Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997 Sally Potter vinnur til verðlauna Sally Potter (Orlando) hefur sent frá sér nýja kvikmynd, The Tango Les- son, sem ijallar um aðdáun breskrar konu á argent- ínska dansinum tangó. í myndinni er Potter að íjalla um sjálfa sig og leikur hún sjálf aðalhlutverkið. Mynd- in hefur fengið misjafliar viðtökur. Löndum hennar finnst ekki mikið til hennar koma en í heimalandi tangósins er aimað uppi á teningnum og um síðustu helgi var Potter veitt æðstu verðlaun á alþjóðlegri kvik- myndahátið sem ber heitið Mar del plata. Þess má geta að The Last Tango er í svart/hvítu. Cronenberg og sýnd- arveruleikinn David Cronenberg hefur ekki farið troðnar slóðir í kvikmyndum sínum og sjálfsagt á Existenz, kvik- mynd sem hann er að hefja tökur á, eftir aö fara fyrir bijóstið á einhverjum, ann- að kæmi á óvart. Existenz fjallar um vísdindamann, konu, sem er að vinna með sýndarveruleika. Þunga- miðja myndarinnar er til- raun sem mistekst hroða- lega. Þeir sem standa næst Cronenberg segja að ef Ex- istenz sé að einhverju leyti lík fyrri myndum hans megi helst miða hana við Videodrome og The Fly. Ástralir á teikni- myndamarkaðinn Hingað til hafa Banda- ríkjamenn staðið nokkuð sér á báti í gerð teikni- mynda í fullri lengd. Nú hafa Ástralir ákveðið að leggja mikið fé í gerð teiknimyndarinnar The Magic Pudding sem byggð er á klassískri bamasögu sem notið hefur mikilla vinsælda í Ástralíu. Ekkert verður til sparað og margir úr röðum þekktra ástral- skra leikara ijá raddir sín- ar, meðal annars Geofirey Rush og Sam Neill. Þess má geta að bæði Disney og Jim Henson Production höfðu reynt að fá réttinn á sögu þessari. ; • Leikur reglna Háskólabíó og Regnboginn frum- sýna í dag spennumyndina The Game. Þetta er ný kvikmynd frá David Fincher sem gerði hina eftir- minnilegu Seven. Eins og í Seven er Fincher að fást við flókinn söguþráð sem gerir áhorfandanum erfitt fyrir að sjá framvinduna. Ef The Game er um eitthvað sérstakt þá fjallar hún um það hvemig hægt er að missa stjóm á lífi sínu, einnig má segja að hún sé um að tapa sjálfstrausti. Aðalpersónumar í myndinni era bræðumir Nicholas Van Orton (Michael Douglas) og Conrad (Sean Penn). Nicholas stundar viðskipti og gengur vel. Hann þekkir ekki annað en að hafa stjóm á öllum hlutum, hvort sem er í einkalífinu eða í viðskiptum. Allt þetta breytist þegar bróðir hans færir honum í af- mælisgjöf gjöf sem er „leikur" þar sem teflt er á tæpasta vað. Brátt snýst líf hans um „leikinn" og Douglas snúist myndabrautinni, hafði þó leikið í nokkrum kvik- myndum. Minnisstæð- ust er The China , Cyndrome frá árinu 1979. Til að mynda hafði hann fyrst hugsað sér að vera | aðeins framleiðandi myndarinnar Rom- ancing the Stone. / Leikstjórinn, Robert Zemeckis, sannfærði hann um að hann væri rétti leikarinn í hlutverk- ið og eftir frammistöðu hans og vinsældir myndar- innar varð ekki aftur snúið. -HK hafi m . David Fmcher Þegar Sigurjón Sighvatsson og Steve Golin stofnuðu Propag- anda Films var David Fincher einn sá fyrsti sem þeir fengu til liðs við sig og átti hann ekki lít- inn þátt í að gera fyrirtækið að leiðandi aðila á tónlistarmynd- bandamarkaðinum með hug- myndaríkum og vel stílfærðum myndböndum sem unnu til verðlauna. Einnig vöktu auglýs- ingar hans verðskuldaða at- hygli. Fincher varð siðan fljótt einn meðeigenda í fyrirtækinu. The Game er þriðja kvikmyndin sem hann leikstýrir. Fyrsta mynd hans var Alien3, sem þótti standa fyrri tveimur myndun- um að baki, enda hefur Fincher viðurkennt að reynsluleysi hafi háö honum við gerð myndarinn- ar. Það var svo fúllmótaður kvikmyndagerðarmaður sem gerði Seven, en fáar sakamála- myndir undanfarinna ára hafa vakið jafn sterk viðbrögð. David Fincher, sem er 34 ára gamall, fæddist í Colorado, ólst upp í Kalifomíu, en flutti síðan með fjölskyldu sinni til Oregon. Eftir að skyldunámi