Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1998, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1998, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1998 HLJÓMPLjíTU m BNR ÍNI Björk - Bachelorette-smáskífurnar ★★★ Nú er komin út önnur smá- skífan eða öllu heldur smá- skífurnar af Homogenic og sem fyrri daginn fær Björk enga aukvisa til að endur- vinna lögin sín. Bachelorette er eitt sterkasta lagið á Homogenic og býður upp á marga möguleika við endur- hljóðblöndun. Þeir sem eru með puttana í laginu koma úr öllum áttum. Upptökustjórinn Howie B. gerir útgáfu af lag- inu sem er ansi góð og dregur hann úr frekar en að falla í þá gildru að gera lagið að einhverju „stærra". The RZA gerir Bachelorette að sínu eigin eða að Wu Tang lagi og það er líka skemmtileg tilraun. Mark Bell úr LFO sem sá um upptökustjórn á Homogenic ásamt Björk er iðinn. Hann á einar þrjár útgáfur af laginu á smáskífunum. Þýski tónsnillingur- inn gerir svo postmodern jassútgáfu af laginu og svo eina til sem ber titilinn „The Ice Princess and Killer Whale Remix." Allt frá því Björk hóf sólóferil sinn hefur hún fengið aðra listamenn og oft- ar en ekki danstónlistarmenn til að endurgera lög sín og remixa og má segja að það sé að nokkru leyti að verða hennar vörumerki. í seinni tíð hefur það líka færst í aukana að hljómsveitir geri þetta og það sýnir bara að Björk er oftar en ekki skrefinu á undan í því sem hún er að gera. Jón Atli Jónasson Rakim-The 18th Letter ★★★★ Þá er einn af forsprökkum hip hopsins mættur til leiks á ný. Hann hefur nú slitið sam- starfl sínu við Eric.B. en sam- an mynduðu þeir einn vin- sælasta rappdúett Bandaríkj- anna á upphafsárum hip hopsins þar í landi. Margir hafa beðið þess með eftir- væntingu að Rakim sendi frá sér sólóplötu enda hefur ekk- ert heyrst til hans mn nokk- urra ára skeið. The 18th Lett- er kemur skemmtilega á óvart. Hún er tvöfold og á fyrri disknum er að finna nýjar laga- smíðar frá Rakim og koma þær verulega á óvart. Rakim hefur DJ Premier sem sinn upptökustjóra og það er eitt af því sem gerir þessa plötu svo frábæra. DJ Premier, sem til að mynda hefur unnið með Jeru The Damaja og fleirum, er pottþéttur upptökustjóri þegar kemur að rappi. Rakim hefur lengi verið talinn í hópi albestu rappara Bandaríkjanna og hann sýnir það og sannar á The 18th Letter. Seinni diskurinn inniheldur gamla smelli Eric.B. og Rakims og ætti það að vera aðdáendum þeirra sannkallað gleðiefni. Eitt besta lag plötunnar er lagið Guess Who’s Backi sem er að mínu mati besta rapplag síðasta árs. Bush-Deconstructed: Frábær nýsköpun Það er erfitt að imynda sér að jafn ólíkleg sveit og Bush hætti sér í heim raftónlistar, enda sveitin betur þekkt fyr- ir að stæla Nirvana en að blanda saman tónlistarstefh- um. Það er því nokkuð freist- andi að afskrifa strax plötuna Deconstructed sem inniheld- ur mix af lögum sveitarinnar í höndum galdrakarla eins og Goldie, Jack Dangers og Trickie. En hvort sem platan á að vera einskonar listrænt stökk sveitarinnar eða bara að sveitin sé að færa sig yfir í aðra stefnu kemur útkoman manni í opna skjöldu í jákvæðum skilningi. Lög Bush eru gjörsamlega afklædd og síðan klædd á nýjan leik í önnur fot á Deconstructed. Greg Bimson mixar trommur í lag- inu Everything Zen og meðlimir Bush keyra lagið Mouth sjálfir á þann máta að Prodigy ætti að skammast sín. Áhrifaríkari remix fylgja síðan í kjölfarið og lögin losna undan formúlunni, vers-viðlag-vers og eru matreidd sem tónlistarlegt hráefni. Góð dæmi um þetta eru lögin Insect Kin í höndum Dang- ers og Philip Steir hefur umbreytt laginu Synapse í draugalega ambient-tónlist með góðum árangri. Frumlegasta mix plötunnar verður að teljast lagið Swallowed í höndum Goldie og Rob Play- ford. Rödd Gavin Rossdale, söng\'ara Bush er notuð á agaðan máta á Deconstructed og dettur inn við og við. Þetta verður hins vegar til þess að hún er miklu áhrifameiri en ella. Deconstructed er að mínu mati eitt það besta sem komið hefur frá Bush og vonandi verður haldið áfram samstarfi sem þessu í framtíðinni. Páll Svansson Jón Atli Jónasson ★★★ ^ >" ínlist 23 Æ é i j ■ n '*'**.