Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Side 8
8
MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1998
Útlönd
Noregssagan
snarvitlaus
DV, Ósló:
Noregssagan, eins og Snorri
Sturluson skrifaði hana, er
snarvitlaus. Og íslendingar
hrökkluðust varla frá Noregi
vegna þess að Haraldur
hárfagri vildi rukka þá um
skatt sem fyrsti konungur í
sameinuðum Noregi. Já, og
víkingarnir sigldu um höfin
100 árum áður en menn hafa
haldið til þessa.
Það er norski fomleifafræð-
ingurinn Arnfrid Opedal sem
kynnir þessar niðurstöður í
nýrri bók. Hún hefur með ald-
ursgreiningum fundið út að
svokallað Stórhaugsskip, eitt af
þremur frægum víkingaskip-
um sem Norðmenn eiga, sé
minnst 150 ámm eldra en talið
hefur veriö.
Skipiö er ekta haffært vík-
ingaskip frá því um árið 700 en
ekki nærri 900 eins og talið hef-
ur verið. Skipið er því elsta
þekkta víkingaskipið og hefur
verið notað 100 árum áður en
viðurkennt er að víkingar hafi
fyrst herjað á nágranna sína.
Amfrid segir einnig að öfl-
ugt konungsríki hafi verið
komið á koppinn í Noregi þeg-
ar svo stórt víkingaskip var
smíðað. til þessa hafa Norð-
menn trúað orðum Snorra
Sturlusonar og kaflað Harald
hárfagra fyrsta kóng sinn. Nú
bendir allt til að Snorri hafi
ekkert vitað um málið og ekki
heldur þaö að tslendingum hafi
mislíkað stofnun ríkis í Nor-
egi. Norska ríkiö er eldra en
bæði Haraldur hárfagri og ís-
landsbyggð.
-GK
Herinn í Alsír á
bak viö
fjöldamorð
Breska blaðið The Observer
greindi frá því í gær að það
hefði nýjar sannanir fyrir því
að öryggissveitir alsírska hers-
ins bæru ábyrgð á nokkrum
fjöldamorðum.
Hafði blaðið það eftir tveim-
ur lögreglumönnum, sem sótt
hafa um hæli í Bretlandi, að
þeir hefðu tekið þátt í morðum
á varnarlausum óbreyttum
borgurum samkvæmt skipun.
Lögreglumennimir tjáðu
blaðinu að sérsveitir, dulbúnar
sem bókstafstrúarmenn, hefðu
að næturlagi myrt heilu fjöl-
skyldumar.
Blaðið sagði mennina hafa í
smáatriðum greint frá þætti yf-
irvalda í margs konar mann-
réttindabrotum. Dauðasveitir
hefðu gerst sekar um
fjöldamorð, pyntað stjórnar-
andstæðinga og myrt erfiða
blaöamenn og vinsæla
skemmtikrafta. Yfirvöld saka
uppreisnarmenn múslima um
fjöldamorðin.
Fjölmiðlar í Alsír greindu
frá tugum morða um helgina. í
blaði hlynntu stjóminni sagði
að í einu tilfellanna hefðu her-
menn komið á vettvang og fellt
nokkra múslíma.
Hættulegt að
tala of mikið í
GSM-síma
Það getur verið slæmt fyrir
heilsuna að tala lengur en
klukkustund á dag í GSM-síma.
Þetta eru niðurstöður stórrar
norrænnar rannsóknar. Komið
hefur í ljós að mikil notkun
GSM-sima leiðir til höfuðverkj-
ar, sársauka í andliti, svima og
þreytu.
ÍDanmörku kanna vísinda-
menn möguleg tengsl milli far-
símanotkunar og heilaæxla.
Stuttar fréttir DV
Eiginkona breska utanrikisráðherrans:
Robin Cook átti
margar ástkonur
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, lýsti í gær yfir fullum
stuðningi við Robin Cook, utanrik-
isráðherra sinn, sem hefur verið í
sviðsljósinu um hejgina vegna
framhjáhalds. Blair vísaði því á
bug að kynlífshneykslið, sem batt
enda á 28 ára gamalt hjónaband
Cooks, hefði haft neikvæð áhrif á
starf utanríkisráðherrans.
Breskir fjölmiðlar fjölluðu um
ástalíf utanríkisráðherrans um
helgina. Greindu bresku sunnu-
dagsblöðin frá því að ástkona utan-
ríkisráðherrans, sem er ritari í
neðri deild þingsins, dveldi í íbúð
hans í London. í síðustu viku sakaði
fyrrum eiginkona Cooks, Margaret,
hann um að hafa átt vingott við aðr-
ar konur áður en þau skildu.
Robin Cook og Margaret höfðu ver-
ið gift í 28 ár þegar hjónaband
þeirra fór út um þúfur í fyrra. Þeg-
ar Cook varð Ijóst að breska blaðið
News of World ætlaði að greina frá
ástarsambandi hans og ritarans
Gaynor Regan ákvað hann að segja
sannleikann.
En nú hefnir Margaret sín. Hún
segir bæði frá framhjáhaldi eigin-
mannsins í nýrri bók, Westminster
women eftir Lindu McDougall. og í
sjónvarpsþætti.
Margaret vissi um samband eigin-
mannsins og Gaynor í yfir eitt ár.
En hún vonaði að hægt yrði að
bjarga hjónabandinu. Nú segir
Margaret að Robin Cook hafi átt
margar aðrar ástkonur, meðal ann-
ars fyrrverandi eiginkonu ráðherra
íhaldsflokksins.
Haft er eftir Margaret að henni
þyki konur tíu árum á undan körl-
um í tilfinningalegum þroska. Sjálf-
ur hefur Cook ekkert tjáð sig um
kvennamál sín.
