Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Page 15
MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1998 15 Mesta umhverfisátak í Reykjavík í 90 ár í dag er merkum áfanga náð í holræsamálum borgarinnar þegar framkvæmdum við ræsakerfi við Ægisíðu og Eiðsgranda lýkur og skólphreinsistöðin við Mýrargötu ásamt tilheyrandi útrásum verður tekin í notkun. Er óhætt að full- yrða, að þessi framkvæmd er mesta átak í umhverfis- málum síðan Vatnsveita _____ Reykjavíkur var sett á laggirnar fyrir tæpum 90 árum. Undirbúningur ffam- kvæmda við ræsakerfið hófst 1989 og hafa fram- kvæmdir staðið nær óslitið síðan og er áætl- aður heildarkostnaður um 2,3 milljarðar króna. Af þeirri upphæð er kostnaður við hreinsi- stöðina tæpar 800 m.kr. og við aðalútrás um 350 m.kr. og nemur kostnað- ur við þessa síðustu áfanga kerfisins um helmingi heildarkostn- aðar. Hefur embætti borgarverkfræðings annast þessar fram- kvæmdir undir stjórn gatnamála- stjóra. Samningar við nágranna- sveitarfélög Árið 1992 var gengið frá samn- ingum milli Garða- bæjar, Kópavogs, Reykjavíkur og Seltjamamess um byggingu og rekst- ur holræsakerfis- ins. Með samning- um náðist sam- staða um markmið og leiðir varðandi aðgerðir til að stemma stigu við mengun af völd- um frárennslis frá þeim sveitarfé- lögum, sem að samningnum stóðu og búast má við að önn- ur sveitarfé- lög í ná- grenninu muni fylgja svipaðri stefnu. Kjallarinn Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi Frá Nauthólsvik á níunda áratugnum þegar sóldýrkendur flykktust þangað á góðum dögum. Nú er von til þess að það veröi aftur hægt í framtíöinni. Á þessu ári hefjast framkvæmd- ir við hliðstæða hreinsistöð, sem valin hefur verið staður á hafnar- fyllmgu austan Laugarness. Gert „Óhreinar fjörur á strandlengju Reykjavíkur munu brátt heyra sögunni til, og nú styttist í þaö að hægt verði að nýta Nauthóls- víkina aftur til sjóbaða eins og fyrrum.“ er ráð fyrir að sú stöð verði tekin í notkun árið 2000 og í henni verði í framtíðinni hreinsað frárennsli frá íbúum borgarinnar og hugsanlega einnig frá íbúum Mosfellsbæjar. í tillögu að stefnumótum í hol- ræsamálum, sem nýlega var lögð fram i borgarráði, er ekki gert ráð fyrir að byggja nema þessar tvær stöðvar þannig að um árið 2000 ætti samkvæmt þessu að verða unnt að hreinsa á fullnægjandi hátt frárennslið frá öllum íbúum Reykjavíkur. Rannsóknir á frárennsli í Reykjavík hafa leitt í ljós að það inniheldur afar lítið af efnum sem náttúrunni eru framandi, þannig að nægjanlegt er að sía og fjar- lægja sand og fitu áður en því er sleppt út. Engu að síður hefur þess verið gætt við hönnun og staðsetningu hreinsistöðvarinnar við Mýrar- götu að unnt sé að bæta við öðru hreinsiþrepi komi í ljós að slíkt sé nauðsynlegt. Aftur sjóböö í Nauthólsvík Sem betur fer ríkir skilningur meðal Reykvíkinga á nauðsyn þess að holræsamál borgarinnar séu í viðunandi horfi. Óhreinar fjörur á strandlengju Reykjavikur munu brátt heyra sögunni til, og nú styttist i það að hægt verði að nýta Nauthólsvíkina aftur til sjó- baða eins og fyrrum. Stjórnmálamenn, sem amast við jafn sjálfsagðri framkvæmd, verða ekki hátt skrifaðir, þegar stundir líða fram, frekar en þeir sem börð- ust gegn Vatnsveitunni. Alfreð Þorsteinsson Er atvinnan á förum til Asíulanda? Með batnandi þjóðarhag og framsæknu atvinnulífi og þegar við blasa á næstu árum til alda- móta miklar kjarabætur er eðli- legt að íhuga, stefnir svo á öllum sviðum þjóðlífsins? Er misskipting vaxandi, er eignatilfærsla frá hin- um mörgu til fárra útvaldra, mun- um við í vaxandi mæli upplifa að brot af hverjum árgangi ungs fólks fer aldrei út á vinnumarkaðinn, lifir á bótum? Kemur hið evrópska munstur að maður fram af manni lifir án þess að vinna og hvernig fellur sllkt inn í fámennið hér? Hvar kreppir að og hvar sjást hættumerki ætti aö vera hin pólit- iska spuming dagsins í lok þess- arar aldar ekki síður en þeirrar síðustu. Frelsið snýst og snýst Fallegasta orð allra tima er orðið frelsi. Þjóðfrelsi, verslunarfrelsi, einstaklingsfrelsi, frelsi til athafna. Getur verið að frelsið sé misnotað og undir merkjum frelsisins séu einhverjir fjötrar þar sem ekki síst frelsi einstaklinga sé misnotað, að í hinum siðmenntaða heimi eigi sér stað þrælahald og i skjóli þess sigri slík lönd og yfirtaki markaöi og nái til sín atvinnu? Á milli jóla og nýárs birtist í Morgunblaðinu viðtal við Þóri Kjartansson, framkvæmdastjóra Víkurprjóns