Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Síða 17
MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1998
17
I>V
Fréttir
Mengunarlausir bílar:
Viltu styrkja stöðu þína ?
Dísilskattar
af rafbílum
Sama þungaskatt þarf að greiða
fyrir hvern ekinn kílómetra á raf-
eða vetnisknúnum fólksbíl eins og
þarf að greiða fyrir akstur sams
konar dísilbíls.
Eigendur dísilbíla og bíla sem
knúnir eru öðrum orkugjöfum en
bensíni geta valið um hvort þeir
greiða árlegt fastagjald eða 7,09 kr.
fyrir hvern ekinn kílómetra.
Fastagjaldið er hins vegar mis-
munandi eftir þyngd bílanna. Það er
94.273 kr. fyrir bíl allt að eitt tonn á
þyngd. Fyrir bíl allt að 1500 kg er ár-
gjaldið 113.163 og fyrir bíl allt að tvö
tonn er árgjaldið 132.053 kr. Sérstak-
an 50% afslátt má veita frá fasta-
gjaldinu ef verið er að gera tilraun-
ir með innlenda orkugjafa.
Hjálmar Árnason alþingismaður
er formaður þingnefndar sem fjallar
um möguleika á notkun innlendra
orkugjafa fyrir farartæki og skip og
hagnýtingu vetnis. Hann segir að
hér á landi sé vaxandi skilningur á
því að ýta þurfi undir notkun meng-
unarlausra farartækja til að draga
úr umferðarmengun. Til greina
komi að lækka verð á raforku sem
notuð er á bíla í þessu skyni.
Hreinir rafbílar frá stórum bíla-
framleiðendum, t.d. Peugeot, Toyota
og VW, eru eins í útliti og bílar sem
knúnir eru hefðbundnum orkugjöf-
um og komast um 100-150 km á raf-
hleðslunni. Þá þarf aö endurhlaða
geymana sem tekur 4-7 klst. Þetta
er einmitt helsta fótlun rafbíla: Þeir
komast mun skemmra á hverri raf-
hleðslu en venjulegir bensín- og
dísilbílar á tankfylli og langan tíma
tekur að endurhlaða þá á ný. Venju-
legir blý/sýrurafgeymar eru auk
þess mjög þungir og endast tak-
markað. Þá hefur bæði framleiðsla
þeirra og fórgun verulega mengun-
arhættu í for með sér.
Alþingi samþykkti skömmu fyrir
jól að fella niður vörugjald af rafbíl-
um. Þá þarf heldur ekki að greiða
vörugjald af bílum sem ganga fyrir
vetni og svokallaðir hybrid-bílar
eru undanþegnir vörugjaldi tíma-
bundið. Hybrid-bílar eru í raun raf-
bílar sem i er lítil bensín- eða dísil-
vél sem framleiðir rafmagn inn á
rafgeyma bílsins.
Hjálmar Árnason var spurður
hvort ekki væri eðlilegt, i ljósi
framantalinna takmarkana á nota-
gildi rafbíla, að þeir sem vildu
leggja það á sig að eiga og reka raf-
bíla í nafni umhverfisverndar
fengju undanþágu frá dísilsköttum.
Hann segir að eftir að vörugjald af
rafbílum var fellt niður hafi miðl-
ungsstór rafbíll lækkað í verði um
5-600 þúsund krónur. Miðað við
350 km akstur á viku á hreinum
Hjálmar Árnason alþingismaður.
rafbíl hafi verið reiknað út að
notkun hans kosti um 200 þúsund
krónum minna á ári en akstur til-
svarandi dísilbíls með mæli. Hver
rafhleðsla kosti um 43 krónur á
dag.
Hjálmar útilokar hins vegar ekki
að stjómvöld geri betur í því að ýta
undir almenna notkun rafbíla, t.d.
með því að endurgreiða að hluta eða
öllu leyti þá raforku sem notuð er á
bíla eða verðleggja hana sérstaklega
ódýrt. „Það er mjög vaxandi skiln-
ingur á nauðsyn slíkra stjórnsýslu-
aðgerða í því skyni að minnka
mengun frá bílum,“ segir Hjálmar
Árnason alþingismaður.
-SÁ
^Kynningarfundur í kvöld og annað kvöld kl. 20.30^
-Allir velkomnir-
Vissir þú ...
Vissir þú að ótrúlega mikið er vitað á hnettinum í dag um
líf eftir dauðann? Hvar framliðnir eru og hvers eðlis þess-
ir handanheimar eru, jafnt sem mikið er vitað um huldu-
fólk, um berdreymi og um drauga, afturgöngur, líkamn-
inga, geimverur og um miðilssambönd við framliðna?
Og vissir þú að hér á landi er starfrœktur vandaður skóli fyr-
ir almenning með hóflegum skólagjöldum til að frœðast um
flestallt sem vitað er um þessa afar merkUegu málaflokka á
sem víðsýnastan hátt?
Og hvað ertu þá að draga það að kynna þér málið afgaum-
gœfni? Skólinn er starfahdi eitt kvöld í viku eða eitt laugar-
dagssíðdegi í viku fyrir nemendur. í afar þœgilegu og vina-
legu andrúmslofti. Og skólinn her svo sannarlega viðurnefnið
,,skemmtilegasti skóinn íhænum“ með réttu.
Hringdu og fáðu allar nánari upplýsingar um langskemmti-
legasta skólann í bænum sem í boði er í dag. Svarað er í
síma skólans alla daga vikunnar kl 14 til 19.
Vegmúla 2
s. 561 9015 & 588 6050
Ahugavert og
spennandi
skipulagt
starfsnám
OOOaQQO QQQ1
qoq□QQQaoa.
/'ooaaqqq ooq
Vc
Markmið námsins er að útskrifa nemendur með
hagnýta þekkingu á tölvunotkun og veita
nemendum innsýn í notkunarmöguleika á
útbreiddustu ritvinnslu- og töflureikniforritum
sem eru á markaðinum í dag.
Námið er 120 kennslustundir og hentar þeim
sem vilja styrkja stöðu sína
á vinnumarkaðinum.
Boðið er upp á morgun og kvöldtíma tvisvar
sinnum í viku.
Skráning og upplýsingar
í síma 5685010
Rafiðnaðarskólinn
Skeifunni 11B • Sími 568 5010
V
j