Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1998, Qupperneq 4
18
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998 DV
um helgina
-f-
Borgarleikhúsið:
Feður
og symr
-myndir i
Galleri
niilli
kl. 10
og 18,
laug
ar-
daga
miili
kl. 10
og 17
sunnudaga
milli kl.
14 og 17
Jonas Vioar
Sveinsson
nefnir sýn-
ingu sína í-
myndir.
Á morgun kl. 15 opnar myndlistarmaöur-
inn Jónas Viðar Sveinsson sýningu á olíu-
málverkum í baksal Gallerí Foldar við
Rauðarárstíg. Sýningin ber heitið í-myndir.
Jónas Viðar er fæddur árið 1962. Hann
stundaði nám við Myndlistarskólann á Ak-
ureyri 1983-1987 og Accademia di Belle Arti
di Carrara á Ítalíu 1990-1994.
Sýningin nú er ellefta einkasýning Jónas-
ar Viðars. Auk þess hefur hann tekið þátt í
mörgum samsýningum hérlendis og erlend-
is. Jónas Viðar hefur hlotið nokkrar viður-
kenningar fyrir verk sin. Hann er búsettur
og starfandi á Akureyri.
Sýning hans stendur
til 25. janúar.
Gallerí Fold
er opið dag-
lega
í kvöld verður frumsýnt á stóra sviði Borgar-
leikhússins leikritið Feður og synir eftir Rússann
ívan Túrgenjev.
Leikurinn gerist í Rússlandi um miðja nitj-
ándu öld. Hin ungi Arkadí kemur með skólafé-
laga sinn, hinn bráðgáfaða Basarov, heim á
sveitaróðal föður síns.
Basarov gerir árangurslausar tilraunir til að
vekja þessa rótgrónu og efnuðu fjölskyldu af
óhagganlegu andvaraleysi. En hann er kvalinn og
togstreita mikilla tilfinninga veldur því
að hann grípur til örþrifaráða með
skelfilega þungbærum afleiðing-
m.
ívan Sergejevíts Túrgenjev
fæddist 28. október árið 1818
og var eitt dáðasta leikritaskáld Rússa. Hann var
fyrirmynd stórskáldanna Tsjekhovs, Gorkis og
Dostojevskís.
Með verkum sínum lagði Túrgenjev drjúgan
skerf til evrópsku skáldsögunnar og byggði
þannig brú milli austurs og vesturs. Mörg verka
hans fjalla um fólk í leit að haldbærum málstað
eða tryggri ást á tímum upplausnar.
Leikendur í sýningunni eru: Björn Ingi Hilm-
arsson, Eggert Þorleifsson, Guðlaug
Elísabet Ólafsdóttir, Guðrún Ás-
mundsdóttir, Halldóra Geir-
harðsdóttir, Kristján
Feöur og synir fjallar
m.a. um togstreitu
sterkra tilfinninga.
I Feörum og sonum fá áhorfendur innsýn í samfé-
lag hinnar rússnesku yfirstéttar á nítjándu öld.
Franklín Magnús, Pétur Einarsson, Sóley Elías-
dóttir og Þorsteinn Gunnarsson. Þýðandi verks-
ins er Ingibjörg Haraldsdóttir,
leikmynda- og búningahönn-
uður er Stanislav Bene-
diktov og leikgerð og
leikstjórn annast
Alexsei Borodin.
-glm
Steinunn í
Gerðarsafni
Myndlistarkonan Steinunn
Helgadóttir opnar á morgun sýn-
ingu á verkum sínum í Gerðarsafni
i Kópavogi Hér er um að ræða inn-
setningu þar sem Steinunn tekur
fyrir samband orða og mynda -
tengslin milli sjónrænnar upplifun-
ar og tungumálsins.
Steinunn nam við Myndlista- og
handíðaskóla íslands og stundaði
framhaldsnám í Svíþjóð. Hún hefur
haldið ijölda einkasýninga hérlend-
is og í Svíþjóð og tekið þátt í sam-
sýningum.
Verkin á þessari sýningu era af
tvennum toga. Annars vegar sýnir
Steinunn verk sem vísa beint til
tengsla milli oröa og upplifunar á
islenskri náttúru. Hins vegar er
um að ræða verk sem vísa í lista-
söguna og tengjast tilfinninguin
frekar en náttúruupplifun. Á þeim
verkum sést Maria guðsmóöir
syrgja við atburöi sem hvergi er
lýst i Biblíunni. Engu að síður þyk-
ir þetta viðfangsefni svo áhrifamik-
ið að margir listamenn hafa spreytt
sig á því í gegniun aldimar.
Meðal annars vann Michelang-
elo fræga mynd í jiessum anda.
Auk hans eru tU svipaðar myndir
m.a. eftir Van Dick, Andrea del
Sarto og Quentin Massys.
Sýning Steinunnar stendur til 1.
febrúar. Hún veröur opin alla daga
nema mánudaga milli ki. 12 og 18.