lauk flutti hann aftur til Kaliforníu þar sem hann fékk vinnu í fyrir- tækjum George Lucas, Lucas- Film og Industrial Light and Magic. £ -m Michael Douglas ásamt Deborah Kara Unger sem leik- ur einn af þátttakendum í leiknum. keppni um líf og dauða þar sem Nicholas gerir sér ekki frekar en áhorfendur grein fyrir því hvað er leikur og hvað er raunveruleiki. Þegar handritið að The Game barst Michael Douglas í hendur þóttist hann heppinn og segist ekki hafa lesið betra handrit í mörg ár. Þeir sem skrifuðu handritiö heita John Brancato og Michael Ferris og era nokkur ár frá því að það var til- búið. Var það á flækingi milli manna áður en það rak á fjörur Davids Finchers og Michaels Dou- glas. Michael Douglas Það má segja að allt líf Michaels um kvikmyndir. Hann er einn fjög- urra sona Kirks Douglas og sá eini þeirra sem hefur náð árangri í kvikmyndaheim- inum í líkingu við föður sinn. Það var þó aldrei ætl- un Douglas í fyrstu að verða leikari. Eftir að hafa lokið háskólanámi í listum frá háskólanum í Kalifomíu stofnaði hann eigið kvikmyndafyr- irtæki til framleiðslu kvikmynda. Fyrirtæki sem hann hefúr starfrækt meðfram kvikmyndaleik. Eitt hans fyrsta verk var að kaupa kvik- myndaréttinn að skáldsögunni One Flew over the Cuckoo’s Nest, en fað- ir hans átti kvikmyndaréttinn. Myndin hlaut fimm óskarsverðlaun og varð undirstaðan að velgengni Douglas í kvikmyndaheiminum. Michael Douglas hafði vakið at- hygli fyrir leik í sjónvarpsþáttunum The Streets of San Francisco en hafði ekki hugsað sér frama á kvik- Húmar að kveldi á Manhattan Night Falls on Manhattan sem frumsýnd er i Sam-bíóunum í dag er nýjast kvikmynd hins reynda og virta leikstjóra Sidney Lumet, skrifaði hann einnig handritið eft- ir skáldsögunni Taited Evidence eftir Ro- bert Daley. I myndinni leikur Andy Garcia lög- reglu- manninn Sean Casey, sem alið hefúr aldur sinn á götum Manhattan. Hann kemst í sviðsljósið þegar hann hefúr verið hækkaður í tign og vekur mikla athygli. í þessu máli kemst Casey að því að það er stutt á milli laga og réttar og glæpa. Hann þarf að gera upp við sig hvað gera skuli gr þegar hann ^ kemst að þvi að þeir sem standa hon- um næst hafa haldið hlífis- skildi yfir glæpamönnum #»ar Andy Garcia og Lena Olin f hlut- verkum lögreglumanns og lögfræðings í Night Falls on Manhattan. ’ Vn og era sjálfir á gráa svæðinu. Auk Andy Garcia leika í Night Falls on Manhattan, Richard Dreyfúss, sem leikur lögfræðing- inn Sam Vigoda, frjálslyndan læögfræðing sem verður andstæð- ingur Casey í réttarsalnum. Lena Olin leikur samstarfsmann Vigoda, lögfræðing sem á í ástar- sambandi við Casey. Ron Leibman leikur saksóknarann Morgen- stem, sem stendur með Casey í erfiðleikum hans og Ian Holm leik- ur fóður Caseys, Liam, gamal- reynda löggu sem á ekki lítinn þátt í erfiðleikum sonar síns. Night Falls on Manhattan er fer- tugasta kvikmynd Sidney Lumets og tekin að öllu leyti í New York eins og flestar hans mynda. Lumet sem alltaf hefur verið sagt um að sé leikstjóri leikaranna brá ekki af vana sínum og hóaði öllum leik- hópnum saman til æfrnga í New York í heilar tvær vikur áður en tökur hófust. -HK tvikmyndir L.A. Confidentaf . Skuggahliöar Los Angeles sjötta áratugar- ins er sögusviöiö í óvenju innihaldsríkri og spennandi sakamálamynd sem enginn ætti að missa af. Spilltar löggur, ósvífnir æsifréttamenn, melludólgar og glæsllegar vændiskonur eru á hveiju strái. -HK Event Horizon ★★★i Geimskipiö Lewis & Clark leggur upp í leiö- angur til aö bjarga tilraunaskipinu Event Horizon sem hefur verið týnt i 7 ár. Bresk áhrif leyna sér ekki hér, bæöi hvaö varöar got- neska hönnun, gööan leik og gæöahrylling. Meö vel heppnaðri hönnun og flottu útliti, magnaðri tónlist og hágæöa ískrandi spennu, er varla hægt að ímynda sér aö hægt sé aö gera betur i svona geimhorrorhasar. -úd Everyone Says I Love You ★★★ Myndin sækir I dans- og