Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Blaðsíða 2
2
Fréttir
Sérfræðingar halda slnu striki og sitja vinnufund i dag:
Við munum hrista
þetta af okkur
- segir formaður samninganefndar um ummæli Karls Steinars
„Við munum hrista þetta af okk-
ur og halda okkar striki. Ég geri
ráð fyrir að það verði vinnufundur
aðila á morgun," sagði Guðmundur
I. Eyjólfsson, formaður samninga-
nefndar Læknafélags Reykjavíkur,
við DV í gærkvöld.
Svo virtist um tíma sem ummæli
Karls Steinars Guðnasonar, forstjóra
Tryggingastofnunar rikisins, í fiöl-
miðlum um helgina, þess efnis að sér-
fræðingar færu með hryðjuverk á
hendur sjúklingum, myndu setja við-
ræður sérfiæöinga og stofiiunarinnar
Stakfellið
aftur heima
Togarinn Stakfell, sem hraðfrysti-
hús Þórshafnar seldi fyrir nokkru til
Færeyja og hlaut þar nafnið Sverrir
Ólason, er aftur kominn til Þórshafn-
ar og verður gerður út þaðan að
nýju. Togarinn nýttist ekki hinum
færeyska kaupanda vegna þess að
norsk yflrvöld refsuðu honum fyrir
að íslendingar héldu skipinu til
veiða í Smugunni. Skipinu var bann-
að að veiða innan norskrar lögsögu
samkvæmt samningum Norðmanna
og Færeyinga. Jóhann A. Jónsson,
framkvæmdastjóri hraðfrystihúss
Þórshafnar, sagði í samtali við DV í
gærkvöld að veiðiheimildir Stakfells-
ins væru enn til staðar hjá fyrirtæk-
inu og gengi skipið inn í þær á ný.
Reglugerð Norðmanna um að
banna öllum skipum sem íslending-
ar hafa einhvern tíma sent til veiða í
Smugunni að veiða í norskri lögsögu
virðist ekki framkvæmd með eins-
leitum hætti. Þannig hafa íslensk
skip sem seld hafa verið til Noregs
fengið aö veiða óáreitt þótt þau hafi
einhvern tíma haft viðkomu í Smug-
unni. Sömu sögu er að segja um tog-
arann Amar sem veiddi í Smugimni
en var síðan seldur til Grænlands og
þaðan til Rússlands.
Jóhann A. Jónsson segir að ef
Norðmenn ætli að halda fast við það
að mismuna islenskum skipum fyrir
það að þeim hafi verið haldið til lög-
legra veiða á opnu hafsvæði þá hljóti
íslensk stjómvöld að þurfa aö svara
í sömu mynt. -SÁ
Ólafur Jóhann Ólafsson:
í sljórn
Advanta
Óíafur Jóhann Ólafsson hefur
veriö skipaður í aðalstjórn
bandariska fjármálafyrirtækisins
Advanta Cor-
poration. Fyrir-
tækið sérhæfir
sig í lánafyrir-
greiðslu við ein-
staklinga og
smærri fyrirtæki
og viðskiptavinir
þess eru yfir sex
milljónir talsins
og velta þess um
21 milijarður doll-
ara.
Ólafur Jóhann
Ólafsson.
Ólafur Jóhann Ólafsson tekur
síðar á árinu viö framkvæmda-
stjórastöðu stórfyrirtækis í
bandarísku fjármálalífí. Hann
sagði í gærkvöld í samtali við DV
að stjórnarseta hans 1 Advanta
Corp. tengdist ekki hinu nýja
starfi hans. -SÁ
endanlega í strand. Guðmundur
Bjömsson, formaður Læknafélags ís-
lands, hefúr sagt að þetta hafi verið
„afar óheppileg ummæli á óheppileg-
um tírna".
í tilkynningu sem sérfræðingar
sendu frá sér í gærkvöld vegna
málsins kom m.a. fram að upp úr
samningaviðræðum hefði slitnaö
rétt fyrir jól en fyrir nokkram dög-
um hefði tekist að koma samninga-
ferlinu í gang aftur. Hefði þaö gefið
nokkra ástæðu til bjartsýni. Því
hafi ummæli Karls Steinars um
hryðjuverkastarfsemina komið eins
og þruma úr heiðskíru lofti. Af orð-
um hans hafi mátt skilja að hann
teldi lækna vinna voðaverk, jafnvel
morð, þótt siðar hafi hann sagt
lækna beina þessu að almanna-
tryggingakerfinu en ekki að ein-
stökum sjúklingum.
