Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1997, Side 12
26
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1997
■ ★
MYNDBAHDA
Private Parts: ★★★*
Uppgangur útvarpsstjömu
Private Parts byggir á sjálfsævisögu útvarps-
stjömunnar Howard Stem, sem stjómar vinsælasta
útvarpsþætti Bandaríkjanna. Hann er frægur fyrir
að láta allt flakka, er umdeildur og hefur hneykslað
marga. Myndin rekur uppgang hans í gegnum
nokkrar útvarpsstöðvar þangað til hann nær að full-
komna sinn stíl, slær í gegn og er ráðinn af WNBC, sem útvarpar á
landsvísu. Hún rekur síðan baráttu hans við yflrboðara sína, sem reyna
eftir fremsta megni að ritskoða hann, en hann knésetur þá að lokum.
Howard Stern leikur sjálfan sig í myndinni og er í nánast öllum atrið-
unum. Það mæðir því mikið á honum, en hann stendur sig vel og í raun
er erfitt að imynda sér einhvern annan í hlutverki hans. Af öðrum leik-
uram má nefna Paul Giamatti, sem fer á kostum í hlutverki Kenny, sem
Howard Stem kallar Pig Vomit, en hann er dagskrárstjórinn sem var
settur til höfuðs Howard Stem hjá NBC. Síðasti hlutinn, sem lýsir bar-
áttu þeirra tveggja, er besti hluti myndarinnar, og það er alveg hreint
með ólíkindum hvemig Stern fer með greyið manninn, biður m.a. til
guðs í beinni útsendingu að senda leigumorðingja til að drepa hann.
Annars er myndin öll hin besta skemmtun og Howard Stem er greini-
lega stórskemmtileg fjölmiðlafígúra.
Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Betty Thomas. Aðalhlutverk:
Howard Stern. Bandarísk, 1997. Lengd: 110 mín. Bönnuð innan 12 ára.-PJ
Liar Liar:
Lyginn lögfræðingur ★★★*
Lygarinn og lögfræðingurinn Fletcher Reede lend-
ir í erfiðustu aðstæðum lífs síns þegar afmælisósk
sonar hans rætist og hann getur ekki logið í einn sól-
arhring. Hann er að reyna að komast í stöðu meðeig-
anda í fyrirtækinu og þarf að vinna mál, þar sem all-
ur málatilbúnaður er byggður á lygum. Ennfremur
þarf hann að finna tíma til að koma í veg fyrir að
fyrrverandi eiginkona hans flytjist búferlum í annan
landshluta með son hans. Þessi mynd stendur og fell-
ur með aðalleikaranum Jim Carrey og hann fer létt
með að hífa myndina upp í hæstu hæðir. Grínið
byggist að mestu á örvæntingarfúllum tilraimum lögfræðingsins til að
bjarga sér út úr klípunni sem hann er i, og Jim Carrey geiflar sig og
grettir eins og hann eigi lífið að leysa. Inn á milli koma væmin atriði
sem gera ekkert nema hvíla andlitsvöðva áhorfenda, en þegar myndin
er að sinna ærslaleikshlutverki sínu framkallar hún mikil hlátrasköll og
sá sem ekki skellir af og til upp úr yfir henni á bágt. Þess má geta að
myndin er sú fyrsta af myndum Jim Carrey þar sem hann skartar til-
tölulega eðlilegri hárgreiðslu.
Útgefandi: CIC myndbönd. Leikstjóri: Tom Shadyac. Aöalhlutverk: Jim
Carrey. Bandarísk, 1997. Lengd: 83 mín. Öllum leyfð. -PJ
Cold comfort farm:
Sveitasæla ★★★★
Þegar unga glæsidaman Flora Poste missir for-
eldra sína verður hún að treysta á ættingja sína til
að framfleyta sér. Hún flytur því inn á Starkadder-
fjölskylduna, sem býr á gömlum og skítugum bónda-
bæ. Ábúendur eru hver öðrum einkennilegri, en
Flora Poste hefst strax handa við að lagfæra og hag-
ræða allt sem henni þykir þess þurfa í lífi þeirra.
Hún hlustar ekki á neitt tuð og svartsýnisröfl, þykist
vita hvað sé öllum fyrir bestu og stýrir þeim þangað.
