Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1998, Blaðsíða 12
26
tyndbönd
FOSTUDAGUR 16. JANUAR 1998
MYNDBANDA
For a Few Lousy Dollars:
Gáskafullt ofbeldi ★★★
Zack og félagar hans, Danny og Theo, hafa fengið
ábendingu um að á veitingahúsi nokkru sé að finna
mikið af mafíupeningum. Þegar til kastanna kemur
er enga peninga að finna og félagarnir lenda í klón-
um á mafíuforingjanum Tony, sem sleppir þeim með
áminningu, þeim til mikiilar gleði og undrunar. Þeir
hefjast þá handa við að gera upp sakimar við Frankie, manninn sem gaf
þeim ábendinguna, sem reyndar hefur afsökun á reiðum höndum. Hér
hefur greinilega átt að gera mynd í anda Quentin Tarantino. Við höfum
m.a. glæp sem klúðrast illa, heimspekilega sinnaða krimma og hrátt of-
beldi, kryddað með svörtum húmor. Eins og Tarantino hefur sýnt er
þetta ágætis uppskrift, en hér hefði mátt vanda sig betur við bakstur-
inn. Handritið býður upp á ágæta sögufléttu, en hins vegar eru persón-
urnar ekkert sérlega áhugaverðar og samtölin ekkert óskaplega hnytt-
in. Þá vantar einnig færa leikara og engir þeirra standa upp úr, fyrir
utan kannski þann sem leikur leigumorðingjann. Sá er titlaður
Midnight Rambler, en ég gæti næstum svarið að þetta er Judd Nelson.
Þetta er forvitnileg og stundum skemmtileg mynd, en nær ekki með
tærnar þar sem fyrirmyndin hefur hælana.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Michael Bafaro. Aðalhlutverk: Ben Ratner og John
Cassini. Bandarísk, 1996. Lengd: 84 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Hamlet
Hefðbundið ★★★
isjí)
Kenneth Branagh virðist vera alveg dolfallinn
Shakespeare- aðdáandi. Hamlet er þriðja Shakespeare-
myndin hans (þá tel ég ekki með In the Bleak of Midwint-
er, sem fjallaði um leikhóp sem setur upp Hamlet í gam-
alli kirkju). Hann færir sögusviðið aðeins aftur i tíma,
sennilega á 19. öld, svo sem sjá má á búningum, byssum,
eimreið o.fl. Að öðru leyti er allt í hefðbundnum stfl.
Branagh heldur sig við hinn flúraða rimtexta Shakespe-
ares og er ekkert að leika sér með persónur eða sögu-
þráð. Myndin bætir þvi htlu sem engu við það sem áður
hefur verið gert með Hamlet, en Branagh treystir á öflugan leikhóp til að gefa
myndinni gildi. Sjálfúr fer hann með hlutverk Hamlets af mikilli kunnáttu, án
þess að sýna nein sérstök tilþrif. Richard Briers, sem hefur leikið i öllum
þremur Shakespeare-myndum Branagh, er ágætur Polonius og Julie Christie
fer einnig vel með hlutverk drottningarinnar. Kate Winslet er hins vegar
fremur álappaleg Ophelia. Nicholas Farrell og Michael Maloney standa sig vel
í hlutverkum Horatio og Laertes og áhugaverðir leikarar í minni hlutverkum
eru t.d. Timothy Spall og Reece Dinsdale sem Rosencrantz og Guildenstem og
Rufús Sewell í hlutverki Fortinbras. Langbestur allra er samt stórleikarinn
Derek Jacobi í hlutverki kóngsins illa.
Útgefandi: Skifan. Leikstjóri: Kenneth Branagh. Aðalhlutverk: Kenneth Branagh,
Derek Jacobi, Julie Christie, Richard Briers og Kate Winslet. Bresk, 1996. Lengd:
121 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ
Spawn:
Hefnd og illska ★★
Spawn er ein af vinsælustu hasarblaðahetjum sam-
tímans og þvi ekki seinna vænna að gera kvikmynd
um hann. Spawn var í lifanda lífi leyniþjónustumaður-
inn A1 Simmons, sem var myrtur af hinum illa yfir-
manni leyniþjónustunnar, Jason Wynn. Hann semur
því við djöfulinn um að fá að snúa aftur til jarðar gegn
því að leiða her hans gegn himnunum. Ofurmannlegir eiginleikar hans
eru því frá djöflinum komnir, en hann snýst síðan gegn skapara sínum.
