Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998
Fréttir
Fundað um umferðartruflanir að Grafarvogi:
Beðið eftir grænu Ijósi
- borgin framkvæmir sjálf ef ekki berst svar frá ríkinu
Halldór Blöndal samgönguráðherra og Guðrún Agústsdóttir, forseti borgarstjórnar, sátu við pallborð á fundi Sjálf-
stæðisfélags Grafarvogs um það ófremdarástand sem rfkir í umferöarmálum í Grafarvogi. DV-mynd Pjetur
Guðrún Ágústsdóttir, forseti
borgarstjómar, lýsti því yfir á fundi
hjá Sjálfstæðisfélaginu í Grafarvogi
í gærkvöldi að ef ekki bærist svar
frá samgönguráöherra um erindi
borgarstjómar innan tveggja vikna
myndi borgin sjálf ráðast i fram-
kvæmdir við Gullinbrú. Guðrún
vísaði í þessu sambandi til bréfs
borgarstjóra til þingmanna Reykja-
víkur þar sem farið er fram á að
þeir afli heimildar til að Vegagerðin
geti tekið boði Reykjavíkur um lán
til framkvæmdarinnar. Hún telur
nauðsynlegt að það gerist hið fyrsta
svo hægt verði að byrja fram-
kvæmdir og klára fyrirhugaðan
verkhluta fyrir haustið.
Vegurinn um Gullinbrú er svo-
kallaður þjóðvegur í þéttbýli og
heyrir því undir samgönguráðu-
neyti. Guðrún segir að framkvæmd-
ir verði hafnar þótt tvísýnt sé með
framlög rikisins. „Komi grænt ljós
frá ríkinu er hægt að bjóða verkið
út eftir eina til tvær vikur.“
Ef þetta gengur eftir verða fram-
kvæmdir í ár þær að gatan verður
breikkuð og sett verða upp umferð-
arljós þar sem hringtorgið við Fjall-
konuveg er nú. Brúin verður hins
vegar ekki breikkuð fyrr en á næsta
ári.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra gaf lítið út á tilboð borgarinn-
ar í ræðu sinni. Hann sagði þó að ef-
laust væri það gott fyrir Vegagerð-
ina að losna við Gullinbrú þar sem
næg önnur verkefni væru í borg-
inni.
Hættulegt ástand
Til fundarins var boðað vegna
ófremdarástands sem rikt hefur i
umferðarmálum Grafarvogsbúa
undanfarin ár. Á fundinum kom
fram mikil óánægja með ástandið
og að ekki hefði verið aðhafst eitt-
hvað í málinu fyrir löngu. Sögðu
fundarmenn að ekki væri viöun-
andi fyrir 14 þúsund manna byggð
að hafa aðeins tvær leiðir út sem
báðar væru mjög takmarkaðar að
vetri til. Slíkt væri mjög hættulegt.
í gær og fyrradag hefði til dæmis
auðveldlega geta skapast neyðará-
stand þar sem umferðarhnúturinn
var slíkur að erfitt hefði verið að
koma sjúkrabílum inn í hverfið.
Töldu menn að til að viöunandi
væri yrði á næstu árum að hefjast
handa við lagningu Sundabrautar
yfir Kleppsvík.
Fundarmenn lýstu einnig yfir efa-
semdum sínum um að breikkun
brúarinnar sjálfrar yrði fyrr en á
næsta ári.
Lengi að gerast
Nokkrar umræður urðu einnig
um hver bæri sök á því að ekki
hefði veriö aðhafst eitthvað fyrir
löngu. Guðrún Ágústsdóttir sagði að
samgönguráðuneytið hefði ekki tek-
ið tilboði borgarinnar um lán til
framkvæmdanna á síðasta ári en
borgin hefði verið tilbúin tU fram-
kvæmda. Samgönguráðherra lýsti
aftur á móti furðu sinni á því að
Gullinbrú hefði ekki verið komin
fyrr á áherslulista borgaryfirvalda -
því væri ekki við hann að sakast.
-sm
KA tekur við
rekstri Hót-
el Selfoss
Selfosskaupstaður, eigandi
húsnæðis Hótel Selfoss, hefur
gert leigusamning við Kaupfélag
Rangæinga um
rekstur hótels-
ins frá og með 5.
febrúar.
