Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1997, Qupperneq 7
32 ★
★
iiin helgina
r* *
FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997 T*IV
JJ"V FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997
helgina »
^ Jk,.
VEITINGASTAÐIR
! A. Hansen Vesturgötu 4, Hf., s. 565
| 1693. Opió 11.30-22.30 alla daga.
; Amigos Tryggvagötu 8, s. 551
1333. Op. 17.30-22.30 v.d. og sd.,
17.30- 23.30 fd. og ld.
Argentína Barónsstíg lla, s. 551
9555. Opið 18-23.30 v.d., 18-3 um
I helgar.
Asía Laugavegi 10, s. 562 6210. Opið
11.30- 22.30 v.d., 12-22.30 sd.,
I 11.30-23.30 fd. og ld.
| Askur Suðurlandsbr. 4, s. 553 8550.
Op. 11-22 sd.-fid., 11-23.30 fd. og ld.
Austur Indía fjelagið Hverfisgötu
í 56, s. 552 1630. Opið a.d. frá kl. 18.
Á nœstu grösum Laugavegi 20, s.
| 552 8410. Opið 11.30-14 og 18-22
| v.d., 18-22 sd. og lokað ld.
Banthai Laugavegi 130, s. 552 2444.
Op. 18-22 md.- fid. og 18-23 fód.-sd.
Carpe Diem Kauðarórstíg 18, s. 562
| 3350. Opið 11-23 alla daga.
Caruso Þingholtsstræti 1, s. 562
7335. Opið sd.-fid. 11.30-23.30. Fd.
j og ld. 12.-2.
Grænn kostur Skólavörðustíg 8b, s.
í 552 2028. Opið md.-ld. fró 11.30-21
| og sd. frá 16-21.
: Hard Rock Café Kringlunni, s. 568
9888. Opið 11.45-23.30 md.-ld.,
12-23.30 sd.
Ilornið Hafnarstræti 15, s. 551
| 3340. Opið 11-23.30 alia daga.
I Hótel Borg Pósthússtræti 11, s. 551
« 1440. Opið 8-23.30 alla daga.
É Hótel Esja Suðurlandsbraut 2, s.
I 568 9509. Opið 11-22 alla daga.
É Hótel Holt Bergstaðastræti 37, s.
552 5700. Opið 12-14.30 og 19-22.30
v.d., 12-14.30 og 18-22 fd. og ld.
j Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflug-
J velli, s. 552 2322. Opið í Lóninu
5-23, í Blómasal 18.30-22.
| Hótel Óðinsvé v/Óðinstorg, s. 552
5224. Opið 12-15 og 18-23 v.d.,
12-15 og 18-23.30 fd. og ld.
$ Hótel Saga Grillið, s. 552 5033,
Súlnasalur, s. 552 0221. Skrúður, s.
552 9900. Grillið opið 19-22.30 a.d.,
| Súlnasalur 19—3 ld., Skrúður 12-14
og 18-22 a.d..
í Humarhúsið Amtmannsstíg 1, s.
561 3303. Opið 10-23.30 v.d., 10-1
| ld. og sd.
j Indókína Laugavegi 19, s. 552 2399.
| Opið 11.30-22.30 alla daga, ld. frá
11.30- 23.30.
•i Ítalía Laugavegi 11, s. 552 4630.
Opið 11.30- 23.30 alla daga.
3 Jónatan Livingston Mávur
I Tryggvagötu 4-6, s. 551 5520. Opið
17.30- 23 v.d., 17.30-23.30 fd. og ld.
' Kínahofið Nýbýlavegi 20, s. 554
| 5022. Opið 17-21.45 v.d., 17-22.45
fd., ld. og sd.
Kína-húsið Lækjargötu 8, s. 551
1014. Opið 11.30-14 og 17.30-22 v.d.,
17.30- 23 fd., 15-23 ld., 17-22 sd.
1 Kínamúrinn Laugavegi 126, s. 562
2258. Opið fd„ ld„ 11.30-23.30,
sd.-fid. 11.30-22.30.
3 Kofi Tómasar frænda Laugavegi 2,
s. 551 1855. Opið 10-01 sd.-fid. og
i 11-03 fd. og Id.
