Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.1997, Side 3
MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 1997
31
Iþróttir
Kristinn Björnsson keppir á heimsbikarmóti í svigi i kvöld:
„Reyni aö gera
mitt besta"
- frábært ef ég kemst í hóp 15 efstu manna, segir Kristinn
Kristinn Björnsson tekur í dag
og kvöld þátt í öðru heimsbikar-
mótinu á skíðum sem fram fer í
Sestriere á Ítalíu. Kristinn keppir
í svigi en eins og alþjóð ætti að
vera kunnugt kom hann öllum á
óvart á fyrsta heimsbikarmótinu
þegar hann hafnaði í öðru sæti og
fékk langbestan tíma í síðari ferð-
inni.
Eins og fram kemur á bls. 29
bætti Kristinn skrautfjöður í hatt
sinn á laugardaginn þegar hann
varð þriðji á sterku Evrópubikar-
móti sem fram fór á Ítalíu og eins
og á heimsbikarmótinu varð
hann fyrsti íslendingm-inn til að
komast á verðlatmapall.
Kristinn kom um hádegisbilið
í gær á keppnisstað í Sestriere og
seinni partinn í gær æfði hann í
brekkunni þar sem keppnin fer
fram í Qóðljósum.
Árangurinn á tveimur síð-
ustu mótum hlýtur að gefa þér
byr undir báða vængi fyrir
mótið f Sestriere?
„Jú, það gerir það náttúrlega.
Ég er spenntur að sjá hvort ég
verð að skíða á svipuðum nótum
og í Bandaríkjunum.
Veit aö fólk heima býst viö
einhverju svipuöu og i
Bandarikjunum
Finnur þú fyrir meiri pressu
á þér eftir þennan glæsilega ár-
angur á fyrsta stigamótinu?
„Ég held nú ekki. Ég reyni að
leiða þetta hjá mér. Ég veit hins
vegar að fólk heima býst við ein-
hverju svipuðu og í Bandaríkjun-
um. Ég geri mér hins vegar grein
fyrir því hvað þetta er erfitt. Ef
ég verð á meðal 15 efstu manna
yrði það alveg frábært. Ég mun
gera mitt besta. í svona íþrótt eru
hver mistök dýr svo það má ekki
mikið út af bregða svo illa geti
farið,“ sagði Kristinn.
Allir bestu skíöamenn
heims meö
Kristinn vissi ekki betur en að
allir bestu skíðamenn heims yrðu
með í þessu móti. Kristinn, sem
var ræstur út númer 49 í Park
City í Bandaríkjunum á fyrsta
heimsbikarmótinu, sagðist ekki
vita með vissu hvaða rásnúmer
hann fengi f Sestriere en sagðist
búast við að vera í kringum 25.
Fyrri ferð svigsins hefst í dag
klukkan 17 og síðari ferðin
klukkan 20.
Færiö hentar Kristni vel
„Mér sýnist aöstæður hér vera
mjög góðar. Færið er hart sem
ætti að henta mér vel því ég er
bestur við þannig kringumstæð-
ur. Ég keppti hér á sama stað á
heimsbikarmóti í fyrra og þá var
eins og nú keppt í Qóðljósum.
Síðasta mót ársins í
Madonna
Þriðja heimsbikarmótið fer
fram í Madonna á Ítalíu 22. des-
ember og þar verður Kristinn á
meðal keppenda. Það er síðasta
mót ársins en þráðurinn verður
síðan tekinn upp að nýju eftir
áramót þegar fjórða mótið fer
fram í Kranjska Gora í Slóveníu.
Heimsbikarmótin í ár verða
níu talsins og stefnir Kristinn á
að verða með í öllum þeim mót-
um og á ólympíuleikunum sem
fram fara í Nagano í Japan í febr-
úarmánuði.
-GH
Kristinn í beinni
útsendingu á Sýn
Það ríkir mikil eftirvænting hér heima
fyrir heimsbikarmótið í Sestriere í kvöld.
