Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Side 19
MANUDAGUR 12. JANUAR 1998 19 DV Fréttir Minkafóður framleitt til útflutnings í Sandgerði: Minkur rann á lyktina DV, Suðurnesjum: „Við ætlum okkur að ná eins miklu hráefni og hægt er í fyrirtæk- inu á fyrstu fjórum mánuðum árs- ins. Við þurfum þá aö framleiða 50-60% af ársframleiðslu," sagði Teitur Garðarsson, framkvæmda- stjóri Skinnfisks hf. í Sandgerði. Fyrirtækið framleiðir hráefni til minkafóðurs. Skinnflskur hóf starfsemi 14. okt- óber 1997. Tveir farmar, um 3800 tonn, hafa verið fluttir út frá Sand- gerði til Danmerkur til endanlegrar framleiðslu á fóðrinu en Skinnfisk- ur fær áætist hráefni sem Danirnir eru ánægðir með. Skipakomur hafa aukist verulega í Sandgerði vegna starfsemi fyrirtækisins en hráefnið - fiskafurðimar - kemur frá fram- leiðendum á Reykjanesi og einnig í framtíðinni frá Reykjavík. Þegar Skinnfiskur fær hráefnið er það hakkað og fryst á bretti. Fram- leiðslugetan er 150 tonn á sólar- hring, en það þarf að frysta 85 tonn á sólarhring. „Ég hefði viljað framleiða meira en við höfum ekki fengið nægilegt hráefni. Hingað til hefur vertíðin verið heldur léleg,“ sagði Teitur. Hjá fyrirtækinu starfa átta manns en á bestu mánuðunum allt að 12 manns. Það varð uppi fótur og fit þegar minkur labbaði inn á gólf fyrirtæk- isins, sem framleiðir minkafóður, ekki alls fyrir löngu. Rann auðvitað á fisklyktina og gerði sér framleiðsl- una að góðu. Ekki var annað að sjá en hann væri mjög ár.ægður með hana. Lét ekki menn trufla sig við átið. Að fá mink í heimsókn lýsir gæðum hráefnisins sem fyrirtækið framleiðir. „Minkurinn kom hingað inn og fór að éta. Var mjög gæfur. Við veiddum hann í gildru og höfum gef- ið honum. Hann étur mikið og vel. Ætli við komum honum ekki fyrir í minkabúi," sagði Teitur. -ÆMK % á IVIB SCANllP^ C1 Framleiðum brettakanta, sólskyggni og boddíhluti vörubíla og van-bíla. Sársmíði og viðgerðir. jsl (D ALLT PLAST Kænuvogi 17 • Sími 588 6740 Teitur Garöarsson meö minkinn sem kom í heimsókn. DV-mynd Ægir Már Dalamenn kveðja árið DV, Hólmavik: íbúar í Saurbæjarhreppi í Dala- sýslu hafa í áratugi haldið þeim sið að efna til brennu og skjóta upp flugeldum miösvæðis í sveitinni um það leyti sem árið er að telja út og nýtt að heilsa. Þetta hefur verið fastur liður þegar veður hefur ekki hamlað. Það eru félagar í Stjömunni, ung- mennafélagi sveitarinnar, sem hafa haft veg og vanda af öllum undir- búningi svo og framkvæmdinni. Að brennu lokinni hefur fólk jafnan komið saman í félagsheimilinu Tjamarlundi þar rétt hjá og átt nota- lega samverustund yfir léttri tónlist. Á allra síðustu árum hefur færst í vöxt, þegar færð er góð, að ungt fólk ekki síst bregði sér til Reykhóla eða í Búðardal á þessum tímamót- um að lokinni brennu. Fleira fólk þar og meira um að vera. Að þessu sinni var veður eins og best verður á kos- ið, nær logn og úrkomulaust með öllu. Hitastigið eins og best verður á kosið á þessum árstíma. Því skemmtu bæði ungir sem hinir eldri sér hið begta. Guðfinnur ÍÍSÍHÍ Námsflokkar Hafnarfjaröar Gagnleg og skemmtileg námskeið á vorönn 1998 BÓKLEG NÁMSKEIÐ íslenska, stafsetning og málfræði. Stærðfræði (talnareikningur, alm. brot, prósentureikningur, algebra). Islenska fyrir útlendinga (byrjenda- og framhaldsnámskeið). Erlend tungumál (byrjenda- og framhaldsnámskeið og námskeið með áherslu á tal). Danska. Norska. Sænska. Enska. þýska. Franska. ítalska. Spænska. Aðstoð fyrir skólafólk. 