Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Qupperneq 21
MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1998 29 LjrLkiamc Nintendo lækkar @megin:Nintendo í Bandaríkjunum hefur tilkynnt um verulega lækkun á sjö af stærstu titlum fyrirtækisins frá 1997 fyrir N64 leikjatölvuna. Þeir eru Super Mario 64, Mario Kart 64, Shadow of the Empire, Dinosaur Hunter, Star Fox, Cruis’n USA og Wave Race 64. Nintendo segir þetta gert til aö auka söluna á fyrstu mán- uðum ársins sem yfirleitt er dauð- asti tíminn í sölu á tölvuleikjum. Næstu mánuði er von á nokkrum stórum titlum frá Nintendo, m.a. NBA Courtside, 1080 Snowboarding og Cruis'n World (nöfn leikjanna segja eiginlega nokkuö mikiö til um hvað þeir ganga út á). Spurningin er hversu ódýrt Nintendo er tilbúiö að selja þá leiki. X-files leikur Fox Interactive mun í lok þessa mánaöar senda frá sér leik byggö- an á hinum gríö- arlega vinsælu sjónvarpsþáttum; um X-Rles. I þess- um leik getur maöur kannaö á eigin spýtur öll þau dularfullu mál sem þau Mulder og Scully eru aö fást viö í þáttunum og jafnvel kom- ist nær sannlejkanum en þau gera nokkurn tíma. í leiknum er öflugt leitarforrit þar sem menn geta kann- aö öll mál úr þáttunum sem til eru. Hægt veröur aö greina fingraför, raddir og myndir og maöur verður sjálfur aö leggja mat á sönnunar- gögnin. Einnig er hægt að njósna á ýmsum stööum. Sjóræninajar Fyrirtækin THQ og CyberFlix haía gert samstarfssamning um útgáfu á ævintýraleik um sjóræningja. Leik- urinn mun heita Red Jack: Revenge of the Brethren. Þar fer þátttakand- inn í ævintýralega ferö um hafiö og veröur hægt aö sjá allt umhverfiö frá 360 gráða sjónarhorni. Þarna berjast sjóræningjaskip hvort viö annaö og feröast síöan til hinna ýmsu hafna um víöa veröld. Leikur- inn veröur gefinn út bæöi fyrir PC og Macintosh og er væntanlegur í versl- anir um mitt þetta ár. Road Rash Electronic Arts mun í mars senda frá sér þrívíddarútgáfu af vélhjóla- kappakstursleik sínum, Road Rash. Þegar þrívíddin er komin í þetta á upplifunin sem fylgir leiknum aö vera allt önnur, sterkari og betri en í þeim fyrri. Bæöi er hægt aö fara í kapp __________________ viö tíma og önn- ur hjól. Svo er einnig hægt að kljást viö illræmd vélhjólagengi og nota bellibrögö til aö sigra þau. Upprunalegi leik- urinn er til fyrir PC, Playstation og Saturn en þrí- víddarleikurinn verður fyrst um sinn aöeins seld- ___________________ ur fyrir Playsta- tion. Gran Turismo Kappakstursleikurinn Gran Turismo kom í verslanir í Japan rétt fyrir jól- in. Endurbætur veröa hins vegar geröar á þessum leik áöur en hann veröur gefinn út í Evrópul Meöal ann- ars veröur hann 15-30% hraövirk- ari, tónlistin veröur endurbætt og gerð betri og hægt er aö spila leik- inn á fimm tungumálum. Leikurinn veröur gefinn út í júní. Sérfræöing- ar sem litiö hafa á leikinn hafa þeg- ar hampaö honum sem framtíö Playstation-tölvunnar. Apple skilar hagnaði í fyrsta sinn síðan sumarið 1996 Bíldshöfða 20-112 Reykjavík - Sími 510 8020 Viðbót við Age of Empires Microsoft hefur sent frá sér viðbót við hinn fræga leik Age of Empires, sem var andsvar fyrirtækisins við leiknum Civilization. Notendur leiksins hafa kvartað yfir því að valkostimir væru ekki nógu aðgengilegir en nú hefúr verið bætt úr því og fleira hefur bæst við. Meðal viðbóta má nefna að að hægt er aö breyta takmörkunum á fjölda herdeila, en margir hafa viljað hækka takmarkið sem nú eru 50 herdeildir. Að auki má nefna að hægt er að bæta nýjum eiginleikum við sum vopnin og þar aö auki bæta við fjölda þeirra sem búast til vamar þegar ráöist er á eigin herflokk. Einnig hafa nokkur vandamál verið lagfærð. T.d. rekast ekki herdeildir manns á hvem annan lengur við herílutninga. Hægt er að ná í þessa viðbót á Netinu. Slóðin er http://www. gamecenter.com/Downloads/PC/Result/TitleDetail. -HI Hins vegar var það annað sem gladdi Macintosh-aðdáendur á þess- ari ráðstefnu. Þar var kynnt upp- færð útgáfa fyrir Macintosh af Microsft Office, nokkuð sem menn hafa beðið lengi eftir. Macintosh- notendur hafa því ástæðu til að kæt- ast þessa dagana. -HI/AP Bjartari tímar virðast fram undan. Sala hefur aukist mun meira en búist var við, fyrir- tækið skilaði hagnaði síðustu þrjá mánuði nýliðins árs og ýmis nýr hugbúnaður fyrir Macintosh er á leiðinni. Steve Jobs, forstjóri Apple, tilkynnti þetta á vörusýningu sem tíma- ritið MacWorld hélt í síðustu viku. Sú sýning er sú stærsta hingað til sem snýst eingöngu um Macintosh-vörur. Jobs segir að söluherferðin, sem staðið hefur yfir undan- farna mánuði, hafi heppnast mjög vel. Búist sé við að hagn- aður tímabilið október til des- ember verði um 45 milljónir dollara en staðfestar tölur verða birtar á miðvikudag. Sérfræðingar höfðu búist við 10 milljóna dollara tapi. Þetta er í fyrsta sinn síðan sumarið 1996 að fyrirtækið skilar hagn- aði en Apple hefur tapað tæp- lega tveimur milljörðum doll- ara síðan þá. Hlutabréf í Apple hækkuðu um 20% þegar þessar fregnir bárust. Sérfræðingar eru þó ekki alveg á því að fullyrða að þessi hagnaður sé kominn til að vera. Þeir benda á að upp- sagnir starfsfólks eigi stóran þátt i þessum hagnaði, sem og aðrar aðgerðir til að minnka útgjöld. Leitin að nýjum fram- kvæmdastjóra er einnig eitt af þvi sem er að plaga Apple þessa dagana. Stjómarmenn í Apple vilja að Steve Jobs taki við starfinu til frambúðar en hann vili það ekki. Málið er greinilega við- kvæmt og til marks um það gekk Jobs út úr viðtali við kapcdsjón- varpsstöðina CNBC þegar hann var spurður hvort hann útilokaði að taka við starfinu. Oagana 12. til 17. janúar verda allir rammar seldir með Skj alaskápar Traustir - vandaðir og á góðu verði! KR. 22.995 KR17.417 KR. 20.256 JANUARTILBOÐ 10% AFSLÁTTUR FRÁ ÚTSÖLUVERÐI ÓLAFIJR GÍSLASON & CO HF SIJNDABORG 3 SÍMI 568 4800 KGSKKIFSTOFl.BÚNAttUR ÁRMÍILA 20 SÍMI 533 5900 Eitt mesta úrval landsins 9 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.