Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1998 Fréttir Einstæö uppákoma vegna kaupa á tveimur ríkisjöröum í Fljótsdalshreppi: Afsalsplöggin á alla bæi „Þetta er ekkert annað en mis- notkun á opinberum gögnum," sagði Anna Bryndís Tryggvadótt- ir, húsfreyja á Brekku í Fljótsdals- hreppi. Anna og eiginmaður hennar festu fyrir skömmu kaup á Brekku sem er ríkisjörð. Um svipað leyti keyptu önnur hjón, Jóhann F. Þór- hallsson og Sigrún Ólafsdóttir, einnig ríkisjörð í hreppnum en það var jörðin Brekkugerði. Sl. fimmtudag gerðist það svo að af- salsplögg beggja jarðanna voru send nafnlaust á hvern einasta bæ í hreppnum, um 30 talsins. Strikað hafði verið yflr bæjamöfnin og kaupverð jarðanna með gulum áherslupenna. Á afsalinu fyrir Brekku hafði einnig verið strikað í nöfn vitundarvotta að réttum undirskriftum kaupenda en vott- arnir voru Hákon Aðalsteinsson hreppstjóri og eiginkona hans. Anna hafði samband við Lárus Bjarnason, sýslumann á Seyðis- flrði, en á afsalsplöggunum sást að þau höfðu verið send af sýsluskrif- stofunni á Seyöisfirði meö faxi. Anna kvaðst hafa viljað vita hver viðtakandinn hefði verið en sýslu- maðurinn hefði ekki viljað gefa það upp. „Af orðum hans mátti skilja að það væri í hans verkahring að hafa fyrir sig nöfn þeirra sem fengju gögn um aðra,“ sagði Anna. „Hann sagði jafnframt að dóms- málaráðuneytið hefði aldrei sett neina reglugerð um hvemig nota Afsaladreifingin: Ekki löglegt - segir Hákon Aðalsteinsson hreppstjóri „Það er ekki löglegt að dreifa þessu nafnlausu um heila sveit. Ég skil ekki samræmið í því að sýslu- mannsembættið megi láta hvem sem er hafa svona pappíra, sem er löglegt, en síðan beri því engin skylda, né hafi raunar leyfi sam- kvæmt lögum, til þess að gefa upp hverjir þarna em að verki," sagði Tveir á slysadeild Nokkuð var um erjur og smærri pústra í miðborginni um helgina. Um tvö þúsund manns vom á skemmtistöðunum báðar nætumar og þurfti að flytja tvo á slysadeild eftir átök íyrir utan Kaffi Amsterdam aðfaranótt sunnudags. Gleraugu brotnuðu á dyraverði og maður rispaöist í andliti eftir að hafa verið skellt í götuna. -sv Hákon Aðalsteinsson hreppstjóri í Brekkugerðishúsum í Fljótsdal. Hann kvaðst hafa haft samband við sýslumanninn á Seyðisfirði en hann hefði sagt að hann mætti ekki gefa upp hverjir fengu send afsalsplöggin fyrir Brekku og Brekkugerði. „Maður hefði ekkert á móti því að komast að því hvers vegna þetta er gert. Það skilur enginn og mér heyrist á Fljótsdælingum að þeir séu mjög óánægðir með að fá nafnlaus bréf inn á sín heimili. Nafnlausar sendingar em hvim- leiðar og þeir menn sem eiga þarna hlut aö máli era mjög óá- nægðir með þetta, báðir tveir.“ Há- kon kvaðst ekki vita hvers vegna hefði verið strikað með gulu yfir nafn þeirra hjónanna á plagginu þar sem þau vom vitundarvottar. „Það var eins og verið væri að gefa í skyn að þetta væri ólöglegt, eða a.m.k. eitthvað vafasamt. Þess vegna hringdi ég nú í sýslumann.“ -JSS ætti upplýsingar af þessu tagi. Ég er að íhuga hvort við látum lögfræðinga skoða þetta mál ef það gæti orðið til þess að menn verði látnir bera ábyrgð á þeim gögnum sem þeir fá í hendur." Hún kvaðst hafa hugmyndir um hver stæði að baki þessum send- ingum en enga fullvissu og vildi því ekki nefna nein nöfn. Sigrún Ólafsdóttir í Brekku- gerði sagðist vita hver hefði sent afsalsplöggin en vildi ekki segja það. „Mér er alveg sama þótt þetta hafi farið á alla bæi hér. Þetta er gert til að vekja athygli á því hvernig ráðuneytið mismunar fólkinu í landinu. Umræddar tvær jarðir eru svipaðar, nema hvað önnur er með kvóta og skógi, hin kvótalaus en nærri milljón dýrari. DV hefur ekki náð tali af sýslu- manninum