Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Page 20
20 MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1998 Björn Halldórsson setur á stofn minningarsíðu um látna ástvini: Verður á vefnum um ókomna tíð Konur Femínistar allra landa sam- einist! Það gæti verið kjörorð síðunnar á slóðinni http:// www.womenslink.com sem inniheldur upplýsingar um konur og tengingar í aðrar slíkar síður. Þjórfé Margir eru í vandræðum með hversu mikið þjórfé þeir eigi að gefa á ferðum sínum erlendis við mismunandi að- stæður. En hjálp er á næsta leiti. Skoðið slóðina http:// www.cis.columbia.edu/ homepages/gonzalu/tipping. html. Saga dagblaða Hvemig urðu dagblöð til í Bandaríkjunum? Svarið við því fæst á http://weber.u. washington.edu/~vgillis. } ; Gegn tyggigómmíi Það eru margir sem geta ekki þolað þá sem blása tyggjóinu út í allar áttir og klessa því síðan framan í sig. Þeir sem þola þetta ekki geta fundið sína þjáningarbræður á http:// www.nogum.com. Björn Halldórsson, sem nú vinn- ur að gerð heimasíðu fyrir sænska símafyrirtækið Ericsson, hefur í frí- tíma sínum unnið að öðram athygl- isverðum vef. Þar gefst fólki kostur á að setja inn minningarorð um látna ástvini sina, upplýsingar um afkomendur, myndir o.fl. Fjölskyldur tengdar Bjöm segir að á síðunum sé hver látinn einstaklingur með eina minn- ingarsíðu. Á henni er hægt að birta æviágrip, minningargreinar og myndir úr lífi hins látna. Einnig sé hægt að tengja síðuna við aðra minningarsíðu ef þeir tveir tengjast á einhvera hátt. „Þannig er jafnvel hægt að tengja saman heila fjöl- skyldu og mynda ættartré," segir Björa. Hann segir að fólki sé hins vegar alveg í sjálfsvald sett hversu mikið það gerir úr síðunni. Einn besti kosturinn við síðuna (og reyndar vefinn almennt) er sá að hægt er að breyta og bæta við upplýsingum hvenær sem er. „T.d. er hægt að bæta við nýjum afkom- endum hins látna um leið og þeir fæðast. Þetta verður því mjög lif- andi minning," segir Bjöm. Hann bendir einnig á að aðrir fjölskyldu- meðlimir geti fengið lykilorð síð- unnar og bætt sjálfir við upplýsing- um þegar þeir vilja. Það er ekki aðeins hægt að skrá upplýsingar heldur er einnig hægt að leita í þeim. Boðið er upp á að leita að mönnum sem fæddust eða létust á einhverju ákveðnu tímabili og að sjálfsögðu einnig að ákveðnu nafni. Bjöm segist leggja áherslu á að gera vefinn eins einfaldan í notkun og hægt er þannig að þeir sem ekki eru vanir þvi að nota Netið geti komist í þær upplýsingar sem þeir leita að fljótt og vel. « File Edit Uieiu Go £ d"] 8:38 2) 88 □ Netscape: Minninq 0 '■é- 3- fíjt .@t csF V m i: Biok Forward Reload Home Seoroh Guide Images Prínt Seourity Stop -. Netsite: (http ://wvrw.minniog com/cqi-bin/minntftg/Miftftinq.exe ■... 1 Hjálp Upplýsingar Frásagnir Miölun Stofna ddiBbsrádtitif I>|ikjÖ9EI(ákt Bo|MÉa Bjora«dtfttir íf (ÍIUUIK d.uio K>n) (mujjnn. d.xm.xvs.) (cuooiku <WMim.) Lesa eða skrifa f ninmngarsíðu númer: | Luae&atkHfa | Leita Y firSl yfir miuiingarsiOnr: (S)Fsddir O LStnir: Dagj mánnðj ár| | LeMa | (S)Fæddir Q Lálnir: ÁmUáraimaJ og | | Lefta | Co BfigktO U97wkoím íb£xx> ■ aetoxteiO olt» ixtcoo lá4 í http .7/www.minniftq.com/cqHbin/rninninq/SunaSidu.exoy2 Sorginni deilt Önnur ný þjónusta sem í boði er kallast Miðlun og er hún ókeypis. Hún er ætluð fólki sem hefur misst ástvin og vill komast í samband við aðra í svipaðri stöðu. „Þannig getur fólk unnið sig saman i gegnum sorg- ina,“ segir Björn. Einnig getur fólk