Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1997, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1997, Blaðsíða 11
JD>"V FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 1997 tónlist ,' sj álí sxróun Stefán Hilm- arsson hefur um árabil verið í fremstu röð ís- lenskra tónlist- armanna. Und- anfarin ár hef- ur hann fetað sína eigin slóð í tónlist- inni þar sem hljóm- sveit hans, Sálin hans Jóns míns, er ekki lengur starfandi í þeirri mynd sem hún var þegar hún var ein vin- sælasta hljómsveit landsins. Ný sólóskífa Stefáns kom út nú í vik- unni og ber hún nafnið Popplín. Stefán byrjaði að semja lög á plötuna síðla sum- ars en ákvað svo að gera hana í einum rykk í október. Hvers vegna raukstu upp til handa og fóta fyrst þá? „Ég er nú bara þannig gerður að mér fer best að vinna undir pressu. Það er eins þegar ég sem lög. Ég er ekki með þau i kollinum lengi held- ur sest niður og tek lagasmíðina fyr- ir eins og verkefni og klára það.“ Þú vannst þessa plötu með Mána Svavarssyni: „Já. Máni er þeim hæfileika gæddur að hann hittir einhvem veginn alltaf á það sem maður er að leita eftir. Það er afar mikilvægt að vinna með fólki sem maður nær góðu sambandi við. Ég leik ekki á hljóðfæri sjálfur þannig að lögin eru oftast samin með öðrum og þá þarf fólk að ná vel saman.“ Ástin og lífið Hvaða stemning er yfir plötunni? „Nafnið er dregið af innihaldinu á vissan hátt. Þetta er popptónlist." Hvað ertu að fialla um í textunum? „Rauði þráðurinn í flestu sem sungið er um er ástin og lífið. Þetta eru sígild viðfangsefni tónlistar- manna. Ákveðin lög kalla á texta um ástina." Nú hefur þú verið lengi í sviðsljós- inu með Sálinni. Er hún hætt? „Hún liggur eiginlega bara i dvala. Tveir meðlimir hennar eru búsettir erlendis og þegar þeir eru á landinu fórum við á stjá.“ Hvemig er að standa allt í einu einn eftir að hafa verið í hljómsveit? „Sálin kemur saman einu sinni til tvisvar á ári. Það er gaman þegar vel gengur og svo er það náttúrlega fé- lagsskapurinn. Það gefur líka mikið kikk að spila þegar er fullt hús. Það er samt aðalkikkið að vera sóló - í raun og veru hi: un.“ Þú hefur tekið tölvuna þjónustu á nýju plötunni: „Já, með tölvunni e engir veggir lengur. Það er hægt að prófa allar hugmyndir sem maður fær á skömmmn tima með litlum tilkostn- aði.“ Þú ert líka á Netinu með þina eigin heimasíðu. Hefurðu tileink- að þér nettækn- ina? „Já, þetta er nokkurs kon- ar áhugamál hjá mér. Það er hægt að fara inn á heimasíðuna mína og skoða myndir og heyra brot úr lögunum á nýju plötunni. Slóðin er:www.Mme- dia.is/stefanhilm- ars“ Hvað með tónleika- hald í kringum plötuna? „Það verða bara einir tónleikar. Það er erfitt að smala saman mönnum til að æfa upp prógramm á þessum tíma. Ég ætla samt að hafa útgáfu- tónleikana án tölvutónlistar. Það verður tríó með mér eða kvartett og við sjáum um allan flutning á lögun- um.“ JAJ íullkomna hin .ij, Ö&ruvísi Gleðisveitin Rússíbanar hefur vakið mikla athygli undanfarin ár og nú hafa þeir Rússíbanamenn gef- ið út geisladisk sem ber nafn sveit- arinnar. Rússíbanar eru ákaflega óvenjuleg hljómsveit. Meðlimimir eru allir gagnmenntaðir kunnáttu- menn með bakgrunn í klassískri tónlist og á disknum spila þeir með- al annars alls kyns polka og tangóa, gyðingatónlist, verk eftir Mozart, Brahms og Bizet, sjálfan Sverðdans- inn eftir Khachaturian og þann gamla góðkunningja margra út- varpshlustenda, Spjallað við bænd- ur. Þegar hljómsveitin hefur komið fram opinberlega á undanfomum árum hafa færri komist að en vildu og rússíbanaböll þykja viðburður í íslensku menningarlifi. ll. Sín á Pollinum Hljómsveitin Sín leikur um næstu helgi á veit- ingastaðnum Við Pollinn á Akureyri. Hljómsveitin er skipuð þeim Guð- mundi Símonarsyni og Guðlaugi Sigurössyni. Þeir leika lög við allra hæfi. Útgáfutónleik* ar á Café Menningu Hinn sextán ára gamli Dalvíkingur, Friðrik Ómar Hjörleifsson, hefur ráðist í það stórvirki að gefa út jólakassettu nú fyrir jólin. Á kassettunni eru tólf jólalög. Hann mun halda útgáfutón- leika á Café Menningu á Dalvík í kvöld kl. 21. All- ur ágóði rennur til Rauða kross íslands. 200.000 nagl- bítar Hljómsveitin 200.0)0 nagl- bítar frá Akureyri mun spila á síðdegistónleikum Hins hússins á Kakó- barnum Geysi í dag kl. 17. Hljómsveitin er með tvö lög á geisladisknum Spimm sem kom út í haust. Galabandið Hljómsveitin Galabandið ásamt Önnu Vilhjálms- dóttur söngkonu mun leika á veitingastaðnum Næturgalanum um helg- 8-villt á Hótel íslandi Hljómsveitin 8-villt leik- ur fyrir dansi á Hótel ís- landi um helgina. Scruffy Murphy írska hljómsveitin Scruf- fy Murphy leikur annaö kvöld á Gullöldinni að Hverafold 5.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.