Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1998, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1998, Side 9
JL*V FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1998 HLJÓMPLjÍTU wmmi Air / Moon Safari: Gott geimpopp ★★★★ Hljómsveitin Air hefur vak- ið athygli fyrir leikandi létta popptónlist sína sem er þunn eins og lofttegund. Air tekst samt að koma eins og ferskur blær inn í poppið þar sem út- þvældar hugmyndir og klisj- ur virðast öllu ráða. Það er nefnilega ekkert ljótt að gera popptónlist. Poppið hefur bara fengið slæmt orð á sig sökum þess að það vill oft verða þreytandi og leiði- gjarnt. Á breiðskífunni Moon Safari tekst hljómsveitinni Air að gera poppið heillandi á nýjan leik og ekki spillir að gamla Moog-hetjan Jean Jaques Perrey er með þeim í nokkrum lögum á plötunni, enda sándið á henni ekki langt frá því sem hann var að fást við í eina tíð. Platan hefst á laginu La Femme Argent, sem er léttur fonkslagari á rólegu nótunum, og er svipuð stemning í því og í laginu Nights Interlude með Nightmares on Wax. Á Moon Safari eru líka fleiri ámóta lög sem eiga eftir að verða klassísk. Þar má nefna Sexy Boy og All I Need. Þessi er skyldueign í plötusafni heimilisins. Jón Atli Jónasson Ambersunshower/Walter T. Smith: flnsi heilsteypt ★★★ Ambersunshower fetar svipaða slóð og Erykah Badu sem var kosinn besti RnB- tónlistarmaður siðasta árs. RnB-tónlistarstefnan á hvað mestu fylgi að fagna í Bandaríkjunum og gætir áhrifa hennar víða, til dæm- is í New York-rappinu. Það sem hefur verið mesti akki- lesarhæll RnB-tónlistar- manna er það stílleysi sem virðist vera ríkjandi innan þessarar tónlistarstefnu. Lít- ill sem enginn munur er á lagasmíðum höfunda og er tónlistin í hæsta máta karakterlaus. Þessu breytti reyndar Erykah Badu á síðasta ári með plötunni Baduizm, þar sem hún dró sterkari áhrif úr djassi og blústónlist inn í tónlist sína, en umfram allt gaf hún sér leyfi til að vera öðruvísi. Þetta skilaði henni óteljandi verð- launum og góðum dómum fyrir tónlist sína hvarvetna. Amber- sunshower tekst vel upp á breiðskífu sinni, Walter T. Smith. Hún hefur sinn eigin stíl og er árangurinn ansi heilsteypt og skemmti- leg RnB-plata með auöheyrilegum Hip Hop-áhrifum. Hún er ágæt söngkona og einnig eru allar útsetningar á plötunni til fyrir- myndar. Ambersunshower tekst hér að lyfta RnB-stefnunni upp á skemmtilegra stig. Jón Atli Jónasson Black Grape/Stupid, Stupid, Stupid: Skemmtiplata ★★★ •"> iTpMÐ SiueuiiTWio b»ack|grape ' ’ ■ fy. *v Stupid, Stupid, Stupid, er önnur breiðskífa hljómsveit- arinnar Black Grape og nær að viðhalda því orði sem fer af sveitinni: að skapa tuttugu og fjögurra tíma partýtónlist. Þrátt fyrir að sveitin fltli við trip-hop, drum ‘n bass og teknó er platan auðþekkjan- lega Black Grape tónlist. Stupid, Stupid, Stupid var tekin upp á átta vikum og Shaun Ryder prófaði liðlega tuttugu söngútgáfur með hverju lagi. Það var því úr mörgu að velja þegar raða átti niður á plötuna. Platan byrjar á laginu Get Higher þar sem raddir Ronald og Nancy Reagan spjalla saman rnn heróínfíkn sína og má þar lesa þann húmor sem einkennir plötuna alla. Aðdáendur Happy Mondays ættu að finna eitthvað við sitt hæfi á plötunni en Ryder tekst að endurskapa Manchester rokkið með „sample“ ívafi. Þetta er ekki síst að þakka „pródúsentnum" Saber sem hefur