Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1998, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1998
23
Iþróttir
Vetrarólympíuleikarnir í Nagano:
Alsgaard sterkur
á lokasprettinum
- háði harða keppni við Björn Dæhlie
lv*iOF..
19 9 8
15 km ganga karla:
1. Thomas Alsgaard, Noregi . 1:07,01
2. Björn Dæhlie, Noregi.....1:07,02
3. Vladimir Smirnov, Kazakhs.l:07,31
Norræn alpatvíkeppni karla:
1. Bjarte Engen Vik ........Noregi
2. Samppa Lajunen ......Finnlandi
3. Valery Stolyarov.....Rússlandi
500 metra skautahlaup kvenna:
1. Catriona Doan, Frakklandi 1:16,93
2. Susan Auch, Kanada.......1:16,93
3. Tomomi Okazaki, Japan . . 1:17,10
Sleðabrun - tvimenningur:
1.-2. Huber/Tartaglia, Ítalía . 3:37,24
1.-2. Lueders/MacEacher, Kan 3:37,24
3. Langen/Zimmerman, Þýsk. 3:37,89
4. Reich/Gran, Sviss.......3:38,15
1500 metra skautahlaup karla:
1. Ids Postma, Hollandi....1:10,64
2. Jan Bos, Hollandi ......1:10,71
3. Hroyasu Shimizu, Japan .. 1:11,00
Skíöastökk - 120 m pallur:
1. Kazuyoshi Funaki, Japan . . . 272,3
2. Jani Soininen, Finnlandi . . . 260,8
3. Masahiko Harada, Japan . . . 258,3
7,5 km skíöaskotfími - kvenna:
1. Galina Kuokleva .....Rússlandi
2. Ursula Disl..........Þýskalandi
3. Katrin Apel..........Þýskalandi
Curling (ískurl) - kvenna:
1. Kanada
2. Danmörk
3. Svíþjóð
Tveir Norðmenn háðu harða
keppni um guUverðlaunin í 15 km
göngu karla með frjálsri aðferö.
Bjöm Dæhlie hafði lengi vel foryst-
una í göngunni en landi hans Thom-
as Alsgaard var aldrei langt undan.
Það var á síðustu metrum göngunn-
ar sem Alsgaard sýndi styrk sinn,
en hann þykir mjög sterkur á loka-
sprettum en þar hefur Dæhlie alltaf
þurft að lúta í lægra haldi fyrir Als-
garrd.
Alsgaard er ein bjartasta von
Norðmanna enda ungur að ámm og
á framtíðina fyrir sér.
Björn Dæhlie, sem unnið hefur til
sex gullverðlauna á vetrarólympíu-
leikum, á enn möguleika að verða
fyrstur til að vinna sjö gullverðlaun
en á leikunum í Nagano á eftir að
keppa í boðgöngunni og 50 km
göngu en hún verður háð á lokadegi
leikanna.
Vladimir Smimov náði í kær-
komin bronsverðlaun í göngunni.
Hann hefur átt erfltt uppdráttar
undanfarið en hefur gengið vel í
Nagano. -JKS
Thomas Alsgaard eftir gönguna.
Sleðabrun karla - tvímenningur:
Skiptu með sér
Fátíður atburður átti sér stað í
sleðabruni í Nagano um helgina
þegar tvær sveitir skiptu með sér
gullverðlaununum í tvímenningi.
Kanadísku og ítölsku sveitimar
fengu nákvæmlega sama tímann
en svo jöfn keppni hefúr ekki sést
lengi á ólympíuleikum.
Fyrir flórðu og síðustu ferðina
skildu aðeins 0,03 sekúndur sveit-
irnar að, en í lokin stóðu þær
hníflafnar í tímatöku.
Gunther Huber, sem var í
ítölsku sveitinni, hreppti brons-
gullinu
verðlaun á leikunum í Lille-
hammer fyrir flórum ámm síðan.
Þýska sveitin krækti i brons-
verðlaun en hún var skammt á eft-
ir ítölsku og kanadísku sveitinni.
-JKS
NJ ÁfZ Á N.1
! 9 9 8
Curling (ískurl) - karla:
1. Sviss
2. Kanada
3. Noregur
Danir unnu sín fyrstu verðlaun
á vetrarólympíuleikum þegar
kvennasveit þeirra hreppti silf-
urverðlaun í curling. Dönsku
stúlkurnar töpuðu fyrir Kanada
í úrslitaleik 7-5.
Risastórsvigi karla varð að
fresta í fimmta sinn í fyrrinótt
og fer mótshöldurum úr þessu
ekki að standa á sama.
