Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1998, Blaðsíða 10
FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1998 DV fónlist i ísland -plöturog diskar — * 1. ( 2 ) OK Computcr Radiohoad $ 2. ( 1 ) Lot's Talk Celine Dion | 3. ( 3 ) Best of Eros Ramazotti t 4. (14) Quarashi Quarashi | 5. ( 5 ) Sigga Sigga Beinteins t 6. ( 6 ) Pottþótt 97 Ýmsir t 7. ( 7 ) Urban Hymns Verve f 8. (Al) Homogenic Björk ♦ 9. (Al) Spiceworld Spice Girls | 10. ( 8 ) Aquarium Aqua I 11.(6 ) 1987-1997 Nýdönsk t 12. (Al) Fat of the Land The Prodigy 4 13.(12) Paii:* the Sky Enya t 14. (Al) Central Magnetizm Subterranean t 15.(15) Pottþétt vitund Ýmsir t 16. ( -) Reload Metallica t 17. (Al) Trúir þú á engla? Bubbi ) 18.(18) Pottþétt Rokk Ýmsir 4 19. (16) Legend John Lennon | 20. (20) Bugsy Malone íslenska útgáfan London -lög- I 1. ( 2 ) Never Ever All Saints t 2. ( - ) Bamboogie Bamboo t 3. ( - ) Renegade Master 98 Wildchild | 4. ( 1 ) Perfect Day Various | 5. ( 4 ) Together Again Janet Jackson t 6. ( 7 ) Angels Robbie Williams | 7. ( 5 ) High Lighthouse Faniily | 8. ( 6 ) Avenging Angels Space i 9. ( 3 ) Too Much Spice Girls Í 10. ( 9 ) Torn Natalie Imbruglia New York -lög- t 1. ( 6 ) Truly Madly Deeply Savage Garden | 2. ( 3 ) Together Again Janet 4 3. (1 ) Candlc in the Wind 1997 Elton John t 4. ( 5 ) How Do I Live Leann Rimes I 5. ( 2 ) Been Around the World Puff Daddy & The Family I 6. ( 4 ) My Body LSG t 7. ( 9 ) You Make Me Wanna... Usher t 8. (- ) Tubthumping Chumbawamba t 9.(10) ShowmeLove Robyn | 10. ( 7 ) Foel so Good Bretland — plötur og diskar— t 1. ( -) Urban Hymns The Verve t Z ( 3) All Saints All Saints t 3. ( -) Life Thru A Lens Robbie Williams | 4. ( 2 ) Spiceworld Spico Girls i 5. ( 4 ) White On Blonde Texas t 6. (10) Postcards From Heaven Lighthouse Family | 7. ( 5 ) Let's Talk About Love Celine Dion t 8. ( 9 ) Loft of the Middle Natalie Imbruglia t 9. ( -) Ok Computer Radiohead 4 10. ( 6 ) The Best of Wham Bandaríkin -plöturog diskar — | 1. ( 2 ) Let's Talk about Love Celine Dion § 2. (1 ) Sevens Garth Brooks t 3. ( 5 ) Tubthumping Chumbawamba t 4. (10) HarlemWorld Mase § 5. ( 4 ) You Light up My Life Leann Rimes t 6. ( 6 ) Come on over Shania Twain t 7. (- ) Yourself Or Someone Like You Matchbox 20 t 8. (- ) No Way Out Puff Daddy & The FAmily t 9. (- ) Backstreet Boys Backstreot Boys tl0. (- ) Aquarium Aqua . ...ri1.11..l..r..T.-1_r___ Talking Loud var valið plötufyrir- tæki ársins 1997 af breska tónlistar- blaðinu DJ sem er leiðandi tímarit í umfjöllun á danstónlist í heiminum. Talking Loud hefur marga listamenn á sínum snærum en þeirra þekktastur er sjálfsagt Roni Size sem sló í gegn á síðasta ári með breiðskífunni New Forms. Fyrirtækið var stofnað árið 1989 af þeim Paul Martin og Gilles Peterson. Það sem þeir félagarnir höfðu að leið- arljósi í útgáfu sinni var að gefa frek- ar út heilsteyptar breiðskífur heldur en að fylgja popptískunni hverju sinni. Þó svo fyrirtækið gefi nær ein- göngu út danstónlist gefur það einnig út jasstónlistarfólk og þeirra þekktast- ur er sjálfsagt Courtney Pine og acid- djasshljómsveitin UFO. Talkin Loud hefur alla tíð hvatt þá danstónlistar- menn sem hjá fyrirtækinu eru til að halda tónleika með lifandi hljóðfæra- leik í bland við tölvutónlistina og vilja margir meina að það sé eitt af því sem geri Talkin Loud svo sérstakt. Mikið hefur til að mynda verið skrifað um tónleikahald Roni Size og hljómsveit- ar hans Reprazent sem þykir vera af- spyrnugóð á tónleikum. Hef ég það frá tveimur ungum mönnum sem sáu sveitina spila í London