Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Síða 10
10 Fréttir MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1998 www.civ.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.iswww.dv.is] w w w. d v. i s Aðgangur ókeypis fyrst um sinn Frá því ættfræðisíða DV hóf göngu sína 20. júlí 1987 hafa ættfræðingar og blaðamenn DV rakið ættir og æviágrip um 11.000 íslendinga á síðum blaðsins. Alls koma vel á annað hundrað þúsund manns við sögu í ættrakningum DV á vefnum. Frá deginum í dag eru ættfræðigreinar DV aðgengilegar almenningi á Netinu. Á Ættfræðivef DV er hægt að fletta upp nöfnum fólks í stafrófsröð eða leita að því með öflugri leitarvél. Fyrst um sinn verður aðgangur ókeypis að þessum hafsjó fróðleiks. DV Sameiginlegt framboð í Kópavogi: Ekkert prófkjör Ekki verður efnt til prófkjörs vegna sameiginlegs framboðs Al- þýðuflokks, Alþýðubandalags og Kvennalista í komandi bæjarstjórn- arkosningum í Kópavogi. Kjör- nefnd, sem í eiga sæti tveir fulltrú- ar frá hverjum flokki, vinnur nú að uppröðun á sameiginlegan lista. Heimildir herma að röðun í sæti sé mikið hitamál meðal yngri flokks- manna sem vilji tryggja sinn hlut á listanum. Þegar samkomulag var gert um sameiginlegt framboð flokkanna var sett fram hugmynd að röðun í sæti á framboðslista. Samkvæmt henni fær Alþýðubandalagið 1. og 5. sæti, Alþýðuflokkur 2. og 6. sæti, Kvenna- listi 3. sæti og óháðir 4. sæti. Krist- ján Guðmundsson, formaður kjör- nefndar, segir málefnavinnu í gangi en kjömefnd hefur hist þrisvar. Hann segir að á næstunni standi fyrir dyrum að stofna formlega sam- tök um sameiginlegt framboð, Kópa- vogslistann. Síðan verði menn að setja sér tímamörk varðandi kynn- ingu á framboðslista. „Við verðum ekki í neinum vandræðum með að fmna fólk á framboðlista. Hér er fullt af efnilegu fólki sem fætt er og uppalið i Kópavogi og þekkir vel sitt bæjarfélag," sagði Kristján við DV. -HLH Eyjafjarðarsvæðið: Áhugi á nýsköpun- arsjóði DV, Akureyri: „Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hef- ur verið að gera marga góða hluti en því er ekki hægt að neita að hluti af starfsemi Iðnþróunarfélagsins er þess eðlis að einkafyrirtæki á svæð- inu geta sinnt þeim verkefnum, s.s. fjármálaráðgjöf og endurskipulagn- ingu fyrirtækja. Það er því spurning hvort við eigum ekki að breyta um starfshætti og einbeita okkur betur að því næstu árin að leggjast í vík- ing og reyna að sækja ný atvinnu- tækifæri inn á svæðið,“ segir Hákon Hákonarson, formaður Atvinnu- málanefndar Akureyrarbæjar. Að undanfornu hefur starfsemi Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar verið til endurskoðunar og í framhaldi af því hugsanleg stofnun nýsköpunar- sjóðs í Eyjafirði sem að kæmu stofn- anir Akureyrarbæjar, Iðnþróunarfé- lag Eyjafjarðar, Byggðastofnun og önnur sveitarfélög við Eyjafjörð. „Okkur gengur það eitt til að kanna hvort ekki er hægt að beita þessum kröftum öllum betur saman í þágu Eyjafjarðarsvæðisins. Draumurinn er að til verði mjög öfl- ugt félag sem hafi yfir fjármagni að ráða til uppbyggingar nýjum störf- um. En til að það takist þurfa sveit- arstjórnarmenn að vera tilbúnir að leggja í þetta umtalsverða peninga. Ég myndi álíta að ef fyrirtæki sem þetta hefði yfir að ráða 50-80 millj- ónum króna árlega værum við í mjög góðum málum. Við erum að benda á þá möguleika sem gætu ver- ið fyrir hendi með breyttu fyrir- komulagi og síðan er það stjóm- málamannanna að velja og hafna,“ segir Hákon. Því hefur verið slegið fram að hinn hugsanlegi nýsköpunarsjóður myndi hafa yfir að ráða einum millj- arði króna. Þá hefur það verið nefnt að hlutur Akureyrarbæjar yrði hálf- ur milljarður króna sem yrði fjár- magnaður með sölu hlutabréfa bæj- arins í Útgerðarfélagi Akureyringa. „Sala á hlutabréfum bæjarins í Útgerðarfélagi Akureyrar af þessu tilefni hefur alls ekki verið ákveðin. Slíkt gæti þó verið möguleiki en það verða þá aflir hlutir sem snúa að málinu að ganga upp, ekki bara það sem snýr að Akureyrarbæ," segir Gísli Bragi Hjartarson, bæjarfulltrúi Alþýöuflokksins, um þetta mál. -gk Akranes: Hitinn lækkar DV, Akranesi: Um áramótin lækkaði verð á vatni til húshitunar á Akranesi um 5% en þrátt fyrir að raunverðslækk- un hafi orðið um 17% er verðið eitt það hæsta á landinu. Til þess að frekari raunverðs- lækkanir geti orðið þarf að breyta samkomulagi eignaraðila Hitaveitu Akranes og Borgarfjarðar. Lengja þarf afskriftartíma hita- veituæðarinnar og eignaraðilar þurfa að íhuga vel þann möguleika að leggja aukið fé tfl að styrkja eig- infjárstöðu veitunnar. Það kom nýlega fram í könnun að það sem Akumesingar setja fyrir sig sem búsetuskilyrði er hátt verð á vatni til húshitunar. -DVÓ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.