Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Side 12
12
MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1998
Spurningin
Á hvaöa útvarpsstöö hlust-
aröu mest?
Friðbjörn Oddsson nemi: FM 95,7,
hún spilar góða tónlist.
Sverrir Örn Þórðarson nemi: FM
95,7, þar er fín músík.
María Steingrímsdóttir síma-
stúlka: Aðalstöðina og FM 94,3 sem
spilar klassíska tónlist.
Brynhildur Jónsdóttir hár-
greiðslumeistari: Á Aðalstöðina,
þar eru góð lög.
Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir
nemi: FM 95,7 því að tónlistin þar
höföar mest til mín.
Sigrún Björk Friðriksdóttir
nemi: FM 95,7 þar sem skemmtileg-
asta tónlistin er.
Lesendur______________
Heimsókn á fast-
eignasöluna Holt
„Tveir einkennisklæddir lögreglumenn frelsuðu mig úr klípunni, mér til mik-
ils léttis,“ segir bréfritari meðal annars.
Fróði Oddsson skrifar:
Árið 1994 keypti ég hús á Akur-
eyri og bauð íbúð upp í. Til að spara
þinglýsingu féllst ég á að selja íbúð-
ina beint og gefa fasteignasalanum
Tryggva umboð til að millifæra
greiðslurnar. Fljótlega kom i ljós að
maðkur var í mysunni og reyndi ég
að fá umboðið til baka. Ýmsar leið-
ir voru reyndar á sínum tíma en
ekkert gekk.
Nú leið nokkur tími en á fjórða
ári frá okkar kynnum átti ég leið
um á Akureyri og hugðist nú at-
huga hvort ekki væri kominn vilji
hjá Tryggva að skila skjalinu. Kem
ég þvi við á sölunni en þar eru nú
töluverðar framkvæmdir í gangi.
Situr Tryggvi í herbergi gegnt stig-
anum upp og minnti mig óneitan-
lega á Pétur í hliðinu. Var augna-
ráðið ransakandi og fylgdist með
hverri minni hreyfingu. Ekki virtist
honum líka komumaður og fann ég
fljótt fyrir smæð minni þar sem
svona langt var upp til hans, og ég
steig upp þrep af þrepi eins og kon-
an foröum í klettunum. Gat ég vart
opnað munninn um mín erindi þeg-
ar hliðið féll að stöfum. Tryggvi
benti mér á að ég væri á röngum
stað og ætti að fara niður í stað upp
og kvaðst kalla til lögreglu tafar-
laust. Vildi ég nú ekki gefast upp
svona alveg strax, minnugur þess
að Jón komst aila leið þrátt fyrir lé-
legt mannorö og slæmar syndir. Var
nú Tryggva orðið órótt og hvarf nið-
ur stigann, á þann stað sem mér var
sennilega ætlaður, en ég fór í kaffi-
krókinn hjá honum til að þiggja
góðgerðir. Lét hann þau orð falla
áður að ég væri ekki þess verður.
Eftir skamma stund birtust þrir
iðnaðarmenn og fannst mér þeir
koma einkennilega fyrir. Vildu þeir
ekki kynna sig og skildist mér að
þeir færu með löggjafarvald á þess-
um stað. Nú var hringt á lögregluna
en þá var einn þremenninganna
kominn með handstöðu á öðrum
stólfætinum þar sem ég sat og hugð-
ist draga mig út af annarri hæð
hússins. Fengu þeir nú gagnstætt
hlutverk því fyrra, að halda mér
inni. Komu nú tveir lögreglumenn
einkennisklæddir og frelsuðu mig
úr prísundinni, mér til mikils léttis.
Urðum við sammála um að Tryggvi
ætti að geyma öll skjöl varðandi söl-
una en þeir vissu ekki frekar en ég
hvernig ætti að ná þeim.
Vonast ég samt til að Tryggvi
póstleggi skjalið til mín og þá getum
við sagt þessu lokiö.