3 Kringlukráin Kringlunni 4, s. 568
0878. Opið 12-1 v.d„ 12-3 fd. og Id.
i. Lauga-ás Laugarásvegi 1, s. 553
1620. Opið 11-22 og 11-21 um helgar.
■ Lækjarbrekka Bankastræti 2, s.
551 4430. Opið md.-mid. 11-23.30,
fid.-sd. 11-0.30.
' Madonna Rauðarárstíg 27-29, s.
: 562 1988. Opið 11.30-23.30 a.d.
6 Marhaba Rauðrórstíg 37, s. 562
6766. Opið a.d. nema md.
17.30- 23.30.
3 Naustið Vesturgötu 6-8, s. 551
7759. Opið 12-14 og 18-01 v.d.,
12-14 og 18-03 fd. og ld.
í Ópera Lækjargötu 2, s. 552 9499.
i Op. 18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld.
| Pasta Basta Klapparstíg 38, s. 561
3131. Opið virka daga frá 11.30 til
1.00 og um helgar til 3.00.
- Perlan öskjuhlið, 8. 562 0200. Opið
18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og ld.
j Potturinn og pannan Brautarholti
22, s. 551 1690. Opið a.d. 11.30-22.
j Primavera Austurstræti, s. 588
8556. Op. 12-14.30, 18-22 v.d„
| 18-23 fd„ 18-23.30 ld„ 18-22 sd.
j Salatbarinn hjá Eika Fákafeni 9,
; s. 588 0222. Opið alla daga frá kl.
| 11.30.-20.30. nema ld. frá 11.30.-16.
| Lokað á sd.
Samurai Ingólfsstræti la, s. 551
7776. Opið v.d. 18-22, fd„ ld„ 18-23.
í Singapore Reykjavikurvegi 68, s.
555 4999. Opið 18-22 þd.-fid„ 18-23
| fd.-sd.
Sjanghæ Laugavegi 28, s. 551 6513.
Opið 11.30-23.30 v.d„ 12-22.30 sd.
;j Sjö rósir Sigtúni 38, s. 588 3550.
I Opið 7-23.30 alla daga.
Skólabrú Skólabrú 1, s. 562 4455.
Opið frá kl. 18 alla daga og í hd.
j Steikhús Harðar Laugavegi 34, s.
551 3088. Opið 11.30-21 v.d. og sd„
1 11.30-23.30 fd. og ld.
Tilveran Linnetsstíg 1, s. 565 5250.
Opið 11-23 alla daga.
Við Tjörnina Templarasundi 3, s.
551 8666. Opið 12-14 og 18-22.30
1 md.-fd„ 18-23 ld. og sd.
I Viðeyjarstofa Viðey, s. 568 1045 og
| 562 1934. Opið fid.- sud„ kaffist. kl.
| 14—17. Veitingasalur kl. 18-23.30.
> Vitabar Bergþórugötu 21, s. 551
7200. Opið 15-23.30 v.d., 12-02 a.d.
Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldurs-
; götu 14, s. 552 3939. Opið 11-14.30
og 18-23.30 ld. og sd.
Að gera fólk að þátt-
takendum í listinni
Helga Lára Haraldsdóttir er
menntuð í umhverfislist í Bretlandi
og hefur aðallega unnið að verkum
sínum í austurhluta Lundúna en
hún hefur einbeitt sér að
veggskreytingum.
Helga Lára sýnir nú ásamt þrem-
ur stallsystrum sínum, þeim Emily
Lawlor, Isabellu Lockett, og Louise
Gardner, ljósmyndir af umhverfis-
listaverkum sem þær hafa unnið að
á undanfornum árum. En af hverju
hafa þær stöllur ráðist í þessa sýn-
ingu?
„Okkur langaði að kynna það sem
við erum að gera. Við höfum aðal-
lega verið að skreyta umhverfið i
Austur- Lundúnum þar sem við
vinnum í samfloti. Við vildum sýna
íslendingum hvemig þessi list, um-
hverfis- eða almenningslist eins og
ég kýs að kalla hana, er og hvernig
hægt er að lífga upp á umhverfi sitt
með henni,“ segir Helga Lára.
