Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1998, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1998, Page 9
JL>V FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1998 HLJÓMPLm Alec Empire/The Geist of Alec Empire: fllgjör kúvending *★★★ /irrírR Þýski hardcorekóngurinn Alec Empire er loks að hljóta þá viðurkenningu sem hann á skilda. Á þessari þrefoldu geislaplötu afsannar þær kenningar að hann fari villur vega í tónsköpun sinni og framreiðir algjört meistara- verk. Sjaldan hefur nokkur/ plata komið mér jafnmikið á' óvart og þessi. Hún er yfirfull af póstmódernískmn djassi og svífur áfram hæg og dulúðug. Alec Empire hefur hingað til ekki sýnt sínar mýkri hliðar í tónlist og er þessi þrefalda skífa hans algjör kúvending frá fyrri plötum. Og hann er líka að upp- skera eftir því. Wu Tang Clan, Beck, Beastie Boys og Björk hafa eða vUja öll vinna með honum og eftir að hafa heyrt þessa geisla- plötu skU ég vel hvers vegna. Jón Atli Jónasson DJ Vadim/USSR reconstruction: Áhugaverður plötusnúður ★★★ Hinn sovéski DJ Vadim er einn þeirra sem gefa út und- ir merkjum Ninja Tune og hefur um langt skeið veriö talinn einn af áhugaverðári plötusnúðum Bretlands þar sem hann er búsettur. DJ Vadim gerir hægt og drama- tískt trip hop og hefur haldið sig við þann stU á þessari nýju plötu. Hann hefur hins vegar aukið tempóið eUítið og það virðist virka vel. USSR Reconstruction er ró- leg og ein af þessum plötum sem maður uppgötvar hægt og hægt þar tU hún er farin að eiga vísan stað i geislaspUaranum. Hann er mun melódískari en oft áöur og hefur fært sig úr hip hop stílnum yfir í meiri geimdjass. Fyrsta lag plötunnar gefur nokkurn veginn tóninn að því sem koma skal og það er sannarlega nýr DJ Vadim sem maður fær að heyra í. Það er óhætt að mæla með USSR Reconstruction. Hún lætur ekki mikið yfir sér í fyrstu en kemur svo sannarlega á óvart. ATH annað lag plötunnar. Það er ein af þessum perlum sem finnast inni á miUi. Jón Atli Jónasson Soundgarden-A-sides: Meiri og meiri keyrsla ★★★ Það er mikil eftirsjá að Soundgarden sem kvaddi okk- ur á síðasta ári, ein af þremur Seattle-sveitum sem leystust upp. Hvort forsprakkar sveit- arinnar, þeir Kim ThayU og Chris CorneU, koma til með að gleðja okkur áfram skal látið ósagt en nokkuð var fjaUað um á sínum tíma þegar sveitin hætti að þeir hæfu sól- óferU. A-sides hefur að geyma öU bestu lög sveitarinnar eins og nafnið gefur tU kynna og spannar lög frá upphafi ferUs þeirra fé- laga þegar hinn japanski bassaleikari Hiri Yamamoto spUaði með sveitinni. Nokkuð gaman er að heyra þá þróun sem verður á sveitinni eft- ir því sem líður á plötuna. Verð ég að játa að seinni tíma lög sveit- arinnar höfða mun meira tU mín enda meiri keyrsla og léttleiki yf- ir þeim ef hægt er að tala um léttleika í lögum Soundgarden. Á síðustu plötu sveitarinnar, Down on the Upside, var kominn ákveðinn endatónn í lagasmíðar sveitarinnar. Án þess að skynja það beint virðast lögin hafa náð eins konar fuUkomnun eða enda- stöð. Chris ComeU lét líka svo um mælt að sveitin gæti ekki komist lengra og því væri best að venda sínu kvæði í kross. A-sides er nauðsynlegur lokabiti fyrir aðdáendur sveitarinnar enda á plötunni að finna lag sem ekki hefur komið áður á plötu. Það er lagið Bleed Together sem var tekið upp á sama tíma og upp- tökur fyrir Down on the Upside fóm fram. PáU