lagt inn reynslusögur af missi náins ættingja eða vinar og þannig deilt sorg sinni með öðrum. Skráning á þennan vef verður ókeypis fram til 1. mars. Eftir það kostar hún 5.000 krónur en það gjald greiðist aðeins einu sinni. Bæði er hægt að skrá sig í gegnum Netið og eins í pósti. Þeir sem ekki eru nettengdir geta gegn vægu gjaldi látið umboðsmennina skanna inn myndir, slá inn texta og setja hann á vefinn. Myndskeið Bjöm segist sjá fyrir sér að þessi síða verði á Netinu um ókomna framtíð. „Þannig kemur síðan til með að varðveita sögu íslendinga í texta og mynd. Minn draumur er að jafnvel verði hægt að hafa stutt myndskeið úr lífi hins látna. Það er nú þegar mögulegt,“ segir Bjöm. Það skal tekið fram að fólk á ís- landi þarf ekki að senda gögn til Svíþjóðar til að geta fengið efni um látinn ástvin birt á vefnum. Það er nóg að hafa samband við umboðs- mann sem er starfandi á íslandi. Slóðin á minningarsíðuna er http: //www.minning.com. -HI WWW.I1U6LUU.IUIU. «I||| ■ ■ ■ ■ f ■ ■■■ ■ Eiginhandarántanir | TolVUtæklUll hialuar TOtlUOUm Þen- sem hafa ekki tok a að ; J I Þeir sem hafa ekki tök á að biðja frægt fólk um eiginhand- aráritanir geta fengið nokkrar um Netið. Slóðin er http:// www.autograhpworld.com. Fimmtugsaldurinn Allt er fertugum fært, segir máltækið. Þeir sem orðnir eru eldri en það geta fundið ýmis- legt við sitt hæfi á http:// dspace.dial.pipex.com/town/ parade/ae380. : Sveitasetur I A http://www.hunQord.is er hægt að fá allar upplýsingar um sögu sveitasetursins á Blönduósi og meðal annars panta þar gistingu. Hin öra þróun tölvutækninnar hefur ekki aðeins hjálpað mönnum í daglegum samskiptum. Hún er líka að auðvelda fotluðum að lifa eðlilegu lífi. Nú er svo komið að þeir sem sjá um þjálfun fatlaðra segja að tæknin snúist ekki um það sem fatlaðir geta ekki gert heldur það sem þeir geta gert. Vísindamenn hafa nú búið til sér- staka tölvu sem þekkir rödd eig- anda sins. Þannig geta þeir sem ekki geta notað hendurnar flakkað um vefinn með því að gefa tölvunni munnlegar skipanir. Áður hefur reyndar verið Qallað um slik radd- kerfi hér, einkum þau sem nota á í nettengda bíla. Þessi tölva hefur verið prófuð. Jamie Cahill hefur verið í hjólastól í 10 ár vegna sjúkdóms. Þess vegna hefur hún enga vinnu getað fundið. Nú getur hún með aðstoð raddtölv- unnar séð um hefðbundin skrif- stofustörf eins og að mynda og prenta skjöl, sent föx og tölvupóst og meira að segja slökkt ljósin í skrifstofunni þegar hún er búin. En það er ekki aðeins hægt að nota tölvuna með röddinni. Maður að nafni Glenn Moscoso notar fing- uma til að búa til rödd fyrir sig. Hugbúnaðurinn þýðir ritað mál yfir í talmál og þannig getur hann talað við fólk í gegnum tölvuna. Moscoso hefur hugsað sér frama í almanna- tengslum með aðstoð þessa nýja hughúnaðar. Ekki fylgir þessum sögum hvenær almenningi gefst kostur á að prófa þessa tækni en ljóst er að margir fatlaðir bíða spenntir eftir þessari miklu hjálp við amstur dag- legs lífs. -HI/CNN Final Fantasy VII rokselst Elizabeth Taylor Hin heimsþekkta og síunga en jafnframt marggifta leik- kona Elizabeth Taylor er með heimasiðu á http://www.ccn. cs.dal.ca/~ag249/liz.html. Tölvuleikurinn Final Fantasy VII hafði fyrir áramót selst í ríflega fimm milljónum eintaka. Byrjað var að selja leik- inn í janúar í fyrra en nýjasta útgáfan af leikn- um var fyrst seld í október. Þessi leikur hefur orðið sér- staklega vinsæll í Bandaríkjunum og þar fór salan yfir milljón