Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998
Fréttir_________________________________________________pv
Yfirlögregluþjónn segir Atla Gíslason hafa farið offari í Franklínsmálinu:
Hart á móti hörðu
- dómsmálaráðuneytið biður lögreglustjóra að kanna hvort fleiri mál séu „týnd“
Stálin stinn mætast í afstööu
Atla Gíslasonar, lögmanns og
yfirstjómar lögreglunnar,
gagnvart skýrslu Atla um mál-
efni Franklíns Steiners. Mikil
vinna með tilheyrandi bréfa-
skriftum hefur farið fram á
báða bóga frá því um jólin.
„Máliö er ekki búið,“ segja
menn og hefur dómsmálaráðu-
neytið verið eins konar mið-
stöð í málinu.
Guðmundur Guðjónsson yf-
irlögregluþjónn settist niður
um jólin og skrifaði langa og
harðorða greinargerð þar sem
hann mótmælti m.a. gagnrýni
Atla á yfirstjóm lögreglunnar.
í henni segist hann m.a. telja
Atla hafa farið offari í rann-
sókn gagnvart sér sem yfirlög-
regluþjóni og talar einnig um
leit aö ávirðingum. Atli varði
síðan, við annan mann,
nokkmm dögum í janúar við
að fara yfir gögn í því skyni að
svara mótmælum Guðmundar.
Eru fleiri mál týnd?
Dómsmálaráðuneytið gekk í
gær frá bréfi til Lögreglustjór-
ans í Reykjavík þar sem það er
lagt fyrir embættiö aö kanna
hvort fleiri mál hafi „týnst“ -
önnur en títtnefnd Furugmnd-
ar- og Tunguvegsmál, fíkni-
efnamál sem voru tengd
Franklín Steiner.
„Ég hef ekki fengið slíka
beiðni," sagði Böðvar Bragason
lögreglustjóri við DV í gær. „Ef
hún veröur lögð fram þá er það mín
skoðim að sérstök rannsókn fari
fram á því. Þá myndi sjálfstæöur ut-
anaðkomandi aðili framkvæma þá
rannsókn."
Böðvar vildi að öðru leyti ekki tjá
sig um Franklíns Steiners-skýrslu
Atla.
Tiiurð bréfs dómsmálaráðuneyt-
isins til lögreglustjóra var fyrir-
spum Margrétar Frímannsdóttur
þingmanns til ráðherra um það
hvort það sé algengt aö mál dagi
uppi hjá Lögreglunni í Reykjavík.
Atli/Guömundur
Skýrsla um rannsókn Atla Gísla-
sonar á meintum tengslum Frank-
líns Steiners og fikniefhadeildar lög-
reglunnar var lögð fram i júní. Eft-
ir aö ríkissaksóknari hafði tekið af-
stöðu til hennar í haust - að ekki
væri ástæöa til að ákæra neinn -
skrifaði Böðvar Bragason lögreglu-
stjóri langa greinargerð þar sem
margar og ítarlegar athugasemdir
vom gerðar við skýrslu Atla.
Nokkmm dögrnn fyrir jól gekk
Guðmundur Guðjónsson á fund Atla
og síðan ráðuneytismanna þar sem
hann fór fram á að ávirðingar um
sig sem yfirlögregluþjón yrðu leið-
réttar.
Á jóladag settist Guðmundur sið-
an niður og ritaði langa og harðoröa
skýrslu um rannsókn og greinar-
gerð Atla - þar talaði hann m.a. um
að Atli hafi tekið sig út og leitað
gaumgæfilega af ávirðingum á sig.
Guðmundur greindi frá því hve
hann teldi ómaklega að sér vegið i
skýrslu Atla.
Guðmundur sendi þessa harð-
orðu skýrslu til Atla og ráðuneytis-
ins á miili jóla og nýárs.
Atli samþykkti aö
leiörétta ef . . .