í tilkynningunni segir að læknar
muni ekki leggja sig niður við að
eiga orðastað við forstjóra TR á
þessum nótum. Hins vegar muni
samninganefnd sérfræðinganna
gera sitt ýtrasta til þess að samning-
ar náist. Samninganefnd Læknafé-
lags Reykjavíkur muni þó ekki eiga
þátt í fúndum með Karli Steinari
fyrr en hann hafi dregið ofangreind
ummæli til baka.
Guðmundur I. Eyjólfsson sagði í
gærkvöld að vinnufundimir hefðu
verið haldnir daglega alla síðustu
viku og bjartsýni manna hefði verið
farin að aukast. Hins vegar hefði
fúndurinn á laugardag að mestu far-
ið í að ræða ummæli forstjóra
Tryggingastofnunar. -JSS
■bL
Félag umfer&arlöggæslumanna var stofnaö I húsakynnum Lögreglufélagsins í gærkvöld. Tilgangur félagsins er a&
standa vörö um og efla faglega umfer&arlöggæslu og stu&la aö bættri umfer&armenningu. A fundinum voru bæ&i
núverandi og fyrrverandi lögreglumenn. Kosin var stjórn og í henni eru, sitjandi frá vinstri: Ingi Þór Sigurgeirsson,
endursko&andi, Ragnar Helgason, varaforma&ur, Jóhann Daví&sson, forma&ur, Sveinn Erlendsson, ritari, og Björn
Gíslason, gjaldkeri. A&alfundur félagsins ver&ur í febrúar. DV-mynd S
Menntasetur verð-
ur hótelknæpa
- segir Ástþór Magnússon um framtíö Reykholts
Ástþór Magnússon hefur sent um-
boðsmanni Alþingis bréf þar sem
hann mótmælir afgreiðslu mennta-
málaráðuneytisins á málefnum
Reykholts. Samtök Ástþórs, Friður
2000, höfðu lagt inn umsókn um að
nýta skólann og heimavistina í
Reykholti undir menntastofnun.
Um áramótin tók Óli J. Ólafsson,
formlega við rekstri í Reykholti. Óli
sagði í samtali við DV aö það væri
rétt að hann hygðist opna hótel og
veitingastað í húsakynnum heima-
vistarinnar.
Hann sagði ekki tímabært að tjá
sig frekar um hvemig staðið yrði aö
rekstrinum, það ætti allt eftir að
koma í Ijós. „Menntamálaráðuneytiö
brýtur stjómsýslulög í þessu máli.
Fyrir utan það að tveir umsækjenda
um Reykholt séu jafnffamt nefhdar-
menn hjá ráðuneytinu er mennta-
málaráðherra með þessu að breyta
menntasetri í hótelknæpu. Þarna
eiga að fara fram drykkjuveislur að
fomum sið og flestir vita að slíkar
veislur standa nokkra daga og þeim
fylgir mikil drykkja. Ég sé ekki ann-
að en að menntamálaráðherra sé
með þessu að búa til hæli þar sem
unga fólkið getur komið saman og
svallað svo dögum skiptir. Þetta get-
ur ekki samrýmst hlutverki mennta-
málaráðherra, ekki sfst í ljósi þeirra
staðreynda að íslendingar em langt
fyrir neðan meðallag í menntakerfi
heimsins," segir Ástþór.
í bréfi sínu til umboðsmanns Al-
þingis fer Ástþór þess á leit að
ákvaröanir menntamálaráðuneytis
um framtíð Reykholts verði athugaö-
ar og jafnffamt að umsókn Friðar
2000 verði tekin til nánari skoðunar.
Þá hefur Jósteinn Kristjánsson
einnig sent umboðsmanni Álþingis
bréf þar sem hann fer ffam á að emb-
ættisfærsla menntamálaráðuneytis í
þessu máli verði rannsökuð.
Ekki náðist í Bjöm Bjamason
menntamálcU'áðherra vegna þessa
máls. -aþ
Runólfur Ólafsson, formaður FÍB:
Bensínverð þarf að lækka
„Verðið á bensíni hefur lækkað á
erlendum mörkuðum um tugi pró-
senta frá því í ágúst. Tonnið hefur
farið úr 230 dollurum í um 170 doll-
ara á þessum tíma og það hlýtur að
vera sanngjöm krafa íslenskra
neytenda að verðiö lækki hér vem-
lega,“ segir Runólfur Ólafsson,
framkvæmdastjóri FÍB, í samtali
við DV.
