Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1998, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1998, Side 11
FÖSTUDAGUR 16. JANUAR 1998 „Það var nefnilega verið að klára nýjasta Verve singulinn. Við hefðum eiginlega átt að segja þeim að hypja sig,“ segir Eggert og hlær. aus hefur sannað sig fyrir okkur og kannski ekki síst fyrir sjálfum sér. Plata sveitarinnar, Lof mér að falla að þínu eyra, sem kom út seint á síðasta ári, er ósköp blátt áfram frábær. Meðlimir sveitar- innar eru þó hógværir og segjast ekki ætla að ana út í einhverja vit- leysu heldur verði tekið eitt lítið skref í einu svo að allt falli nú ekki um koll. Þeir Eggert Gíslason bassa- leikari, Birgir Örn Stefánsson söngv- ari og Páll Ragnar Pálsson gítarleik- ari sitja hjá mér og segja mér frá áformum sínum á næstunni. Trommarinn mætir rétt snöggvast í myndatöku og er rokinn strax aftur. Flestir meðlima sveitarinnar hafa dregið sig í hlé frá námi, enda mikill tími sem fer í að halda hljómsveitar- batteríinu gangandi. Áhuginn er líka óbilandi og „þetta er það skemmtileg- asta sem við gerum,“ segja þeir við mig með þvílíkri sannfæringu að ég verð þess fullviss að þeir hætti ekki fyrr en takmarkinu er náð. Og tak- markið, hvert er það? Að það sé hægt að lifa á þessu. Eins og ég sagði í upphafi eru þeir hógværir og engir stórvægilegir poppstjömudraumar í gangi. Við víkjum aftur að plötunni. Lof mér að falla að þínu eyra var tekin upp hér heima á Fróni og hljóðblönd- uð en síðan var haldið til Metropolis- stúdíósins í London þar sem hún var „masteruð". „Við fórum aðallega til London til að enda plötuna í ákveðn- um „climax" “, segir Birgir. „Þetta var líka eitt besta hljóðverið sem við gátum farið í,“ bætir Eggert við. „Við lærðum mjög mikið þannig að bara þess vegna var ferðin vel þess virði," segir Birgir. „Það var nokkuð skondið að þegar við komum út og mættum á staðinn þurftum við að bíða í 15-20 mínútur. Það var nefni- lega verið að klára nýjasta Verve- singulinn. Við hefðum eiginlega átt að segja þeim að hypja sig,“ segir Eggert og hlær. Ég spyr þá hvort þeim hafi ekki dottið í hug að láta einhvern „pródúsera" fyrir sig. „Okkur hefur dottið það í hug og sjálfsagt kemur einhvern tíma að þvi ef réttur einstaklingur er fyrir hendi. Eins og er þá erum við ánægðir með að gera hlutina sjálfir þó að oft á tíðum séu hljómsveitir . vissulega ekki sér meðvitandi um hvernig sánd þær eru með,“ segir Birgir. Við erum hins vegar mjög sérvitrir á hvað við viljum og verð- um að hafa úrslitavaldið. Það er heldur enginn hér heima sem kemur upp í hugann og þess vegna höfum við ekki mikið hugsað um þetta.“ Hvað er Maus að fást við þessa stundina? „Það sem við erum að gera í dag er að taka upp plötuna á ensku, þ.e.a.s. sönginn, og hljóðblanda ein- hver lög aftur,“ segir Eggert. „Við erum ekki að fara að gefa plötuna út heldur ætlum við að hafa nokkur eintök í farteskinu og leita eftir út- gefanda. Ef við finnum útgefanda er ekki óliklegt að platan verði tekin upp aftur í heild. Við ætlum að senda eins mörg eintök og við getum til hinna ýmsu útgefenda og leita eft- ir tilboðum. Við erum reyndar með i bígerð að fara út til að spila. Það er hins vegar risastórt verkefni og dýrt að flytja tæki og tól til meginlands- ins.