Eftir þetta samþykkti Atli að
„fara yfir“ athugasemdir Guömund-
ar og kvaðst reiðubúinn til að leið-
Fréttaljós
Óttar Sveinsson
rétta atriði í sinni skýrslu ef á dag-
inn kæmi að hann hefði einhvers
staðar haft rangt við. Atli fékk síð-
an með sér mann í janúar til að fara
yfir sína upphaflegu skýrslu.
Þann 23. janúar afhenti Atli
dómsmálaráöuneytinu svar við
bréfi Guðmundar. Þar kom fram að
ekkert sem varðaði yfirstjóm og
skipulagsmál lögregluembættisins
gagnvart ávana- og fikniefnadeild
lögreglunnar hefði ekki staðist í
hinni upphaflegu skýrslu. Atli sá
ekki ástæðu til að leiðrétta neitt. Á
hinn bóginn féllst Atli á þau sjónar-
mið að gagnrýni hans hafi beinst að
skipulagi og starfsemi lögregluemb-
ættisins áður en ný lögreglulög tóku
gildi á síöasta ári.
Guðmundur er enn ósáttur. Hann
hefur að undanfomu unnið að því
að skrifa annað bréf sem dómsmála-
ráöuneytið á von á.
Þegar DV hafði samband við Guð-
mund í gær kvaðst hann ekki vilja
ræða þetta mál í fjölmiðlum.
Skýrsluna á aö birta
Mikil spenna hefur ríkt um það
hvort birta eigi skýrslu Atla Gísla-
sonar. Eftir því sem DV komst næst
í gær mun ekki líða á löngu áður en
það verður gert. Um birtingu segir
Böðvar Bragason:
„Mín skoðun er að það eigi að
birta skýrsluna. Mér virðist nauð-
syn á að hreinsa andrúmsloftið í
kringum hana. Það verður ekki gert
nema að birta hana.“
Ráðuneytið hefur óskað eftir því
við Boga Nilsson ríkissaksóknara
að hann kanni hvort ekki sé gmnd-
völlur fyrir því að skýrslan veröi
birt. Ríkissaksóknaraembættið er
með forsjá yfir skýrslunni og fer
þannig með ákvöröunarvald um það
hvort eigi að birta hana eða ekki.
Forveri Boga, Hallvarður Einvarðs-
son, taldi ekki viðeigandi aö birta
skýrsluna þegar hann lét af embætti
um áramótin.
Samkvæmt heimildum DV er það
skoöun dómsmálaráðuneytisins að
skýrsluna eigi að birta. Einnig hef-
ur komiö fram þrýstingur frá al-
þingismönnum að slíkt eigi að gera.
Á aö grípa til aögeröa?
DV náði ekki sambandi við dóms-
málaráðherra til að spyrja hann að
því hvort gripið verði til aðgerða í
Ijósi þess að komið hefúr á daginn
að tvö fíkniefnamál hafa nánast dag-
að uppi.
Þaö viðhorf hefur hins vegar
komið fram að þar sem „tekiö hefur
verið til“ í skipulagsmálum og yfir-
stjóm lögreglunnar í Reykjavík sé
ekki ástæða til að gripa til aögerða.
Á hinn bóginn er alveg óljóst hvað
og hvort eitthvað muni koma út úr
rannsókn hlutlauss aðila um að
fleiri mál hafi týnst hjá lögreglunni
í Reykjavík eöa ekki.
Riöa á bæ í Svarfaðardal:
Allt fé skorið niður
DV, Dalvík:
Enn hefúr verið staöfest riðutil-
felli í Svarfaðardal, nú á Ingvörum.
Nýverið voru tvær 2ja vetra ær það-
an, sem grunur lék á aö væru sýkt-
ar, sendar til Rannsóknarstöðvar-
innar að Keldum til frekari rann-
sóknar. Niðurstöður staöfesta að
um riðusýkingu er aö ræða. Að
sögn Sigurðar Sigurðarsonar, dýra-
læknis að Keldum, er líklegt að allt
fé á Ingvömm verði skorið niður á
næstunni.