á Seyðisfirði. -JSS Lrtk/ JPPmM InJ jL i i -jF |1 Hk / • i Duglegar stúlkur Ljósmyndari DV rakst ó þessar duglegu stúlkur þar sem þær seldu vegfarendum ýmsar vörur ó horni Vitastígs og Njólsgötu ó laugardag. Stúlkurnar höföu selt fyrir um sjö þúsund krónur og ætluöu aö gefa Rauöa krossi Islands féö og styrkja þar með bógstödd börn. Stúlkurnar heita Viktoría Jóhannsdóttir, Telma Rut Guömundsdóttir og Jóhanna Þorkelsdóttir. DV-mynd S Dagfari Skammsýni útgerðarmanna Sjómannastéttin íslenska, undir forystu skipstjóra og stýrimanna, hefur boðað til verkfalls á fiski- skipunum. Vélstjórar hafa raunar einnig boðað verkfall en eru nú að tala um að fresta því eitthvað leng- ur, enda þurfa vélstjórar ekki að vera í verkfalli meðan sjómenn eru í verkfalli því skipin stöðvast hvort sem er. Oft er þörf en nú er nauð- syn. Þessir menn verða að knýja fram kjarabætur hvað sem það kostar. Jafnvel þótt það kosti skip- stjórann 2,6 millj. kr. fyrstu 34 daga verkfallsins. Þeir þurfa meira enda geta þeir náð 3,4 millj. kr. í mánað- arlaun ef þeir ná kröfum sínum fram. , Að því er varðar sjómennina sjálfa, hásetana, þá er verkfallið klárt, enda hafa þeir ekki nema milljón á mánuði. Verkfallið mun skella á um það leyti sem loðnuver- tíöin á að hefjast. Útgerðin hefur verið að leka út upplýsingum um launakjör sjó- manna og reikna út tjónið sem hlýst af verkfallinu, jafnt fyrir hagsmunaaðila sem þjóðina. Þetta era hins vegar hafvillur hjá útgerðinni. Sjómenn kæra sig kollótta um það þótt þeir tapi nokkmm milljónum í verkfalli. Munurinn á sjómönnum og öðmm stéttum sem boða verkföll til að bæta kjör sín er sá að sjómenn hafa efni á að fara í verkfall. Þetta eru efnaðir menn og vel launaðir og svo hafa þeir sjómannaafslátt í sköttunum og enda þótt þeir tapi nokkrum krónum til að fara í verk- fall munu þeir bæta það upp mjög fljótlega í enn betri kjömm sem út- gerðin neyðist til að borga og þess vegna neyðist útgerðin til að semja til að geta borgað. Aðrar stéttir em með skítalaun, eins og til dæmis kennarar og verkamenn og hjúkranarstéttimar og leikskólakennarar og þessar stéttir hafa ekki efni á verkfollum og semja yfirleitt áður en þau skella á. En sjómenn eru betur sett- ir og auk þess njóta þeir forrétt- inda hjá þjóðinni sem skilur þýð- ingu sjómannsstarfsins. Þess vegna hafa þeir skattaafslátt af því að þeir hafa há laun fyrir vinnu sem er mikils metin og það mundi eng- inn fást til að stunda sjóinn fyrir milljón á mánuði nema fá skattaaf- slátt. Og það er alls ekki útilokaö aö sjómannastéttin fengi slíka sam- úð meðal þjóðarinnar, ef til verk- falls kemur, að skattur verði al- gjörlega felldur niður hjá sjómönn- um til að þeir geti lifað af það langa og stranga verkfall sem þeir neyðast til að fara í vegna þess að útgerðin neitar að semja viö þá um hærri laun. Eina vandamálið við þessa deilu er að vélstjórar vilja hærri skipta- hlut sem þýðir að ef þeir fá meira fá hinir minna. Ef sjómenn eiga að fá meira hljóta vélstjórar að fá minna og allt er þetta afar ósann- gjamt og útgerðarmennimir em þar að auki á móti því að borga því þá græða þeir minna. Dagfara sýnist aö eina lausnin á þessu máli kunni að felast í því að bjóða útgerðarmönnum skattaaf- slátt af þeim gróða sem kann að verða eftir. Nú, eða þá afslátt af tapinu sem þeir sitja uppi með þeg- ar áhöfhin er búin að bítast um hlutaskiptin og fá sitt eins og vera ber. Allavega er það ljóst af þeim upplýsingum sem liggja fyrir um kaup og kjör á fiskiskipaflotanum að við það verður ekki lengur unað að sjómenn sæki björg í bú án þess aö fá fyrir það nema milljón á mán- uöi eða eitthvað ögn meira. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.