Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Blaðsíða 26
42 FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998 I Messur Árbæjarkirkja: Guðsþjónusta kl. 11 ár- degis. Barnakór Árbæjarkirkju syngur. Vænst er þátttöku fermingarbarna. Barnaguðsþjóriusta kl. 13. Foreldrar eru velkomnir meö bömum sinum. Áskirkja: Bamaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Ámi Bergur Sig- urbjömsson. Breiöholtskirkja: Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. 5 ára börn fá bókagjöf og boð- iö upp á hressingu. Gísli Jónasson. Bústaðakirkja: Bamamessa kl. 11. For- eldrar hvattir til þátttöku með bömun- um. Guðsþjónusta kl. 14. Bamakór Bú- staöakirkju syngur. KirkjukafFi eftir messu. Pálmi Matthíasson. Digraneskirkja: Messa kl. 11. Sr. Yrsa Þórðardóttir prédikar. Sunnudagaskól- inn á sama tíma. Léttur málsverður eft- ir messu. Dómkirkjan: Prestsvígsla kl. 11. Biskup íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, vig- ir cand. theol Sigurð Grétar Helgason til prests i Seltjamarnessókn. Bænaguðs- þjónusta kl. 14. Prestur sr. Hjalti Guð- mundsson. Bamasamkoma kl. 11 í safn- aöarheimilinu. EUiheimiliö Grund: Guðsþjónusta kl. 10.15. Guðmundur Óskar Ólafsson. FeUa- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústs- son. Bamakór FeUa- og Hólakirkju syng- ur. Bamastarf á sama tíma. Prestamir. Frikirkjan í Reykjavík: Guðsþjónusta kl. 14. Fcrmd verða: Ágúst Heiðar Hjart- arson, Hálfdán Helgi Haröarson og Lís- bet Harðardóttir. Barnaguðsþjónusta kl. 11.15. Prestur sr. Magnús B. Bjömsson. Gaulverjabæjarkirkja: Messsa kl. 14. Sóknarprestur. Grafarvogskirkja:Bamaguðsþjónusta kl. 11 i Engjaskóla. Bamaguðsþjónusta kl. 11 i Grafarvogskirkju. Messa kl. 14 í Grafarvogskirkju. Kaffl og veitingar. Guðsþjónusta á Hjúkmnarheimilinu Eir kl. 16. Sorgarhópur hefst mánudaginn 9. febr. kl. 20 í umsjá prestanna. Grensáskirkja: Bamastarf yngri og eldri kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11. Barna- kór Grensáskirkju syngur. Sr. Ólafúr Jó- hannsson. Hafharfjarðarkirkja: Sunnudagaskól- ar í Hvaleyrarskóla, Setbergsskóla og safnaðarheimilinu Strandbergi kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11, sr. Gunnþór Inga- son. Tónlistarguðsþjónusta kl. 18, ein- söngvarar úr kirkjukómum. Prestur sr. Þórhiidur Óiafs. Hallgrfmskirkja: Fræðslumorgunn kl. 10. Unglingurinn i borgarsamfélaginu: Gisli H. Friðgeirsson. Bamasamkoma og messa kl. 11. Háteigskirkja: Bamaguðsþjónusta kl. 11. Sr. Helga Soflla Konráðsdóttir. Messa kl. 14. Sr. Ágúst Sigurðsson prédikar. Sr. Maria Ágústsdóttir þjónar fyi'ir altari. Hjallakirkja: Messa kl. 11. Sr. lris Kristjánsdóttir þjónar. Bamaguðsþjón- usta kl. 13. Prestamir. Hvammstangakirkja: Bamaguðsþjón- usta kl. 11. Áhersla á iðju bamanna und- ir heitinu: „Við erum hluti af himna- ríki". Keflavfkurkirkja: Sunnudagaskólinn kl. 11. Munið skólabllinn. Poppguðsþjón- usta kl. 14. Prestur sr. Sigfús B. Ingva- son. Kópavogskirkja:Barnastarf i safnaðar- heimilinu Borgum kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Jón Bjarman. Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands biskups: Fjölskyldumessa kl. 11, bama- starfið tekur þátt i messunni. