Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1997, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1997, Síða 9
DV FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1997 hljómplMtu Stereolab - Dots and Loops: Lyftutónlist hátækninnar **** Stereolab er að verða ein forvitnilegasta hljómsveit Bretlandseyja um þessar mundir. Tónlist hennar er blanda af poppi og danstón- list. Stereolab hefur lengi ver- ið ein af þessum hljómsveit- um sem maður hefur vitað af en aldrei gefið almennilegt tækifæri. Á nýjustu breið- skífu hljómsveitarinnar er ekki annað hægt en að heill- ast af þessum skemmtilega kokkteil þeirra sem á engan sinn líka i dag. Að vissu leyti á Stereolab nokkuð sameiginlegt með hljómsveitum á borð við Pizzicato Five sem hefur verið iðin við að nýta sér áhrif sjötta og sjöunda áratugarins í tónlist sinni. Á Dots and Loops tekst Stereolab samt að fara aftur í tímann og sækja þangað fátt annað en yndislega stemningu og sakleysi sem fylgdi mörgum þessara „góðu“ lyftupoppshljómsveita. Söngkona sveitarinnar syngur eins og Nico úr Velvet Underground og er hljóðfæraskipan á plötunni gagngert mynduð til að endurvekja stemningu þessara liðnu áratuga. Upphafslag plötunnar er hið geysisterka Brakhage sem er léttfönkað og áheyrilegt popplag sem hefði sómt sér vel í mynd með Peter Sellers. Sterolab hefur hér tekist að gera afar sterka og heilsteypta breiðskífu sem á eftir að verða ofarlega á listum yfir bestu plötur í lok ársins. Jón Atli Jónasson Sahsa & John Digweed - Northern Exposure 2 ★★★ Breski súperklúbburinn Ministry of Sound er nú æ meir að færa sig út í útgáfu á raftónlist ýmiss konar og á dögunum gaf hann út annan diskinn í Northern Exposure- seríunni. Northem Exposure inniheldm’ raftónlist í rólegri kantinum og eins og venju- lega er diskurinn mixaður saman svo hann rennur í gegn sem ein heild. Þetta gef- ur honum sterkara yfirbragð þar sem maður upplifir lögin á honum sem eina heiid. Það eru bresku plötusnúðarnir John Dig- weed og Sasha sem standa við spilarana og velja saman lögin á diskinn. Þeim hefur tekist vel upp í að velja saman lög og er disk- urinn allur hinn áheýrilegasti. Opnimarlag hans er meö hljómsveitinni GUS GUS og er það áður óþekkt útgáfa af laginu Believe. Fjöllistahópurinn á í allt tvö lög á diskinum og eiga þau vel heima þar. Af öðrum sem lög eiga á honum má nefna þýska teknó-frumherjann Sven Vath og bresku hljómsveitina Fluke. í heild er Northern Exposure vel heppnaður og ágætt leynivopn í skammdeginu. Jón Atli Jónasson Hurricane#1 -Hurricane#1: Á mörkum frægðar *** Breska sveitin Hurri- cane#l er hér með sína fyrstu plötu en meðlimir sveitarinn- ar eru þó í engu reynslulaus- ir á sviði rokktónlistar. Sveitinni hefur nokkuð’ verið líkt við Oasis en þær fullyrðingar standast engan veginn. Helst er að menn villist á gítarsándinu og láti það blekkja sig. Fyrsta lag plötunnar, Just Another Illusion gefur strax fyrirheit um hvað koma skal. Sérstakur stíll sveitarinnar birtist í gargandi en þó yfirveguðum gítörum og rödd Alex Lowe túlkar oft á tiðum angurværar lagasmíðar Bell frábærlega. I heild er platan frábær og reyndar sérstakt hvað lögin eru öll góð . Það eru þó nokkur sem standa uppúr og maður verður talsvert háður eftir nokkrar hlustanir. Má þar nefna lögin Step Into My World, Let Go Of The Dream, Lucky Man og Monday Aftemoon sem eru öll frá- bærar lagasmíðar og bera vitni um hæfileika þessarar hljómsveit- ar. Páll Svansson . ★' tónlist Margir tónlistarmenn hafa heillast af þeim stíl sem tónlist Wu Tang þykir hafa. O’l Dirty Bastard -Laugardalshöllinni O’l Dirty Bastard úr Wu Tang Clcm-flokknum heldur tónleika í Laugardalshöllinni annað kvöld ásamt The Brooklyn Zoo. Til upp- hitunar verða þeir Alex Gifford og Will White úr bresku big beat- sveitinni The Propellerheads og ís- lensku hljómsveitirnar Subterra- nean og Quarashi. Búast má við því að ungmenni þjóðarinnar fjöl- menni á tónleikana þar sem Wu Tang Clan er án efa ein stærsta rapphljómsveitin í heiminum í dag. Wu Tang Clan er frá Staten Island í New York og með fyrstu plötu v sinni, sem bar heitið 36 chambers, Enter The Wu Tang Clan, þótti sveitin brjóta blað í sögu hip hop-tónlistarinnar. I kjöl- far fyrstu breiðskífunnar fylgdu svo sólóplötur nokkurra meðlima hljómsveitarinnar sem þóttu einnig vera betri en nokkuð annað sem hip hop-tónlistin bauð upp á. Margir tónlistarmenn hafa heillast af þeim stíl sem tónlist Wu Tang þykir hafa og nægir þar að nefna Mariah Carey, sem fékk O’l Dirty Bastard til liðs við sig í einu lagi, Björk, sem unnið hefur með upp- tökustjóra Wu Tang Clan, og hljómsveitina Texas sem er að vinna að nokkrum lögum með sveitinni. Það er því sannkallaður hvalreki að fá O’l Dirty Bastard hingað til lands. -JAJ PUSA hættir! Presidents of the United States of America eru hættir! Ástæðan er sögð vera sú að söngvara sveitar- innar, Chris Ballew, langar til að hefla sólóferil. PUSA er önnur Seatt- le-sveitin sem leggur upp laupana á árinu en Soundgarden hætti sem kunnugt er fyrr á þessu ári. Bubbi leiðréttur á lista Vegna mistaka sem áttu sér staö sölulista Japis, lenti Bubbi me plötuna sína Trúir þú á engla? neí ar á sölulista DV í síðustu viku e hann í raun átti að vera. Japis he ur nú leiðrétt þessi mistök. DV biður Bubba og lesendur a sökunar á mistökum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.