Svansson Marilyn nlist Manson Enginn í tónlistarheiminum er eins umdeUdur um þessar mundir og bandaríski tónlistarmaðurinn Marilyn Manson. Siðapostuiar og sjónvarpsprédikarar í Bandaríkj- unum ná vart upp í nef sér af bræði sökum þess hve vinsæU hann er. í þeirra augum endurspeglar Marilyn Manson allt það sem iUt er í heim- inum í dag. MarUyn Manson hefur ef eitthvað er alið á þessum fordómum og not- að þá óspart tU að koma sér og sinni tónlist á framfæri. Frá útkomu breiðskífunnar Antichrist Superst- ar hefur uppgangur MarUyn verið mikiU og sér ekki fyrir endann á vinsældum hans. „Tónlist mín snýst um einangrun og hvemig það er að vera útskúfað- ur,“ segir hann. „Þegar ég var yngri var ég eini krakkinn i mínu hverfi sem var í einkaskóla. Ég þurfti að klæðast skólabúningi og varð að passa að láta hár mitt ekki verða of sítt. Mér var mikið strítt af hinum krökkunum og ég var lagður í ein- elti. Börn sem lenda í þessu fá ör á sálina og um það get ég vitnað." ímynd MarUyn Manson er vel út- hugsuð og byggir á Goth-rokk stefn- unni og þungarokki. Margir hafa velt því fyrir sér hvort listamanns- nafn hans sé dregið af nöfnum Mar- ylin Monroe og Charles Manson og æUi það sé bara ekki nærri lagi. Á tónleikum þykir Marylin njóta sín hvað best og þeir eru með bestu skemmtunum sem völ er á í dag. Maður veit aldrei hvað gerist næst og oftar en ekki eru tónleikamir fjölsóttir af aðdáendum hans sem klæða sig upp eins og hann til að lýsa hrifningu sinni. Þetta hefur ekki gerst í Banda- ríkjunum síðan Madonna söng Like a Virgin og þykir þetta segja meira en mörg orð um vinsældir hans í Bandaríkjunum í dag. Marylin er óþreytandi við að koma fram í spjaUþáttum og er oftar en ekki lát- inn sþjaUa við fuUtrúa einhverra trúarsamtaka. Þar vUja oft spinnast heitar umræður en Marylin þykir með eindæmum orðheppinn og er eftirsóttur viðmælandi í spjaUþátt- um. Margir vUja samt meina að al- varan bak við ímynd hans sé lítil sem engin og að hann geri óspart grín að þeim látalátum sem rokkinu fylgja oft. „Þetta kristallast í heiti plötunnar,“ segir Marylin. „Hún 'heitir Antichrist Superstar vegna þess að ég ætlaði mér að verða súperstjarna en bara á dálítið breyttum forsendum. Ég sá ekki al- veg tUganginn í því að endurtaka sömu tugguna og hefur verið í gangi svo lengi í þessu landi. Fólk vUdi eitthvað nýtt og var ekki alveg með það á hreinu hvað það var. Ég vissi að það þyrfti að vera eitthvað sem hneykslaði en væri samt það gott tónlistarlega að fólk myndi vUja hlusta á það.“ Margir vUja meina að það hafi verið MarUyn Manson sem hafl breytt bandaríska rokkinu, sem var enn í sárum eftir dauða Curts Cobains, og að hann fyUi það skarð sem myndaðist þegar Nirvana lagði upp laupana. Honum hefur tekist að verða holdgervingur þeirrar upp- reisnar sem rokkið stendur fyrir. AUs kyns samtök í Bandaríkjunum hafa farið í mál við hann upp á síð- kastið og foreldrasamtök í mörgum ríkjum Bandaríkjanna reynt að fá tónleika hans bannaða. I bænum Richmond í Virginuríki gekk það reyndar svo langt að sjálfur borgar- stjórinn lagði blátt bann við tónleik- um MarUyn Manson í fylkinu. Það sprakk reyndar upp í höndunum á borgarstjóranum því Marilyn kærði hann fyrir mannréttindabrot og vann málið gegn honum og það verður seint afmáð úr rokksögunni. -JAJ Danslisti íslands

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.