* M! P ' * / 'Sj : ' Pearl Jam - afturhvarf til pönksins Ný styttist í það að nýjasta breiðskífa hljómsveitarinnar Pearl Jam komi í verslanir. Fyrir stuttu gaf Pearl Jam út smáskífu með laginu Given to Fly sem er undan- fari nýju plötunnar. Að sögn tals- manns hljómsveitarinnar tekst Eddie Vedder, söngvara hljóm- sveitarinnar, að brúa bilið vel á milli þess að syngja texta sem hafa félagslegan boðskap og persónuleg- an. Yield er heiti nýju plötunnar sem Pearl Jam tók upp í samstarfi við upptökustjóra sinn til margra ára, Brendan O’Brien. Upptökur fóru fram í Seattle sem er heima- borg hljómsveitarinnar. Upp- hafslag breiðskífunnar er lagið Brain of J sem hljómsveitin hefur leikið talsvert á hljómleikum og var til að mynda opnunarlag hljómsveitarinnar þegar hún hit- aði upp fyrir Rolling Stones á tón- leikum í Portland á síðasta ári. í laginu leggur Eddie Vedder fram heldur undarlega spurningu þegar hann spyr hver hafl undir hönd- um heila JFK. Og hvaða máli það skipti. Eddie viðurkennir að á nýju plötunni fari hann í mikla orðaleiki og að hljómsveitin skipti frjálslega milli bítlaútsetninga á lögunum og hrárra pönktakta. í einu lagi á nýju plötunni er Metallica: Þreytt á þungarokkinu Árið 1996 fór hljómsveitin Metailica í klippingu. Síðir þunga- rokkslokkarnir viku fyrir nýju og ferskara útliti. Hinn frægi ljós- myndari Anton Corbin, sen tekið hefur ljósmyndir af öllum sem eitt- hvað eru í tónlist, allt frá Pavarotti til Depeche Mode, var fenginn til að gera myndbönd fyrir þá og eitt- hvað breytti hljómsveitin líka áherslum sínum. Lagið þeirra, Until it Sleeps, var hátt á vin- sældalistum um allan heim og það var troðfullt á öll- um tónleikum þeirra það árið. Það var sem sagt hið besta mál fyrir Metallica að skipta aðeins um gír. í gegnum tið- ina hefur Metallica farið sínar eig- in leiðir og náð að byggja upp gríð- arlega stóran og fjölbreyttan aðdá- endahóp. En hvað skyldi nú drífa hljómsveitina áfram? „Það er upp- reisnarandinn,” segir James Het- field, forsprakki sveitarinnar. „Við erum að gera okkar eigin hluti og sættum okkur ekki við neinar málamiðlanir. í gegnum öll þessi ár höfum við haldið okkar stefnu. Hún hefur verið þungarokk en nú upp á síðkastið hefur okkur þótt þungarokksstimpill sveitarinnar hafa haldið henni tii baka. Þó svo þungarokkið stæri sig af því að innan þeirr- ar stefnu sé allt leyfilegt eru samt reglur í því eins og ann- ars staðar. Það þykir til dæmis ekki við hæfi að nota ákveðin hljóðfæri og maður þarf að hafa ákveðið útlit, sítt hár og þess háttar. Við vorum orðnir leiðir á þessu og vildum fá tækifæri til að þróast án hafta sem tónlistarmenn. Þess vegna fékk hárið að fjúka og við skiphnn um stíl. En við erum hreinræktaðir rokkarar enn þá.“ Nú fyrir jólin kom út nýjasta breiðskífa Metallica og ber hún heitið Reload. -JAJ kannski að finna svarið við þess- um nýfundna léttleika Pearl Jam en þar syngur Eddie: „I’ve stopped trying to make a difference." Eddie gerir líka mikið grín að poppímynd sinni og stórstjörnuli- femi á nýju plötunni og í einu lag- anna segir hann: „I was a fortun- ate/As fortunate as me.“ Áætlaður útgáfudagur Yield er þriðji febrúar og bíða sjálfsagt margir Pearl Jam-aðdáendur spenntir. Ekkert hefur enn verið ákveðið meö tónleikaferðalög til að fylgja plötunni eftir en það má samt fast- lega reikna með að liðsmenn Pearl Jam fari að hugsa sér til hreyfings með vorinu. -JAJ Banslisti íslands - tíu vlnsælustu danslögln vlkuna 27.12 tll 3. janúar 1998 - 1. Emotlonal Envoy 2. Tus Monos Soul Familia 3. Deep Base Nlne "Atmosfear vs. Idjut boys 4. Tricky sftuatlon Sutra 5. We Are One (Carl Cralg mla) DJ Q 6. Stranded io.t. miai Deep Dish 7. 90’ Slam 8. The Descent EP Slick'n’Flash 9. Better Day Presence 10. Patches ZZino vs. Accelerator

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.