Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.1998, Page 40
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MÁNUDAGUR 12. JANÚAR 1998
Fjórtán ára:
Ölvaður í
árekstri
-7« Lögreglan í Reykjavík tók fjórtán
ára pilt í sína vörslu eftir að hann
hafði ekið bíl foreldra sinna utan í
annan bíl á Njálsgötu um klukkan 9
á laugardagskvöld. Pilturinn gerði
misheppnaða tilraun til þess að
stinga af. Hann var vitaskuld próf-
laus og hafði auk þess drukkið
áfengi. Pilturinn er ósakhæfur þar
sem hann er einungis fjórtán ára.
Foreldrar hans voru látnir sækja
hann á lögreglustöðina,-
DV tókst ekki að fá upplýsingar
um það í gærkvöld hvaða áhrif
þetta athæfi svo ungs pilts hefði fyr-
ir hann. Mál hans er enn í skoðun
en þar sem hann er ekki sakhæfur
flokkast mál hans sem barnavernd-
/ j* armál. Engin grein í nýjum umferð-
arlögum fjallar um mál sem þetta og
því þykir ótrúlegt að athæfi piltsins
verði til þess að seinka því að hann
fái ökupróf. -sv
Drukkinn
stakk af
Árekstur varð í Stekkjarbakka
um kf. 21 á föstudagskvöld. Tveir
bílar rákust saman þegar þeir mætt-
ust og var ökumaður annars gnm-
aður um ölvun við akstur. Hann
stakk af vettvangi og veitti lögregl-
an honum eftirför á tveimur bílum
niður á Miklubraut, Grensásveg og
inn í Skeifu. Þar endaði för manns-
ins í blindgötu í Fenjunum og var
hann leiddur í jámum á lögreglu-
stöð. Maðurinn er á miðjum aldri.
Hann neitaði öllu, kannaðist ekki
við eitt né neitt en fékk að sofa úr
sér töluverða vimu og reiði í garð
lögreglunnar í fangageymslum.
-sv
Annríki lögreglu:
Hávaði
innandyra
Lögreglan í Reykjavik hafði í
nógu að snúast um helgina þótt
stórátakalaust væri. Þykir lögreglu-
mönnum furðu sæta hversu mörg-
um útköllum þeir þurfa að sinna
vegna smærri kvartana þar sem
verið er að hringja dyrabjöllum hjá
fólki og vegna þess sem bókað er
sem hávaði innandyra. Lögreglan
fór í 25 slík útköll aðfaranótt laugar-
dags og aðfaranótt sunnudags. Á
sama tíma urðu útköll vegna há-
vaða utandyra aðeins 5. Alls vom
153 bókanir á tíu tíma vakt aðfara-
nótt laugardags. -sv
Forsætisráðuneytið:
heim á ný
Nú er unnið að lokafrágangi inn-
andyra í Stjómarráðshúsinu við
Lækjartorg og flytur forsætisráðu-
neytið á ný í húsið i þessari viku, að
sögn Ólafs Davíðssonar ráðuneytis-
stjóra. „Það verður um margt betra
skipulag í húsinu en var áður og
betri vinnuaðstaða," segir Ólafur í
samtali við DV.
Aðspurður um kostnað við lag-
færingamar á Stjórnarráðshúsinu
segir ráðuneytisstjórinn að hann
virðist vera nærri áætlun en farið
verði yfir reikningana þegar ráðu-
neytið hefur komið sér fyrir á ný.
„Það hefur svo sem farið ágætlega
um okkur en auðvitað hlökkum við
til að flytja því það er visst óhag-
ræði að því að vera með ráðuneytið,
ekki stærra en það er, á tveimur
stöðum." -SÁ
Verkfallsfrestun líkleg:
Málari að taka síðustu pensilstrokurnar á stiganum upp á loft Stjórnarráðshússins. DV-mynd BG _ _ .. _
Hofum fullt
vald á málum
- segir Helgi Laxdal
Líklegt er að verkfalli vélstjóra
verði frestað í annað sinn á morg-
un, þriðjudag. Helgi Laxdal, formað-
ur Vélstjórafélags íslands, vildi í
gærkvöld ekki staðfesta frestunina
en kvaðst myndu tilkynna næstu
skref í kjarabaráttu vélstjóra á
morgun.