Reyndar hefur Margaret hrósað
eiginmanninum fyrrverandi fyrir
stjórnmálahæfileika hans. Hún hef-
ur einnig vísað á bug frétt í The
Sunday Times þar sem gefið er í
skyn að Cook hafi tjáð henni aö
hann þyrfti að segja af sér ef nei-
kvæð umQöllun um hann héldi
áfram.
Vetrarhörkur
Neyðarástandi hefur verið
lýst yfir í norðurhluta New
York ríkis vegna óveðurs. Millj-
ónir manna eru enn án raf-
magns í New York, í Nýja-
Englandi og í Kanada af völdum
ísingar á rafmagnslínum.
Hætta á klofningi
Hætta þykir vera á klofningi í
vinstri stjóm Lionels Jospins,
forsætisráðherra Frakklands,
vegna kröfu atvinnulausra um
hærri bætur.
Morð í Belfast
Öfgasinnað-
ir sambands-
sinnar myrtu
aðfaranótt
sunnudags
kaþólikka í
Belfast sem
var kvæntur
frænku Gerrys
Adams, leið-
toga Sinn Fein, stjórnmála-
vængs írska lýðveldishersins.
Bæði kaþólikkar og sambands-
sinnar hafa lýst yflr vanþóknun
sinni i morðinu.
Tugir skotnir til bana
Talið er að súnnítar hafl skot-
ið til bana yfir tuttugu sjita í
Lahore í Pakistan í gær. Sjítam-
ir voru skotnir er þeir báðust
fyrir á greftrunarstað.
Mega bora í nefið
Yfirrabbíni í ísrael hefur leyft
mönnum að bora í nefið á hvíld-
ardeginum. Rabbíninn visaði á
bug frétt um að hann hefði
bannað nefborun á þeim for-
sendum að hár kynnu að losna.
Þar með hefði bannið við
rakstri og klippingu á hvíldar-
deginum verið brotið.
Nýtt fuglaflensutilfelli
Yfirvöld í Hong Kong til-
kynntu í gær að sex ára stúlka
hefði smitast af fuglailensu. Hún
veiktist áður en öllum kjúkling-
um á svæðinu var slátrað.
Þrefaldar fjárkröfu
Paula Jones, sem sakað hefur
Clinton Bandaríkjaforseta um
kynferðislega áreitni, hefur
þrefaldað þá upphæð sem hún
vifl fá til að ná sáttum. Fer hún
fram á 2 mifljónir doUara í
bætur.
Sendinefnd til Asíu
Bandarískir
embættismenn
héldu í gær til
Singapúr,
Indóesiu,
TaUands og
Suður-Kóreu
tfl að hvetja
stjórnvöld þar
tU að fara eftir
fyrirmælum Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins vegna efnahagskrepp-
unnar. Helsti stjórnarandstæð-
ingur Indónesíu, Megawati
Sukarnoputri, dóttir Sukarnos,
fyrsta forseta landsins, hvatti
um helgina Suharto forseta tU
að segja af sér. Kvaðst hún
reiðubúin tU að taka við stjóm-
artaumunum.
Rabbínar til írans
ísraelskir rabbínar Uiuga að
fara í heimsókn til klerka
múslíma í íran. Netanyahu,
forsætisráðhema ísraels, kveðst
ekki hafa samþykkt slíka ferð.
Sagði hann sambandið ekki á
vegum yfirvalda.
Eldgoss að vænta
ítalskir eldfjallasérfræöingar
sögðu í gær að búast mætti við
eldgosi í Etnu á SikUey.
Undanfarna daga hafa orðið þar
130 vægir jarðskjálftar.
Danskur sérfræðin|ur varpar sprengju:
Færeyjar eru
Um fimmtíu manns létu iífiö og um tfu þúsund slösuöust í öflugum jaröskjálfta nálægt Kínamúrnum í Hebeihéraöi í
Kína á laugardaginn. Tugir þúsunda húsa skemmdust eöa eyöilögöust í jarðskjálftanum. Þessi kínverska kona situr
á rústum heimilis síns og heldur á mynd af fjölskyldu sinni. Símamynd Reuter.
einungis
Danski Framfaraflokkurinn krefst
þess að Poul Nyrup Rasmussen, for-
sætisráðherra Danmerkur, boði til
skyndifundar til að ræða stjórnar-
farslega stöðu Færeyja..
í gær fullyrti Vagn Wáhlin, sem er
dósent við háskólann í Árósum og
sérfræðingur við Norður-Atlants-
hafsstofnun skólans, í danska blað-
inu Jyllands-Posten að Færeyjar
hefðu aUs ekki sjálfsstjóm eins og
íbúar eyjanna álíta og danskir
stjórnmálamenn og embættismenn
láta líta út fyrir.
„Danska stjórnin og þingið geta
hvenær sem er breytt heimastjórn-
arlögum Færeyja. Færeyjar geta í
raun ekki mótmælt. Eyjarnar eru
Poul Nyrup er krafinn svara.
amt
danskt amt og ekkert annað,“ sagði
sérfræðingurinn.
Með þessari yfirlýsingu þykir sér-
fræðingurinn hafa varpað sprengju
í umræðumar um sambandið miUi
Danmerkur og Færeyja.
FuUtrúi danska Framfaraflokks-
ins, Kirsten Jacobsen, segir Poul
Nyrup Rasmussen verða að gefa ná-
kvæmar upplýsingar um hver hafi
rétt til að taka ákvarðanir um land-
grunn Færeyja og hverjum tekjurn-
ar af því, ef einhverjar verða, tU-
heyra.
Segir Jacobsen óvissuna gífurlega
og margar spumingar hafa vaknað í
kjölfar fuUyrðinga sérfræðingsins
við háskólann í Árósum.