Komiö hefur til tals að færa
alpagreinamar í annað flall í
Nagano en ákvörðun um það
verður ekki tekin fyrr en þolin-
mæði mótshaldara þrýtur.
Samkvœmt verðurspám er útlit
fyrir að veðrið taki breytingum í
dag. Veðurfræðingar sögðu í gær
að það myndi létta til og úrkom-
unni myndi létta.
Keppendur sem hafa samanburð
á umgjörð leikanna frá Lil-
lehammer og núna í Nagano
fannst hún allt önnur og betri í
Noregi. Kunnugir segja að leik-
arnir í Lillehammer hafi verið
engum líkir.
Brynja Þorsteinsdóttir frá Ak-
ureyri keppir fyrst íslensku
keppendanna á leikunum i dag.
Hún keppir í alpatvikeppni ef
veður leyfir!
Japanirnir Kazuyoshi Funaki og Masahiko brosa sínu breiðasta með gull- og
bronsverðlaun um hálsinn. Mynd-Reuter
Skíðastökkskeppnin af 120 metra palli:
Japanir í skýjunum
með gull og brons
„Eftir keppnina af 90 metra pall-
inum kom ekkert annað en sigur til
greina. Ég er búinn að stefna að
þessu lengi og þetta er stórkostleg
stund á mínum ferli,“ sagði Kazu-
yoshi Funaki eftir glæsilegan sigur
í keppni af 120 metra í skíðastökks-
keppni ólympiuleikanna.
Japanska þjóðin fylgdist með sín-
um mönnum með öndina í hálsin-
um og þeir gátu verið ánægðir með
sína menn því Masahiko Harada
vann einnig bronsverðlaunin. Jap-
anir voru að vonum í skýjunum
með þennan árangur.
Finninn Jani Soininen, sem vann
á 90 metra pallinum, krækti í silfur.
Eftir fýrri umferðina stefndi allt í
sigur Andreas Widhölzl, en hann
náði sér ekki á strik í seinna stökk-
inu og varð að gera sér flórða sætið
að góðu.
-JKS
Ids Postma á fullri ferð 1100 metra
hlaupinu. Mynd-Reuter
Skautar:
Postma setti
ólympíumet
Ids Postma undirstrikaði styrk
Hollendinga á skautasvellinu þegar
hann innbyrti önnur gullverðlaunin
sem Hollendingar vinna í Nagano.
Hinn 24 ára gamli Postma setti
ólympíumet í 1000 metra skauta-
hlaupi. Postma varð á undan landa
sínum, Jan Bos, en sá er heims-
meistari í greininni og hefur verið
sterkastur á þessari vegalengd í
nokkum tíma.
-JKS
Alpagreinar á Ólympíuleikunum í Nagano
Alpagreinar skiptast í tæknilegar
greinar
Búningur svigskíðamanna ver höfuð,
handleggi, kálfa og hné. Margir verja
hendurnar fyrir stöngunum sem þeir skíða
framhjá.
Hraðagreinar
Keppendur í bruni nota sérstakan
hlífðarbúning sem er straumlínulagaður,
hjálm og púða til aö vernda hrygginn og
bakið.
Brunbrautirnar í Nagano eru 3 km langar, þar á meðal þrjú
stökk og beygjur á miklum hraða.
Fjöldi hliða: Hliöin eru
notuö til aö leiöa keppendur frá hættulegum
svæöum og hafa stjórn á hraöanum.
Fallhæð
Konur: 780 m. Karlar 840 m.
Risasvig
Risasvig sameinar hraða brunsins og tækni stórsvigsins
en aðeins er tekinn tími á einni ferð.
Fjöldi hliöa:
Lágmark 35 fyrir karla, 30 fyrir konur og allt aö
10% af fallhæöinni i metrum.
Fallhæö:
Konur 580 m, karlar 560 m
Opin hliö eru 6-8 m breið. Blind hliö
eru 8-12 m. 25 m eru á milli hliðanna.
Tæknigreinar
í svigi og stórsvigi er tekinn
samanlagður tími í tveimur
ferðum á mismunandi brautum
til að reyna á mismunandi tímatækni
Svig
Fjöldi hliöa
Karlar 55-75
Fallhæö:
Konur: 200 m
Hliöin eru
4-6 m breið
ogerbiliö ámilli
þeirra0,75m- 15 m
Stórsvig
Fjöldi hliöa:
Milli 12 og 15% af fallhæöinni í
metrum.
Fallhæð:
Konur: 386 m