Spurður um hvort frestun öðm
sinni myndi ekki skoðast sem viss
ósigur sagði Helgi það vera síður en
svo. Aðstæður væra þannig að vél-
stjórar ættu ekki fulla samleið með
öðrum sjómönnum í verkfalli og
myndu því lenda í vanda með sín
sérmál þegar búið væri að leysa
sameiginleg mál sjómanna. „Að-
stæðumar hafa breyst en við höfum
fullt vald á ástandinu," sagði Helgi
Laxdal í gærkvöld.
Sjá yflrheyrslu DV yfir Helga
Laxdal á bls. 6. -SÁ
Fullir og án
skírteinis
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði
níu ökumenn, grunaða um ölvun
við akstur, aðfaranótt laugardags og
fjóra nóttina eftir. Á föstudagskvöld
kannaði hún ástand ökumanna í um
klukkustund á Hringbraut og á
þessum stutta tíma voru alls 25 öku-
menn bókaðir þar sem þeir höfðu
ekki ökuskírteini meðferðis. Þetta
þykir lögreglu slæmt og minnir á að
sektað er vegna þessa. -sv
Slæm útkoma úr inntökuprófum í tannlæknadeild HÍ:
Tveir af níu
komust inn
- minnkandi aösókn í deildina veldur áhyggjum
Aðeins tveir náðu inntöku-
prófi í tannlæknadeild Háskóla
íslands í prófum sem fóra fram í
desember sl. Miðað hefur verið
við að sex nemendur kæmust inn
á hverju ári. Níu nemendur
þreyttu prófið en sjö þeirra náðu
ekki tilskilinni lágmarksein-
kunn, sem er 5. Samtals létu um
15 nemendur innrita sig í deild-
ina í haust.
„Þessi útkoma núna er mjög
óvanaleg og hefur ekki sést áður,“
sagði Karl Örn Karlsson, lektor í
tannlæknadeild Háskóla íslands,
við DV. „í árdaga má kannski
finna samsvarandi útkomu. Það
er erfitt að segja til um hvað veld-
ur. Þetta er auðvitað áhyggjuefni.
Ef þróunin verður svona áfram
gæti farið svo að skortur yrði á
tannlæknum."
Karl Öm sagði að tannlækna-
nemar þreyttu sömu próf og
læknanemar og hugsanlega mætti
skoða prófin eitthvað. Þá væri sá
möguleiki fyrir hendi að þeir
fengju að endurtaka prófin í vor
eða haust. I fyrra gengust níu
undir próf og þá náðu fjórir inn í
tannlæknadeildina. Þá var hin-
um, sem ekki náðu, heimilað að
taka próf aftur. Var það í fyrsta
sinn sem slíkt er gert.
„Við höfum vitaskuld rætt
þessa útkomu og það er ekkert
vitað hvað veldur þessu. Aðsókn
í tannlæknadeild hefur farið
minnkandi. Að jafnaði hafa um
15-20 manns farið í próf og keppt
um þessi sex sæti. Þetta hefur
alltaf gengið þar til núna en í
fyrra snöggminnkaði aðsóknin.
Ég þori ekki að segja til um
hvers vegna færri sækja í deild-
ina.
Hins vegar má benda á að þetta
skapar svigrúm til að taka starf-
andi tannlækna inn og endur-
mennta þá ef þetta verður viðvar-
andi ástand. Þeir þurfa að við-
halda þekkingu sinni og slík end-
urmenntun hefur farið fram í
nokkrum mæli.“ -JSS
Veðrið á morgun:
Skúrir og
slydda
Á morgun er gert ráð fyrir
norðan- og norðaustanátt, all-
hvassri eða hvassri vestan til en
hægari á austanverðu landinu.
Skúrir verða austanlands, slydda
norðan- og norðvestanlands en
þurrt að mestu á Suðvesturlandi.
Hiti verður á bilinu 0 til 4 stig.
' \
Veðrið í dag er á bls. 45.
Kr. 1,870,000,»
OPEL.-0-
-Þýskt eöalmerki
Bílheimar ehf.
. Sævarhöföa 2a Sími:52S 9000
I Vectra
Í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i