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Kaffisopi eftir messu. Laugameskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Bamastarf á sama tíma. Prestur sr. Hali- dór S. Gröndal. Kvöldmessa kl. 20.30 með jasskvartett og söng. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Lágafellskirkja: Guðsþjónusta kl. 14. Bamastarf í safnaðarheimilinu kl. 11. Jón Þorsteinsson. Neskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Starf fyrir 8-9 ára börn á sama tima. Opið hús frá ki. 10. Kirkjubíllinn ekur. Guösþjónusta kl. 14. Sr. Frank M. Hall- dórsson. Innri-Njarövíkurkirkja: Sunnudaga- skólinn kl. 11 fer fram í Ytri-Njarðvíkur- kírkju. Börn sótt að safnaðarheimilinu kl. 10.45. Ytri-Njarðvíkurkirkja: Sunnudaga- skólinn kl. 11. Brúðuleikhús. Foreldrar eru hvattir til að mæta með bömum sín- um. Baldur Rafn Sigurðsson. Óháöi söfnuðurinn: Guðsþjónusta kl. 14. Barnastarf á sama tima. Kjartan Jónsson kristniboði prédikar og kynnir kristniboðið. Kafli eftir messu. Seljakirkja:Krakkaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðs- son prédikar. Prestamir. Seltjamameskirkja: Bamastarf kl. 11. Seltimingar eru hvattir til að sækja prestsvigslu í Dómkirkjuna kl. 11. Skálholtskirkja: Messa kl. 11. Sókn- arprestur. Stokkseyrarkirkja: Bamaguðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur. Torfastaðakirkja: Messa kl. 14. Sókn- arprestur. Afmæli__________________ Anna Sigurðardóttir meistari að Brekku; Þor- steinn, f. 7.5. 1965, húsa- smiður í Borgarnesi, kvæntur Guðbjörgu Sól- veigu Sigurðardóttur, sjúkraliða og læknarit- ara og er dóttir þeirra Ósk, f. 30.7. 1996, d. 7.8. 1996; Gunnar Þór, f. 15.11. 1970, bóndi að Brekku, kvæntur írisi Ingu Grönfeldt íþrótta- fræðingi og er sonur þeirra Bjarki Þór, f. Anna Sigurðardóttir. Sigurður Anna Sigurðardóttir, húsfreyja og bóndi að Brekku í Norðurárdal, verður sextug á mánudaginn. Starfsferill Anna fæddist í Hrísdal í Mikla- holtshreppi á Snæfellsnesi og ólst þar upp. Hún stundaði nám við Húsmæðraskólann að Varmalandi í Borgarfirði 1956-57. Á unglingsárunum stundaði Anna verslunarstörf að Vegamót- um í Miklaholtshreppi, vann siðan nokkra mánuði við vetrarhótel í Liilehammer í Noregi, starfaði í Kaupfélagi Ólafsvíkur vetuma 1957-59 og á City-hotel í Reykjavík vetuma 1959-62 en vann á búi for- eldra sinna á sumrin. Sumarið 1962 starfaði hún við Hreðarvatnsskála en það haust flutti hún að Brekku þar sem hún hefur síðan verið hús- freyja og bóndi. Fjölskylda Anna giftist 9.2. 1963 Þorsteini Þórðarsyni, f. 4.12. 1930, bónda að Brekku. Þau eiga því þrjátíu og fimm ára hjúskaparafmæli á mánu- daginn. Hann er sonur Þórðar Ólafssonar frá Desey sem lést 5.9. 198Í, og Þórhildar Þorsteinsdóttur frá Hamri í Þverhárhlíð sem lést 14.9. 1982. Böm Önnu og Þorsteins eru Þórður, f. 31.5. 1963, húsasmíða- 14.10. 1994; Þórhildur, f. 24.6. 1977, verslunarmaður í Reykjavík. Dóttir Þorsteins frá því áður og Soffiu Jónsdóttur er Sigurbjörg, f. 24.9. 1955, doktor í ónæmisfræðum í Reykjavík en sambýlismaður hennar er Ámi Þór Sigurðsson, hagfræðingur og borgarfulltrúi og em böm þeirra Sigurður, Ambjörg Soffia og Ragnar. Systkini Önnu; Hjörleifur, f. 9.5. 1919, d. 1989, verkstjóri hjá Vega- gerð ríkisins, var búsettur í Hnífs- dal og Ólafsvík; Kristján Erlendur, f. 7.9.1920, d. 2.1. 