Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1997, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1997, Blaðsíða 12
» myndbönd fnmmu í|j® lif The Shadow Men: Svartklæddir skúrkar ★ Goðsögnin um svartklæddu mennina (The Men in Black) er orðin vinsælt sjónvarps- og kvikmynda- efhi. Þessi mynd kallast af ekki svo dularfullum ástæðum Shadow Men en ekki Men in Black, enda nýbúið að gera stórmynd með því nafni. Hér er tek- inn ofsóknarbrjálæðispóll í hæðina, a la X-Files, þar sem svartklæddu mennirnir eru hin verstu illfygli með mikið samsæri á prjónunum. Sómakær fjölskylda nær geimverum á myndband og þarf að kljást við morðóða svartstakka það sem eftir lifir myndarinnar. Illfyglin eru alltof kjánaleg til að áhorfandinn geti tekið þau alvaiTega og þar með mistekst alveg að gefa myndinni ógnvænlegt andrúmsloft. Hins vegar er af og til sæmilegur hasar í myndinni og hún er stundum brosleg. Eric Roberts er heimilisfaðirinn og virðist alveg dottinn ofan í svona annars flokks hlutverk og á það skilið miðað við frammistöðu hans í myndinni. Hins vegar er Dean Stockwell ágætur sem geimverusérfræðingurinn og á bestu setningarnar. Sherilyn Fenn er ekki eftirminnileg og Brendon Ryan Barret í hlutverki krakkans gerir litið annað en að grenja. Útgefandi: Stjörnubíó. Leikstjóri: Hmothy Bond. Aðalhlutverk: Eric Ro- berts, Sherilyn Fenn og Dean Stockwell. Bandarísk, 1997. Lengd: 90 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ Jackie Chan s First Strike: Bardagakappi ★★'i Jackie Chan sendir frá sér hverja myndina á fæt- ur annarri um þessar mundir. Myndirnar eru nokk- urs konar James Bond-serla þeirra Hong Kong- manna. Jackie Chan er í hlutverki lögreglumanns sem er sendur í sérverkefni hingað og þangað um heiminn. í First Strike heimsækir hann Úkraínu, Rússland og Ástralíu. Heldur miklum tíma er eytt í uppbyggingu söguþráðar sem er að sjálfsögðu mjög heimskulegur og þar að auki algert aukaatriði, enda man ég varla neitt eftir honum. Inni á milli koma síðan þessi dásamlega skemmtilegu bardaga- og áhættuatriði sem Jackie Chan er þekktur fyrir. Myndin dettur nokkuð niður milli bardagaatriðanna og er því ekki eins skemmtileg og undan- famar myndir hans en bardagaatriðin standast fyllilega samanburð við það besta sem hann hefur gert. Jackie Chan framkvæmir öll áhættuat- riðin sjálfur og frægt er þegar hann kláraði Rumble in the Bronx fótbrot- inn. I lok myndarinnar eru sýnd nokkur atriði sem mistókust, áhorfend- um til skemmtunar. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Stanley Tong. Aðalhlutverk: Jackie Chan. Hong Kong, 1996. Lengd: 90 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ Fierce Creatures: Að reka dýragarð ★★★ Gríðarlegar vinsældir A Fish Called Wanda voru eins og gefur að skilja mikill hvati að gerð fram- haldsmyndar sem lét þó bíða eftir sér í átta ár. Fierce Creatures er þó ekki beinlínis framhalds- mynd í venjulegum skilningi þess orðs þar sem eng- ar sögupersónur úr fyrri myndinni koma fram í þeirri seinni. Hins vegar mæta aðalleikararnir aftur til leiks með nýjar persónur í mynd sem hefur svip- aðan húmor og stíl og hin fyrri. Sögusviöið er dýra- garður nokkur sem reyna á að gera að hagkvæmri rekstrareiningu við hávær mótmæli starfsmanna. Myndin líður fyrir samanburð við A Fish Called Wanda því hún er allnokkru síðri. Hún er ekki eins fyndin, ekki