Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1998, Page 12
26
í
★'
★ ★
lyndbönd
ö%ifii
Men in Black:
Verndarar mannkynsins
Tommy Lee Jones og Will Smith eru K og J,
starfsmenn háleynilegrar stoönmar sem hafa það
hlutverk að fylgjast með ferðum geimvera á jörð-
unni og sjá um aö lög og reglur séu í heiðri hafðar.
Illvíg geimpadda hleypir öllu í bál og brand og þeir
félagar þurfa að vera snöggir að ráða niðurlögum hennar áður en jörð-
inni verður tortimt. Goðsögnin um svartklæddu mennina er vel þekkt
meðal áhugamanna um geimverusögur, en Barry Sonnenfeld tekur
hana mátulega alvarlega og býr til farsakennda grínmynd í kringum
hana. Húmorinn er rækilega geggjaður og hæfilega yfirgengilegur. Will
Smith er ekki mikill leikari, en hann hefur töffaraskapinn á hreinu og
lifir á honum allavega út þessa mynd. Tommy Lee Jones stendur nokk-
uö passífur hjá meðan aðrir ærslast og myndar skemmtilega andstöðu
við Will Smith. Rip Torn er einnig sallafinn í sínu hlutverki, en lang-
skemmtilegastur er Vincent D’Onofrio í hlutverki geimpöddunnar, sem
á í stökustu vandræðum með mannlega dulargervið sitt. Þessi mynd er
tóm della frá upphafi til enda, en þannig á það einmitt að vera.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Barry Sonnenfeld. Aðalhlutverk: Tommy Lee Jo-
nes og Will Smith. Bandarisk, 1997. Lengd: 94 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ
Touch:
Kraftaverkamaður
★★★
Uppi verður fótur og fit þegar upp kemst að ró-
lyndisdrengurinn Juvenal getur læknað fólk með
snertingu sinni. Margir vilja gera sér mat úr hæfi-
leikum hans og mjólka einhverja peninga þar úr. Þ.á
m. eru söliunaðurinn og fyrrum platpredikarinn Bill
Hill og ofsatrúarkaþólikkinn August Murray, en ein
er þó sú sem vill vemda hann fyrir umheiminum og
það er Lynn, sem verður ástfangin af honum. Touch
er nokkuð skemmtileg saga en nær ekki alveg að
pluma sig. Pælingamar eru ekkert sérlega frumleg-
ar og myndin stendur því ekki undir sér sem
dramatískt verk og of miklu púðri er eytt í þær á kostnað grínsins. Út-
koman er brosleg mynd, þægileg áhorfs og stundum fyndin, en ekkert
sérstaklega eftirminnileg. Það er heilmikið af áhugaverðum leikurum í
myndinni, en af þeim er Tom Amold sá eini sem er í einhverju stuði.
Hann leikur kaþólikkann af miklum ofsa og nær alltaf fram einhverjum
brosviprum. Ég á enn eftir að sjá Skeet Ulrich gera eitthvað annaö en að
rölta um og sýnast svalur, en hann þarf ekki að gera meira i þessu hlut-
verki.
Útgefandl: Stjörnubíó. Leikstjóri: Paul Schrader. Aðalhlutverk: Skeet Ul-
rich, Bridget Fonda, Christopher Walken og Tom Arnold. Bandarísk, 1996.
Lengd: 94 mín. Öllum leyfð. -PJ
End of Violence:
Ofbeldi
Kvikmyndaleikstjórinn Mike Max, sem gerir blóð-
ugar ofbeldismyndir, kemst sjálfur í snertingu við
raunverulegt ofbeldi þegar tveir menn ræna honum
og hyggjast drepa hann. Þessir menn finnast síðan
myrtir og Mike Max hverfur sporlaust. Hann fer í
felur hjá garðyrkjumönnunum sínum og kemst að
því að ástæðan fyrir morðtilrauninni er sennilega
tölvupóstur sem hann fékk frá manni nokkrum, sem
vildi vekja athygli hans á mögulegri misnotkun nýs
eftirlitskerfis sem á að útrýma ofbeldi. Sagan er
ruglingsleg og eiginlega fremur bjánaleg. Tæknin
sem að baki henni liggur gengur einfaldlega ekki
upp og samsærið er alltof ósýnilegt og óútskýrt til að vekja athygli. Þeg-
ar við bætist að leikaramir eiga dapran dag er útkoman tóm leiðindi.