Rangfærslur um íslandsflug
Sigfús Sigfússon, markaðsstjóri
íslandsfiugs, skrifar:
Eftirfarandi er svar við lesenda-
bréfi Egils Kristjánssonar sem birt-
ist í DV í dag, þann 8. janúar.
Þann 1. júlí 1997 hóf íslandsflug
að fljúga áætlunarflug til Sauðár-
króks. Fargjöldin voru kr. 3.600,-
aðra leið og kr. 6.900,- báðar leiðir
án skilmála. Þar sem mikið bar á
því að farþegar mættu ekki í bókuð
flug breytti íslandsflug verðskrá
sinni þann 1. september 1997. Nú
þarf að greiða við bókun svo hægt
sé að fá fargjaldið á kr 3.600,- aðra
leið og kr. 6.900,- báðar leiðir.
Einnig var boðið upp á annað far-
gjald á kr. 4.900,- aðra leið og kr.
8.900,- báðar leiðir fyrir þá sem ekki
greiða við bókun.
Egill segir í lesendabréfi sínu að
íslandsflug hafi hækkað fargjöldin
um leið og samkeppnisaðilinn hætti
að fljúga til Sauðárkróks. Það er
ekki rétt. Samkeppnisaöilinn hætti
að fljúga til Sauöárkróks 31. desem-
ber 1997 en eins og áður sagði
breyttust fargjöldin þann 1. septem-
ber 1997.
Einnig má taka fram að sömu far-
gjöld og sömu skilmálar gilda um
aflt land hjá Islandsflugi hvort sem
um er að ræða staði þar sem ríkir
samkeppni eða ekki. Sú staðreynd
að íslandsflug hafi haft betur í sam-
keppninni við Flugfélag íslands á
Sauðárkrók mun ekki breyta því að
Skagfirðingar munu í framtíðinni
njóta jafn hagstæðra fargjalda og
aðrir farþegar íslandsflugs.
Jónas R. og Saga Class
Kristján Einarsson skrifar
Það var gaman að lesa viðtalið í
Helgarblaði DV við Jónas R. Jóns-
son, áthafnamann í Lundúnum og
reyndar víða um heim. Jónas rifjaði
upp í viðtalinu hvernig til þess kom
að hann fór að vinna erlendis. Hann
var rekinn frá Stöð 2 fyrir að ferð-
ast á Saga Class með Flugleiðum,
vegna þess að á þeim tíma óttuðust
forráðamenn Stöðvar 2 að slíkur
ferðamáti þýddi að þeir væru að
bruðla með fjánnuni.
Jónas bendir réttilega á það í viö-
talinu við DV að í raun sé þessu
þveröfugt farið. Með því að ferðast á
[LIISIMIM þjónusta
allan sólarhringinn
Aðeins 39,90 mínútan
- eða hringið í síma
550 5000
milli kl. 14 og 16
Bréfritari er hissa á þeim fyrirtækjum sem senda ekki starfsmenn sína á
Saga Class í viðskiptaferöir, þar sem of mikill tími tapist með því að nota al-
menna flugmiða.
viðskiptafarrými á borð við Saga
Class spari menn sér tima og út-
gjöld vegna dagpeninga. Það er
semsé algert bruðl að nota ekki
fljótvirkasta ferðamátann.
Reyndar segir Jónas meö ólíkind-
um hversu algengt það er á íslandi
að menn vilji vera sem allra lengst
í útlöndum til að fá dagpeninga-
greiðslur. Hann segist ekki þekkja
til þess að slíkt tíðkist annars stað-
ar.
Nú eru íslendingar hættir að
skammast sín fyrir að reka fyrir-
tæki með gróða. Kannski verður
næsta skrefið að þeir fari að nýta
tima sinn og fjármuni með skyn-
samlegum hætti þegar þeir ferðast
til útlanda i viðskiptaerindum.