Eftir frábæran árangur Kristins á fyrsta
heimsbikarmótinu, þegar hann hafiiaði í 2.
sæti, ætla margir að fylgjast með í
sjónvarpinu í kvöld en sjónvarpsstöðin Sýn
mun sýna svigkeppnina í beinni
útsendingu. Fyrri ferðin hefst klukkan 17
og síðari ferðin klukkan 20. -GH
Inga Fríöa Tryggvadóttir fær hér óblföar móttökurhjá Judit Esztergal og Hörpu Melsted í leik
Stjörnunnar og Hauka um helgina þar sem Stjarnan sigraöi. DV-mynd Brynjar Gauti
1. deild kvenna í handknattleik:
Anna Blöndal tryggði
Stjörnunni sigur
- sem fer í jólafrí meö Qögurra stiga forskot
Ekki er hægt að segja annað en að leikur
Hauka og Stjörnunnar hafi verið frábær
auglýsing fyrir kvennahandboltann. Leik-
urinn var mjög hraður og skemmtilegur en
þó svolítið sveifiukenndur.
Haukar byrjuðu mun betur og komust í
6-1. Þá tók Stjaman leikhlé og náði að
jafha leikinn í 8-8 þegar rúmar fimm mín-
útur voru í hálfieik. Jafiit var svo á öllum
tölum og staðan í hálfieik var 11-11 eftir að
Nína Bjömsdóttir jafiiaði á síðustu sek. fyr-
ir Stjömustúlkur.
Síðari hálfieikurinn byrjaði eins og sá
fyrri, þ.e. Haukastúlkur völtuðu yfir and-
stæðing sinn og komust í 19-14. Það leit
ekki út fyrir spennandi leik. Stjömustúlk-
ur vora þó ekkert á þeim buxunum að gef-
ast upp. Með miklum karakter og baráttu
söxuðu þær jafiit og þétt á forskot Hauka.
Vöm þeirra var frábær á þessum leikkaQa
og þeir fáu boltar sem komust í gegnum
vöm þeirra varði Liana Zadcon í markinu.
Þegar sjö mínútur vom til leiksloka
komust Haukastúlkur í 22-20 með marki
frá Hörpu Melsted. Þegar 4.24 mínútur
vora eftir misstu Haukar Judit Estergal af
velli með brottvísun. Nína minnkaði mun-
inn í 22-21. Haukar fóra í sókn en Stömu-
stúlkur unnu boltann, brunuðu í hraða-
upphlaup og Anna Blöndal skoraði og jafh-
aði leikinn, 22-22, og rúmar þrjár mínútur
eftir. Aftur fara Haukar í sókn en missa
boltann og aftur skorar Anna Blöndal úr
hraðaupphlaupi og kemur Stjömustúlkum
yfir, 22-23, í fyrsta skipti í langan tíma.
Haukar tóku þá leikhlé þegar 2.42 vora eft-
ir. Ekki virtist það koma að sök því vöm
Stjömunnar gaf ekkert eftir og þær héldu
út langa sókn Hauka og sigraðu, 22-23. Að
sama skapi má segja að Haukar hafi farið
illa að ráði sínu að ná ekki að skora á tæp-
um þremur mínútum en algjört ráðleysi
ríkti í sókninni.
Auövitaö sáttur
„Auðvitað er maður sáttur með tvö stig
en það þarf rosalegan karakter til að vera
svona undir lengi og ná að vinna það upp.
Það vantar svolítið að byrja strax leikinn
og virðist vera einbeitingarleysi hjá okkur.
Það er miklu skemmtilegra að fara í jóla-
fríðið með tvö stig heldur en að vera með
tap á bakinu,“ sagði Aðalsteinn Jónsson,
þjálfari Stjömunnar, eftir leikinn.
Mörk Hauka: Hulda Bjamadóttir 7,
Judit Estergal 5/1, Harpa Melsted 4/2,
Thelma Ámadóttir 3, Björg Gilsdóttir 2,
Auður Hermannsdóttir 1. Vigdís Sigurðar-
dótir varði 15 skot.
Mörk Stjömunnar: Ragnheiður Steph-
ensen 8/3, Inga Fríða Tryggvadóttir 4, Nína
Bjömsdóttir 4, Herdís Sigurbergsdóttir 3,
Anna Blöndal 2, Hrund Grétarsdóttir 1, Sig-
rún Másdóttir 1. Liana Zadcon varði 19/1
skot.
-RS
TAKTU SVIGIÐ Á
55. Alberto Tomba - T.Stiansen
56. F.C.Jagge - T. Stangassinger
57. Kristinn Björnsson - K.A. Aamodt
þessa skíðakappa m tJTjlll
15:55 ídag.
t r a r a I I a I a
Á s k i ð u m s k e m m t i
e u
m e t
ttá r á I I a I a ,
t t a r a I I a ! a i