10. bekkur grunnskóla. íslenska. Stærðfræði. Danska. Enska. Framhaldsskólar. íslenska. Stærðfræði. Erlend tungumál. VERKLEG NÁMSKEIÐ OG LISTGREINAR Tréútskurður. Fatasaumur. Bútasaumur og „flís og fix“. Fluguhnýtingar. Teiknun og málun. Myndlist fyrir börn og unglinga. Skrautritun. Páskaskreytingar. Silkimálun. Körfugerð. Leirmótun. ONNUR NÁMSKEIÐ Innanhússskipulagning. Skattskýrslugerð. Fluguköst. Ljósmyndun. Bókfærsla/rekstur og bókhald smáfyrirtækja. Tölvubókhald. Garðyrkja. Hönnun og skipulagning heimilisgarðsins. Trépallar og skjólveggir. Hellu- og steinalagnir/hleðslur. Plöntur og plöntuval. Sportköfun. Lesblinda INNRITUN fer fram á skrifstofu Námsflokka Hafnarfjarðar, Strandgötu 31,2. hæð, dagana 19.-22. janúar kl. 13-19. Upplýsingar um námskeiðin veittar í síma 565 1322. Kennsja hefst skv. stundaskrá mánudaginn 26. janúar. Ath! Ymis stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til náms í Námsflokkum Hafnarfjarðar. skóli ólafs gauks Innritun er hafin og fer fram í skólanum, Síðumúla 17, daglega kl. 14-17, síml 588-3730, fax 588-3731. Eftirtalin námskeið eru í boði á vorönn, en nánari upplýsingar er að fá í skólanum á innritunartíma eða í ítarlegum bæklingi um skólann, sem við sendum þeim sem þess óska, hvert á land sem er: LETTUR UNDIRLEIKUR 1. FORÞREP FULLORÐINNA Byrjendakennsla, undirstaða, léttur undirleikur við alþekkt lög. 2. FORÞREP UNGLINGA Byrjendakennsla, sama og Forþrep fullorðinna. 3. LÍTIÐ FORÞREP Byrjendakennsla fyrir börn að 10 ára aldri. 4. FORÞREP II Beint framhald Forþreps eða Forþreps 3 - meiri undirleikur, einkum „plokk“ o.m.fl. 5. FORÞREP III Beint framhald Forþreps eða Forþreps 2, dægurlög undanfarinna 20-30 ára, byrjun á þvergripum o.m.fl. A 6. BÍTLATÍMINN A Eitt af Forþrepunum. Aöeins leikin lög frá bítlatímabilinu, t.d. lög Bítlanna sjálfra, Rolling Stones, vinsæl íslensk lög o.fl. 7. TÓMSTUNDAGÍTAR Byrjendakennsla (sama og Forþrep fullorðinna, en styttra) fyrir 16 ára og eldri í samvinnu við Tómstundaskólann. HEFÐBUNDINN GÍTARLEIKUR 8. FYRSTA ÞREP Undirstöðuatriði nótnalesturs fyrir byrjendur lærð með þvl að leika léttar laglínur á gítarinn o.m.fl. Forstig tónfræði. Próf. 9. ANNAÐ ÞREP Framhald fyrsta þreps, leikin þekkt smálög eftir nótum, framhald tónfræöi- og tónheyrnarkennslu. Próf. 10. ÞRIÐJA ÞREP Beint framhald Annars þreps. Verkefnln þyngjast smátt og smátt. Framhald tónfræði- og tónheyrnarkennslu. Próf. 11. FJÓRÐA PREP Beint framhald þriöja þreps. Bæði smálög og heföbundið gítarkennsluefni eftir þekkt tónskáld. Tónfræöi, tónheyrn. Tekur tvær annir. Próf. 12. FIMMTA ÞREP Beint framhald Fjórða þreps. Leikiö námsefni veröur fjölbreyttara. Tónfræöi, tónheyrn. Tekur tvær annir. Próf. HÆGT AÐ FA LEIGÐA HEIMAGÍTARA KR. 1500 Á ÖNN Sendum vandaöan upplýsingabækling ONNUR NÁMSKEIÐ 13. JAZZ-POPP I Þvergrip, hljómauppbygging, tónstigar, hljómsveitarleikur o.m.fl. Nótnakunnátta áskilin. 14. JAZZ-POPP II / III Spuni, tónstigar, hljómfræöi, nótnalestur, tónsmíð, útsetning o.m.fl. 15. TÓNSMÍÐAR I / II Byrjunarkennsla á hagnýtum atriðum varðandi tónsmíðar. Einhver undirstaða er nauðsynleg. 16. TÓNFRÆÐI-TÓNHEYRN l/ll Innifalin í námi. 17. TÓNFRÆÐI-TÓNHEYRN FYRIR ÁHUGAFÓLK Fyrir þá, sem langar að kynna sér hið einfalda en fullkomna kerfi nótnanna til þess m.a. að geta sungiö eða leikið eftir nótum. 18. KASSETTUNÁMSKEIÐ Námskeið fyrir byrjendur á tveim kassettum og bók, tilvalið fyrir þá, sem vegna búsetu eða af öðrum ástæðum geta ekki sótt tíma í skólanum en langar að kynnast gítarnum. Sent í póstkröfu. © 588-3730 INNRITUN DAGLEGA KL. 14-17

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.