Mikið er lagt í útlit myndarinnar og allar brellur vel framkvæmdar. Bún-
ingamir em flottir, sérstaklega brynjan hans Spawn, og bardagaatriðin
eru með besta móti, sérstaklega þegar Spawn tekst á við Violator-djöful-
inn. Myndmálið fær þó ekki að njóta sín í nógu miklum mæli. Allt of mikl-
um tíma er eytt í að láta hetjuna veltast um í eymd í byrjun og oft virðist
myndin taka sig einum of alvarlega, eins og um eitthvert dramatískt þrek-
virki væri að ræða. Gaman er að horfa á bardagaatriðin, en lélegur leik-
ur og illa skrifað handrit gera myndina fremur leiðinlega að öðru leyti.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Mark Dippé. Aöalhlutverk: Michael Jai
White, Martin Sheen og John Leguizamo. Bandarísk, 1997. Lengd: 90
mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
The Devils Dwn:
Vináttubönd ★★
Dt ^JL'S
If
Hér segir frá IRA-hermanninum Frankie McGuire,
sem er sendur til Bandaríkjanna til að kaupa flug-
skeyti og smygla heim til írlands. Undir dulnefninu
Rory Devaney fær hann inni hjá fjölskyldu hins
írskættaða lögreglumanns O’Meara sem telur sig
vera að hýsa ungan mann á flótta undan ofbeldinu á
Norður-írlandi. Þeir bindast vináttuböndum, en þeg-
ar O’Meara fer að gruna að Frankie/Rory hafi eitt-
hvað óhreint í pokahorninu reynir verulega á vinátt-
una. Miðað við margar fantagóðar myndir, sem tekið
hafa fyrir ástandið á Norður-írlandi, virkar The
Devil’s Own fremur þunn. Söguuppbygging er þó góð lengst af, en mynd-
in brotlendir i restina þegar koma þarf að einfeldningslegum boðskap.
Harrison Ford er ágætur i hlutverki O’Meara, heldur sig til hlés og er
ekki alveg eins þumbaralegur og oft áður. Brad Pitt er hins vegar
óvenjulega máttlaus, enda var hann víst ekkert allt of sáttur við hand-
ritsbreytingar. Treat Williams stendur sig vel í hefðbundnu skúrkshlut-
verki, en aðrir leikarar gleymast fljótt.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Alan J. Pakula. Aðalhlutverk: Harrison Ford,
Brad Pitt og Treat Williams. Bandarísk, 1997. Lengd: 107 min. Bönnuð
innan 16 ára. -PJ
Myndbandalisti vikunnar
/ 0 <§> « / 0 U J / yW/ /• © «
— 6. til 12. janúar
SÆTI j FYRRI > VIKA ) vikur r Á LISTA Vv‘ J TITILL ) ÚTGEF. j TEG. J
1 ! 2 ■ 2 J j Absolute power Skífan ; Spenna
2 i i i j 4 j j Con Air -j Sanwnyndbönd : Spenna J
3 ! Ný i ! Horfinn heimur ClC-myndbönd Spenna
4 1 1 Ný ) ) 1 J i Devils Own j J Skífan Spenna j
5 J 2 i 3 4 ! Fierce Creatures ClC-myndbönd Gaman
6 J j í Ný J 1 J Spawn Myndform Spenna
7 ! 7 ! 5 ! One Fine Day Skífan J Gaman
8 J ) J N J i * 1 J J 5 i J Dantes Peak ClC-myndbönd . Spenna
9 ! 6 3 J The 6th Man Sam-myndbönd Gaman
10 ! 8 J J J 7 j j The Fifth Element j J j Skffan J Spenna J í
11 ! 12 í 2 ! Lost Highway Myndform \ Spenna
12 J J 1 5 > i 7 í j Liar Liar J j ClC-myndbönd j Gaman
13 ! ii ! 4 ! Ghosts From the Past ! j j Skífan j Spenna
14 > j 1 9 j ’ J 5 ! J First Strike J Myndform Spenna
15 ! ío ! 7 J j 6 ! J Trial and Error Myndform > Gaman
16 13 i > J Jungle 2 Jungle j Sam-myndbönd j Gaman j ]
17 J 15 i j a ! Scream Skífan J Spenna
18 j j J 14 j J j j 9 j j J Bulletproof ) ■ j ClC-myndbönd J Spenna )
19 ! Ný ; i ! Dear God Sam-myndbönd Gaman
20 j j J 16 ; j 8 ! j Private Parts J Sam-myndbönd Gaman
Það kom að því að Con Air varð að láta eftir fyrsta
sætið. Ekki var það þó Júragarðurinn 2 sem hreppti
efsta sætið heldur sakamálamynd Clint Eastwoods.