Runólfur segir vandamálið
liggja í fákeppni á þessum mark-
aði. Aðeins tveir aðilar flytji inn
bensín, Olís og Esso i sameiningu
annars vegar og hins vegar Skelj-
ungur sem sjái Orkunni fyrir bens-
íni.
„Við höfum bent á að ef verðið
hækkar ytra kemur það fljótt fram
hér, lækki það hins vegar tekur
marga mánuði að fá lækkunina
fram. Það sem hér vantar er að-
hald frá opinberum aðilum. í heil-
brigðu verðumhverfi sjáum við að
samkeppnin gefur svigrúm til að
bjóða neytendum upp á hagkvæmt
vöruverð. Hér er fákeppnin slík að
aðeins tveir aðilar flytja bensínið
inn og þrír til fjórir selja það. Þeir
selja 180 milljón lítra á hverju ári
og því skiptir hver króna seljend-
uma verulega máli,“ segir Runólf-
ur. -sv
MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1998
Stuttar fréttir i>v
Þorvaldur látinn
Þorvaldur Guðmundsson i Síld
og fiski er látinn. Hann hefur um
áratugi verið
einn kunnasti
athafriamaður
landsins og
stjórnaði m.a.
um tíma Hótel
Sögu, Hótel
Loftleiöum og
Hótel Holti.
Þorvaldur var
mikill lista-
verkasafnari og átti eitt stærsta
og mesta málverkasafn í einka-
eigu hér á landi.
Einræktun manna bönnuft
Islendingar undirrita í dag
samkomulag um bann við því að
einrækta menn í Evrópu. Evrópu-
ráðið á frumkvæðið að þessu
banni.
Nýr prestur
Sigurður Grétar Helgason fékk
flest atkvæði í prestskosningu í
sóknamefnd Seltjamarness í gær
og verður aðstoðarprestur í sókn-
inni með sr. Solveigu Lám Guð-
mundsdóttur. Tveir aðrir sóttu
um brauðið.
Hreindýrapeningar
Hreppsnefnd Jökuldalshrepps
hefúr úthlutað arði af hreindýra-
veiðum á síöasta ári, rúmum
tveimur milljónum króna. 95%
upphæðarinnar var skipt jafnt
milli 36 heimila í hreppnum en
5% miðað við jarðamat í hreppn-
um. RÚV sagði frá.
ófært vegna illviðra
Skeiðarársandur varð ófær í
gær vegna sandroks. Þá var ill-
fært um öxnadalsheiði vegna
stórhríðar og sömu sögu var að
segja um Oddsskarð.
Guðrún í níunda sætið
Sjónvarpið segir allar líkur á
því að Guðrún
Pétursdóttir
taki níunda
sætið á lista
sjálfstæðis-
manna fyrir
borgarstjóm-
arkosningam-
ar í vor, sam-
kvæmt heim-
ildum af kjömefhdarfundi Sjálf-
stæðisflokksins í gærkvöld.
Vírusvá
Búið er að takmarka heim-
sóknir á fæðingar- og bamadeild-
ir Landspítala vegna RS vfrustU-
fella sem greinst hafa þar. Koma-
bömum er sérstaklega talin stafa
hætta af þessari tegund veirusýk-
ingar. Stöð 2 sagði frá.
Draumaland
Stöð 2 sagði frá hópi banda-
rískra karlmanna sem em á ís-
landi gagngert til að komast í
kynni viö fagrar islenskar konur.
Landiö er í vaxandi mæli kynnt f
fjölmiðlum erlendis sem drauma-
land kvennamanna.
Fjármagnstekjuskattur
Fjármagnstekjuskattur verður
innheimtur í fyrsta sinn á þessu
ári. Talið er aö hann skili um ein-
um milljarði í ríkissjóö. Stöð 2
sagði frá.
Yfírlæknar hættir
Tveir af þremur yfirlæknum
sjúkrahúss Suðurlands á Selfossi
hafa sagt upp störfum vegna fag-
legs ágreinings við framkvæmda-
stjóra sjúkrahússins og stjóm
þess. Sjónvarpið sagði frá.
Ekki eðlilegt
Ómar Benediktsson, fram-
kvæmdastjóri íslandsflugs, er
ekki sammála Halldóri Blöndal
samgönguráðherra um að eðlilegt
sé að Flugfélag
íslands haldi
áfram að
fljúga frá Ak-
ureyri til
Raufarhafnar.
vegna þess að
það hafi sinnt
þessu flugi
áður. Hann
minnir ráðherra á það að sérleyfi
til flugs hafi veriö afnumin um
mitt síðasta ár. -SÁ