Allir þrír aðalleikaramir virðast vera að leika sjálfa sig og maður hef-
ur óþægilega á tilfinningunni að leikstjórinn hafi ekkert leikstýrt þeim,
aðeins látið þá fara með línurnar sínar, hvern eftir eigin höfði. Þegar
hann reynir síðan að binda endahnútinn á söguna var mér eiginlega
orðið alveg sama og bara feginn að leiðindin vom búin.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Wim Wenders. Aðalhlutverk: Bill
Pullnam, Andie MacDowell og Gabriel Byrne. Bandarísk, 1997. Lengd:
115 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ
Brassed Off:
Lúðrasveit verkalýðsins
★★★★
BrassedQff
Hér segir frá nokkrum kolanámumönnum í ensk-
um smábæ, sem era meðlimir í lúðrasveit verkalýðs-
félagsins. Lúðrasveitin og meðlimir hennar ramba á
barmi gjaldþrots, þvi að til stendur að loka námunni
og gera hálfan bæinn atvinnulausan. Þaö eina sem
heldur lúðrasveitinni gangandi er eldmóður stjóm-
anda hennar og svo auðvitað nýi meðlimurinn, gull-
falleg img kona sem er nýkomin á heimaslóðir eftir
nám í Lundúnum, en hún vekur mikla lukku meðal
hinna hljómsveitarmeðlimanna, sem allir era karl-
menn. Þessi mynd hefur verið auglýst sem gaman-
mynd, sem er ekki alveg sannleikanum samkvæmt,
þótt nokkrir þrandarar fjúki. í raun er myndin mikill harmleikur og á
köflum mjög átakanleg, sérstaklega hvað varðar aðalpersónuna Phil, sem
virðist vera að missa allt sem máli skiptir í lífinu. Phil er snilldarlega
leikinn af Stephen Tompkinson, sem skilar öllum þeim tilfinningum sem
krauma undir yfirborðinu á grátbroslegri persónunni, sem reynir að
þrauka og láta ekkert á bera, þótt líf hennar sé að molna niður. Aðrir leik-
arar (í sumum tilvikum öllu frægari) standa sig einnig með prýði. Þrátt
fyrir svolítið ódýran endi er Brassed Off mjög sterk og áhrifarík mynd.
Útgefandi: Háskólabíó. Leikstjóri: Mark Herman. Aðalhlutverk: Stephen
Tompkinson, Pete Postlethwaite, Tara Fitzgerald og Ewan McGregor.
Ensk, 1996. Lengd: 103 mín. Bönnuð innan 12 ára. -PJ
FÖSTUDAGUR 30. JANÚAR 1998 T|V
Myndbandalisti vikunnar
SÆTlj J FYRRI VIKA ; vikur ! ;á listaj j J TITILL ; ÚTGEF. ; j j TEG.
1 ! Ný ! i ! Men in Black ; Skífan 1 Gaman
2 ! '"í’ Ný ! i í j i Murder at 1600 ) J j Warner-myndir j Spenna J J
3 1 3 i 1 1 3 1 j 3 j Devils Own J Skífan j Spenna
j 4 i j 2 j ) i 4 J i > Absolute power J J 1 Skífan 1 j j Spenna
5 ! 3 J 9 1 j 2 j Batman and Robin J J j Wamer-myndir j Spenna
j 6 ! 4 j i ! 3 ! Horfinn heimur j j j ClC-myndbönd ; Spenna
7 J 5 ! 6 ! Con Air J Sam-myndbönd J Spenna
8 ! J 12 j J J 2 i j L J j J Blossi j Sam-myndbönd J j j Spenna
9 ! 8 ! 7. J One Fine Day ; Skífan j Gaman
io ! j 6 !; 6 ! j i Fierce Creatures i j j ClC-myndbönd • j j Gaman
ii ! 9 1 7 1 1 1 ! Dantes Peak J ClC-myndbönd ! Spenna
j 12 J j 7 j 1 j 3 J j J Spawn J J 1 Myndform 1 Spenna
13 ! 14 1 9 ‘ j 2 j City of Industy J J j Skrfan j Spenna
Hj 10 j J : * i The 6th Man j j ; Sam-myndbönd ' l ' 1 J ClC-myndbönd J J J j j j Háskólabíó j <• j ' j Gaman
15 i 11 j 9 J Liar Liar Gaman
16 1 J 16 J 1 J ) 1 I 2 j j j Gridlockd Spenna
17 ! 15 ! 4 ! Lost Highway j Myndform j Spenna
18 .! . j. Ný ! i 1 j i Brassed off ’ j j J Háskólabíó J j j Gaman
19 ! 20 J fi J j 6 j Ghosts From the Past J -1ÍX J j Skifan j Spenna
20 ; Ný j i j i j Stag j j i Bergvík J Gaman
Fjórar nýjar myndir koma inn á listann þessa vikuna og tvær
þeirra, Men in Black og Murder at 1600, raða sér efstu sætin, en
þó nokkuð neðar, eða í 18. og 20. sæti, eru hinar tvær myndirn-
ar, Brassed Off og Stag. Athyglisverðar kvikmyndir báðar tvær
sem vert er að gefa gaum. Brassed off er bresk kvikmynd sem á
skondinn hátt segir frá lífi í smábæ þar sem lúðrasveit er starf-
rækt. Við fylgjumst með þremur úr hljómsveitinni; hljómsveitar-
stjóranum, ungum manni og ungri stúlku, sem nýkomin er j
hljómsveitina. I aöalhlutverkum eru Ewan McGregor, Pete Post-
lewaite og Tara Fitzgerald. Stag er svört kómedía meö þekktum
leikurum, má nefna Mario Van Pepplers, Andrew McCarthy, Ben
Gazzara, Jerry Stiller, Taylor Dayne og Kevin Dillon. Á myndinni
eru aðalleikararnir í toppmyndinni Men in Black, Tommy Lee Jo-
nes og Will Smith.