Það eru nokkrar breytingar á efstu sætum listans
þessa vikuna, það er ekki bara að The Lost World,
sem myndin er úr hér til hliðar, komi sterk inn held-
ur fylgir í kjölfarið sakamálamyndin Devil’s Own og
í sjötta sæti er svo framtíðartryllirinn Spawn, sem
byggð er á teiknimyndaseríu. Það verður að fara aft-
ur í nítjánda sætið til að finna eina nýja kvikmynd
enn, er það Dear God, gamanmynd meö Greg Kinn-
ear í aðalhlutverki, en hann lék á móti Harrison Ford
og Juliu Ormond, í Sabrina.
Absolute
Power
Clint Eastwood og
Gene Hackman.
Luther Whitney er
meistaraþjófur sem tel-
ur sig kunna ráð við
öllum vanda. Hann gat
samt ekki séð fyrir að
eiginkona auðugs
kaupsýslumanns yröi
heima einmitt það
kvöld þegar hann
ákveöur að ræna hibýli
hans og hann gat held-
ur ekki séð fyrir að
elskhugi hennar kæmi
í heimsókn og því síð-
ur að þau myndu lenda
í átökum sem enduðu á
þann veg að hún liggur
dauð uppi í rúmi. Há-
punkturinn á óheppn-
inni er þó að elshuginn
er sjálfur forseti
Bandaríkjanna.
Skyndilega þarf Luther
að glíma við valda-
mesta mann í heimi
sem vill hann dauðan.
Con Air
Nicolas Cage og
John Malcovich
Cameron Poe er á
leið heim til konu
sinnar og dóttur eftir
fangavist. Ásamt Poe
eru í flugvélinni
nokkrir af illræmd-
ustu og hættulegustu
glæpamönnum Banda-
rikjanna og það liður
ekki á löngu þar til
komið er upp algjört
neyðarástand í vél-
inni. Sá sem stendur
fyrir uppþotinu, Cyrus
Grissom, hefur brátt
alla vélina á sínu
valdi. Það kemur i
hlut Poes að koma í
veg fyrir áætlanir
Grissoms. Á meðan
berst leyniþjónustu-
maðurinn Larkin af
öllum mætti gegn því á
jörðu niöri að heryfir-
völd skjóti flugvélina
niður.
Horfinn
heimur
Jeff Goldblum og
Julianne More
Á nálægri eyju hafa
risaeðlur I mikilli
leynd fengið að þrífast
og ganga frjálsar, en
nús teðjar enn meiri
vá, áætlun er uppi um
að fanga þær og færa
upp á meginlandið.
John Hammond sem
hefur misst alla stjóm
á InGen fyrirtækinu
sér nú tækifæri til að
bæta fyrir fyrri mistök
sin og sendir leiðangur
undir stjórn Ians
Malcolm (Jeff Gold-
blum) til eyjarinnar
áður en málaliðamir
koma þangað til að
veiða dýrin. Hann á að
freista þess að koma i
veg fyrir þessar áætl-
anir.
Devils Own
Harrison Ford og
Brad Pitt
Þegar Frankie var
ungur drengur horfði
hann upp á grímu-
klædda menn myrða
foður sinn. Þessi at-
buröur markaði dreng-
inn og í dag, tuttugu
árum síðar er hann í
fararbroddi IRA-
manna. Frankie er
sendur til New York
og er ætlað að smygla
flugskeytum yfir hafið
heim til írlands. 1
gegnum sambönd sín
tekst honum að kom-
ast inn í landið á fólsk-
um forsendum og fær
húsaskjól hjá hinum
irskættaða lögreglu-
manni O’Meara sem
grunar fljótlæega að
Frankie sé ekki sá sem
hann þykist vera.
Fierce
Creatures
John Cleese og
Kevin Kline
Hrokagikkurinn
Rod McCain eignast
Marwood-dýragarðinn
i Englandi fyrir lítið
fé. Hann þekkir ekkert
annað en að græða og í
því skyni sendir hann
hina kynþokkafullu
Willu og son sinn,
•nautnasegginn Vince,
til Englands. Þegar
þau mæta á staöinn
komast þau að þvi að
framkvæmdastjórinn
hefur þegar tekið til
sinna ráða. Héðan í frá
skulu eingöngu grimm
og hættuleg dýr vera
til sýnis. Þessi ákvörð-
un mætir harðri and-
stöðu hjá starfsmönn-
um dýragarðsins sem
eru undir forystu skor-
dýrafræðings sem
gengur undir nafninu
„Padda“.