eins fersk, persónurnar eru ekki eins skemmtilegar og leikaramir ná ekki alveg sama stjömuleik og áður. Þrátt fyrir þetta er hún prýðisgóð skemmtun (sem segir sitthvað um gæði A Fish Called Wanda) og kitl- ar hláturtaugamar oft verulega. Michael Palin á skemmtilegustu sprettina í þetta skiptið en Kevin Kline virkar ofurlítið þreyttur, kannski bara vegna þess að stórkostleg frammistaða hans í A Fish Called Wanda er svo ljóslifandi í minningunni. Það verður enginn svik- inn af þessari mynd nema hann ætlist til að hún jafhist á við fyrir- rennarann. Útgefandi: CIC myndbönd. Leikstjórar: Robert Young og Fred Schepisi. Aðalhlutverk: John Cleese, Jamie Lee Curtis, Kevin Kline og Michael Pal- in. Bresk/bandarísk, 1997. Lengd: 90 mín. Öllum leyfð. -PJ Gotti: ★★* Enn ein mafíumyndin Það er nú farið að verða soldið þreytt þetta flóð mafiumynda sem yfir okkur hellist og markaðurinn hlýtur að fara að mettast. Héma er frægur mafíósi, John Gotti, tekinn fyrir í hefðbundnum mafiumynd- astíl. Framapoti hans er fylgt alla leið á toppinn og síðan sagt frá falli úr hæstu hæðum. Gotti var maður nýrra tíma í mafíunni og braut ýmsar siðareglur. Hann komst í æðsta valdastól fjölskyldu sinnar í hallarbyltingu þar sem hann lét myrða þáverandi höfuð ættarinnar. Hann barst síðan mikið á og var oft i sviðsljósinu, m.a. vegna fjölda dómsmála sem höfðuð voru á hendur honum án nokkurs árangurs, þangað til árið 1992 að hann var fundinn sekur um skipulagða glæpastarfsemi og dæmdur til lífstíðarfang- elsis án möguleika á reynslulausn. Myndin er raunsærri og ekki eins til- gerðarleg og margar þessara mafiumynda og býður upp á fjölda góðra leikara. Armand Assante leikur aðalhlutverkið af miklum krafti og sann- færingu og William Forsythe er einnig sterkur sem Sammy Garano, hægri hönd Gottis. Myndin reyndist sem sagt alveg ágæt en hins vegar legg ég til að Hollywood fari nú að gefa mafíósunum frí í smátíma. Útgefandi: Sam myndbönd. Leikstjóri: Robert Harmon. Aðalhlutverk: Arm- and Assante. Bandarísk, 1996. Lengd: 117 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997 T*>17 SÆTI; ■ J FYRRI VIKA ; VIKUR U LISTAj J J TITILL ; ÚTGEF. ; J J TEG. 1 J j 1 j 3 ; Liar Liar j ClC-myndbönd j Gaman 2 ! 1 Ný j , j j i i j - - j. Dantes Peak J j j ClC-myndbönd j J J Spenna 3 1 0 i 2 j 4 J j * j Fifth Element, The j Skífan j Spenna i 4 J j Ný j ' J j 1 J j J First Strike J J J Myndform J J j Spenna 5 i Ný J i 1 j 1 J One Fine Day j Skífan j Gaman i 6 ! 4 j J ! 3::! Trial and Error J J j Myndform j Gaman 7 i 3 ^ A J L J Jungle 2 Jungle J Sam-myndbönd J J J ! ClC-myndbönd J j i Gaman 8 ! J 5 j J 1 G 1 J 5 J . ) : A J Bulletproof Spenna 9 ! 6 : 4 : : 6 : j J Private Parts j Sam-myndbönd j Gaman 10 1 J 7 Shadow Conspiracy ) J j Myndform j j j Spenna 11 ! 8 J o J J * J Saint, The j ClC-myndbönd ' Spenna )•: 12 J j Ný j J j 1 J j J Gotti j j j Sam-myndbönd j Spenna 13 ! 9 j c J J 6 J Anaconda J J j Skífan j Spenna » i 10 j i : j :: Scream j j J Skífan j Spenna 15 ! 11 ! 9 ! Fools Rush In J Skífan J Gaman i6; j Ný j i 1 t 1 j 1 j j j Ernest Goes to Afrika J „ „ J j Bergvík j j J Gaman 17 ! 15 ! 10 ! ! 2 1 j. j People VS. Larry Flynt J Skrfan j Gaman 18 ! J 18 Keys To Tulsa j ) J Háskólabíó J Spenna J J 19 ! 16 j o 1 j L J Idiot Box , Bergvík Gaman 20 ; 20 j J ! 