eintök í byrjun desem- ber. í Evrópu er salan komin í hálfa milljón eintaka. Hvergi er salan þó meiri en í Japan en þar hafa 3,5 milljónir manna keypt þennan leik. Þessi leikur þykir sameina vel hreyfimyndir, hljóð og grafík og söguþráðurinn þykir einnig einkar vel heppnaður. Reynt verður að fylgja þessum vinsældum frekar eftir. Leikurinn Bushido Blade, sem er bardaga- leikur í japönsk- um stíl, er nú þegar kominn í verslanir í Bandaríkjunum og væntanlegir eru leikimir Final Fantasy Tactics og Saga Frontier. Síðan verður lögð áhersla á að þróa þessa leiki fyrir aðra markaði en Bandaríkin. Þess má geta að Final Fantasy VII er hægt að spila á ensku, þýsku, frönsku og spænsku. -HI wrmsam Megrun á Netínu Fólk sem hefur samviskubit eftir allt átið um hátíðarnar getur fund- iö megrunarleiöir í gegnum Netiö. Tvær nýjar vefsíöur hafa nýlega ver- iö settar upp til aö hjálpa fólki til að losna viö aukakílóin. Á <B>http: //www.dietcity.com<P> er boðið upp á þjónustu og ráðgjöf í megrun og nær- ms ingu, m.a. hvaö maður á aö boröa og hvaöa síöur bjóða upp á góð ráö. Önnur síða, http://www.pract- ical program .com, er nokkurs konar heilsurækt- arstöö á Netinu þar sem boðiö er upp á sérstaka þjálf- unardagskrá til aö léttast. Talsmaður IBM lýsti því yfir ný- lega aö Comdex-tölvusýning- in, sem vitnaö hefur veriö til hér á síöunum, væri algjör peninga- sóun. Hann telur aö þessi sýning laði ekki aö kaupendur þeirrar vöru sem sýnd er þar. Hann segir enn fremur að fyrirtækiö spari milljón- ir dollara meö þvf að taka ekki þátt í sýningunni. Þess má geta aö yfir 2.500 fýrirtæki sýndu varning sinn á sýningunni og yfir 220 þús. manns sóttu hana. Samkynhneigðir með vafra Samtök samkynhneigöra á Netinu, Digital Queers, voru stofnuð á laug- ardaginn. Þartilkynntu þau útkomu nýs vafra, Cruiser 6.0, sem er sér- staklega jjeröur fyrir samkyn- hneigöa. I fréttatilkynningu frá þess- um samtökum segir aö þessi vafri muni höföa til a.m.k. 10% netmark- aöarins. Þannig geti hann haft vei u- lega áhrif á markaöshlutdeild Nets- cape og Microsoft á þessum mark- aöi. Meö þessu vafra veröi ekki flakkað um vefinn heldur hreinlega feröast. í fréttatilkynningunni seg- ir aö hægt verði aö ná í þennan nýja vafra á heimasíðu samtak- anna, http: //www.dq.org. Hversu gagnlegur þessi vafri reynist veröur aö koma í Ijós. Svo viö höldum áfram í vöfrunum þá er sam- keppni Netscape viö Misrosoft farin að sjást á hlutabréfamarkaön- um. Hlutabréf í Nets- cape eru nú lægri en þau hafa nokkurn tfm- ann veriö áður. Sér- fræðingar spá því aö fýrirtækiö tapi pening- um á fýrsta ársfjórðungi þessa árs. Netscape hefur lýst því yfir að hagrætt veröi í rekstri, meöal annars meö uppsögnum. Þetta er í fyrsta sinn í þriggja ára sögu fýrirtækisins sem gripiö er til slfkra aðgerða. Sérfræðingar segja aö Netscape veröi aö byrja aö gefa vafra sinn til aö eiga möguleika í samkeppninni viö Microsoft, sem myndi þýða 13% tekjutap fyrir Netscape. I Yahoo! héfur ákveðið aö kaupa 5 milljón dollara hlut í fýrirtækinu Geocities, sem býöur netnotend- um pláss fyrir heimasíöu ókeypis. Samníngurinn kveöur á um aö Ya- hoo! og Geocities bjóöi sameigin- lega notendum Yahoo! pláss fýrir vefsíðu. Sérfræöingartelja þetta vera eitt skref hjá Yahoo! til aö keppa viö ýmsar netþjónustur á borö við America Online. Yahoo! keypti í október hlut í fýrirtækinu Fourll, sem býður upp á frían tölvu- póst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.