Hún segir að markmiðið með
verkunum sé að beina listinni að
nánasta umhverfi og gera fólk að
þátttakendum í þeim. Listaverkin
séu ekki lokuð inni í galleríum,
heldur úti í umhverfmu og því hluti
af daglegu lífi fólks.
-Sól.
Uthverf
innvortis list
í gær opnaði sýning á nýjum verkum Haraldar Jónssonar myndlistar-
manns í Galleríi Ingólfsstræti 8. Sýninguna, sem ber heitið „Innvortis", er
bæði hægt að skoða að innan, en hana er líka auðveldlega hægt að virðá fyr-
ir sér utan af götunni.
Verk Haraldar tengist líkamanum, tungumálinu og tjáningarþörf okkar
traustum böndum. Sú er einnig raunin með sýninguna Innvortis. í þessum
nýju verkum er líkaminn hreinlega opnaður upp á gátt og okkur sýnt inn í
það sem flestum er yfirleitt hulið. Hér er líkaminn bókstaflega á röngunni.
Rétt eins og við getum yfirleitt alltaf dregið ályktanir af því sem aðrir láta
út úr sér og skilja eftir sig þá sýnir Haraldur okkur í þessum verkum á rót-
tækan en afar næman hátt bæði það sem sameinar okkur en líka hitt sem
skilur einstakling-
ana að í daglegum
samskiptum. Sam-
ræður og samræði
eða ólík samskipta-
munstur og sjálf
blóðrásin eru þau
grunnstef sem
hljóma á þessari
sýningu.
Haraldur Jónsson
stundaði nám í
Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands,
Kunstakademie i
Dusseldorf, Þýska-
landi og Institut des
Hautes Etudes en
Arts Plastiques í
París, Frakklandi.
Verk hans hafa ver-
ið sýnd víða um
heim. Þau eru að
finna á söfnum hér
á landi og erlendis,
en önnur eru i eigu
einkasafhara á ís-
landi, í Evrópu og í
Bandaríkjunum.
Sýningin stendur
til 11. janúar 1998,
og hægt er að skoða Verk Haraldar er hægt að virða fyrir sér jafnt innan
hana utan frá götunni fra sem utan gallerísins, og má því segja að sýning-
þegar galleríið er lok- in sé opin allan sólarhringinn, sem er nýlunda hér-
að. lendis.
Sýning á verkum Helgu Láru Haraldsdóttur og þriggja breskra stallsystra
hennar í umhverfislist stendur nú yfir í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þessa vegg-
mynd vann Helga Lára fyrir Eastham Memorial Hospital í Austur-Lundúnum.
Jólafrumsýning Þjóðleikhússins:
um
Jólafrumsýning
Þjóðleikhússins í
ár er sjálfur
Hamlet eftir
William
Shakespeare. Að venju er frumsýningin á
öðrum degi jóla og er hér um að ræða
stærstu frumsýningu leikhússins ár
hvert. Leikstjóri Hamlets er Baltasar
Kormákur.
Með aðalhlutverk fara Hilmir Snær
Guðnason, Tinna Gunnlaugsdóttir, Ingv-
ar E. Sigurðsson og Þrúður Vilhjálms-
dóttir. Hilmir leikur sjálfan Danaprins-
inn, Tinna leikur Geirþrúði móður hans,
Ingvar leikur Kládíus konung og
Þrúður fer með hlut-
verk Ófelíu.
Aðrir leikendur eru Erhngur Gíslason,
Stefán Jónsson, Sveinn Geirsson, Steinn
Ármann Magnússon, Þór Tulinius, Valdi-
mar Öm Flygenring, Atli Rafn Sigurðar-
son, Randver Þorláksson, Sigurður Sig-
urjónsson og Gunnar Hansson.
Hamlet er mjög svo margslungið verk.
Fyrst og fremst byggist það mikið á heim-
spekilegum vangaveltum eins og setning-
unni frægu, „Að vera eða vera ekki“. Að
auki er velt fyrir sér sálfræðilegum þátt-
um og margir hafa orðið til að velta sér
upp úr sálarlífi aðalpersónunnar.
