Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1997, Blaðsíða 5
DV FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 Hff helgina Verk Rúnu á sýningunni f Nýlistasafninu eru undir frönskum áhrifum. Guðjón Ólafsson með eina teikningu. Teikn- ingar af húsum Á morgun kl. 10.00 opnar Guð- jón Ólafsson sýningu á 70 teikn- ingum af húsum á Akranesi í Gallerí Römmum og myndum aö Kirkjubraut 17 á Akranesi. Myndimar eru allar teiknaðar á þessu ári. Þær eru af gömlum og nýjum húsum, sum ekki til leng- ur og sumum hefur verið breytt nokkuð. Sýningin er opin til jóla og eru allar myndimar til sölu. Guðjón er 62 ára Vestmannaey- ingur og hefur alla tíð búið í Eyj- um. Hann stundaði nám í Mynd- lista- og handíðaskólanum 1955-57 og hélt sína fyrstu mál- verkasýningu árið 1975. Nú stendur einnig yfír sýning á vatnslitamyndum Guðjóns í Akoges-húsinu í Vestmanneyj- um. -DVÓ Rúna Gísla- dóttir í Ný- listasafninu Gestur Nýlistasafnsins þessa dag- ana er Rúna Gísladóttir listmálari. Hún rekur lestina í röð tíu mynd- listarmanna í Félagi íslenskra myndlistarmanna sem haldið hafa sýningar í setustofu Nýlistasafnsins frá því í vor þegar Hafsteinn Aust- mann reið á vaðið. Myndröðin á sýningunni á upp- haf sitt að rekja til Parísardvalar Rúnu síðastliðið vor. Myndimar em flestar teikningar en Rúna not- ar einnig ýmsar gerðir pappírs sem hún málar og skeytir saman. Rúna hefúr kennt myndlist við myndlistarskóla sinn, Myndmál á Seltjamamesi, í þrettán ár. Síðasta einkasýning Rúnu í Reykjavík var árið 1991. Hún hélt hins vegar einkasýningu á Akureyri í fyrra og tók þátt í samsýningu á Norður- löndunum og í París. Nokkur verka sýningarinnar. Art-hún á aðventu Á morgun milli kl. 13 og 18 bjóða listakonumar sjö í gaUeríinu Art- hún, Stangarhyl 7, í hið árlega opna hús sitt á aðventu. Þar gefst gestum tækifæri á að skoða vinnustofúr listakvennanna og njóta fagurra listmuna i björtum sýningarsal gail- erísins. Boðið verður upp á kaffi, „Fólk í smiðju, kona með geislabaug" eftir Gunnlaug Scheving. Gunnlaugur Scheving: Ur smiðiu listamannsins Um þessar mundir stendur yfir í öllum sölum Listasafns íslands sýning á verkum Gunnlaugs Scheving. Á sýningunni em flest þekktustu verka Gunnlaugs auk fjölda undirbúningsmynda. Sýn- ingin gefúr því góða innsýn í vinnu listamanns- ins, allt frá frumdráttum að fullunnu verki. Einnig verður sjónvarpsmyndin „Hið hljóðláta verk“ sýnd dag hvem kl. 12 og 15. A sunnudaginn verður síðan haldin listasmiðja bama. Þar fá þau stórar arkir til að teikna fram- hald af myndum Gunnlaugs. Einnig er rétt aö geta þess að ýmsar heimildir um Gunnlaug Scheving liggja frammi á neðstu hæð safnsins og á bókasafni þess. Sýningin stendur til 21. desember og er opin alla daga nema mánudaga milli kl. 11 og 17. Einþiykk í Gall- erí Horninu Myndlistarmaðurinn Bjami Þór Bjamason opnar á morgun sýningu á verkum sínum i Gall- erí Hominu, Hafnarstræti 15. Á sýningunni eru um 30 ein- þrykksverk, öll unnin á þessu ári. Bjami Þór stundaði mynd- listamám á áranum 1975-1980. Hann hefur haldið átta einka- sýningar auk samsýninga. Á dögunum var afhjúpuð högg- mynd eftir Bjama í Borgarnesi. Bjami er bæjarlistamaður Akraness árið 1997. Sýningin stendur til 23. des- ember og verður opin alla daga milli kl. 11 og 23.30. Stöðlakot Vetrarbirta Myndlistarkonan Bjamheiður Jóhannsdóttir opnar á morgun kl. 14 sýningu á leirmunum sínum í Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6. Bjamheiður lauk námi frá leirlistardeild Myndlista- og handíða- skóla íslands árið 1992 og meistaragráðu frá ungversku listiðn- arakademíunni árið 1994, Verkin á sýningunni endurspegla að sögn Bjamheiðar vetur bemskunnar og ljós og yl jólanna. Sýningin nú er þriðja einkasýning Bjamheiðar. Hún verður opin dag- lega milli kl. 14 og 18 og henni lýkur 21. desember. jólaöl og piparkökur. Art-hún verð- ur opið alla daga í desember milli kl. 12 og 18 nema sunnudaga. Myndlist Kaffi Lefolii Eggert Kristinsson frá Tjaldanesi hefur opnað sýn- ingu á verkum sínum á Kaffi Lefolii á Eyrarbakka. Sýning- in nú er fimmta einkasýning Eggerts og önnur sýning hans á Kafii Lefolii. Eggert málar jöfhum hönd- um mannamyndir, hús og landslag. Hann málar bæði ákveðna staði og fantasíur úr hugarfylgsnum sinum. Innan um era svo myndir frá Eyrar- bakka. Allar myndimar eru málaöar með olíu á striga. Sýningin stendur út desem- ber. Gnægtarborðið Jólasýning Gallerí Lista- kots, Laugavegi 70, verður opnuð á morgun kl. 16. Sýn- ingin er útfærsla á jólahlað- borði landsmanna. Listakonur Listakots leika sér að samspili allra þeirra þátta sem prýða uppdekkað borð og umhverfi þess. Gallerí Listakot er opið frá kl. 10 alla daga til jóla og fram á kvöld í samræmi við af- greiðslutíma verslana við Eitt verka Bjarnheiðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.