“ Að lokum vilja þeir benda að- dáendum á heimasíðu sína: http://www.maus.is Ég óska þeim félögum gæfu og gengis í útlandinu og þeir hverfa á braut út í kuldann. -ps V Áfram stelpur! - kvennatónleikar í Hlaðvarpanum Síðasta fóstudagskvöld voru haldn- ir veglegir tónleikar í Hlaðvarpanum til að fagna útgáfu plötunnar Stelpu- rokk sem er ný safnplata sem inni- heldur 20 lög með ýmsum söngkonum, kvennahljómsveitum og einni skáld- konu. Tónleikamir í Hlaðvarpanum voru vel' sóttir og var gjörsamlega fullt út úr húsi þegar mest var. Tón- leikarnir voru í alla staði mjög vel heppnaðir og var allt önnur stemning en vanalega fylgir rokktónleikum hér í borg. Tónleikasalurinn í Hlaðvarp- anum er afar sérstakur og þar er ná- lægð flytjenda við áhorfendur mikil. Það var gaman að sjá Dúkkulísumar koma saman aftur og heyra lög eins og Pamela í Dallas og Svart hvita hetj- an. Dúkkulísumar gætu örugglega átt svipaða endurkomu og Greifarnir ef þær kærðu sig um. Eins fannst mér gaman að sjá Hljómsveit Jarþrúðar með leikonuna Ólavíu Hrönn í farar- broddi. Þetta er skemmtileg hljóm- sveit sem reyndar líður mjög greini- lega fyrir æfmgaleysi. Það skorti að- eins upp á samhæfmguna hjá henni en það skyggði samt ekki á frábæra tónleika. Yngsta hljómsveitin sem kom fram þetta kvöld var sjálfsagt kvennasveitin Á túr sem flutti nokkur lög og er greinilegt að hún á eftir að láta meira í sér heyra á næstunni. Hún flutti nokkur lög með hljóm- borðs- og sellónundirleik og mátti heyra hjá ákveðin áhrif frá Kate Bush. Kolrassa Krókríðandi flutti lika nokkur lög og er sú hljómsveit vafalit- ið ein sú skemmtilegasta sem við eig- um hér á landi í dag. Á tónleikunum Yngsta hljómsveitin sem kom fram þetta kvöld var sjálfsagt kvennasveitin Á túr sem flutti nokkur lög og er greinilegt að hún á eftir að láta meira í sér heyra á næstunni. var líka haldin kynning á tveimur ís- lenskum söngkonum, þeim Hallbjörgu Bjarnadóttur og Ellý Vilhjálms, og ýtti það undir við að gera kvöldið hið skemmtilegasta. Gaman væri að sjá fleiri tónleika í húsakynnum Hlað- varpans í framtíðinni og ekki myndi spiúa fyrir ef það væru tónleikar með einhverri af þeim sveitum sem tróðu upp síðastliðið fóstudagskvöld. -jaj Á h. o Þotulidid í Naustkjallar- anum Naustkjallarinn er op- inn fóstudags- og laug- ardagskvöld. Lifandi tónlist verður bæði kvöldin. Þotuliðið úr Borgamesi sér um fjör- ið bæði kvöldin. Á túr í Hinu húsinu Hljómsveitin Á túr mun spila á síðdegistónleik- um Hins hússins. Tón- leikarnir fara fram á Kakóbarnum Geysi í dag kl. 17. Aðgangur er ókeypis. Klappað og klárt Dúettinn Klappað og klárt leikur fyrir dansi á veitingastaðnum Gullöldinni. Dúettinn skipa þeir Gæi Karls og Didda Löve. Um helgina verður einnig haldið mót í raf- magnspílu á GuUöld- inni. Mótið hefst kl. 15 á morgun. Vegleg verð- laun eru í boði. Léttir sprettir í kvöld og annað kvöld leikur hljómsveitin Léttir sprettir frá kl. 22 til 3 á veitinga- og skemmtistaðnum Kringlukránni. Meðlimir Léttra spretta em: Geir Gunnlaugsson og Karl H. Karlsson. Þeir flytja létta og skemmtilega tónlist. í Leikstofu Kringlu- krárinnar leikur trú- badorinn Rúnar Þ. Guð- mundsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.