Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1997, Blaðsíða 5
i'
~1T~T7~ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997
|Én helgina
**★
Dómínó aftur í Iðnó
Leikritið Dómínó
eftir Jökul Jakobsson
var frumsýnt á Litla
sviði Borgarleikhúss-
ins 9. janúar á þessu
ári í tileöii þess að eitt
hundrað ár voru liðin
frá því fyrsta leiksýn-
ing Leikfélags Reykja-
víkur var sett upp í
Iðnó. Dómínó var
frumsýnt í Iðnó árið
1972 og er aftur komið
á fjalirnar þar nú í lok
afmælisársins.
Alls verða sýningar
á leikritinu í þessum
gömlu húsakynnum
LR fjórar. Sú fyrsta
var í gær, önnur verð-
ur i kvöld, þriðja laug-
ardaginn 20. desember
og sú síðasta sunnu-
daginn 21. desember.
Allar sýningarnar
hefjast kl. 20.30.
Það þykir við hæfi
að sýna verk Jökuls á
þessum tómamótum.
Hann var eitt
merkasta leikritaskáld
sem við höfum átt og
eitt okkar fyrsta fúll-
gilda leikritaskáld .
Flest leikrita hans
voru ffumflutt af Leik-
félagi Reykjavíkur og
margir telja Dómínó
eitt hið besta frá hendi
Jökuls enda hlaut það góðar viðtök-
ur er það var ffumflutt í Iðnó árið
1972. Viðtökumar síðastliðinn vetur
Leikritiö Dómínó er nú komið aftur á fjalirnar í Iðnó en það var
frumsýnt þar árið 1972
urðu ekki síðri. Verkið var sýnt við
mikla aðsókn ffam á vor. Sýningar
urðu 39 og áhorfendur voru um 5
þúsund.
Leikritið hefst í ný-
grónu hverfi í Reykja-
vík á svipuðum tíma
og það er skrifað, í
kringum 1970-1973. Að
margra dómi er Dó-
mínó besta leikrit Jök-
uls.
Varla er hægt að
tala mn einhverja at-
burðarás í venjulegum
skilningi. Hér er
brugðið upp mynd af
fjölskyldu úr vel efn-
aðri og rótgróinni
borgarastétt. Eins og í
mörgum leikritum
Jökuls koma til sögu
kynslóðimar þrjár;
æskan, hin miðaldra
hjón og svo ellin. Hér
lifir fólk í staðnaðri
veröld. Lifir í fortíð-
inni. Undir niðri er
lífsleiði, ótti og uggur
þótt á ytra borði séu
þetta raunsæisleg sam-
töl.
Leikarar eru Eggert
Þorleifsson, Hanna
María Karlsdóttir,
Halldóra Geirharðs-
dóttir, Margrét Ólafs-
dóttir, Egill Ólafsson
og Guðrún Ásmunds-
dóttir. Leikstjóri er
Kristín Jóhannesdótt-
ir, Stígur Steinþórsson
sér um leikmynd og
búninga, Ögmundur Þór Jóhannes-
son sér um lýsingu og Ólafur Öm
Thoroddsen sér um leikhljóð.
Verk Þóru Sigurþórsdóttur leirlist-
arkonu eru unnin úr kindahornum.
Hlauptu af
þár hornin
Þóra Sigurþórsdóttir leirlistar-
kona heldur um þessar mundir
sýningu á verkum sínum í Gull-
smiðju Hansínu Jens að Lauga-
vegi 20b (gengið inn frá Klappar-
stíg) en þar rekur Hansína nú eig-
ið gullsmíðaverkstæði og galleri.
Þóra útskrifaðist frá leirlistar-
deild MHÍ áriö 1989 og hefúr und-
anfarin sjö ár rekið eigin vinnu-
stofu og gallerí að Álafossi í Mos-
fellsbæ. Þóra hefúr haldið fjölda
einkasýninga og samsýninga.
Hún vinnur bæði nytjahluti og
skúlptúra úr leir og öðrum nátt-
úruefnum. t.d. úr hrosshári.