Men in Black
Tommy Lee Jones
og Will Smith
Svartklæddu menn-
imir K (Tommy Lee
Jones) og J (Will
Smith) vinna fyrir
leynilegustu leyniþjón-
ustuna í Bandaríkj-
unum. Þeirra hlutverk
er að fylgjast með ferð-
um geimvera og halda
þeim i skefjum. K er
gamall í hettunni og
reyndur í starfi en J er
ungm- ofurhugi, ný-
kominn til starfa. Þeir
þurfa að taka á öllu
sem þeir eiga þegar iil-
víg geimpadda smeyg-
ir sér fram hjá tollyfir-
völdum og hefst handa
við að gera allt vitlaust
og vist er að þeir þurfa
á aliri sinni kunnáttu
til að halda velli.
Murder at
1600
Wesley Snipes
og Diane Lane
í Murder at 1600 er
framið morð í Hvíta hús-
inu, aðeins nokkra metra
frá skrifstofu forsetans.
Sá sem fær málið til
rannsóknar er Harlan
Regis, gamalreyndur lög-
reglumaður sem vanur er
að ná árangri í starfi.
Regis verður að fara var-
lega í rannsókn málsins
enda er hann með lítvarð-
arforingja forsetans yfir
sér. Málið verður samt
fyrst erfitt þegar grunur
beinist að syni forsetans
og ekki batnar ástandið
þegar- sönnunargögn
hverfá. Regis verður því
ljóst að eigi hann að leysa
málið þá verði hann að
finna aðstoðarmann.
Devils Own
Harrison Ford og
Brad Pitt
Þegar Frankie var
ungur drengur horfði
hann upp á grímu-
klædda menn myrða
íoður sinn. Þessi at-
burður markaði dreng-
inn og í dag, tuttugu
árum síðar, er hann í
fararbroddi IRA-
manna. Frankie er
sendur til New York
og er ætlað að smygla
flugskeytum yfir hafið
heim til írlands. í
gegnum sambönd sín
tekst honum að kom-
ast inn i landið á folsk-
um forsendum og fær
húsaskjól hjá hinum
írskættaða lögreglu-
manni O’Meara sem
grunar fljótlega að
Frankie sé ekki sá sem
hann þykist vera.
Absolute
Power
Clint Eastwood og
Gene Hackman
Luther Whitney er
meistaraþjófúr sem telur
sig kunna ráð við öllum
vanda. Harrn gat samt ekki
séð fýrir að eiginkona auð-
ugs kaupsýslumanns yrði
heima einmitt það kvöld
þegar hann ákveður að
ræna híbýh hans og hann
gat heldur ekki séð fyrir að
elskhugi hennar kæmi í
heimsókn og því síður að
þau myndu lenda í átökum
sem enduðu á þann veg að
hún liggur dauð uppi í
rúmi. Hápunkturinn á
óheppninni er þó að elsk-
huginn er sjálfúr forseti
Bandaríkjanna Skyndi-lega
þarf Luther að glíma við
valdamesta mann í heimi
sem vffl hann dauðan.
Batman &
Robin
George Clooney
og Arnold
Schwarzenegger
Eitthvað ískalt er á
sveimi í Gothamborg. Nýr
glæpamaður er kominn til
sögunnar og eina von
borgarbúa er Batman, sem
fyrr er tilbúinn i bardag-
ann við manninn sem
fæddur er með kalt blóð,
hr. Frosta. Það ganga fieiri
glæpamenn lausir um göt-
ur Gothamborgar. Hér er
um að ræða hina mögnuðu
Eitruðu-Ivy sem er jafn
hættuleg og hún er fögur.
Hún drepur með kossi sín-
um. Þegar hún og hr.
Frosti snúa bökum saman
virðist ekkert geta komið í
veg fyrir þær hörmungar
sem bíða í Gothamborg.