starfað með listamönnum eins og U2, David Bowie og Marilyn Manson. Stupid, Stupid, Stupid er að mörgu leyti skemmtiplata, kald- hæönislegur húmorinn skín í gegn í hverju lagi og Black Grape er að tilraunast með ýmsar stefnur. Lögin eru mörg hver góð þó að það sé kannski ekki hægt að kalla þau frumleg. Black Grape tekst þó vel upp í því sem þeir ætla sér. Páll Svansson Saint Etienne - komin aftur Breska tríóið Saint Etienne, sem aö mörgu leyti var brautryðjandi í því að blanda saman danstónlist við áhrif frá sjötta og sjöunda ára- tugnum, hefur nú byrjað samstarf eftir nokkurra ára hlé. Þá ruddist hún fram á sjónarsviðið með dans- ballöðuna Only Love Can Break Your Heart og flutti með sér fullt af nýjum straumum inn í poppið. Fjögur ár eru frá því að hljómsveit- in kom saman síðast og hefur margt gerst í tónlistinni síðan þá og Saint Etienne eignast marga bræður í andanum. Önnur hver hljómsveit sem kveður sér hljóðs í dag notar svipaðar vinnuaðferðir við tónlist sína og Saint Etienne var brautryðandi fyrir. En hvað fóru þessi fjögur ár í að gera hjá meðlimum hljómsveitarinnar? „Við vorum bara að dútla við hitt og þetta. Eitt okkar rak klúbb, annað plötufyrirtæki og Sarah, söngkona hljómsveitarinnar, gaf út sólóplötu. Hún vill samt helst gleyma þeirri reynslu sinni,“ segir Pete Wiggs, forsprakki Saint Etienne. Á næstunni kemur út ný breið- skífa hljómsveitarinnar sem ber heitið Saint Etienne in Good Humor og er hún tekin upp að miklu leyti í Malmö í Svíþjóð af einhverjum orsökum. „Við vorum með þeim fyrstu til að nota sömpl í lögunum okkar og voru þau laglínur einhverra hljóð- færa sem ekkert okkar kunni að spila á. En á nýju plötunni fengum við frekar alvöruhljóðfæraleik þeg- ar okkur fannst vanta fleiri hljóð- færi og það gefur plötunni skemmtilegan tón,“ segir Sarah SomriLylans Uppgangur hljómsveitarinnar The Wallflowers hefur verið mikill upp á síðkastið og seldi hljóm- sveitin hátt í fjórar milljónir ein- taka af síðustu plötu sinni auk þess sem lesendur tónlistartíma- ritsins Rolling Stone völdu söngv- ara hljómsveitarinnar kynþokka- fyllsta karlmann ársins. Árið 1997 var ansi sérstakt fyrir hljómsveit- ina The Wallflowers sem var stofn- uð af Jason Dylan sem er sonur Bob Dylan árið 1992. Þá hætti hljómsveitin að spila á litlum klúbbum og fór að spila fyrir fleiri þúsund manns á íþróttaleikvöng- um um allan heim og hituöu þeir meðal annars upp fyrir Rolling Stones á tónleikum þeirra í Banda- ríkjunum. En skyldi öll frægðin hafa stigið þeim til höfuðs? „Nei í raun og veru ekki. Það besta við frægðina er að þú getur hætt hvenær sem þú vilt,“ segir Jason Dylan, söngvari hljómsveitarinn- ar. En hvað skyldi honum hafa fundist um nýjustu plötu foður síns? „Hún er pottþétt. Hann á framtíðina fyrir sér kallinn." Cracknell. „En talandi um sólóplöt- una mína þá lærði ég heilmikið á því að gera hana,“ segir hún og brosir út í annað. Danslisti Islands - tíu vlnsælustu danslögln vlkuna 24. tll 31. Jan. 1998 - 1. Don’t die just yet David Holmes 2. Black Hole 16B 3. Smoky Clinic EP Mare Ambross 4. High Naturaily Warped 69 5. Sangue le Beirona remlx Cesaria Evora 6. The Night Peter Funk 7. New Day Scott Groover 8. Stocktown City Adam Beyer 9. The Answering Machlne Mark Grant/Green Velvet 10. Too High Cutting Headz

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.