Kaup á enska
boltanum
Áskrifandi hringdi:
Mikið fannst mér undarlegt að
heyra í fréttum Stöðvar 2 að kaup-
in á einkarétti enska boltans væri
stórsigur fyrir áskrifendur. Fyrir
það fyrsta kostar samningurinn
stöðina tugi ef ekki hundruð miflj-
óná króna. Þessi kostnaður greiðist
auðvitað upp að hluta af auglýsend-
um, en aldrei allur, sem þýðir að á
endanum þurfa áskrifendur að
borga brúsann meö hækkuðum af-
notagjöldum eða minni gæðum
annars efhis.
Því er það svo að í rauninni töp-
um við á þessu brölti Stöðvar 2 við
að ná sér í enska boltann þar sem
við höfðum hvort sem var aðgang
aö honum hjá RÚV. Þar valt kostn-
aðurinn ekki bara á áskrifendur
heldur alla sjónvarpseigendur, sem
hlýtur í raun að hafa verið betra
fyrir áskrifendur Stöðvarinnar.
Gáfulegra hefði verið að leyfa RÚV
að hafa laugardagsboltann en fá
sýningarrétt á leikjum á öðrum
timum, eins og gert var á síðasta
vetri.
Eiturlyfjavandinn
Hörður Atli Andrésson skrifar:
Forseti íslands gerir að umtals-
efni eitm-lyflanotkun ungs fólks
sem er staðreynd enda forsetinn sá
heilbrigðasti frá stofnun lýðveldis-
ins. Flæðandi eiturlyf í landið og
hræðileg ofbeldisverk í kjölfarið.
En ég hef stundum velt því fyrir
mér hve margir af þessari íhalds-
grúppu suður í Reykjavík fjár-
magni þennan innflutning.
Dýr póstur
Uros Ivanovich hiingdi:
Það er ótrúlega dýrt að senda
pakka til útlanda frá íslandi, ég
bara trúi því ekki. Ég var að senda
tveggja kílóa pakka til Slóveníu í
dag og það kostaði 1462 krónur.
Þetta flnnst mér alveg fáranlega
dýrt og ég er bara hreint út sagt
bálreiður yfir þessu öllu saman.
Slóvenía er i Evrópu og þvi ætti
ekki að vera dýrt að senda eitthvað
þangað, en síðan er maður látinn
borga upphæð sem myndi ábyggi-
lega nægja til að senda pakkann til
Mars eða Venusar ef maður væri
staddur í flestum öðrum löndum.
Innihald pakkans voru bamaföt
sem voru keypt fyrir tvö þúsund
krónur á útsölu en þegar maður
þarf að senda pakkann fyrir þenn-
an pening hverfúr allur spamaður-
inn við útsölrma.
Slysagildra
Leigubflstjóri hringdi:
Ég hef keyrt leigubil í nokkum
tima núna og það vekur athygli
mína að næstum hverja einustu
helgi um þessar mundir verður
umferðarslys á sama stað. Þetta er
við ljósin á Bústaðavegi sem eru á
brúnni yfir Kringlumýrarbraut. Ég
næ ekki alveg að átta mig á því
hvað það er við þennan stað sem
veldur slysunum. Hins vegar tel ég
að fróðir menn ættu að athuga
þennan stað nánar til að finna það
út svo hægt sé að afstýra frekari
slysum.
Látið Davíð vera
Hildur hringdi:
Alveg er það ótrúlegt hvað menn
geta níðst og borið út róg um for-
sætisráðherrann okkar um þessar
mundir. í greinum dagblaða und-
anfarið hafa til dæmis tveir frægir
og „merkilegir" rithöfundar látið
gamminn geisa og sagt Davíð vera
einvald sem vilji allt iflt. Ég segi
bara að þessir menn ættu að halda
sér saman og sjá hvað hann Davíð
Oddsson hefúr gert fyrir landið
undanfarið.
Hvað það varðar að hann sé frek-
ur við ráðherrana okkar, þá virðist
nú bara vera þörf á því öðm hvom
þegar þeir em að klúðra hinu og
þessu. Þá er nú betra að hafa ein-
hvem röggsaman til þess að bjarga
málunum.