Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Page 2
íð kvikmyndir f blíðu og stn'ðu *** Þessi mynd virkaði dálítið á mig eins og nútímatilhlaup að Jane Aust- en, þar sem konur, vinkonur, eiginmannaveiðar og endalausar umræð- ur um sama er uppistaðan. Og það er vissulega virðingarvert að gera heila bíómynd sem fjallar bara um málefni af þessum toga, sem oft eru ekki talin þess virði að halda uppi 90 mínútna skemmtun. En því mið- ur inniheldur handrit Nicole Holofcener ekki sömu þungavigtargæði og texti Austen, þó það sé vissulega vel skrifað og skemmtilegt, og því fer að halla undan fæti í seinni hlutanum, þegar sagan verður of fyrirsjáan- leg. Sagan segir frá vinkonunum Ameliu (Catherine Keener) og Lauru (Anne Heche) og bamingi þeirra meö karlmenn og hvor aðra. Laura er trúlofuð Frank (Todd Field) og Amelia er bæði öfundsjúk og miður sín, og finnur að vináttan er að breytast. Sjálf á hún í mesta basli með að koma sér upp kærasta og er - að bandarískum sið - ákaflega komplex- eruð yfir þessum skorti sínum. Hún huggar sig við vináttuna með fyrr- verandi elskhuga, Andrew (Liev Schreiber), og flekar að auki afgreiðslu- mann í vídeóleigu. Þrátt fyrir að hér sé mikið gert til þess að stilla Walking and Talking upp gegn hefðbundnu Hollywood-fóðri, þá er myndin of merkt amerískum hugsunarhætti til að ná að verða að þeirri sígildu vináttu- og ástarstúdíu sem henni er greinilega ætlað. Móðursýk- in út af fæðingarblettinum og kettinum, sálfræðingaflækjurnar og for- dómamir út í furðufuglana, allt era þetta þreytuleg þemu úr unglinga- myndum, sem ná alls ekki að fylla út í söguna og gera hana meira lif- andi. Það sem helst stendur upp úr er góð persónusköpun og leikur kvennanna tveggja, en báðar ná að draga fram það besta sem þessi mynd hefur upp á að bjóða, skemmtilega kaldhæðni og afslappaða hlýju. Leikstjórn og handrit: Nicole Holofcener. Aðalhlutverk: Catherine Keener, Anne Heche, Liev Schreiber, Todd Field, Kevin Corrigan. Úlfhildur Dagsdóttir Bíóborgin - Á fölskum forsendum: Falsaður Rembrandt ★ John Badham (Blue Thunder, Stakeout) má mun sinn fifil fegri. Það er orðið langt síðan hann gerði kvikmynd sem eitthvert púður var í. Það heföi þó mátt ætlast til af honum að hann færi langt á reynslunni en svo virðist ekki vera þegar Á fölskum forsendum (Incognito) er skoðuð. Hún virkar meira sem byrjendaverk frá meðaljóni heldur en verk leikstjóra sem í tuttugu ár hefur verið að leikstýra spennumyndum. Nú er ekki því að neita að sagan sem sögð er í Incognito er nokkuð áhugaverð. Slyng- ur listaverkafalsari reynir sig við Rembrandt og tekst svo vel upp aö honum tekst ekki þegar lífið liggur viö að sanna að um fólsun sé að ræða. í miilitíðinni er hann grunaður um morð og er á flótta ásamt fal- legum prófessor í listum. Strax er ljóst að með því að sýna í byrjun atriði úr miðri mynd er ekki farið eftir bókinni og hefur maður á tilfinningunni að verið sé að bjarga einhverju klúðri fyrir hom. Ekki bætir úr ískaldur samleikur hins bandaríska Jasond Patricks og hinnar frönsku Iréne Jacob. Þau eiga í hinum mestu erfiðleikum með að vera sannfærandi í aðalhlutverkunum og sjáifsagt er best fyrir Jacob að halda sig við franskar kvikmyndir þar sem hún hefur getið sér gott orð, meðal annars í kvikmyndum Krzyzt- ofs Kieslowskis, Tvöföldu lif Veroniku og Hvítum. Túlkun Jason Patric á listaverkafalsaranum byggist á þvi að láta hann alltaf vera í fúlu skapi og satt best að segja á Patrick einstaklega auðvelt meö að láta allar þær persónur sem hann leikur vera í fúlu skapi. Incognito er dæmi um kvikmynd þar sem mjög illa er farið með ágætt hráefni svo úr verður ótrúverðug endaleysa. Leikstjóri: John Badham. Handrit: Jordan Katz. Kvikmyndataka: Dennis Crossan. Tónlist: John Ottman. Leikarar: Jason Patrick, Iréne Jacob, Rod Steuger, lan Richardson og lan Holm. Hilmar Karlsson FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 UV Herkúles ásamt sínum besta vini, Pegasusi. HERKÚLES - með íslensku og ensku tali Sam-bíóin frumsýna í dag nýjustu teiknimyndina frá Walt Disney, Herkúles. Eins og í Hringjaranum frá Nortre Dame og Pocahontas þá era þeir hjá Disney á söguslóðum þó ekki sé ætlast til að söguskýring- arnar séu teknar alvarlega, enda á Herkúles, sem upprunninn er úr grísku goðsögnunum meira