Þann 4. febrú-
ar óskaði
rekstraraðUi
hótelsins, H.R.
ehf., eftir því að
verða leystur
undan leigusamningi vegna
rekstrarörðugleika. Með aðstoð
Atvinnuþróunarsjóðs Suðurland
var hægt aö koma í veg fyrir að
rekstur hótelsins stöðvaðist en
slíkt hefði haft neikvæð áhrif á
ferðaþjónustu á Suðurlandi. -sm
$
A-flokkarnir í Hafnarfiröi:
Allir út nema tveir
Algjör uppstokkun á nýjum framboöslista
Hugmyndir uppstUlinganefndar
A-flokkanna eru enn i mótun en síð-
asta tUlaga gerir ráð fyrir að flest-
um sitjandi bæjarfuUtrúum A-flokk-
anna verði skipt út, þeirra á meðal
Ingvari Viktorssyni, bæjarstjóra,
oddvita krata, og Magnúsi Jóni
Árnasyni, oddvita Alþýöubanda-
lags. Þá er aðeins gert ráö fyrir að
einn núverandi bæjarfuUtrúi af
hvorum lista séu inni, þeir Ómar
Smári Ármannsson, Alþýðuflokki,
og Lúðvík Geirsson, Alþýðubanda-
lagi.
Síðasti listi uppstUlinganeftidar
lítur svona út: 1. Gestur Gestsson
markaðsstjóri (A), 2. Guðrún Áma-
dóttir (G), 3. Hafrún Erla Bogadótt-
ir húsmóðir (A), 4. Lúðvík Geirsson,
formaður Blaðamannafélags íslands
(G), 5. Emil Lárus Sigurösson
heUsugæslulæknir, (A), 6. Ómar
Smári Ármannsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn (A).
UppstUlinganefnd hefur hins
vegar ekki enn lokiö störfum, mun
hittast á laugardegi og sunnudegi
en félagsfundum í flokkunum hef-
ur verið frestaö fram á mánudags-
kvöld. Talið er víst að þessi listi
muni hnikast eitthvaö tU áöur en
yfír lýkur. Óstaðfestar heimUdir
segja að Magnúsi Jóni og/eða
Ingvari hafi verið boðin skóla-
stjórastaða Öldutúnsskóla sem
sárabætur en sú staða losnar innan
árs. Merkasti nýliðinn í þessum
hópi er talinn vera EmU Lárus,
enda bamabarn EmUs Jónssonar,
fyrmm ráðherra og eðalkrata. Þá
er enn óútkljáð hvort frambjóðend-
ur Alþýðuflokks verða 13 eða 12 og
einn verði þá óháður. Alþýðu-
bandalag verður því með níu fuU-
trúa af tuttugu og tveimur. -phh
Verölaunahafar VÍS: Ólafur Halldórsson fiskifræðlngur, Jónas Ingimundar-
son pfanóleikari og Jóhann Sigurðsson útgefandi. DV-mynd Pjetur
Tónlist, lúða og sögur
Þrír afreksmenn, hver á sínu
sviði, tóku í gær við menningar-
verðlaunum VÍS úr hendi forseta Is-
lands. Þau eru veitt árlega einstakl-
ingum sem skara fram úr á sviði
lista og vísinda.
Jónas Ingimundarson píanóleik-
ari fékk eina milljón króna fyrir af-
rek á tónlistarsviðinu. Hann hefur
haldið íjölda tónleika hérlendis og
erlendis og skipulagt og stýrt um-
fangsmiklu fræðslustarfi á tónlist-
arsviðinu, bæði fyrir böm og full-
orðna.
Ólafur Halldórsson fiskifræðing-
ur hlaut 500.000 krónur fyrir störf
sín að lúðueldi. Hann er fram-
kvæmdastjóri Fiskeldis Eyjafjarðar
sem er leiðandi á sínu sviði í heim-
inum.
Jóhann Sigurösson, fram-
kvæmdastjóri bókaútgáfunnar Leifs
Eiríkssonar, hlaut 500.000 krónur
fyrir að ráðast í að láta þýða og gefa
út allar íslendingasögurnar á
ensku. 'The Complete Sagas of
Icelanders era í fimm stóram bind-
um á alls 2.300 blaðsíðum. Yfir
fimmtíu manns og þar af þrjátiu
þýöendur í þremur heimsálfum
unnu að verkinu.
