Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Qupperneq 34
42 MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1998 Afmæli_______________ Pétur Jónsson Pétur Jónsson, borgarfulltrúi og framkvæmdastjóri, Laufásvegi 79, Reykjavík, er sextugur i dag. Starfsferill Pétur fæddist á Kálfafellsstað í Suðursveit en flutti til Reykjavíkur 1944. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1959, viðskiptafræðiprófi frá HÍ 1967, stundaði námskeið í hagræð- ingartækni og vinnurannsóknum hjá Iðnaðarmálastofnun íslands 1960 og 1961. Þá sótti hann stjómun- arnámskeið við Nordiska Halso- várdshögskolan í Gautaborg 1978 og 1979. Pétur stundaði vinnurannsóknir og hagræðingarstörf fyrir Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna 1961 og 1962, þar af um eins árs skeið hjá hrað- frystihúsunum í Vestmannaeyjum en síðan hjá Atlantor hf. i Keflavík 1963, var framkvæmdastjóri þar frá 1964, framkvæmdastjóri Alþýðu- blaðsins 1967, starfrækti fasteigna- sölu i Reykjavík ásamt Baldvini Jónssyni hrl. 1968-71, var starfs- mannastjóri Rikisspítalanna frá 1971, innkaupastjóri þar 1977-79 og framkvæmdastjóri stjómunarsviðs frá 1980. Hann er borgarfulltrúi fyr- ir R-listann í Reykjavík frá 1994 og borgarráðsmaður frá sama tíma. Pétur sat í stjóm Stúdentafélags Reykjavíkur 1973-76, í stjóm félags- samtakanna Verndar 1976-83, var ritari fulltrúaráðs alþýðuflokksfé- laganna í Reykjavík 1986-90 og for- maður þess frá 1990, situr í skóla- nefnd Nordiska Hálsovárdshögskol- an í Gautaborg frá 1987, í stjóm Félags forstöðumanna sjúkrahúsa frá 1988, formaður stjórnar Heilsuhælis Náttúru- lækningafélags ís- lands í Hveragerði 1991, formaður at- vinnumálanefndar Reykjavíkur frá 1994 og í stjóm Landsvirkj- unar frá 1995. Pétur hefúr skrifað greinar um þjóðmál og sveitarstjómarmál í blöð og tímarit. Fjölskylda Pétur kvæntist 12.5. 1962 Kolbrúnu Rögn Valtýsdóttur, f. 24.8. 1939, BA í ensku og húsmóður. Hún er dóttir Valtýs Helgasonar, f. 16.6. 1902, d. 18.11. 1949, héraðslæknis á Hólmavík og á Kleppjámsreykjum, og k.h., Steinunnar Jóhannesdóttur, f. 30.11. 1899, d. 8.8. 1985, hjúkrunar- konu. Pétur og Kolbrún skildu 1968. Sonur Péturs og Kolbrúnar er Jón, f. 22.10. 1962, rafeindavirki og tæknifræðingur í Seattle í Banda- ríkjunum. Eiginkona Péturs er Valdís Jóna Erlendsdóttir, f. 26.4. 1953, þroska- þjálfi. Hún er dóttir Erlends Jóns- sonar, f. 28.9. 1912, bifreiðarstjóra í Kópavogi, og k.h., Guðrúnar Mar- grétar Kristinsdóttur, f. 18.8. 1923, húsmóður. Böm Péturs og Valdís- ar Jónu eru Brynjólf- ur, f. 22.10. 1974; Þóra, f. 6.10. 1979. Systkini Péturs era Helga Jarþrúður Jóns- dóttir, f. 22.2.1939, hús- móðir, gift Oddi Ósk- arssyni Thorarensen, presti á Hofsósi; Einar Guðni Jónsson, f. 13.4. 1941, prestur á Kálfa- fellsstað í Suðursveit. Foreldrar Pétiu-s: Jón Pétursson, f. 1.3. 1896, d. 23.1. 1973, prófastur á Kálfafellsstað i Suð- ursveit, og Þóra Ein- arsdóttir, f. 10.2. 