2 i Love Jones J J j Myndform J Gaman Liar Liar stendur af sér allar atlögur og situr sem fastast í 1. sæti þriöju vikuna í röö. Þaö eru samt þrjár sterkar nýjar myndir sem raða sér í næstu sætin og ekki kæmi á óvart þó ein þeirra kæmist í efsta sæti í jólavikunni. Á myndinni eru Pierce Brosnan og Linda Hamilton í Dante’s Peak. Fyrir utan þessar þrjár myndir, sem getið er hér aö neöan, kemur inn á listann Gotti sem er sannsöguleg kvikmynd um einn valdamesta mafíuforingja á þessari öld. Þaö er Armand Assante sem leikur hann, auk hans leikur í myndinni Anthony Quinn. Þá er nýjasta myndin um furöufuglinn Ernest, Ernest Goes to Africa, komin inn á listann. 2. til 8. desember Liar Liar Jim Carrey og Jennifer Tilly Fletcher er hraðmæltur lögfræð- ingur og óforbetranleg- ur lygari. Ungur sonur hans, Max, sem býr hjá mömmu sinni, hef- ur margsinnis þurft að sitja heima, svikinn af loforðum föður síns. Þegar Max blæs á kert- in á fimm ára afmæli sínu á hann sér aðeins eina ósk: Að pabbi hans hætti að ljúga þó ekki væri nema í einn sólarhring. Og viti menn. Óskin rætist og Fletcher kemst að því sér til hrellingar að skyndilega getur hann ekki sagt ósatt orð og það líður ekki á löngu þar til lögfræðiferill- inn er í hættu. ÐAKTFS PEflK . -ijM* - 'V^>.:: Dante s Peak Pierce Brosnan og Linda Hamilton Síðasta uppgötvun jarðfræðingsins Harrys Daltons hefúr leitt hann til ferðamannabæjarins Dante’s Peak en þar hafa sérkennilegar jarðhrær- ingar vakið athygli. Um leið og Harry kynnist bæjarstjóranum, Rachel, sem er einstæð móðir og rekur kaffihús í bænum, grunar hann hvað í vændum er, enda bendir röð óútskýranlegra at- vika til þess að náttúran sjálf sé um það bil að fara að láta á sér kræla. Aðvörunarorðum hans er þó ekki sinnt og er að- alástæðan að þá væri ferðamannaþjónustah i hættu. The Fifth Element Bruce Willis, Milla Jovovich og Gary Oldham Eftir 250 ár stafar jörö- inni hætta af illum öflum sem hyggjast ráðast á hana. Vöm jarðarinnar er fimmta frumefhið en þar sem allar þær verur sem vissu hvar frumefn- ið var era dauðar eru erf- iðleikar fram undan. Vís- indamönnum tekst að rækta kvenveru úr vefj- um hinna dauðu. Sú verður mjög hrædd þegar hún vaknar til lifsins og tekst að flýja úr búri sinu og sleppur út í iðandi umferðina þar sem hún endar í aftursæti leikbQs sem stjómað er af fyrr- um flugforingja, Corben Dallas. First Strike Jackie Chan og Annie Lu. í First Strike leikur Jackie Chan lögreglu- mann i Hong Kong sem falið er að fara til Úkraínu til að starfa með CIA og rússnesku leyniþjónustunni. Mál- ið snýst um að finna dularfullan mann að nafni Tsui sem stolið hefur öflugum kjarna- oddi og er grunaður um að ætla að selja hann illræmdum hryðjuverkamönnum. Þegar Chan stígur nið- ur fæti í Úkraníu hefst Viðburðaríkt ævintýri þar sem hann þarf að snúa sig úr hverri hættunni á fætur annarri. One Fine Day George Clooney og Michelle Pfeiffer. One Fine Day gerist í New York. Michele Pfeiffer leikur móður sem gerir sitt besta til að standa sig i móður- hlutverkinu en hún er einnig með hugann við eigin frama. George Clooney er harðsnúinn blaðamaður, dæmi- gerður helgarpabbi sem vill vera laus við bamið sitt þegar hann er í vinnunni. Leiðir þeirra liggja saman þegar þau taka saman bíl með krakkana í skólann. Þegar þau rugla GSM-símum sín- um tekur atburöarásin á sig kómíska mynd og mikill misskiiningur myndast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.