Til viðbótar við þetta er Hamlet
einnig spennuleikrit, glæpasaga,
® þar sem komast þarf að því hvort
morð hafi verið framiö og
hvort hægt sé að ná morðingjanum.
Hamlet er líka draugasaga, saga um
stjórnmál, stjórnkænsku og ríkis-
rekstur og síðast en ekki síst
ástarsaga þar sem kynlíf ber
töluvert á góma.
En meginþema leikrits-
ins er þó alltaf spuming-
in um tilgang lífsins.
Hamlet spyr sig í sí-
af hverju maöur-
inn haldi áfram að
lifa þrátt fyrir að
hann hatist við líf
sitt og þann heim
sem hann lifir í.
degi jóla
Hamlet á öðr-
Sunnudagskvöld:
Rúdolf í Kaffileikhúsinu
Söngkvartettinn Rúdolf heldur tón-
leika í Kaffileikhúsinu næstkomandi
sunnudagskvöld. Efnisskrá tónleik-
anna verður að hluta til íslensk
jólatónlist þar sem sungið verður um
Grýlu og Leppalúða, jólasveinana og
jólaköttinn en seinni hluti tónleikanna
verður helgaður jólalögum frá Amer-
íku, Bretlandi og meginlandi Evrópu.
Rúdolf var stofnaður árið 1992 og er
skipaður Sigrúnu Þorgeirsdóttur,
Skarphéðni Hjartarsyni, Jóhönnu S.
Halldórsdóttur og Þór Ásgeirssyni.
Kvartettinn hefur alltaf einbeitt sér að
jólalögum án undirleiks. Rúdolf hefur
gefið út tvo geisladiska, þann fyrri árið
1995 en sá seinni kom út á þessu ári.
Nefnist sá fyrmefndi Rúdolf - jóla-
söngvar en sá síðarnefndi Jólavaka.
Kaffileikhúsið verður opnað kl. 21 en
tónleikamir hefjast um klukkutíma
síðar.
r
Leikfálag Akureyrar:
A ferð með frú Daisy
DV, Akureyri:____________________________
Jólaverkeftii Leikfélags Akureyrar
að þessu sinni er bandaríska leikritið
„Á ferð með frú Daisy" eftir Alfred
Uhry og verður frumsýning á Renni-
verkstæðinu á Strandgötu 2. dag jóla.
í leikritinu segir frá frú Daisy Wert-
han, bandarískri konu af gyðingaætt-
um, og þeldökkum bílstjóra hennar, að
nafni Hoke Colebum. Einnig kemur
Booli Werthan, sonur Daisy, við sögu.
Leikritið gerist í Atlanta í Georgíu á
árunum 1948 til 1973. í upphafi verks-
ins er Daisy 72 ára og Hoke sextugur.
Booli sonur Daisy ræður móður sinni
bílstjórann Hoke gegn vilja hennar.
Alfred Uhry gæðir leikrit sitt hlýrri
kímni og lýsir af næmi kynnum þeirra
Daisy og Hoke sem þrátt fyrir gerólík-
an bakgmnn og forsendur í lffinu bind-
ast sterkum bönd-
rnn. Þetta þokka-
fulla leikrit var
frumsýnt í New
York árið 1987 og
vann sama ár
bandarísku
Pulitzerverðlaun-
in. Tveimur áram
síðar fékk kvik-
myndin „Driving
Miss Daisy", sem
gerð var eftir leik-
ritinu, fjölda ósk-
arsverðlauna.
Sýning Leikfélags Akureyrar á verkinu
er frumsýning þess hérlendis.
Sigurveig Jónsdóttir leikur titilhlut-
verkið hjá Leikfélagi Akureyrar, Þrá-
inn Karlsson fer með hlutverk
þeldökka bilstjórans og Aðalsteinn
Á ferð með frú Daisy fjallar um konu af gyðingaættum og þei-
dökkan bílstjóra hennar.
Bergdal leikur soninn Booli. Elísabet
Snorradóttir þýddi leikritið, Ingvar
Björnsson hannar lýsingu, Hlín Gunn-
arsdóttir leikmynd og búninga og Ás-
dís Skúladóttir stýrir sýningu Leikfé-
lags Akureyrar á verkinu. -gk
Hörður Askelsson leikur á orgel Hallgrímskirkju í lokalagi tónleikanna.