John Schlesinger skapar hér meinfyndna mynd, sem
er uppfull af þrælskemmtilegum persónum. Nýliðinn
Kate Beckinsale sýnir sannkallaðan stjörnuleik í aðalhlutverkinu og
túlkar hina röggsömu og ákveðnu Flora Poste af miklu öryggi. lan
McKellen er einnig frábær sem hinn bóndinn og predikarinn Amos
Starkadder. Eileen Atkins, Sheila Burrell, Stephen FYy, Freddie Jones,
Joanna Lumley, Rufus Sewell og Ivan Kaye skapa einnig skemmtilegar
persónur. Þessi mynd var ein af bestu myndunum á kvikmyndahátið-
inni á síðasta ári og er sannkallaður gullmoli.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: John Schlesinger. Aðalhlutverk: Kate Beck-
insale, Joanna Lumley, Eileen Atkins, Rufus Sewell og lan McKellen.
Ensk, 1996. Lengd: 99 mín. Öllum leyfð. -PJ
When We Were Kings: ++++
Fróðleg og skemmtileg
Það tók Leon Gast meira en tvo áratugi að klára
heimildamynd sína, When We Were Kings, sem fjall-
ar um bardaga Muhammad Ali og George Foreman
í Zaire árið 1974. Ali var þá nýlega byrjaður að berj-
ast á ný eftir að hafa setið í fangelsi fyrir að neita að
gegna herþjónustu og endurheimti heimsmeistaratit-
ilinn með því að sigra George Foreman, sem fyrir
bardagann var talinn ósigrandi. Með í fór til Zaire
voru margir af helstu svörtu tónlistarmönnum
Bandaríkjanna og var haldin mikil tónleikahátíð fyr-
ir bardagann. Sýnd eru viðtöl við Ali og Foreman,
tónlistarmennina, skipuleggjendur og aðra sem viðstaddir voru, og sýnt
frá atburðunum, tónleikunum, æfingum og bardaganum sjálfum.
Muhammad Ali er oftast í mynd og talar nánast stanslaust, en hann var
með eindæmum kjaftfor og orðheppinn. Leikstjórinn nær mjög vel að
koma andrúmsloftinu til skila og leiða áhorfendann í gegnum atburðina.
Hann skapar hér mynd sem er bæði skemmtileg og fróðleg. Hann hefur
greinilega nýtt vel allan tímann sem hann tók í að gera myndina.
@pers:Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Leon Gast. Aðalhlutverk:
Muhammad Ali og George Foreman. Bandarísk, 1996. Lengd: 84 mín.-PJ
K! N G S
Myndbandalisti vikunnar
r~ .«r/rM* / % @ «
—m
— 18. til 24.nóvember
SÆTI T FYRRI i VIKA vikur r Á LISTA TITILL J J ÚTGEF. ! i J TEG.
1 j Ný i ! Fifth Element, The 1 J Skrfan 1 J Spenna
2 í 4 j 2 Bulletproof ClC-myndbönd J Spenna
3 ! ný ; i ! Private Parts Sam-myndbönd j Gaman
4 j i i í j 3 j Anaconda j J Skífan J J Spenna
5 ! 3 i 5 ! Saint, The ClC-myndbönd Spenna
6 1 J 5 2 ! Shadow Conspiracy j Myndform Spenna
7 ! 2 J J ! 7 ; j j 4 Scream Skífan J Spenna
S 6 ! J Fools Rush In Skffan j J Gatnan
9 ! 6 ! 5 Donnie Brasco Sam-myndbönd Spenna
10 ! 8 i > j j 7 People VS. Larry Flynt ! j j Skífan j j Gaman
11 1 9 1 J 8 i 8 ! Vegas Vacation Warner myndir Gaman
12 J j ! Ní ! j 1 J j Hostile Waters J . BÍ J Bergvík | Spenna
13 1 j j 10 j 6 ! Smilla's Sense of Snow ! ) Sam-myndbönd , Spenna
14 j j ! Ný ; J 1 ! j When We were Kings J Háskólabíó J Heimild
15 ! 14 ! j j ! 13 ! j i 2 ! Big Night Sam-myndbönd 1 Gaman
16 5 ! J Pallbearer, The J Skífan ! Gaman
17 j 15 J J j * ! Beavis and Butt-Head Do America j ClC-myndbönd j Gaman
1S ! n ! j j 9 í j English Patient ! j l Skffan J J Drama
19 ! i8 ! ii ! Metro ! Sam-myndbönd ! Spenna
20 j j ! Ný J j i : j Citizen Ruth J Skffan J j Gaman 1
: L.