Á sýningunni að þessu sinni
notar Þóra kindahom á nýstár-
legan hátt. Sýningin hefur því
hlotið nafnið „Hlauptu af þér
homin“. Sýningin veröur opin á
verslunartíma til áramóta.
Jólatónleikar Sinfóníuhljómsvestar Islands:
Skemmtun fyrir
unga sem aluna
Eins og oft
áöur e&iir Sin-
fóníuhljómsveit-
in til jólatónleika
þar sem ungir
sem aldnir geta
skemmt sér sam-
an, notið góðrar
tónlistar og kom-
ist í jólastemn-
ingu. Um 200
manns koma
fram á tónleikun-
um, en þar af em
þrír bamakórar -
kór Kársnes-
skóla, kór
Öldutúnsskóla og
Gradualekór
Langholtskirkju.
Að þessu sinni
er hljómsveitar-
stjóm í höndum
Bemharðs Wilk-
inson sem getið
hefúr sér mjög
Bernharður Wilkinson stjórnar
jólatónleikum Sinfónfuhijómsveitar
íslands að þessu sinni.
gott orð sem hljómsveitarstjóri og
kórstjóri. Einleikari á flautu er Emel-
ía Rós Sigfúsdóttir sem einnig mun
lesa jólaguðspjalhð.
Á e&ússkránni er Ævintýrið um
snjókarlinn eftir Howard Blake ásamt
jólalögum og jólasálmum eftir Leroy
Anderson, Gabriel Fauré, Rauta-
vaara, Jórunni Viðar, Mozart og
fleiri. Sinfóníuhljómsveitin flutti Æv-
intýrið um snjó-
karlinn fyrir
þremur árum við
mikla hrifhingu
áheyrenda og
hafa borist marg-
ar óskir um end-
urflutning.
Verkið er fyrir
einsöngvara, kór,
hljómsveit og
sögumann. Ein-
söng syngja 10
ára eineggja tví-
burar, þeir Einar
og Kári Jónssyn-
ir. Karl Ágúst
Úlfsson er kynnir
og sögumaður og
tengir saman efhi
tónleikanna. Þess
má geta svona til
fróðleiks að
Ævintýriö um
snjókarlinn er
flutt um hver jól
á tónleikum í Barbican Centre í
London.
í þætti úr Bamamessu eftir finnska
tónskáldið Rautavaara syngur ein-
söng ung stúlka að nafhi Ámý Ing-
varsdóttir. í lok tónleikanna verður
Jólaguðspjallið lesið samkvæmt ve::ju
og sungnir jólasálmar.
Tónleikamir em haldnir í Háskóla-
bíói laugardaginn 20. desember kl. 15.00.
Kl. 18:00 mæta Quarashi og
Subterranian og hita upp fyr-
ir Wu Tang tónleikana. Þar
verður gert Ijóst hverjir unnu
miða á tónleikana.
L100 miðar ( 50 í stúku )
verða dregnir út.
Kringlunni 4-6 • sími 533 2266
-þar sem disney mynd-
böndin fást
Áttu það til
að gleyma?
SHARP QZ-1550 Skipuleggjari
A(ar nettur en öfluaur skipuleggjari sem
gerir þér kleift aS halda utan um ýmsar
upplýsingar á einfaldan og þægilegan
máta.
> Geymir simanúmer vina og ættingja
• Lætur þig vita um aimælisdag þeirra
• Minnir þig á tannlæknin, stefnu-
móti&, íþróttaæfinguna o.s.frv.
• Heldur utanum kostna&arliði þína
• Geymir minnispunkta
[ • Er klukka
I • Vekur þig
k • Er reiknivél
■ • Er meS lykilorð (secret mode)
■ • Baklýsing á skjá
P • 64 KB minni
ð&fe
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
Super Trinitron
myndlampi
Nicam Stereo
fslenskt
textavarp
16:9
breiðtjaldsstilling
Barnalæsing og
svefnrofi
Super VHS tengi
að framan
Tvö Scarttengi
o.m.fl.
RflFTfEKÖflPERZLUN ISLflNDSff
- ANNO 1 929 -
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
SONY
KV-29C1E