Formaður sjóðsstjómar er Kjart-
an Gunnarsson.
-SA
Stuttar fréttir dv
Hafnarfjarðarlisti
Jóhann G. Bergþórsson hefur
skráð nafnið
Hafnarfjarðar-
listinn í firma-
skrá. Dagur
segir það
benda sterk-
lega til þess að
hann bjóði
fram til bæjar-
stjómarkosninga í vor.
Styrking gagnvart doilar
Gjaldmiðlar Asíu styrktust í
gær gagnvart doOar en helsta
ástæða þess er gengissig dollars-
ins. Ringitið í Malasiu styrktist
um 1,27% gagnvart dollar í nótt
og var 3,90. Rúpían í Indónesíu
féll um 1,55%, batið í Taílandi
steig um 1,66%, pesinn á Filipps-
eyjum féll um 0,76%, Singapore-
dollarinn steig um 0,12%, Tævan-
dollarinn féll um 0,23% og
kóreska vonnið steig um 1,78%.
ísal á flugi
Rekstrarhagnaður Isals síöasta
ár var sá mesti í sögu félagsins.
Efld háskólamenntun
Deildarfundur Raunvísinda-
deildar Háskólans í gær fagnar
samningum sem gerðir hafa ver-
ið um útflutning á þekkingu og
telur að þeir kalli á eflingu há-
skólamenntunar í raunvísindum.
Nýr prestur
Karl Sigurbjömsson, biskup ís-
lands, vígir nýj-
an prest í Dóm-
kirkjunni á
sunnudag. Sá
er Sigurður
Grétar Helga-
son sem vígist
tO Seltjarnar-
nessprestakalls.
Tvísköttunarsamningur
Stjórnvöld hafa gert tvískött-
unarsamning við PóOand. Hann
veröur undirritaður síðar á ár-
inu og tekur fuOt gOdi eftir aug-
lýsingu í Stjómartíðindum.
Meira tekið af litlu
Lögmannafélag íslands hvetur
Alþingi tU að endurskoða nýleg-
ar 15-20% hækkanir á gjöldum
fyrir fullnustuaðgerðir og réttar-
gjöld. Þessi gjöld séu fyrst og
fremst greidd af þeim sem era í
fjárhagsvandræðum fyrir.
Ríkið stórlega brotlegt
Ríkiö braut gegn stjórnar-
skránni og jafhréttislögum þegar
það neitaði að greiða karlmanni
laun í fæðingarorlofi. Hæstirétt-
ur hefur feOt dóm í málinu.
Mikill Svartfuglsdauði
Mikiö af dauðum svartfugli
hefur rekið á fjörur Suðurlands.
Fuglinn er talinn hafa drepist úr
sulti. RÚV sagði frá.
Verkfallsgreiðslur
Formaður verkalýðsfélagsins
Baldurs á ísafirði hvetur félags-
menn tO að telja ekki fram til
skatts greiðslur sem þeir fengu
úr verkfaOssjóði í vor.
Rifist um hálendið
Framsóknarmennirnir Siv
Friðleifsdóttir og PáO Pétursson
deOdu hart í umræðum um þjóö-
lenduframvarp forsætisráðherra
á þingi í gær. Siv hefur lýst and-
stöðu við frumvarp Páls um
framlengingu á stjómsýslu sveit-
arhreppa tO miðhálendisins.
Verkbannið ólöglegt
Félagsdómur dæmdi í gær
verkbannsboðun LÍÚ vegna sjó-
mannaverkfaOsins ólöglega.
Framkvæmdastjóri VSÍ gagnrýn-
ir dóminn harðlega.
Svanfríður til krata
Svanfríður Jónasdóttir, alþingis-
maður Þjóð-
vaka, hefur
gengiö til liös
við Alþýðu-
flokkinn. Hún
segir við Morg-
unblaðið aö
þetta sé rökrétt
skref í ljósi
samstarfs Þjóð-
vaka og jafnaðarmanna á þingi. -SÁ