Tvær ólíkar myndir koma stormandi á listann í 1. og
3. sæti. Um er aö ræöa vísindatrylli Luc Bessons,
og kómedíu hins kjaftfora Howards Sterns sem leik-
ur sjálfan sig. Tvær minna þekktar kvikmyndir koma
inn á listann og eru mun neöar. Hostile Waters, sem
er í tólfta sæti, er spennumynd þar sem segir frá
spennu í samskiptum stórveldanna þegar sovéskur
kjarnorkukafbátur rekst á bandarískan kafbát. í aö-
alhlutverkum eru Rutger Hauer, Max Von Sydow og
Martin Sheen. Tveimur sætum neöar er hin víö-
fræga heimildarmynd When We Were Kings en hún
fjallar um mesta hnefaleikakappa allra tíma, Mu-
hammad Ali. Þess má geta aö þessi mynd fékk ósk-
arsverölaun sem besta heimildarmynd.
$
The Fifth
Element
Bruce Willis, Milla
Jovovich og Gary
Oldham.
Eftir 250 ár stafar jörð-
inni hætta af illum öflum
sem hyggjast ráðast á
hana. Vöm jarðarinnar
er fimmta frumefiiið en
þar sem aflar þær verur
sem vissu hvar frumefh-
ið var eru dauðar þá eru
erfiðleikar framundan.
Vísindamönnum tekst að
rækta kvenveru úr vefj-
um hinna dauðu. Sú
kvenvera verður mjög
hrædd þegar hún vaknar
tfl lífsins og tekst að flýja
úr búri sínu og sleppur
út í iðandi umferðina þar
sem hún endar i aflur-
sæti leikbíls sem stjómað
er af fyrrum flugforingja,
Corben Dallas.
Bulletproof
Adam Sandler og
Damon Wayans
Archie Moses og Rock
Keats vom miklir mátar.
Nú, þegar annar þeirra
er orðinn lögga og hinn
er smákrimmi, telja þeir
hvor annan svikara.
Þetta leiðir til þess að
þeir þola ekki hvor ann-
an og láta hrakyrðin
dynja á víxl hvenær sem
færi gefst. Það er samt
stutt í vinskapinn og þeir
eiga einn sameiginlegan
óvin, eiturlyfjakónginn
Colton (James Caan) sem
þeir þurfa að sameinast
gegn því Colton vifl þá
báða undir græna torfú
og sendir morðingja út af
örkinni til að koma þeim
fjrir kattamef.
Private Parts Anaconda
The Saint
Howard Stern og
Robin Quivers.
Við fylgjumst með
Howard Stem, vin-
sælasta útvarpsmanni
Bandaríkjanna, aflt frá
því hann var bam og tfl
dagsins í dag. Stem deil-
ir í myndinni með öllum
sem vilja sorgum sínum
og sigrum á leið sem oft
var þymum stráð eins og
gefur að skilja. Menn
verða ekki vinsælir án
þess að þurfa einhvem
timann að pissa upp í
vindinn, segir Stem en
sjálfur mátti hann una
við það að vera talinn
vonlaus langt fram eftir
ævl
Jon Voight, Jennifer
Lopez og Erik Stoltz
Langt inni í
Amazon-frumskógin-
um er aö finna
kyrkislöngu sem er
svo stór að hún getur
auðveldlega gleypt
menn. Hópur kvik-
myndatökufólks held-
ur upp Amazon í þeim
tilgangi að finna forn-
an ættbálk indíána. Á
leiðinni rekst hópur-
inn á Paul Sarone sem
brotið hefur bát sinn
og þarfnast aðstoðar.
Vegna óhappa þarf að
snúa við. Þegar Sar-
one segist vita um
styttri leið ákveða
leiðangursmenn að
fara að hans orðum
þrátt fyrir að þeir hafi
illan bifur á honum.
Aðalhlutverk: Val
Kilmer og Elisabeth
Shue
í dag er Simon Templ-
ar orðinn meistaraþjófur,
sniflingur í að dulbúa sig
og vinna öfl þau hættu-
legu verk sem honum em
falin. Markmið hans er
að safna 50 mifljónum
dollara inn á leynireikn-
ing sinn. Um leið og
þeirri tölu er náð sest
hann í helgan stein. Og
verkefhið sem hann þarf
að leysa til að fylla þessa
tölu er að stela vísinda-
formúlu sem ung vísinda-
kona hefur fundið upp og
á eftir að leiða af sér bylt-
ingu í orkumálum heims-
ins.