og sér hann um allan
hljómborðsleik á plötvmni.
Það má reyndar greina tengsl
milli Maus og Cure þegar
hlustað er á söng Birgis Arn-
ar Steinarssonar, söngvara og
gítarleikara sveitarinnar, og
greinilegt að hann er mikill Cure-aðdáandi.
Þaö sem slær mann við hlustun plötunnar er einfaldlega hvað
Maus er orðin góð og nær fram ferskara andrúmslofti en maður
hefur heyrt í íslenskri rokktónlist um langan tíma.
Fyrsta lag plötunnar, Síðasta ástin fyrir pólskiptin, er tvímæla-
laust besta lag hennar en á eftir fylgja lög eins og Poppaldin, Égí-
meilaðig, Ungfrú orðadrepir, Kristalnótt og Tvíhöfða erindreki
sem öll eru frábær, hvert á sinn hátt. Ef einhverja vankanta er að
finna á plötunni er þaö helst að söngur Birgis getur verið einlitur
á köflum en það má einnig líta á það sem eitt af sérkennum sveit-
arinnar.
Páll Svansson
Jonathan Fire Eater - Wolfsongs for Lambs:
Gott rokk sem gengur upp ★★★
Bandaríska rokksveitin
Jonathan Fire Eater verður að
teljast til svokallaðra Lo-Fi
rokkbanda. Á breiðskífunni
Wolf Songs for Lambs fetar
hún ósköp þægilega slóö. Þetta
er plata sem maður setur á
fóninn til að heyra nýbylgju-
rokk og klikkar ekki. Jonath-
an Fire Eater er afar vel-
spilandi hljómsveit og tekst
vel að útfæra það sem hún vill
gera. Eins er hún ekki síðri á
tónleikum og hefur vakið
mikla athygli fyrir góða tónleika í Bretlandi upp á síðkastið. Wolf-
songs er ekki of tilraunakennd. Þar tekst vel að sameina tilrauna-
gleöina og heilsteyptar lagasmíðar og góða spilamennsku. Eins er
Stewart Lupton, forsprakki sveitarinnar, afar góður söngvari og
það hefur mikið að segja.
Jón Atli Jónasson
Yo La Tengo -1 Can Hear the Heart...
Afbestugerð ★★★★
Bandaríska nýbylgjusveit-
in Yo La Tengo hefur starfað
allt frá 1984 og gefið út fjöl-
margar piötur i gegnum tíð-
ina en einhvern veginn farið
framhjá fólki á kostnað fræg-
ari sveita. Hér er þó um stór-
góða tónlistarmenn að ræða
og lagasmíðar oft á tíðum í
ætt við Velvet Underground.
Þó er aðalsmerki sveitarinn-
ar hvað hún hefur mörg and-
lit í lagasmíðum.
Nýjasta afurð sveitarinnar
I can Hear the Heart Beating as One skildi mig eftir bergnuminn
við fyrstu hlustun en hér er að finna í bland angurværar melódi-
ur og keyrslurokk í bjöguðu gítarsándi. Platan byrjar með rólegu
instrumental lagi, Return To Hot Chicken, og einfold melódía með
sýrukenndum gítarhljómi í bakgrunni skapar alveg frábær áhrif.
Lög númer tvö og fjögur, Moby Octopad og Sugarcube, eru ekki
síðri. Lag númer sex, Shadows, gæti verið komið beint úr smiðju
Velvet Underground og næsta lag, Stockholm Syndrome, er hreint
öldungis frábært. Lag númer tíu, Green Arrow, er að mínu mati
besta lag plötunnar. Hér nær Yo La Tengo allra best sínum sér-
staka hljómi og ekki skemmir að heyra engisprettutíst í bakgrunni
sem ljær laginu sérstakt yfirbragð. Lag númer þrettán, Center Of
Gravity, kemur manni skemmtilega á óvart í rúmbutakti. Síðasta
lag plötunnar, My Little Corner of the World, getur virst í eyrum
sumra hallærislegt en Yo La Tengo nær að gera einfaldar og naiví-
skar melódíur „kúl“ og tekst það ágætlega hér.
Páll Svansson
I CAN HEAH THE MEART BEATINC AS ONE
YO LA TENGO
i;anssenan
á Islandi
- í átta ár
Á mánudaginn kemur út
fjórði Partý Zone-disk-
urinn.