Sigurður dýralæknir segir að sú
stefna að skera alveg niöur stofna
þar sem greinst heföi sýkt fé og sótt-
hreinsa fjárhús og hlöður hafi
vissulega skilað talsverðum ár-
angri. Það er hins vegar margt
óljóst um smitleiðir riðuveiki og
stöðugt unniö að rannsóknum þar
að lútandi. Það hefúr gengið sér-
staklega erfiðlega að uppræta veik-
ina í Svarfaðardal.
Allt fé í dalnum var skorið niöur
1989. Það hafa verið staðfest tilfelli á
sex bæjum eftir fjárskipti. Þar af
tvívegis á Ingvörum og það er mun
hærra hlutfall en gerist og gengur í
öðmm hémðum á landinu þar sem
gripið hefur verið til slíkra aðgerða.
Eftir því sem DV hefur fregnað er
talsverður urgur í mörgum bænd-
um í Svarfaðardal. Telja þeir aö sú
leiö að skera niður greinist riða í
einni kind hafi ekki skilaö þeim ár-
angri sem til var ætlast og vilja leita
annarra leiða.
-hiá
Smáey VE kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum klukkan 9 í gærmorgun. Magnús Kristinsson, útgerðarmaöur
skipsins, tók sjálfur við landfestum. Skipið veiddi lítið í hinni umdeildu ferð sinni. DV-mynd BG
Smáey VE komin til hafnar:
Lítil veiði í umdeildri ferð
DV, Eyjum:
Smáey VE kom til hafnar í Vest-
mannaeyjum klukkan 9 í gærmorg-
un. Um borð var fimm manna
áhöfn, skipstjórinn, tveir vélstjórar
og tveir stýrimenn. Skipið hafði
sem kunnugt er siglt úr höfh í Eyj-
um á þriðjudagskvöld, tæpum sólar-
hring eftir að sjómannaverkfallið
hófst.
Mikil óánægja myndaðist meðal
sjómanna þar sem þeir töldu áhöfn
Smáeyjar fremja verkfallsbrot með
því að ganga í störf undirmanna á
skipinu. Sem kunnugt er gengu sjó-
menn af samningafundi í fyrradag
til að mótmæla meintum verkfalls-
brotum útgerðarmanna. Magnús
Kristinsson, útgerðarmaður skips-
ins, tók á móti því við komuna til
hafnar.
Skipið veiddi lítið í hinni um-
deildu ferð, aðeins tæp 9 kör, enda
mikil bræla á miðunum, að sögn
áhafnarinnar.
„Eftir allt það upphlaup og
darraðardans sem varð í samninga-
viðræðum vegna siglingar skipsins
ákvað útgeröin í samráði við áhöfn-
ina að snúa því við. Með þvi erum
við að reyna að fá aðila aftur að
samningaborðinu," segir Magnús
en hann er í samninganefnd útgerð-
armanna í deilunni.
-RR
Akureyri:
88 milljónir í gatnagerð
DV, Akureyri:
Framkvæmdanefnd Akureyrar-
bæjar hefur ákveðið að til gatna-
gerðaframkvæmda á árinu fari 88
milljónir króna. Helsta nýffarn-
kvæmd verur viö Hólabraut frá
Búnaðarbanka aö Ráðhústorgi og
þá verða einnig kostnaöarsamar
framkvæmdir í Norðurgötu.
Gísli Bragi Hjartarson, formað-
ur framkvæmdanefndarinnar, seg-
ir aö í nýbyggingu gatna sé áætlað
að verja 44,3 milljónir króna. Þar
ber hæst götur á nýju iðnaöar-
svæði skammt frá Krossanesi. í
gerð gangstétta og stíga er áætlað
að verja yfir 20 milljónum króna
og 6 milljónum til umferðarmála.
Meðal framkvæmda á þeim vett-
vangi verða umferðarljós á gatna-
mótum Þórunnarstrætis og
Hrafnagilsstrætis sem eru ein
hættulegustu gatnamót bæjarins.
Þá er reiknað með að Vegagerðin
muni setja upp umferðarljós á
mótum Hlíðarbrautar og Hörgár-
brautar. -gk