1987, bóndi í Hrís- dal í Miklaholtshreppi; Sigfús, f. 19.2. 1922, fyrrv. kaupfélagsstjóri, búsettur í Reykjavík; Kristjana El- ísabet, f. 27.3. 1924, húsfreyja að Hlíðarholti í Staðarsveit; Áslaug, f. 30.8. 1926, d. 23.12. 1997, húsfreyja í Reykjavík; Valdimar, f. 5.9. 1928, d. 1995, lög- regluflokkstjóri í Reykja- vík; Elín Guðrún, f. 22.7. 1930, ljósmóðir í Stykkis- hólmi; Olga, f. 9.8. 1932, fyrrv. veitingakona í Reykjavík; Magdalena Margrét, f. 26.9. 1934, húsfreyja á ísafirði; Ás- dís, f. 22.2. 1941, hús- freyja í Reykjavík. Foreldrar Önnu voru Kristjánsson frá Hjarðarfelli í Mikla- holtshreppi, f. 5.10. 1888, d. 19.9. 1969, bóndi í Hrísdal í Miklaholts- hreppi, og k.h., Margrét Oddný Hjörleifsdóttir frá Hofsstöðum í Miklaholtshreppi, f. 26.9. 1899, d. 9.8. 1985, húsfreyja í Hrísdal. Ætt Foreldrar Sigurðar vom Kristján Guðmundsson, b. i Straumfjarðar- tungu og að Hjarðarfelli, og k.h., El- ín Ámadóttir frá Stafholti í Staf- holtstungum. Foreldrar Margrétar Oddnýjar vom Hjörleifur Bjömsson, f. á Breiðabólstað á Álftanesi, b. á Hofs- stöðum í Miklaholtshreppi, og k.h., Kristjana Elísabet Sigurðardóttir. Anna tekur á móti gestum í Mxm- aðamesi í Borgarfirði laugard. 7.2. nk. miili kl. 14.00-18.00. Rafn Kristjánsson Jóhannes Rafn Krist- jánsson byggingatækni- fræðingur, Lækjarseli 2, Reykjavik, er fimmtugur í dag. Starfsferill Rafn fæddist viö Hraunteiginn í Reykjavík en ólst upp í Vesturbæn- um við Sólvallargötu. Rafn var í Melaskólan- um, lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Vest- urbæjar, hóf nám í húsa- smíði hjá Páli Guðjónssyni húsa- smíðameistara 1965, stundaði nám viö Iðnskólann í Reykjavík, lauk sveinsprófi 1968, öðlaðist meistara- réttindi 1991, hóf nám við Tækni- skóla íslands 1968 og útskrifaöist þaðan sem byggingatæknifræðingur 1973. Rafn hóf störf hjá Verkfræðistof- unni Fjarhitun 1973 og hefur starfað þar síðan við hönnunar- og eftirlitsstörf. Hann starfaði á vegum Fjarhit- unar hf. á Blönduósi, Hvammstanga og Skaga- strönd á árunum 1977-80. Rafn er meðlimur í Tæknifræðingafélagi ís- lands, Ráðgjafarverk- fræðingafélagi íslands og Matsmannafélagi íslands. Hann hefúr starfað í Odd- fellowreglunni frá 1990. Fjölskylda Rafn kvæntist 11.7. 1971 Hrafn- hildi Þorgrímsdóttur, f. 3.3. 1949, kennara, húsmóður og nema við FB. Hún er dóttir Þorgríms Guð- jónssonar, f. 18.11. 1920, d. 14.4. 1985, heildsala og húsasmíðameistara í Reykjavík, og Lilju Björnsdóttur, f. 12.3. 1921, húsmóður. Böm Rafhs og Hrafnhildar era Ásdís Margrét Rafnsdóttir, f. 11.4. 1975, hjúkranarfræðinemi í Reykja- vik, gift Njáli Líndal Marteinssyni, starfsmanni á leikskóla; Ólafur Þór Rafnsson, f. 6.11. 1976, nemi I FB. , Alsystkini Rafhs era Einar Krist- ján ísfeld Kristjánsson, f. 25.7. 1946, d. 12.3. 1987; Margrét Sigríður Krist- jánsdóttir Duncombe, f. 6.12. 1953, skrifstofumaður og húsmóðir í Sale á Englandi. Hálfsystir Rafns, sammæðra, er Rós Ólafsdóttir, f. 16.4. 1938, hús- móðir í Reykjavík. Hálfsystir Rafns, samfeðra, er Heiðrún Kristjánsdóttir, f. 27.6.1942, bóndi og húsfreyja í Svansvík við ísafjörð við Djúp. Foreldrar Rafns vora Þórarinn Kristján Benediktsson, f. 20.4. 1919, d. 21.3. 