í Vik. Þórir segir í þessu viðtali frá samkeppni og þróun sem er að eiga sér stað hér og um alla veröld að Asíuríkin yf- irtaka pijóna- og fataframleiðslu í vaxandi stíl. Þórir fullyrðir að enginn geti keppt við þennan markað vegna þess að iðnjöframir í Asíu fái vinnuaflið gefins. Okkur finnst nú að lægstu laun hér séu skammarlega lág og vart boðleg en ef ein slík laun skiptast á 25-30 manneskjur í Asíu get- um við séð á hvaða leið hinn siðmenntaði heimur er og hvort frelsið sé ekki að búa einhverjum helsi og fá- tækt. Við kaþólskari en páfinn Eru íslendingar kannski kaþólskari en páfinn og láta verslun- arfrelsið vera heilagt, hvemig og hvaðan sem varan er fengin? Á meðan spyr Evrópu- sambandið um bak- grunn og takmarkar innflutning í, kvóta séu forsendur samkeppni ekki réttar. Það er eng- in leið að horfa upp á nýja öld sem sættir sig við þrælahald og mis- notkun á vinnuafli. Því þarf raunsæ og sívakandi verkalýðshreyfing og neytenda- samtök að huga að nýjum þáttum í starfi sínu, ódýrasta varan kann að vera illa fengin og svo illa feng- in að þrælahald búi að baki og fylgi í kjölfarið. Þrælahald lágra launa sem ekki duga til fram- færslu og upplýst er um barna- þrælkun og slíkar vörur berast hingað. Snöggvast verður mér litið á fallegu norsku jólapeysuna mína. Hvar er hún framleidd? Er það Noregur? Nei, „made in China“. Samstarf um verð- lagsaðhald er gott hjá verkalýðshreyf- ingunni en er það rekið svo hart að at- vinnan skreppi úr höndum íslendinga og flytjist í fjarlæg- ar álfur? Því spyr einn efins í lok þessarar grein- ar. Verða störf þjóða, sem virða vinnuaflið og gera kröfu um mannsæmandi laun, í vaxandi mæli flutt til Asiulanda eða verð- ur vörnin sú að halda vinnunni hér en lækka kaupið? Þessi stefna mun ekki síst bitna á svokölluðum kvennastörfum, störfum sem stærri hluti kvenna sinnir og hafa laun fyrir sem eru því miður lág- launastörf í dag. Guðni Ágústsson „Samstarf um verðlagsaðhald er gott hjá verkalýðshreyfingunni en er það rekið svo hart að atvinnan skreppi úr höndum íslendinga og flytjist í fjarlægar áifur?“ Kjallarinn Guöni Ágústsson alþinglsmaöur Meö og á móti Flutningur ríkissjónvarpsins í Efstaleiti Endurnýjun nauðsynleg „Rikisstjornm hefur heimilað að Sjónvarpið flytji starfsemi sína í Útvarpshúsið við Efsta- leiti. Þessi ákvörðun hefur verið tekin að und- angengnum ít- arlegum um- ræðum og vandlega at- huguðu máli. Sjónarmið kvikmynda- gerðarmanna hafa komið fram á fyrri stigum máls- ins. Markús Örn Ant- onsson útvarps- stjóri. Ríkissjón- varpið sjálft þarf að fylgjast með tímanum og endurnýja sig tæknilega en mun jafnframt eiga aukin viðskipti við sjálfstæða framleiðendur innanlands varð- andi kaup á dagskrárefni. Nýr upptökusalur i Útvarps- húsinu er ekki settur til höfúös íslenskum kvikmyndagerðar- mönnum. Þvert á móti tel ég að hagkvæm samnýting á honum geti átt sér stað á milli ríkissjón- varpsins og framleiðenda. Þann kóst þarf að kanna gaumgæfi- lega.“ Ari Kristinsson, for- maður Sambands íslenskra kvik- myndaframlelö- Húsið úrelt „Rökin eru í fyrsta lagi þau að með breyttri tækni þarf Ríkisút- varpið ekki lengur að framleiða svona mikið efni. Þaö er til fullt af fyrirtækjum úti í bæ sem geta framleitt efni. Ríkisútvarpið á aðallega að vera í því að kaupa efnið og senda það út. Ef Ríkisút- varpið tæki þennan millj- arð, sem það ætlar í húsið og keypti efni bara fyrir vextina af milljarðinum, myndi íslensk dagskrá alveg stórbatna á næstu árum og hlutur íslensks efnis margfaldast. Þótt búið sé að byggja húsið hlýtur að mega selja það einhverjum. Húsið er líka byggt á mjög óhagkvæman hátt og ekki í takt við öra tækni- þróun. Það eru allir íslenskir kvik- myndagerðarmenn á þessari skoðun. Alls staðar í heiminum eru sjónvarpsstöðvar hættar að framleiða efni sjálfar. Ef íslenska ríkið ætlar að senda út efni þá á það bara að kaupa það á sem hagkvæmastan hátt. Ríkið er í samkeppni við okk- ur kvikmyndagerðarmenn og fer illa með peninga skattborgar- anna. Þessu til stuðnings má nefna að níutíu mínútur af Sunnudags- leikhúsinu, sem Sjónvarpið framleiðir sjálft, kosta um 18 milljónir á meðan það kaupir ís- lenskar kvikmyndir á þrjár millj- ónir. Með þessu er ríkið að fram- leiða efni á mjög óhagkvæman hátt og því á að hætta." -glm Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á Netinu. Netfang ritstjórnar er: dvritst@centrum.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.