1913, húsfreyja. Ætt Jón var sonur Péturs, pr. á Kálfa- fellsstað, bróður Brynjólfs, pr. á Ólafsvöllum, fóður Péturs ljósmynd- ara og Boga, sýslumanns á Blöndu- ósi. Systir Péturs var Jóhanna Soff- ía, amma Páls, fyrrv. yfirdýralækn- is, og Hjalta, fyrrv. framkvæmda- stjóra hjá SÍS, Pálssona. Pétur var sonur Jóns, háyflrdómara í Reykja- vík, bróður Péturs biskups og Brynjólfs Fjölnismanns. Jón var sonur Péturs, prófasts á Víðivöllum, Péturssonar, og Þóru Brynjólfsdótt- ur, gullsmiðs, Halldórssonar, bisk- ups á Hólum, Brynjólfssonar. Móðir Péturs á KálfafeUsstað var Jóhanna SofEla Bogadóttir, ættfóður Staðar- feUsættarinnar, Benediktssonar og Jarþrúðar Jónsdóttur af Eyrarætt. Móðir Jóns á KálfafeUsstað var Helga, systir Kristjáns, fóður Arn- gríms skólastjóra, föður Unnar, danskennara og framkvæmdastjóra. Helga var dóttir Skúla, b. á Sigríðar- stöðum í Fnjóskadal, Kristjánssonar og Elísabetar Þorsteindóttur, systur Rósu, ömmu Margrétar Thorlacius lækningamiðUs. Móðir Elísabetar var Guðrún Jóhannesdóttir., b. í Leyningi, HaUdórssonar, b. í Leyn- ingi, Jónssonar, b. í Leyningi, Pét- urssonar. Þóra var dóttir Einars, yfirvega- verkstjóra á Austurlandi, bróður Þórfríðar, móður Guðmundar Sveinssonar, skólameistara FB. Ein- ar var sonur Jóns, b. í Saurhaga á VöUum, bróður Hjörleifs á Undir- feUi, foður Einars Kvarans rithöf- undar. Jón var sonur Einars, prests í VaUanesi, Hjörleifssonar, pr. á Hjaltastöðum, Þorsteinssonar, bróð- ur Guttorms, prófasts á Hofi, langafa Þórarins á Tjörn, föður Kristjáns Eldjárns forseta. Móðir Jóns í Saurhaga var Þóra Jónsdótt- ir, vefara á Kórreksstöðum og ætt- föður Vefaraættarinnar, Þorsteins- sonar. Móðir Einars var Guðlaug Einarsdóttir, b. í Firði í Mjóafirði, HaUdórssonar og Önnu Jónsdóttur, b. á Urriðavatni, Ámasonar, í Lönd- um, Torfasonar. Móðir Þóra var Guðbjörg Lísbet Kristinsdóttir. Pétur tekur á móti vinum og kunningjum í OddfeUowsalnum við Vonarstræti milli kl. 17.00 og 19.00 í dag. Pétur Jónsson. STÓRI TITANIC TITANIC'LEI KNUM TAKTU hÁTT í Til pess aö komast í pottinn verður pu að lesa fróðleiksmolana um TITANIC sem birtast i 0V trá laugardegi til timmtudags og svara spurningum hjá Gulla Helga á Bylgjunni alla næstu viku eða safna saman óllum tróðleiksmoiunum og senda til DV, Þverholli 11,105 R. Dregið verður úr nöfnum pátttakenda og i aðalverðlaun er glæsileg lúxussigling um Karíbahafíð. Glæsileg aukaverðlaun: Málsverður á Hótel Borg, biómiðar, derhútur, bolir o.fl. 9. TITANIC rakst á ísjaka kl. 23.40 að kvöldi sunnudagsins 14. apríl 1912. 10. Það tók skipið um 3 tíma að sökkva. 11. Það tók 3 mánuöi að byggja leikmyndina (skipið) í TITANIC. 12. Full lestaö vóg TITANIC um 46 þúsund tonn. 13. Um borð í TITANIC voru samtals 20 björgunarbátar. 14. í þessa 20 björgunarbáta hefðu alls komist 1.178 manns. 15. í TITANIC voru 4 rafdrifnar lyftur, með lyftustjórum. 16. Það tók leikstjórann James Cameron alls 3 ár að Ijúka við gerð myndarinnar. Björk Valsdóttir Björk Valsdóttir, starfsmaður og eigandi Fasteignamiðstöðvar- innar Skipholti 50B, til heimlis að Engihjalla 3, 5-D, Kópavogi, er fimmtug í dag. Starfsferill Björk fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún lauk gagn- fræðaprófi frá Gagn- fræðaskóla Vesturbæj- ar 1965 og hefúr sótt ýmis námskeið sem tengjast starfl hennar. Björk starfaði hjá SS, hjá Tryggingamið- stöðinni og við Veit- ingahúsið Klúbbinn. Hún var bóndi að Sogni í Kjós í tíu ár og starfsmaður Búnaðarbanka íslands i fimm ár. Hún starfar nú við og er eigandi Fasteignamiðstöðvarinnar Skipholti 50B, ásamt eiginmanni sínum. Fjölskylda Björk giftist 13.1. 1968 Magnúsi Leópoldssyni, f. 23.8. 1946, löggiltum fasteignasala. Hann er sonur Leó- polds Jóhannessonar, f. 17.7. 