Það eru þeir Helgi Már Bjarna-
son og Kristján Helgi Stefánsson,
sem eru forsprakkar og umsjónar-
menn útvarpsþáttarins Partý Zone,
sem standa að útgáfunni, eins og
fyrri daginn. Útvarpsþátturinn
Partý Zone er löngu orðinn klass-
ískur í íslensku útvarpi og hefur
hann nú hljómaö þar um átta ár
skeið. Partý Zone-diskamir eru
nokkurs konar safndiskar sem
mixaðir eru saman á vinylplötum af
plötusnúðum. Síðasti diskur var
teknódiskur en sá nýi er mun meira
lifandi að því leyti til að þar fer
saman house, salsa, funk, djass og
fusion. Plötusnúðamir Margeir og
Andrés setja gripinn saman og em
þeir báðir vel þekktir úr Partý Zone
og klúbbum bæjarins. Með útkomu
fyrsta Partý Zone-disksins gafst al-
menningi færi á að eignast á einum
geisladiski þá tónlist sem endur-
speglaði danssenuna á þeim
tíma. Þetta var einn af fyrstu
mixdiskum sem komu út í
veröldinni og markaði
sannarlega tímamót hér á
landi. Á nýja Partý
Zone-diskinum er að
finna lög sem voru
hvað „heitust" í sum-
ar. Einnig er þar að
finna tvö glæný lög
og hið gamla og
næstum ófáanlega
lag Everybody Loves the
Sunshine, með Roy Ayers, frá
árinu 1977. „Partý Zone-diskarnir
hafa allir verið frekar á house-nót-
unum ef frá er talinn sá þriðji og nú
förum við eiginlega yfir í þennan
lifandi fíling sem einkennir hou-
setónlistina í dag. Þetta er mjög í
ætt við diskótónlist," segir Helgi
Már. „Áður fyrr vom diskamir sett-
ir saman í hljóðveri og allar skipt-
ingar margæfðar og gerðar á tvo
plötuspilara. En á nýja diskinum er
fjórdekkað og allt látið flakka í
einni upptöku þannig að maður hef-
ur á tilfinningunni að
maður sé staddur á ein-
hverjum klúbbi." Það er mikil partí-
stemning á nýja diskinum og má
segja að hann sé á gráu svæði milli
neðanjaröar og
vinsælda-
danstón-
listar. ....... _ ,
Um f/
helgina
verður haldin
útgáfuhátíð Partý
Zone sem í gegnum tíðina hefur
slegiö aðsóknarmet að
skemmtistöðum. I fyrra
var haldið ólölegt
fcb partí eftir að
/ skemmtistöðum
wMI var lokað í þeim
/ tilgangi að fagna
W útgáfuPZ og varallt
f tiltækt lögreglulið
' kallað út til að stöðva
fjörið. í ár er það
Skuggabarinn sem verð-
ur fyrir barðinu á
skemmtanaþyrstum PZ-
aðdáendum. Útgáfuhátíðin
hefst á miðnætti á föstudagskvöld-
ið og verður hún send beint út á
Effemm 957. En að sjálfsögðu verð-
ur Partý Zone i beinni á X-inu 977
eins og hann hefur verið frá árinu
1993. Plötusnúðurinn DJ Rampage
og blendlar nýja PZ-disksins verða
að þeyta skífur á útgáfuhátiðinni
ásamt ásláttarleikurum.
-JAJ
Súrefni
- kemur út í dag
í dag kemur út önnur breiðskífa
hljómsveitarinnar Súrefnis. Hún
markar að vissu leyti tímamót þar
sem þetta er ein af fáum alíslensk-
um danstónlistarplötum sem út
koma fyrir jólin. Þeir Þröstur og
Palli, sem mynda Súrefni, hafa
verið iðnir við það upp á síðkastið
að koma fram á tón-
leikum og nú um síð-
ustu helgi voru þeir að
spila í Sjallanum á Ak-
ureyri ásamt hljómsveitinni Qu-
arashi. Súrefni hefur átt talsverð-
um vinsældum að fagna aö undan-
fömu og var lag þeirra félaga,
Disco, vinsælt á útvarpsstöðvun-
um í sumar.
-JAJ
Tónlistin iír myndinni
Sh o o tingli i s h
í dag verður frumsýnd breska
myndin Shooting Fish en lögin úr
myndinni hafa verið gefin út á
geisladiski. Diskurinn inniheldur
ýmislegt góðgæti Brit-poppsins en
auk breskra sveita er þama að
finna sænsku hljómsveitina Wanna-
dies með lagið Friends af plötunni
Bagsy Me sem kom út fyrr á þessu
ári. Hljómsveitin Space á tvö lög á
plötunni sem komu út i fyrra og lag-
ið Body Medusa með Superreal er
hér í Leftfield-mixi. Aðrar sveitir,
sem eiga lög á plötunni, em Strang-
elove, The Supernaturals, Silver
Gun, Symposium, Jackie De Shann-
on, David McAlmont, The Blueto-
nes, Dubstar, Passion Star, The
Divine Comedy og Stanislas
Syrewicz sem flytur titillag plötunn-
sir. Ekki má heldur gleyma gamla
góða laginu Do You Know the Way
to San Jose í flutningi Dionne
Warwick. -ps
1. Divarce
Garcons
2.
3.
4.
5.
6.
7.
Jazz Carnival
Azimuth
Let Me Luv You
Jii Hoo
Somewhere
Vision
Black Gold of the Sun
Nu Yorican Soul
Contact
Pizzicato five
Two Wrongs Makln it
Kevin Yost
k
€
: Rlght
8. Sacre Francais
Dimitri From Paris
9. Through the Mlxer
Joey Beltram
í
10. Spellbound
Deep Ink