Evróputónleikar Ríkisútvarpsins:
200 söngvarar syngja
fyrir alla Evrópu
Ríkisútvarpið efhir til tónleika í
Hallgrímskirkju sunnudaginn 21.
desember klukkan 11. Þar munu 200
kórsöngvarar úr funm kóram auk
fjögurra orgelleikara flytja jólatón-
list. Tónleikimum verður útvarpað
beint um alla Evrópu á vegum RÚV
og Evrópusambands útvarpsstöðva.
Dr. Guðmundur Emilsson verður
kynnir á tónleikunum en hann valdi
jafnframt söngdagskrána. Hún mun
lýsa í stórum dráttum söngsögu ís-
lands frá upphafi með hliðsjón af
hræringum í tónlistarlífi á megin-
landi Evrópu. Jafnframt tengist tón-
listin öll jólunum.
Kórarnir sem fram koma era Mót-
ettukór Langholtskirkju undir
stjóm Harðar Áskelssonar, Dómkór-
inn undir stjóm Marteins H. Frið-
rikssonar og Gradualekór Lang-
holtskirkju sem Jón Stefánsson stýr-
ir. Hörður, Marteinn og Jón leika
jafnframt einleiksverk á orgel.
Einnig koma fram Drengjakór Laug-
ameskirkju undir stjóm Friðriks S.
Kristinssonar, við undirleik Peters
Máté, og skólakór Kársness undir
Akureyrarkirkja:
Messías eftir Handel
Messías, sem kallað hefur verið
meistaraverk Handels, verður flutt í
Akureyrarkirkju undir stjórn
Michaels Jóns Clarke laugardaginn
20. desember, kl. 17. Það verður flutt
af kór Tónlistarskólans á Akureyri
ásamt hljómsveit. Einsöngvarar
verða Björg Þórhallsdóttir, sópran,
Sigríður Elliðadóttir, alt, Bjöm
Jónsson, tenór, og Michael Jón Clar-
ke, bariton. Orgel- og semballeikari
verður Richard Simm.
Hándel er ef til vill vinsælasta
tónskáldið á alþjóðlegan mæli-
kvarða í dag. Hann var uppi á fyrri
hluta átjándu aldar og var mjög virt-
ur meðal samferðamanna sinna,
eins og t.d. Beethovens og Haydns.
Messías varð til á tímabili i lífi tón-
skáldsins þegar hann var í mikilli
andlegri, heilsufarslegri og fjárhags-
legri kreppu. Það var frumflutt í
Dublin 1742 fyrir troðfullu húsi og
hefur síðan verið eitt vinsælasta
tónverk allra tíma.
stjórn Þórannar Björnsdóttur. í lok
tónleikanna sameinast kóramir og
syngja Agnus Dei eftir Jónas Tómas-
son og leikur Hörður Áskelsson und-
ir á orgel Hallgrímskirkju.
| Krakkar! I kvö\d
I kemur Bjúgnakraskir
I til byggða.
JAPISS
SÝNINGAR
Dada, Kirkjutorgi 4. Sýning á nú-
tímalist eftir 30 listamenn. Opið
12-18 virka daga, 12-16 ld. til jóla.
Djúpið, Hafnarstræti 15. Inga
Sólveig og Valtýr Þórðarson sýna
ljósmyndir. Opið daglega milli kl.
11 og 23.30 til 24. des.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Kynning á verkum Margrétar
Sveinsdóttur til 5. janúar.
Gallerí Hornið, Hafnarstræti 15.
Bjarni Þór Bjamason með einka-
sýningu. Opið alla daga kl.
11-23.30 til 23. desember.
Gallerí Ingólfsstræti 8, Reykja-
vík. Nú stendur yfir sýning á verk-
um eftir Harald Jónsson. Sýningin
stendur til 11 janúar. Opið
fim.-sun. 14-18.
Gallerí Listakot, Laugavegi 70.
Jólasýning 14 listakvenna þar sem
jólahlaðborð íslendinga er viðfangs-
efnið. Opið á opnunartíma versl-
ana.