1991, rafvirkjameistari, og Þórunn Ólöf Kristjánsdóttir ísfeld, f. 6.4. 1916, d. 29.5. 1995, húsmóðir. Rafn og Hrafnhildur taka á móti ættingjum og vinum í Borgartúni 17 í kvöld milli kl. 18.00 og 20.00. Rafn Kristjánsson. Oddgeir S. Júlíusson Oddgeir Sigurberg Júlíusson verkstjóri, Þórufelli 10, Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Oddgeir fæddist i Selsgarði á Álftanesi, ólst upp í Hafnarfirði fyrstu sex árin og síðan að Amar- stapa á Snæfellsnesi. Hann stund- aði sjómennsku á Arnarstapa en flutti til Reykjavíkur 1947 þar sem hann stundaði sjómennsku, var síðan bifvélastjóri á þungavinnu- vélum og loks verkstjóri hjá Kex- verksmiðjunni Frón Fjölskylda Fyrri kona Oddgeirs var Krist- jana ísleifsdóttir. Þau skildu. Böm Oddgeirs og Kristjönu era Ágúst Gunnar, f. 9.11. 1957, lang- ferðabílstjóri í Ólafsvík, kvæntur Kristbjörgu Sæunni Ágústsdóttur húsmóður og eiga þau þrjú böm; Sigrún Júlia, f. 8.3. 1959, iðnverkakona í Dan- mörku, gift Gunnari Skarphéðinssyni og á hún flóra syni. Seinni kona Oddgeirs er Guðbjörg Bryndís Sig- fúsdóttir, f. 30.5. 1935, húsmóðir. Hún er dóttir Sigfúsar Gunnlaugssonar ökukennara, og k.h., Mar- íu Brynjólfsdóttur. Dóttir Guðbjargar Bryndísar er María Sif, f. 4.11. 1957, verslunar- maður í Reykjavík, gift Þorgeiri Hjartarsyni sjómanni. Systkini Oddgeirs: Sigvaldi Kristinn, nú látinn, verslunarmað- ur í Reykjavík; Sólmundur Gunn- ar, nú látinn, sjómaður í Ólafsvík; Áslaug Klara, húsmóðir í Reykjavík; Sólbjartur, starfsmaður hjá Ölgerð Egils Skalla- grímssonar, búsettur í Reykjavík; Hörður, verkamaður á Akranesi; Halldór Rúnar, nú látinn, sjómaður í Súðavík; Hilmar, fyrrv. lögreglu- þjónn í Ólafsvík; Hjálm- týr Ragnar, skoðunarmaður á Sel- fossi; Jón Guðbjöm, verkstjóri í Ólafsvík; Hulda, húsmóðir i Kefla- vík; Róbert, bílstjóri á Akranesi. Foreldrar Oddgeirs; Júlíus Sól- bjartsson, f. 24.7. 1897, d. 9.7. 1977, bóndi á Grand, og k.h., Ágústa - Guðrún Sigurbergsdóttir, f. 14.8. 1905, d. 25.12. 1984, húsfreyja. Oddgeir Sigurberg Júlíusson. DV Til hamingju með afmælið 6. febrúar 90 ára Sigríður Sæmundsdóttir, Melhaga 11, Reykjavík. Guðríður Bjamadóttir, Sólvangi, Hafnarfirði. 85 ára Bjöm Jóhannesson, Barónsstíg 53, Reykjavík. 75 ára Ragnar Þorsteinsson, Engjaseli 70, Reykjavík. 70 ára Guðrún Lilja Dagnýsdóttir, Hraunbæ 114, Reykjavík. Oddgeir S. Júlíusson, Þórufelli 10, Reykjavík. 60 ára Einar Halldór Gústafsson, Bláskógum 13, Reykjavik. Karl Sesar Sigmundsson, Austurbergi 34, Reykjavík. Helga Þóra Jakobsdóttir, Engihjalla 1, Kópavogi. Þuríður Sigurjónsdóttir, Vatnsnesvegi 30, Keflavík. Dóra Jóhannesdóttir, Holti, Dalabyggð. Sigurgeir Ormsson, Arnarfelli 2, Eyjafjarðarsveit. 50 ára Rannveig Halldórsdóttir, Spóahólum 10, Reykjavik. Erlendur Sigurðsson, Laugateigi I, Andakílshreppi. Jóhann Jónsson, Bröttugötu 27, Vestmannaeyjum. 40 ára Edda Lilja Sveinsdóttir, Melbæ 20, Reykjavík. Anna Sigurðardóttir, Fífurima 38, Reykjavík. Kristján Þór Guðmundsson, Breiðvangi 30, Hafnarfirði. Anna Ragna Benjamínsdóttir, Hlíðargötu 20, Sandgerði. Guðbjörg Inga Jósefsdóttir, Laugargötu 2, Akureyri. aukaafslátt af smáauglýsingum DV Smáauglýsingar ILe^AÉl 550 5000 Ættfræðigreinar síðustu 10 ára eru á www.dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.