1917, fyrrv. veitingamanni í Hreðavatns- skála, og Maríu Magnúsdóttur, f. 25.2. 1918, d. 1997, frá Hrútsholti á Snæfellsnesi. Leópold og María slitu samvistum en Leópold kvæntist síð- ar Olgu Sigurðardóttur frá Hrísdal. Dætur Bjarkar og Magnúsar eru Valdís Magnúsdóttir, f. 20.10. 1966, leikskólakennari í Svíþjóð, gift Lárusi Péturssyni, nema í landbún- aðarvélaverkfræði viö Uppsalahá- skóla, og eru böm þeirra Lára Lár- usdóttir, f. 5.8. 1992, og Björk Lárus- dóttir, f. 30.8. 1995; María Magnús- dóttir, f. 8.8. 1969, laganemi við HÍ. Hálfsystir Bjarkar, sammæðra, er Stefanía Rósa Sigurjónsdóttir, f. 28.1. 1940, skrifstofu- maður á Akureyri, gift Heimi Ingimarssyni, bæjarfulltrúa á Akur- eyri. Alsystur Bjarkar eru Sigrún Valsdóttir, f. 5.3. 1945, hjúkrunar- fræðingur, gift Friðriki Friðrikssyni og eiga þau tvær dætur; Erna Valsdóttir, f. 21.5. 1954, löggiltur fasteignasali, gift Sveini Skúlasyni hdl. og eiga þau þrjú börn. Foreldrar Bjarkar: Val- ur Guðmundsson, f. 27.10. 1918, verkamaður í Reykjavík, og Lára Antonsdóttir, f. 3.7. 1921, d. 1987, húsmóðir. Ætt Valur er sonur Guðmundar, skó- smíðameistara í Reykjavík, Gísla- sonar. Móðir Guðmundar var Hall- fríður Guðmundsdóttir, hreppstjóra á Lækjarbug í Hraunhreppi, Sig- urðssonar. Móðir Vals var Sigrún, systir Sig- valda, föður Guðmundar jarðfræð- ings. Systir Sigrúnar var Ragnheið- ur, móðir Guðrúnar Jóhönnu Ein- arsdóttur hjúkrunarfræðings. Sig- rún var dóttir Jónasar, b. í Björk í Grímsnesi, Sigvaldasonar og Þór- laugar Finnsdóttur. Lára var hálfsystir Jóns ívarsson- ar, fóður Sonju dagskrárgerðar- manns og Sigurgeirs ríkistollstjóra. Lára var dóttir Antons Magnúsar Magnússonar og Stefaníu Eiríks- dóttur, systur Jóhanns ættfræðings. Björk verður að heiman á afmælisdaginn. Björk Valsdóttir. Til hamingju með afmælið 12. janúar 85 ára Guðmunda Lára Guðmundsdóttir, Skarðshlíð 2D, Akureyri. 80 ára Kristbjörg Marteinsdóttir, Suðurgötu 70, Siglufirði. 75 ára Baldur Sigurðsson, Álfatúni 17, Kópavogi. 70 ára Haraldur Steingrímsson, Laugamesvegi 84, Reykjavík. Stella Sigurleifsdóttir, Þinghólsbraut 5, Kópavogi. Valgerður Sigurðardóttir, Hjallabraut 33, Hafnarfirði. 60 ára Gunnar S. Malmberg, Hrísmóum 2B, Garðabæ. Haraldur Baldvinsson, Tungubakka 18, Reykjavík. Kristtn Sigurvinsdóttir, Völlum, Eyjafjarðarsveit. Öm Snævar Jónsson, Hraunbrún 15, Hafnarfirði. 50 ára Bára Gunnbjörnsdóttir, Ystaseli 17, Reykjavík. Davíð Þ. Kristjánsson, Holtagötu 10, Akureyri. Fjóla Stefánsdóttir, Lerkilundi 11, Akureyri. Gunnar M. Magnússon, Lágmóa 13, Njarðvík. Ragna María Ragnarsdóttir, Foldasmára 2, Kópavogi. 40 ára Baldur Viðar Hannesson, Bæjargili 45, Garðabæ. Einar Ámi Sigurjónsson, Hörgatúni 9, Garðabæ. Einar Karlsson, Fossvegi 16, Siglufirði. Erling Sigurjón Andersen, Álfaskeiði 76, Hafnarfirði. Guðrún Þóra Björnsdóttir, Rimasíðu 29C, Akureyri. Helga Sædís Rolfsdóttir, Gullsmára 3, Kópavogi. Jóhannes Ragnar Jensson, Austurbergi 8, Reykjavík. Jón Sigmundur Hjartarsson, Fannafold 83A, Reykjavík. Magnús Guðjón Hreiðarsson, Baughóli 11, Húsavík. Maria Hreinsdóttir, Efstalandi við Smiðjuveg, Kópavogi. Milan Kospenda, Engjavegi 12, ísafirði. Sigrún Davíðsdóttir, Vesturbergi 86, Reykjavík. Símatími ættfræði- deildar er kl. 10-12 frá mánudegi til fimmtudsgs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.