Gallerí Regnbogans, Hverfis-
götu 54. Sýning á verkum Sigurðar
Örlygssonar er opin virka daga frá
kl. 16-24 og 14-24 um helgar.
Gallerí Stöðlakot, Bókhlöðustíg
6, Reykjavík. Sýningu Bjamheiðar
Jóhannsdóttur „Vetrarbirta" lýkur
sunnudaginn 21. desember. Opið
daglega frá kl. 14-18.
Gerðuberg. Sýning Valdimars
Bjarnfreðssonar (V. Vapen). Sýning
Ragnars Erlendssonar til 9. febr.
1998. Opið mán.-fim. 10-21;
fós.-sun. 12-16.
Hafnarborg, Hafnarfirði. Sýning
á verkum Brians Pilkingtons stend-
ur til 23. desember. Sýning á skart-
gripum til 23. des. Opið 12-18
nema þriðj.
Hallgrímskirkja. Málverk Daða
Guðbjörnssonar prýða kirkjuna á
aðventunni og um jólin. Kirkjan er
opin almenningi alla daga vikunnar
frá kl. 10-18.
: International Gallery of Snorri
Ásmundsson, Akureyri. „Tb Hell
with All of Us“. Opið frá kl. 14-18
alla daga.
* Kjarvalsstaðir við Flókagötu. í
austursal em verk eftir Kjarval til
| áramóta. f öðmm sölum: Ný aðföng.
I Opið kl. 10-18 alla daga.
i Listasafn íslands, Fríkirkju-
i vegi. Síðasta sýningarhelgi á úrvali
úr dánargjöf Gunnlaugs Schevings í
öllum sölum safnsins. í fyrirlestra-
sal er sýnd sjónvarpsmynd um
| Gunnlaug frá 1992. Opið alla daga
nema mán. 11-17.
j Listasafn Kópavogs, Gerðar-
) safn. Guðný Magnúsdóttir sýnir
leirlist á neðri hæð. Á efri hæð: Ný
| aðföng. Síðasta sýningarhelgi. Opið
J alla daga nema mán. frá kl. 12-18.
' Listasafnið á Akureyri. Sýning á
: verkum listahópsins CREW CUT,
„(un)blin“.
: Listhús 39, Hafnarfirði. Gunnar
K f. Guðjónsson sýnir verk sín. Opið
| virka daga kl. 10-18, ld. 12-18 og
sd. 14-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
: Laugarnesi. Sýning á 27 völdum
í verkum eftir Sigurjón. Opið alla
daga nema mánudaga frá kl.
I 14-17.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg
5. Sýning á verkum Harris
« Syrjánens. Opið mán.-fös. frá kl.
i! 10-18 og lau. frá kl. 11-14.
3 Norræna húsið.Sýningin „fsland",
1 skartgripir eftir sjö unga hönnuði
| sem kalla sig G7, er í anddyri. Opið
! 9-18 nema sunnud. 12-18 út des-
; ember.
: Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6. „Vétr-
arbirta“, leirmunir eftir Bjamheiði
í Jóhannsdóttur. Síðasta sýningar-
helgi. Opið daglega frá kl. 14-18.
; Þjóðminjasafn Islands. Sérstök
sýning um þróun jólagjafa og jóla-
f: auglýsinga í hundrað ár. Sýningin
verður opin alla daga fram að jólum
; frá kl. 12-17 nema 8. og 10. desem-
í ber.
j Gallerí Ramma og mynda,
IKirkjubraut 17, Akranesi. Guð-
jón Ólafsson með sýningu á 70
teikningun af húsum á Akranesi.
Hótel Höfði, Ólafsvík. Sýning á
Isamtímalist eftir fjölda íslenskra
listamanna.
| Café Menning, Dalvík. Sýning á
Iverkum Þorfinns Sigurgeirssonar.
Deiglan, Kaupvangsstræti 23,
Akureyri. Samsýning 6 lista-
manna til 23. desember.
Lónið á Þórshöfn. Freyja Önund-
ardóttir sýnir verk sín í anddyri.
Kaffi Lefolii.Eggert Kristinsson
sýnir málverk á Kaffi Lefolii á Eyr-
arbakka.