skylt við ævintýrapersónu heldur en sögupersónu, það sama má segja um allar per- sónumar, þetta era ævintýra- persónur eins og þær gerast bestar í teiknimyndum Dis- neys. Tvær útgáfur af Herkúles verða sýndar, önnur er með íslensku tali og hin með ensku tali og hefúr ekkert verið sparað til að gera íslensku tal- setninguna sem best úr garði. Sem fyrr era það persónurnar sem skapa hin miklu gæði sem teiknimyndir frá Disney era gæddar. Hér á eftir eru nokkrar helstu persónur myndarinnar kynntar. Herkúles Meira en maður, minna en guð. Allt sem þú hefur heyrt um þennan magnaðasta guð allra tíma er ekkert annað en goðsögn. Herkúles var rændur guðdómi sínum í æsku og fluttur úr himnaríki til jarðar. Ein- faldm- og saklaus tekst Herkúles á við það erfiða verkefni að gerast hetja svo hann geti komist í guða tölu á ný. Á leið sinni berst Herkúles við skrímsli og verður ást- fanginn af Meggu hinni fögra, konu sem Herkúles er reiðubúinn að fóma öllu fyrir - þar á meðal lífinu. íslenskt tal: Valur Freyr Ein- arsson. Enskt tal: Tate Donovan. Herkúles (ungur) íslenskt tal: Ólafur Egilsson. Enskt tal: Joshua Keatin. Seifur Konungur guðanna í himnaríki og faðir Herkúlesar. Þrátt fyrir að guðum sé ýmislegt til lista lagt get- ur hann ekki gert son sinn að guði eftir að Herkúles er rænt úr vöggu sinni. Hann birtist honum hins veg- ar í styttuformi á jörðu niðri og bendir honum á einkaþjálfara sem getur gert hann að hetju - og þar af leiðandi að guði. íslenskt tal: Pétur Einarsson. Enskt tal: Rip Tom. Megga Stórglæsileg, en jafnvel enn stærri í skapinu. Hún hefur upplif- að ýmislegt í ástarmálum sínum og er hreint ekki í leit að rómantík. En þegar hún fer að falla fyrir Herkúles taka málin að flækjast vegna þess aö hún er í raun leynivopn Hades í tilraun hans til að tortíma hetjunni okkar, Herkúles. íslenskt tal: Selma Björnsdótt- ir. Enskt tal: Susan Egan. Fíló Hann er aðeins skuggi þess manns sem hann var, ef mann skyldi kalla. Hann er nefnilega bara geit og þolir ekki þegar hann er minntur á hvaða tegundar hann er. Hann hefur þjálfað marga guði í gegnum tiðina en er búinn aö leggja skóna á hiiluna. Herkúles tekst hins vegar að sannfæra Fíló um að þjálfa einu sinni enn og lofar í staðinn toppárangri. íslenskt tal: Guðmiuidur Ólafs- son. Enskt tal: Danny DeVito. Pegasus Hestur er hestur ... nema hann hafi vængi, að sjáifsögðu! Hálfúr hestur, hálfur fugl lætur Pegasus engan eða ekkert komast upp á milli sín og Herkúlesar. Stundumm breytist þó trúnaöurinn í afbrýði- semi ... sérstaklega þegar Herkúles verður ástfanginn af Meggu. Þrátt fyrir að vera með vit á við fugl er hann ekki einungis besti vinur Herkúlesar, heldur hefur hann einnig farið í hans heim. Hades Hann ræður yfir þeim fram- liðnu, pirrar þá sem á lífi eru. í dag er hann konungur und- irheimanna og var ætlað að taka yfir alheiminn, en eitt vandamál er i vegi hans. Þökk sé hinum hjálparlausu aðstoð- armönnum hans, Pata og Píni, er Herkúles enn á lífi og við hestaheilsu. Hades gerir sér ljóst að eini veikleiki Herkúlesar er Megga og notar hann hana sem beitu til að reyna að koma Herkúles á kné. íslenskt tal: Egill Ólafsson. Enskt tal: James Woods. Pínir Ef þú heldur að þú eigir við vanda að stríða, líttu þá á þennan. Pínir er helsti aðstoð- armaður Hades og er svo kvikindislegur að það er sárt. Hann gerir allt sem yfirmaður hans biður hann um nema hvað honum mistekst alltaf allt sem hann tekur sér fyrir hendur. íslenskt tal: Þórhallur Sigurðs- son (Laddi). Enskt tal: Bobcat Goldwait. Pati Hann er gangandi taugaáfall og hin hjálparhella Hades. Þegar hon- um mistekst að framkvæma sín ill- kvittnu áform er það aðeins vegna þess að taugamar bregðast. Hverju hefúr hann áhyggjur af? ÖLLU. íslenskt tal: Bjarni Haukur Þórsson. Enskt tal: Matt Frewer. Margir fleiri þekktir leikarar og söngvarar ljá rödd í íslensku tal- setninguna, má nefiia söngkonum- ar Berglindi Björk Jónasdóttur, Sig- ríði Guðnadóttur, Rut Reginalds, Guðrúnu Gunnarsdóttur og Sigríði Beinteinsdóttur og leikarana Stein Ármann Magnússon, Rúrik Har- aldsson, Eddu Heiðrúnu Backman, Eggert Þorleifsson og Þórdísi Arn- ljótsdóttur. Sögurmaður er Ragnar Bjamason. Sögumaður í ensku útg- áfunni er stórleikarinn Charlton Heston.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.