nú seint á síð- asta ári. Þetta hefur komið inn með ferska strauma sem hafa svo skilað sér inn á breiðskífur með danstónlist. Önnur merkileg afurð kom frá Talkin Loud á síðasta ári og var það breið- skífan NuYorican Soul þar sem Mast- er at Work fóru í samstarf með salsatónlistarmönnum og söngvurum. Tito Puente, George Benson og Jocelyn Brown voru meðal þeirra sem komu fram á NuYorican Soul og heppnaðist það samstarf með ágætum enda hlaut breiðskífan fádæma lof gagnrýr.enda um allan heim. Lifandi hljóðfæraleikurinn náði að lyfta Nu- Yorican Soul upp á hærra plan en ella. Það sem er fram undan hjá Talkin Loud-útgáfunni á nýju ári er enn meiri áhersla á Drum n’ Bass tón- listarstefnuna og er áætlað að gefa út breiðskifu með 4 Hero á næstunni. „Tónlistin er sífellt að breytast og þró- ast og hér i Bretlandi er þróunin hvað hröðust um þessar mundir og það er spennandi að standa í útgáfu á þessari fersku tónlist,” segir Gilles Peterson Fimmti meðlimur Hann er útgefandi, tón- listarmaður og plötu- snúður og sér um að hita upp fyrir hljóm- sveitina U2 sem hefur verið á tón- leikeiferðalagi um heiminn allt síðasta ár. Hann er skoskur að uppruna og vann fyrir sér með því að selja plaköt á flóamörkuð- um áður en hann sló í gegn. Þegar hljómsveitin U2 fór í hljóðver að taka upp nýjustu breiðskífu sína tók Bono upp sím- tólið og hringdi í Howie B. Hann hafði reyndar unnið með sveit- inni áður á plötunni Passengers ásamt Brian Eno og Pavarotti og var Bono svo ánægður með sam- starfið að annað kom vart til greina en að hafa Howie B. með á nýju plötunni. Starf hans var að taka upp og gera takta fyrir þessa stærstu hljómsveit veraldar. Áhrifin sem Howie B. hefur haft á hljómsveitina U2 eru líka auð- þekkjanleg. Þeir félagar eru mun framsæknari en oft áður og hefur það haft hin undarlegustu áhrif á feril hljómsveitarinnar. Tónleika- ferðalög hljómsveitarinnar U2 eru mikið fyrirtæki enda hafa margir sótt tónleika sveitarinnar í gegnum tíðina. Hins vegar var aðsókn á þá heldur dræm á síð- U 2 asta ári. Margir vilja meina að það sé sökum þess að hljómsveit- in sé orðin einum of framsækin í tónlistarsköpun sinni og dansá- hrifin í nýju lögunum séu einfald- lega of mikil. „Ég held að viö höf- farið þá leið sem við vildum lákvæmlega fara, segir Bono, söngvari hljómsveitarinar. „Við vorum mjög ánægðir með að fá Howie B. í lið með okkur. Hann er gífurlega skemmtilegur tónlist- armaður og hefur opnað nýjar dyr fyrir okkur og verið duglegur að spila fyrir okkur þá tónlist sém er í hvað örustuin vexti í iag. Það er danstónlist^^jokkur Innst hún spennandi.í Á tón- ' leikaferðalagi U2 hefur hiútverk Howie B. verið að þeyta skífum áður en U2 fer á svið og segir hann þá lífsreynslu hafa verið ógleymanlega. „Ég var mjög stressaður fyrst. Það voru fleiri þúsund manns mættir til að sjá U2 og ég hafði enga hugmynd um hvernig þeim myndi líka að heyra danstónlist á undan. Þetta gekk samt allt mjög vel og það er ótrúlegt að sjá fleiri þúsund manns dansa við eitthvað sem maður er að spila. Það er enginn klúbbur sem kemst nálægt þeirri upplifun," segir Howie B. Ahrifin sem Howie B. hefur haft á hljómsveitina U2 eru auöþekkjanleg. Þeir félagar eru mun framsæknari en oft áður og hefur það haft hin undarlegustu áhrif á feril hljómsveitarinnar. Það hefur verið mikið að gera hjá Howie B. upp á síðkastið enda er hann líka tónlistarmaður og gaf á síðasta ári út breiðskífunna Tum the Dark off sem er óum- deilanlega ein af bestu breiðskíf- inn síðasta árs. -jaj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.