söngvamyndir fjóröa áratugarins og þótt dansatriðin séu misjöfn aö gæöum eru sum þeirra frábær. Myndin stenst ekki samanburö viö þaö besta sem Allen hefur sent frá sér en alllr aödáendur Allens ættu þó aö sjá hana. Lelkararnir eru ferskir og slagararnir standa ávallt fyrir sinu. -GE Auðveld bráð Shooting Fish segir frá tveimur munaöar- lausum svindlurum. Dylan er sjarmörlnn sem getur talaö sig út úr hvaöa klipu sem er og Jez er feimna tölvuséniiö sem veit ná- kvæmlega hvernig brauöristinni þinni leið áöur en hún bilaöi. Persónusköpunin og handritiö eru bráöskemmtileg þar sem fjár- glæfrabrellur þeirra félaga eru hrelnt ótrú- lega klikkaöar og uppátækin eru óhikaö og fimlega yfirkeyrö. -úd Marvin's Room Fjölskyldukvikmynd I orðsins bestu merk- ingu. Persónur eru djúpar, mikið lagt I þær frá höfundar hendi og þær endurspegla þaö sem hverri fjöiskyldu er verömætast, rækt- un hennar inn á viö. Stðrleikkonurnar Meryl Streep og Diane Keaton sýna snilldarleik I hlutverkum systra, spila á allan tilfinninga- skalann af mlkilli list. -HK Perlur og svín Fyndin mynd um hjón sem kunna ekki aö baka en kaupa bakari og son þeirra sem sel- ur rússneskum sjómönnum Lödur. Óskar Jónasson hefur einstaklega skemmtilegan húmor sem kemst vel til skila og í leiöinni kemur hann viö kaunin á landanum. Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Jóhann Siguröarson eru eftirminnileg f hlutverkum hjónanna. -HK Með fullri reisn ★★★ Eftir að hafa hneykslast upp í háls (og veröa létt skelkaölr líka) á hinum fturvöxnu fata- fellum The Chippendales uppgötva þeir fé- lagar Gaz (Robert Carlyle) og Dave (Mark Addy) aö það aö fækka fötum uppl á sviöl er hiö aröbærasta athæfi. Þaö er varla hægt aö hugsa sér betri ávfsun upp á skemmtun en svona sögu og svo sannar- lega skilaöi myndin því grini sem hún lofaði, meö fullri reisn. -úd Contact ★★★ Jodie Föster er konan sem féll til stjamanna f þessari geim(veru)mynd um trú og tilverur. Leik- sflóra er mikiö I mun aö greina sig frá tæknF brelluþungum og fantasfufullum geimmyndum og skapa f staölnn raunsæja og vitraena mynd en smáfantasía heföi veriö holl og góö og létt aðeins á öllu dramanu. ( heildina er Contact sterk og skemmtileg mynd af þvf einfaida en samt viötæka atviki sem samband viö verur utan úr geimi hlýtur að vera. -úd Excess Baggage Excess Baggage kom mér skemmtilega á óvart. Styrkur myndarinnar felst I stór- skemmtilegu handriti sem þrátt fyrir hefö- bundinn og fremur ófrumlegan söguþráö hefur sig yfir alla meðalmennsku I leiftrandl samtölum og frábærum leik Benicios Del Toros sem túlkar hlnn seinþreytta og seirt- heppna Roche meö miklum tilþrifum. Þannig skyggir hann aftur og aftur Silvers- tone. -GE The Peacemaker +★> Dæmigerö Hollywood- afþreying þar sem allt sem lagt er af staö meö gengur upp, myndin er hröö, spennandi og vel gerö en eins og meö marga „sumarsmellina' sem komiö hafa frá Hollywood f ár er hún innF haldsrýr og skilur ekkert eftlr. Spielberg og félagar f Draumasmiöjunni heföu átt aö byrja af meiri metnaði. -HK Wilde Kvikmynd Brians Gilberts segir sögu breska rit- höfundarins Oscars Wilde siðasta áratuginn f lífi hans Meö aðalhlutverkið fer Stephen Fry sem, eins og svo margir hafa bent á, er fullkom- inn í hlutverk Wildes. Wilde er vönduö mynd með ágætis leik en nokkuð vantar á að handrit- iö skili dramatfsku lífshlaupi Wilde á sannfær- andi máta. Ég mæli þó meö henni. -ge Bean ★★★ Af Bean má hafa bestu skemmtun. ( hennl eru margar óborganlegar senur sem ég heföl kosið aö sjá fléttaöar saman af meirl kostgæfni. -GE Air Force One ★★> Harrison Ford er trúveröugur forseti Banda- rikjanna, hvort sem hann setur sig f spor stjómmálamannsins eöa fýrrum Víetnam- hetju f spennumynd sem er hröö og býöur upp á góö atriði. Brotalamir! handriti ásamt klisjukenndum persónum veikja hana þó til muna. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.