Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1998, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1998, Page 11
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1998 #n//sf . BUSH varð til árið 1992. Meðlimir sveitarinnar koma frá litlu úthverfi í London sem heitir Shepard’s Bush. Hljómsveitin kom til þegar þeir Gavin Rossdale, söngvari og gítarleikari og Nigel Pulseford gítarleikari hittust baka til á tónleikum og fóru að ræða saman. Þeir komust að þvi að þeir höfðu báðir hætt nýlega í hljómsveitum og ákváðu að slá til og stofna nýja sveit. Þeir Dave Parsons bassaleikari og Robin Goodridge trommuleikari bættust brátt í hópinn og hin nýja sveit var kölluð Future Primitive. Sú þjóðsaga hefur gengið um meðlimi sveitarinnar að þeir séu allir listmálarar og hafi upphaf- lega hist þess vegna. Það rétta er að eftir að sveitin var stofnuð unnu þeir allir sem húsamálarar á daginn á meðan þeir biðu eftir samningi við útgáfufyrirtæki. Á kvöldin var síðan reynt að troða upp á einhverjum smástöðum Lundúnaborgar. Bauð þeim samning! Og það ótrúlega gerðist! Útsend- ari útgáfufyrirtækis heyrði í sveit- inni og bauð þeim strax samning. Þeir breyttu um nafn og tóku strax við að taka upp plötuna Sixteen Sto- ne en í millitíðinni var smáskífan Everything Zen gefin út. Lagið fór á endanum í toppsæti vinsældalista og er það ekki síst að þakka út- varpsstöðinni KROQ sem er bæði staðsett í Kaliforníu og New York. Stöðin var óhrædd við að spila lög sveitarinnar meðan aðrar stöðvar fussuðu og sveiuðu. Viðtökur al- mennings létu ekki standa á sér og breiðskífan Sixteen Stone seldist í sjö milljónum eintaka í Bandaríkj- unum. Næsta plata sveitarinnar, Rcizorcut Suitcase, kom út 1996 og lagið Swallowed fór beint í fyrsta Yid erum ekki listmálarar! Útsendari útgáfufyrirtækis heyrði í sveitinni og bauð þeim strax samning. Þeir breyttu um nafn og tóku strax við að taka upp plötuna Sixteen Stone en í millitíðinni var smáskífan Everything Zen gefin út. Chemical Brothers - taka sár ársfrí Þeir Tom Rowlands og Ed Simm- ons, betur þekktir sem The Chem- ical Brothers, hafa ákveðið að taka sér ársfrí frá lagasmíðum og tón- leikahaldi til að stofnsetja sitt eig- ið útgáfufyrirtæki. Til stóð árið 1995 að þeir bræðumir færu út í eigin útgáfu en enginn tími hefur verið til þess sökum anna hjá drengjunum við að halda tónleika og endurhljóðblanda fyrir aðra tónlistarmenn. Útgáfufyrirtækið hefur hlotið nafnið Freestyle Dust og er von á fyrstu breiðskífunni frá fyrirtækinu nú í sumar. Fyrsta af- urðin verður mix-plata frá þeim bræðrum sem margir bíða sjálfsagt spenntir eftir. Ekkert er hins vegar vitað enn þá um hvaða listamenn útgáfufyrirtækið Freestyle Dust mun hafa á sínum snærum. Að- spurðir sögðust bræðurnir ekkert sakna þess að taka sér ársfrí frá hitunni sjálfri. „Þetta hefur verið draumur okkar lengi og það verð- ur spennandi að fá að vinna með öðrum listamönnum að útgáfumál- um þeirra," sögðu þeir. -JAJ Gavin Rossdale er orðinn að meir iháttar kyntákni vestra. 2/3 hlutar tónleika- gesta eru venjulega öskrandi unglingsstelpur í iíkingu við þær myndir sem við sjáum af tónieikum Bítlanna á sjöunda áratugnum. sæti Billboardlistans og hékk þar vikum saman. Nú nýverið kom svo út platan Deconstructed þar sem þekktir tón- listarmenn og „remixarar" fara höndum um lög BUSH. Nokkuð hefúr borið á gagnrýnis- röddum þegar tónlist BUSH ber á góma. Annars vegar vilja menn meina að sveitin sé að apa eftir hinni sálugu Nirvana og hinsvegar að þeir séu aðeins að selja Kanan- um bandarískt rokk í nýjum um- búðum. Gavin Rossdale stynur og svarar: „Mér finnst það hálflélegt að segja að við séum með „amerískt sánd“. Bara af því að við erum breskir þá megum við ekki hafa há- væra gítara! Það eru heldur ekki margar hljómsveitir sem likjast okkur, hvorki í Bandaríkjunum né heima.“ Kyntákn í Ameríku! Gavin Rossdale er orðinn að meiri háttar kyntákni vestra. 2/3 hlutar tónleikagesta eru venjulega öskrandi unglingsstelpur í líkingu við þær myndir sem við sjáum af tónleikum Bítlanna á sjöunda ára- > tugnum. Þó að sveitinnni hafi gengið vel vestanhafs heldur hún tryggð við aðdáendahóp sinn í Bretlandi. Fjöldi tónleikagesta í Bretlandi kemst þó ekki í hálfkvisti við að- sóknina vestanhafs og BUSH virð- ast ætla að ílendast þar sem spá- menn utan foðurlandsins. -ps Rúnar Júl. og Tryggi Hubner Tónlistarmennirnir Rún- ar Júlíusson og Tryggvi Húbner leika fyrir gesti Feita dvergsins i kvöld og annað kvöld. Land og synir I Sjallanum Hljómsveitin Land og synir leikur í Sjallanum á Akureyri annað kvöld. Mannabreytingar hafa orðið í hljómsveitinni sem er nú skipuð: Heimi Erni Heimissyni söngv- ara, Jóni Guðfinnssyni bassaleikara, Birgi Niel- sen trommuleikara, Gunnari Þ. Eggertssyni gítarleikara og Hjördísi Elínu Lárusdóttur hljóm- borðsleikara. Panorama í Hinu húsinu Hljómsveitin Panorama leikur á siðdegistónleik- um Hins hússins á Kakó- barnum Geysi í dag. Tón- leikarnir hefjast kl. 17. Aðgangur er ókeypis. i hvítum sokk- um Hljómsveitin í hvítum sokkum leikur í kvöld og annað kvöld í aðalsal Kringlukrárinnar. Trú- badorinn Ómar Diðriks- son leikur í Leikstofu krárinnar. Galabandid Galabandið ásamt Önnu Vilhjálmsdóttur leikur á Næturgalanum í kvöld og annað kvöld. Á sunnudagskvöldið leik- ur Hljómsveit Hjördísar Geirsdóttur gömlu og nýju dansana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.