Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Síða 4
18
helgina
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997
Kjánaskapurinn í fyrirrúmi
„Neistinn að þessari sýningu
var annars vegar Tarotspil sem
heitir The Nameless one og sýn-
ingin dregur nafn sitt af og hins
vegar mynd af atómi.
Tarotspilin eru mjög einföld og
yfirgripsmikil því þau fjalla um
mjög stór hugtök eins og manns-
andann. Þótt ég sé engin sérstök
áhugamanneskja um Tarotspil þá
fannst mér mörg tákn Tarotspil-
anna mjög skemmtileg og því
notaði ég þau í verkum mínum
og færði þau yfir í þrívið form.
Ég nota líka útskýringarmynd
af atómi þar sem við höfum
kjarna og
spaurbaugi
kringum
hann. Ég
túlka
þessar
mynd-
ir ;^i§p
hins .*■ I
vegar frekar sem útskýringar á
mannsandanum," segir mynd-
listarkonan Gabríela um
sýningu sína í Galleríi
20m2.
En hver eru aðalvið-
fangsefni Gabríelu? „Ég
er hrifin af öllu sem er
mjög stórt og yfir-
gripsmikið. Á sýn-
ingunni nú er
mannsandinn aðal-
við-
fangs-
efnið. Það er
mjög
erfitt
að
ijalla um manns-
andann án þess
að vera með ein-
hverjar langar
útskýringar en
ég tek mér það
bessaleyfi að
setja hann upp í
ákveðið kerfi til
að útskýra
hann.“
Aðspurð
sinn persónu-
lega stíl segir
Gabríela:
„Teiknimynda-
stíllinn er mjög
einkennandi í
mínum skúlpt-
úrum. Það er
kannski vegna
þess að ég kýs að
hafa léttleika og
húmor í mínum verkum. Oft
eiga gestir að taka verkin
mín upp og gera eitthvað
með þeim. Þess vegna
mega verkin ekki vera
of alvarleg og
akademísk.
Það má jafnvel
segja að hjá mér sé
kjánaskapurinn í
fyrirrúmi.
Ég er mjög
hrifin af öllum
kjánaskap og
flflalátum. Ég
vil helst vera
galgopi sem
æðir áfram og
gerir eitthvað
kjánalegt sem
er á skjön við
allar reglur.“
-glm
Eitt verka Gabríelu.
Sá nafnlausi
Myndlistarkonan Gabríela opnar
á morgun sýningu á verkum sínum
í Gallerí 20 m2.
Sýningin ber heitið Sá nafnlausi
og stendur hún til 14. desember.
Gabriela útskrifaðist frá skúlptúr-
deild Myndlista-og handíðaskólans
síðastliðið vor. Hún hefur áður
haldið tvær einkasýningar og tekið
þátt í samsýningum.
Sá nafnlausi er myndrænt mengi
þar sem stökin eru hlutir er skýra á
einfaldan hátt mannsandann og
hugsun. Áhorfandinn fer í hlutverk
hins nafnlausa og reynir með hjálp
tákna að átta sig því furðulega fyr-
irbæri sem mannsandinn er.
Gallerí 20 m2 er að Vesturgötu lOa
í kjallara. -glm
Rússibanar í
Kaffileikhúsinu
Hljómsveitin Rússibanar mun
leika í Kaffileikhúsinu annað kvöld
milli kl. 22 og 1.
Tónlist Rússibananna er sam-
bland af tangó, salsa, slavneskum
slögurum og tilbrigðum við verk
Brahms og Mozarts.
Rússibanana skipa þeir Guðni
Franzson klarinettleikari, Einar
Kristján Einarsson gítarleikari,
Tatu Kantomaa harmónikkuleik-
ari, Kjartan Guðnason trommuleik-
ari og Bjami Sveinbjörnsson bassa-
leikari.
Einnig má geta þess að Rússi-
banamir sendu frá sér geisladisk í
vikunni. Mál og menning gefur
diskinn út.
Miðasala Kaffileikhússins er opin
í kvöld og annað kvöld milli kl. 18
og 21. Einnig er hægt að panta miða
í gegnum símsvara allan sólarhring-
inn í síma 551 9055.
„Jólin hennar ömmu“ er barnaleikrit af bestu gerö.
Furðuleikhúsið:
Jolin hennar ömmu
Furðuleikhúsið sýnir á sunnudaginn kl. 16 bamaleik-
ritið Jólin hennar ömmu eftir Margréti Kr. Pétursdótt-
ur.
í leikritinu segir Sigríður amma frá því þegar hún
var ung stúlka og Grýla tók Ólaf, besta vin hennar og
ætlaði að éta hann. Sigríður þurfti að hraða sér upp í
fjöll til að bjarga honum. Þar hitti hún Stekkjastaur sem
var á leiðinni til byggða til að hrella bóndans fé.
Stekkjastaur bjargaði Sigríði síðan fyrir tilviljun. Að
launum fékk hann rauða skotthúfu.
Sigríður fræddi Stekkjastaur um Jesúm og af hverju
við höldum jól. I sameiningu reyndu þau síðan að fá
Grýlu ofan af þvi að éta börnin.
í leikritinu er leitast við að blanda saman þjóðtrúnni
um jólasveinana og kristilegum boðskap jólanna.
Leikritið tekur um 30 mínútur í flutningi.
Leikarar Furðuleikhússins eru: Margrét Kr. Péturs-
dóttir, Eggert Kaaber og Ólöf Sverrisdóttir. Undirleikari
og höfundur tónlistar er Valgeir Skagfjörð. Leikstjóri er
Gunnar Gunnsteinsson.
Hljómsveitin Rússibanar leikur í Kaffileikhúsinu annaö kvöld.